Fréttablaðið - 26.09.2016, Síða 46

Fréttablaðið - 26.09.2016, Síða 46
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sigurður Kristinn Sighvatsson lést á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi 17. september 2016. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 28. september kl. 13.30. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Kumbaravogs fyrir frábæra umönnun. Guðbjörg Sigurðardóttir Kristinn Ólafsson Hilmar Þór Sigurðsson Hulda Guðmundsdóttir Hjalti Sigurðsson Ragnheiður Jóna Högnadóttir Helgi Þröstur Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. Merkisatburðir 1161 Guðmundur góði Arason Hólabiskup fæddist. 1915 Afhjúpaður minnisvarði við Stjórnarráðshúsið um Kristján 9. konung á afmælisdegi Kristjáns 10. 1942 Ríkið leggur niður einkasölu sína á bílum, sem það hafði haft í sjö ár. 1948 Olivia Newton-John, leik- og söngkona, í heiminn borin. 1959 Metúrkoma mælist á einum sólarhring í Reykjavík, 49,2 milli- metrar. 1960 Harold Macmillan, forsætisráðherra Breta, kemur við á Kefla- víkurflugvelli og ræðir við Ólaf Thors um landhelgismálið. 1962 Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur fæðist. 2006 Á bilinu 10-15 þúsund manns fara í mótmælagöngu niður Laugaveg til þess að mótmæla stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar. 2008 Gengisvísitala íslensku krónunnar fer upp í 183,91 stig og krónan hafði aldrei verið lægri. 2008 Bandaríski leikarinn Paul Newman deyr. Abbey Road, breiðskífa Bítlanna, kom út þennan dag árið 1969. Platan var sú síðasta sem Bítlarnir tóku upp en hún kom þó út á undan plötunni Let It Be. Fyrsta lag plötunnar er lag sem John Lennon samdi og heitir Come Togehter. Á alfræðivefnum Wikipedia segir að hann hafi samið lagið upphaflega til að styðja framboð Timothy Leary til ríkisstjóra Kaliforníu, en ekkert hafi orðið af því framboði og Lennon hafi því endurunnið lagið fyrir plötuna Wikipedia segir að jafnvel þótt Abbey Road hafi strax notið mikilla vinsælda meðal almennings hafi gagnrýnin verið misjöfn. Í dag telja hins vegar margir gagnrýnendur að þetta sé besta plata Bítlanna. Platan seldist í fjórum milljónum eintaka fyrstu tvo mánuðina eftir að hún kom út. Hún fór strax í fyrsta sæti á lista yfir söluhæstu plötur í Bretlandi og var þar í ellefu vikur þangað til að plata Roll- ing Stones, Let It Bleed, kom út. Hún skaust síðan aftur upp á toppinn og var í fyrsta sæti í sautján vikur samanlagt. Platan fékk einnig mjög góðar viðtökur utan Bretlands, í Bandaríkjunum og víðar. Þ etta g e r ð i st : 2 6 . s e p t e m b e r 1 9 6 9 Bítlarnir gefa út Abbey Road evrópski tungumáladagurinn er hald- inn hátíðlegur í dag. af því tilefni mun stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, og fleiri aðilar efna til dagskrár í Hátíðar- sal Háskóla Íslands klukkan fjögur. auður Hauksdóttir, forstöðumaður stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og prófessor í dönsku, segir að til- gangurinn sé að minna á mikilvægi tungumála og fyrir menningarlegan fjölbreytileika. „Þetta er árlegur viðburður og stofnunin hefur alltaf minnst hans með dagskrá,“ segir auður. sjónar- hornið hafi þó ekki alltaf verið það sama. „stundum hefur verið fjallað um tungumálakennsluna og stöðu hennar í skólakerfinu. Það var gert í fyrra og þá var verið að fjalla um hvaða áhrif stytting framhaldsskólans myndi hafa á tungumálakennslu í framtíðinni,“ segir auður. Núna sé sjónum beint sérstaklega að þýðingum. guðmundur andri thorsson muni fjalla um þýð- ingar thors Vilhjálmssonar, föður síns, og guðbergur bergsson mun fjalla um eigin þýðingar. auður segir að tungumálakunnátta skipti verulegu máli og nefnir Vigdísi Finnbogadóttur sjálfa sem dæmi um það. „Hún lærir fimm erlend tungumál í skóla og verulega sér til gagns. Hún fer í nám í frönsku í Háskólanum,“ segir auður en bendir líka á að þýskukunn- átta hafi hér á árum áður skipt miklu máli fyrir marga. til dæmis fyrir verk- fræðinga. „Það var alveg alvöru undir- búningur til þess að fara í nám til Þýska- lands í verkfræði eins og margir gerðu.“ auður segir að staða þriðja málsins, þýsku, frönsku eða spænsku, sé gjör- breytt og búið að þrengja að því. „Þetta breytir menningarmynd okkar algjör- lega til lengri tíma litið. Þetta er svo- lítið að færast í sama horf aftur og var fyrir 1800 þegar latínan ein réð ríkjum. Núna er það eiginlega enskan sem ræður ríkjum,“ segir auður. Þetta hafi gífurlega mikil áhrif á það hvað við vitum um önnur lönd og menningu annarra þjóða og hvaða tækifæri við höfum til þess að sækja okkur menntun og eiga viðskipti við aðrar þjóðir. „Ég er til dæmis nokkuð viss um það að hafi ekki komið til dönskukunnátta, þótt hún mætti gjarnan vera meiri, þá hafi ekki verið eins álitlegur kostur fyrir þessa fjölmörgu Íslendinga sem sóttu sér lífsviðurværi til Noregs í hruninu að fara þangað.“ jonhakon@frettabladid.is Prófessor telur verulega þrengt að þriðja málinu Haldið verður upp á evrópska tungumáladaginn með hátíðardagskrá í Háskóla Íslands í dag. Forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur segir að tungumál skipti veru- legu máli fyrir viðskipti og menntun. Verulega sé búið að þrengja að þriðja tungumálinu. Auður Hauksdóttir er forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Stofnunin er á meðal þeirra sem standa að evrópska tungumála- deginum sem fagnað er með hátíðardagskrá í Háskóla Íslands. FréttAblAðið/Eyþór Ég er til dæmis nokkuð viss um það að hafi ekki komið til dönskukunnátta, þótt hún mætti gjarnan vera meiri, þá hafi ekki verið eins álitlegur kostur fyrir þessa fjölmörgu Íslendinga sem sóttu sér lífsviðurværi til Noregs í hruninu að fara þangað 2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á N U D A G U r14 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð tÍmamót 2 6 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A A E -3 D 9 0 1 A A E -3 C 5 4 1 A A E -3 B 1 8 1 A A E -3 9 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.