Fréttablaðið - 14.09.2016, Side 6

Fréttablaðið - 14.09.2016, Side 6
dýrahald „Af fyrirliggjandi gögnum máls má ráða sem svo að dýrið hafi verið á flótta frá kvalarstað og verið að leita sér skjóls og matar,“ segir í bréfi um rottweiler-tík sem tvær stúlkur fundu í Kópavogi um miðjan júní. Ofangreind tilvitnun er úr bréfi heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis til atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins um aðstæður tíkurinnar og viðbrögð annarra stofnana í málinu. Maður á leið úr vinnu á Smiðju- vegi ræddi við stúlkurnar sem fundu tíkina. Þær sögðu hana veika og ekki geta gengið. „Stúlkurnar höfðu reynt að fá aðstoð lögreglu við að sinna tíkinni en munu ekki hafa fengið nein við- brögð við þeirri bón,“ segir í bréfinu. „Úr varð að borgarinn tók tíkina með sér heim þar sem hann sinnti henni næstu daga. Tíkin var í fyrstu mjög lasburða, með blóðugar hægðir og þvag.“ Þá segir að „borgarinn“ hafi farið með tíkina á dýraspítala og reynt að hafa upp á eigandanum en ekki tek- ist. Tíkin var þó örmerkt. Að fjórum dögum liðnum hafi hann snúið sér til heilbrigðiseftirlitsins sem hafi komið skepnunni fyrir í hundaathvarfi. Sér- fræðingar Matvælastofnunar hafi skoðað dýrið og talið það vanrækt og ekki eiga að fara til eiganda síns. Tíkin var grindhoruð. Heilbrigðisnefndin segir ýmis- legt athugavert við atburðarásina og segist vilja koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum um „við- brögð og vinnubrögð lögreglu“ og um þá ákvörðun Matvælstofnunar að beita eiganda hundsins ekki vörslu- sviptingu. „Ungar stúlkur finna sjúkt dýrið og reyna, að sögn, að ná sambandi við lögreglu. Aðstoð er neitað samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir liggja. Fyrir hönd sveitarfélagsins er lýst alvarlegum áhyggjum vegna þessa,“ segir í bréfi heilbrigðisnefndar sem bað ráðuneytið að skoða meðferð málsins og beita sér fyrir úrbótum. „Verður að telja það sérstaklega ámælisvert að tilkynning um sært dýr sem berst lögreglu frá börnum sem eru langt undir átján ára aldri skuli hafa verið látin afskiptalaus.“ Þá segir að eini möguleiki sveitar- félagsins sé að afhenda dýrið þeim sem telji sig umráðamann og gefi sig fram. Til þess kom þó ekki. „Dýrið var svo sjúkt að því varð ekki bjargað þrátt fyrir að því hefði verið komið í fóstur,“ svarar Guð- mundur H. Einarsson, framkvæmda- stjóri heilbrigðiseftirlitsins, aðspurð- ur um afdrif tíkurinnar. Atvinnu- og nýsköpunarráðu- neytið segist í bréfi til heilbrigðis- nefndar ekki vilja svara um þetta mál sérstaklega en kveður hlutverk stofnana skýr í lögum. Lögregla eigi að taka við tilkynningum um dýr sem eru sjúk, særð, í sjálfheldu eða bjargarlaus. „Lögreglu er þá skylt að kalla til dýralækni ef ástæða er til,“ segir ráðuneytið. Matvælastofnun eigi að hafa eftirlit og grípa til ráð- stafana. gar@frettabladid.is Gagnrýna sinnuleysi gagnvart kvalinni tík Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis er ósátt við framgöngu lög- reglu og Matvælastofnunar í máli sjúkrar og horaðrar tíkur sem virtist hafa flúið kvalafulla vist hjá eigandanum. Ráðuneyti segir hlutverk þeirra skýr í lögunum. Ekki reyndist unnt að fá mynd af hinni umtöluðu rottweiler-tík en hér má sjá hunda af sömu tegund. Nordicphoto/GEtty Múslimar og hindúar deila enn á ný Tveir eru látnir og minnst þrjátíu særðir eftir átök milli múslima og hindúa í Kasmírhéraði á síðustu dögum. Útgöngubann er í gildi í héraðinu. Því komast múslimar ekki til bæna en Eid al-Adha hátíðin stendur nú yfir. Indland og Pakistan hafa deilt um yfirráð í héraðinu frá stofnun ríkjanna og erjur milli trúarhópa verið viðvarandi ástand allt frá lokum seinna stríðs. Fréttablaðið/Epa Verður að telja það sérstaklega ámælis- vert að tilkynning um sært dýr sem berst lögreglu frá börnum sem eru langt undir átján ára aldri skuli hafa verið látin afskiptalaus. Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Hljóðritasjóði. Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist. Veittir eru styrkir til hljóðritunar nýrrar frumsaminnar tónlistar sem stuðla á að nýsköpun. Hljóðritin skulu kostuð af íslenskum aðilum eða vera samstarfsverkefni íslenskra og erlendra aðila. Umsóknarfrestur fyrir árið 2016 rennur út 10. október kl. 17.00. Upplýsingar og umsóknargögn eru að finna á www.rannis.is. Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi. Stjórn Hljóðritasjóðs Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík Netfang: hljodritasjodur@rannis.is H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Umsóknarfrestur til 10. október Hljóðritasjóður Ferðaþjónusta Gjaldtaka í Hall- grímskirkjuturni er gott dæmi um fyrirkomulag þar sem ferðamenn greiða fyrir þá uppbyggingu sem þeir þar njóta. Áætlað er að tekjur Hallgrímskirkju verði um 200 millj- ónir í ár og er fjárfreku viðhaldi sinnt meðal annars með tekjunum sem koma við hliðið. Fjölmargir ferðamannastaðir á Íslandi þurfa mikla fjármuni enda reynir hin mikla fjölgun ferðamanna á Íslandi mjög á marga af vinsælustu ferða- mannastöðum Íslands. „Vissulega er munur á kirkju- byggingum og náttúruperlum en þó eiga svipuð lögmál við hvað varðar ágang og kostnað við viðhald,“ segir Óttar Snædal hjá SA. „Við gjaldtöku myndast fjármagn sem hægt er að nota til viðhalds. Eins og sést í Hall- grímskirkju þá virkar gjaldtaka vel því hún aðgangsstýrir annars vegar og skilar tekjum til uppbyggingar hins vegar.“ – bb Kirkjan er gott fordæmi Við gjaldtöku myndast fjármagn sem hægt er að nota til viðhalds. Óttar Snædal hjá SA samFélag Um síðustu mánaðamót höfðu 384 hælisleitendur sótt um vernd hér á landi. Það er rúmlega tvöföldun frá slíkum umsóknum samanborið við sama tíma í fyrra. Þá höfðu 156 umsóknir borist. Það sem af er ári hefur Útlend- ingastofnun afgreitt 402 mál. Lauk 64 málum með vernd, viðbótar- vernd eða mannúðarleyfi, 144 ein- staklingum var synjað um dvalar- leyfi og 143 hafa verið sendir úr landi á grundvelli Dyflinnarreglu- gerðarinnar. Langstærstur hluti umsækjenda um vernd er frá Albaníu eða rúm- lega einn af hverjum fjórum. Af 106 albönskum einstaklingum eru 72 fullorðnir karlar. Næstflestir umsækjendur eru frá Makedóníu og Írak eða um fjörutíu frá hvoru landi. – jóe Hátt í þrefalt fleiri vilja vernd Sprenging hefur orðið í hælisum- sóknum. Fréttablaðið/GVa 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m I ð V I K u d a g u r6 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð 1 4 -0 9 -2 0 1 6 0 3 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 F -C F 6 C 1 A 8 F -C E 3 0 1 A 8 F -C C F 4 1 A 8 F -C B B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.