Fréttablaðið - 14.09.2016, Page 10

Fréttablaðið - 14.09.2016, Page 10
ÚTSALANR ISA LÝKUR Á LAUGARDAG AFSLÁTTUR! 20-60% H E I L S U R Ú M A R G H !!! 1 30 91 6 #1 5 Kæli- og frystiskápur „VitaFresh“-skúffur. „NoFrost“-tækni. Lyktarsía. H x b x d: 186 x 60 x 66 sm. Fullt verð: 159.900 kr. Tækifærisverð (hvítur): KGN 36XW35 127.900 kr. A Ryksuga Orkuflokkur B. Útblástur A. Parkett og flísar, flokkur D. Teppi, flokkur E. Fullt verð: 19.900 kr. Tækifærisverð: VS 06B120 15.900 kr. Tækifæri Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Rakavarnarplast og þéttiefni á frábæru verði Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Raka- og vatnsþéttiefnin frá Múrbúðinni eru vottuð hágæða vara á sérlega hagstæðu verði. Rakaþolplast 0,2 mm Stærð 4x25metrar= 100m2 kr. 11.990 Bostik Folien rakavarnarlím 315 g kr. 1.195 Bostik/Heydi K11 þéttimúr kr. 4.290 Tjöru þéttiefni ALFA rakavanar- vörur Bandaríkin Breytingar á bandarísku þjóðinni undanfarin ár og áratugi endurspeglast með ólíkum hætti í fylgi stóru stjórnmálaflokkanna tveggja, Repúblikanaflokksins og Demókrataflokksins. Bandarískt þjóðfélag hefur almennt þróast í þá áttina að meðal­ aldur hefur hækkað, menntun hefur aukist, trúhneigð hefur minnkað og þjóðerniseinsleitni hefur minnkað. Samkvæmt nýrri athugun frá Pew Research Center hefur kjósendahóp­ ur Demókrataflokksins fylgt þessari þróun hraðar en landsmeðaltalið, en kjósendahópur Repúblikana­ flokksins hefur hins vegar dregist aftur úr. Þannig hafa kjósendur Demókrata­ flokksins orðið menntaðri hraðar og trúhneigð þeirra hefur minnkað hraðar en landsmeðaltalið, auk þess sem hlutfall hvítra hefur minnkað hraðar. Kjósendur Repúblikana hafa aftur á móti orðið menntaðri hægar og trú­ hneigð þeirra hefur minnkað hægar en landsmeðaltalið, auk þess sem hlutfall hvítra hefur minnkað hægar. Þessu er þó öfugt farið með aldur­ inn, því kjósendahópur Demókrata hefur elst hægar en landsmeðaltalið á meðan kjósendahópur Repúblikana hefur elst hraðar. Þetta hefur þó ekki breytt því að enn segjast 48 prósent skráðra kjós­ enda hneigjast til að kjósa Demókrata og 44 prósent segjast hneigjast til að kjósa Repúblikana. Þessi hlutföll hafa haldist óbreytt síðan 2012. – gb Kjósendahóparnir verða æ ólíkari í Bandaríkjunum Ungverjaland Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemborgar, segist vilja reka Ungverjaland úr Evrópusambandinu. Ástæðan er ekki síst hin harða stefna Ungverja­ lands gagnvart flóttafólki. „Við getum ekki fallist á að brotið sé í stórum stíl gegn grundvallargildum Evrópusambandsins,“ segir Allesborn í viðtali við þýska dagblaðið Die Welt. „Þeir sem hafa eins og Ungverjar reist girðingar gegn flóttafólki eða brotið gegn fjölmiðlafrelsi og sjálfstæði dómstóla, þeim ætti að víkja tíma­ bundið eða ef þörf krefur til fram­ búðar úr Evrópusambandinu.“ Hann segir að í Ungverjalandi fái fólk, sem sé að flýja stríð, næstum því verri meðferð en dýr. Girðingin verði sífellt lengri, hærri og hættulegri og ekki sé langt í að gefin verði út skip­ un um að skjóta á flóttafólk: „Allir sem reyna að komast yfir girðinguna verða að reikna með því versta.“ Þann 2. október verður efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um stefnu stjórnarinnar í málefnum flótta­ fólks. Þar verða kjósendur spurðir hvort þeir styðji ekki þær fyrirætl­ anir Viktors Orbán, forsætisráð­ herra Ungverjalands, að neita að hlíta ákvörðun Evrópusambandsins um að Ungverjar taki, eins og önnur ESB­ríki, við ákveðnum fjölda hælis­ leitenda í ár. Í hlut Ungverjalands koma aðeins 1.294 hælisleitendur, samkvæmt kvótakerfi ESB. Stjórnin hefur vikum saman hvatt fólk til að kjósa og hafna kvótatil­ skipuninni þar sem óspart er höfðað til ótta fólks við útlendinga. Þar hefur stjórnin varpað fram spurningum af þessu tagi: „Vissirðu að Evrópusambandið vill setja jafn­ gildi heillar borgar af ólöglegum inn­ flytjendum niður í Ungverjalandi?“ og „Vissirðu að frá því innflytjenda­ kreppan hófst hefur áreitni gegn konum aukist verulega í Evrópu?“ Stjórn Orbans hyggst setja upp nýja girðingu meðfram landamær­ um Serbíu, til viðbótar þeirri sem nú þegar hefur verið sett upp. Þetta er gert til þess að Ungverjar verði nú örugglega viðbúnir fari svo að samningur ESB við Tyrkland verði að engu. gudsteinn@frettabladid.is Vill Ungverjaland úr Evrópusambandinu Forsætisráðherra Lúxemborgar segir meðferð Ungverja á flóttafólki verða sífellt verri. Ungverjar búa sig nú undir þjóðaratkvæðagreiðslu um stefnu stjórnarinn- ar. Þarlend yfirvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir ómannúðlega meðferð. Girðingin rammgerða sem reist var á síðasta ári meðfram landamærum Serbíu til að halda flóttafólki úti. Fréttablaðið/EPa Kjósendur Demókrata eldast og menntast hraðar en kjósendur repúblikana. Við getum ekki fallist á að brotið sé í stórum stíl gegn grundvallar- gildum Evrópusambandsins Jean Asselborn, utanríkisráðerra Lúxemborgar. 1 4 . s e p t e m B e r 2 0 1 6 m i Ð v i k U d a g U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 1 4 -0 9 -2 0 1 6 0 3 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 F -B 6 B C 1 A 8 F -B 5 8 0 1 A 8 F -B 4 4 4 1 A 8 F -B 3 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.