Fréttablaðið - 14.09.2016, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Stuttmynda- og tónlistarhá-tíðin Northern Wave fer fram í níunda sinn 21. til 23. október.
Hátíðin hefur frá upphafi verið
haldin á Grundarfirði á Snæfellsnesi
en hefur nú verið færð í Frystiklef-
ann á Rifi sökum skorts á gistirými.
Þetta er í annað sinn sem Northern
Wave er færð vegna vöntunar á gisti-
rými.
Kvikmyndagerðarkonan og fram-
leiðandinn Dögg Mósesdóttir er
stofnandi Northern Wave. Hún er
fædd og uppalin á Grundarfirði og
setti hátíðina á fót í samvinnu við
Menningarsjóð Vesturlands á sínum
tíma í þeim tilgangi að efla menn-
ingarlíf bæjarins og laða að gesti
utan hins hefðbundna ferðamanna-
tíma. Mikill viðsnúningur hefur nú
orðið og með auknu flæði ferða-
manna til landsins hefur reynst
erfiðara að hýsa gesti hátíðarinnar.
„Það er vissulega stúss að færa
heila hátíð fyrst um árstíma og núna
úr einu bæjarfélagi í annað, en að
sama skapi gefur það manni nýja
orku að prófa hátíðina við nýjan
bæ – það er næstum eins og ég sé að
halda hátíðina í fyrsta sinn – aftur,“
segir Dögg og hlær. „Mér finnst líka
skemmtilegt að opna enn frekar á
samskiptin milli bæjanna á Snæ-
fellsnesinu og um leið leggja mitt
af mörkum við að reyna að útrýma
þessum gamla ríg sem ríkir milli
þeirra.“
Dagskráin í ár býður upp á nokkr-
ar spennandi nýjungar, þar á meðal
vídeólistaverk og námskeið í hreyfi-
myndagerð fyrir grunnskólabörn.
Að sögn Daggar verður viðburðum
dreift meira um svæðið en áður
og verða námskeið meðal annars
haldin á Ólafsvík.
„Við munum leggja sérstaka
áherslu á vídeóverk í ár. Við höfum
ekki gert það áður því við höfum
ekki haft sal til þess en núna getum
við verið með sýningar í tveimur
sölum og því boðið upp á fleiri og
öðruvísi sýningar. Hátíðin fer fram
sömu helgi og vetrarfrí grunnskól-
anna og dagskráin tekur mið af því
– við vonumst til að fjölskyldufólk
leggi leið sína til okkar.“
Frítt er inn á allar sýningar hátíð-
arinnar en vægt gjald rukkað inn á
aðra viðburði, líkt og námskeið og
böll. Áhugasamir geta skráð sig á
námskeiðin í gegnum heimasíðu
hátíðarinnar. sara@frettabladid.is
Northern Wave færð
í Frystiklefann á Rifi
Stuttmynda- og tónlistarhátíðin Northern Wave Film Festival fer
fram dagana 21. til 23. október. Hátíðin hefur verið færð í Frysti-
klefann á Rifi sökum skorts á gistirými á Grundarfirði.
Kvikmyndagerðarkonan og framleiðandinn Dögg Mósesdóttir er stofnandi Northern Wave. Hátíðin verður haldin í níunda
sinn þann 21. október. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Vinsælasti viðburður hátíðarinnar
er Fiskréttakeppnin, en þar keppa
einstaklingar og fyrirtæki um besta
fiskréttinn. Matreiðslumeistarinn
Hrefna Rósa Sætran hefur dæmt
keppnina undanfarin ár. Keppnin í
fyrra þótti sú besta frá upphafi og
reiddu keppendur fram fjölbreytta
og gómsæta fiskrétti fyrir gesti.
Í ár stendur til að fá veitingastaði á
svæðinu til að keppa við íbúa um
titilinn.
Keppa um besta
FisKRéttiNN
Það eR vissulega
stúss að FæRa heila
hátíð FyRst um áRstíma og
NúNa úR eiNu bæjaRFélagi í
aNNað.
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m I Ð V I K U D A G U rL í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
Í KVÖLD
KL. 20:10
NÝTT
365.is Sími 1817
Vandaðir þættir í umsjón Sindra Sindrasonar þar sem
hann fer víða um heiminn og skoðar sendiráðin, kynnist
sendiherrunum, mökum þeirra og starfsfólki.
Sendiráð Íslands
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
8
F
-B
6
B
C
1
A
8
F
-B
5
8
0
1
A
8
F
-B
4
4
4
1
A
8
F
-B
3
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K