Fréttablaðið - 21.05.2016, Page 28
vel. Í þeim tilvikum þurfi bara að
minna á sjónarmið fólks af erlendum
uppruna. Það eigi að fá að vera stolt
af uppruna sínum og fá tækifæri til
þess að halda í móðurmálið sitt.
„Það sem fólk lætur út úr sér
getur verið svo klikkað: Þú ert meiri
Íslendingur en margir aðrir, þú ert
bara búinn að vera aðeins of lengi
í sólinni. Fólk talar bara blátt áfram
eins og það besta í heimi sé að vera
Íslendingur. Fólk fattar ekki að ég
er jafn hvítur og ég er svartur. Ég lít
ekki á mig sem eitt eða neitt. Ég vil
bara fá að vera friði með það hvernig
ég lít út. Það er þessi hugsunarháttur
sem þarf að laga. Fólk á að fá að vera
stolt af því hvaðan það kemur, hver
saga þess er. Við erum ekki í keppni
um hver sé mesti Íslendingurinn,“
segir Unnsteinn.
Fjölskyldur grípi inn í líf rasista
Unnsteini finnst að fjölskyldur
þeirra sem beita kynþáttahatri eigi
að grípa inn í aðstæður. „Eitt það
versta sem þú getur verið kallaður
er kynþáttahatari, fólk hugsar um
þetta eins og óafmáanlegan stimpil,
eins og „barnaníðingur“ en það er
ekki rétt. Fólk getur aukið skilning
sinn. Mér finnst að fjölskyldur þessa
fólks ættu að grípa inn í aðstæður.
Mér fyndist það eðlilegast. Það er
sterkasta öryggisnetið, fjölskyldan.
Þú þarft til dæmis að vera mjög
óheppinn til að verða róni á Íslandi
ef þú átt góða að. Þú þarft virkilega
að hafa brennt allar brýr að baki
þér ef þú átt ekki þetta öryggisnet.
Fordómar koma einhvers staðar frá,
fólk þarf meiri fræðslu og það þarf
að hjálpa því að setja sig í spor ann
arra.“
Fluttu til Íslands vegna veikinda
Unnsteinn fæddist í bænum Aveiro
í Portúgal og bjó þar fyrstu fimm
árin. Faðir hans er íslenskur en móðir
hans er fædd í Angóla. „Mamma
flutti ellefu ára gömul til Portúgals og
þar búa enn margir afrískir ættingjar
mínir. Pabbi starfaði við skipasmíðar
og innflutning á íslenskum saltfiski
til Portúgals. Við fórum alltaf til
Íslands í frí á sumrin, þangað til
veikindi mömmu settu strik í reikn
inginn,“ segir Unnsteinn frá.
Móðir hans glímdi við nýrnabilun
og þurfti læknisaðstoð. „Mamma
varð svo veik í einu fluginu. Þegar
við lentum þá kom Sveinn Rúnar
Hauksson, læknirinn okkar og guð
faðir Loga bróður míns, að vitja
hennar. Hann greindi henni frá því
að staðan væri alvarleg, hún væri að
missa nýrun. Við þrjú, ég mamma og
Logi, urðum eftir á Íslandi og flutt
um í miðbæinn til að vera nálægt
Landspítalanum. Pabbi þurfti að
fara aftur til Portúgals að sinna
rekstrinum.
Mamma þurfti að fara í blóð
skilun nokkrum sinnum í viku. Hún
fékk ígrætt nýra árið 2004 og það
virkaði til 2010. Svo fékk hún annað
nýra árið 2013 og það er enn í lagi.
Við bræðurnir fórum með henni í
flugi til Svíþjóðar um miðja nótt frá
Reykjavíkurflugvelli.“
Heilbrigðiskerfið að grotna niður
Unnsteinn segir veikindi móður
sinnar hafa gefið fjölskyldunni inn
sýn í íslenskt heilbrigðiskerfi. „Mér
varð það ljóst þegar mamma var
flutt í ígræðslu til Svíþjóðar hversu
lélegt íslenska heilbrigðiskerfið er
orðið. Samanburðurinn var slá
andi. Heilbrigðiskerfið okkar er að
grotna niður. Við erum með fólk í
heilbrigðisgeiranum sem er í heims
klassa. Af hverju er þá kerfið ekki
líka í heimsklassa?“
Hann segir enn og aftur stjórn
völd bera ríka ábyrgð. Stjórnmála
menn hafi beitt blekkingum til þess
að auka einkarekstur í heilbrigðis
kerfinu. „Það kostar ekki það mikið
fyrir Ísland að veita ókeypis heil
brigðisþjónustu. Eina ástæðan sem
ég sé fyrir þessum áróðri að það
kosti mikið er til að gefa einkaaðil
um svigrúm til rekstrar. Mér finnst
næstum því eins og það sé verið
að gera einhvers konar markaðs
hyggjutilraunir á grunnstoðum
íslensks samfélags. Þetta hafa
verið dýrar tilraunir, því lélegt heil
brigðiskerfi hefur nú þegar kostað
mannslíf,“ segir Unnsteinn og rifjar
upp fréttir liðinnar viku um nýja
læknastofu bandarískra hjarta
lækna í einkarekstri á Íslandi. „Ég
las viðtal um þessa nýju þjónustu
og í því kom fram að hún er fyrir
fólk sem sér sér ekki fært að standa
í röð.“ Hann fórnar höndum. „Það
er hræðilegt. Ástæðan fyrir því að
við fluttum til Íslands er sú að í
Portúgal hefðum við alltaf verið
aftast í röðinni. Nú stefnir í að það
verði svo hér.
Það þarf enginn að velkjast í
vafa um það að Ísland er ríkt land.
Sumum finnst mannréttindi vera
fólgin í því að fá að græða eins mikið
og mögulegt er. Mér finnst að mann
réttindi ættu að vera fólgin í því að
fá að vera fátækur. Við getum ekki
boðið komandi kynslóðum upp á
samfélag manna sem keppast við
að græða hver á öðrum.“
Aðstöðumunur í tónlistarnámi
Móðir bræðranna sendi þá í tón
listarskóla fljótlega eftir komuna til
Íslands. Hún vildi með því tryggja
þeim menntun sem kæmi þeim að
haldi. Unnsteinn segir innflytjendur
helst finna fyrir aðstöðumun þegar
kemur að menntun. Á Íslandi hafi
þeir efnameiri mun fleiri og betri
tækifæri þegar kemur að tónlistar
menntun.
„Skýrasta dæmið fyrir mér um
aðstöðumun er tónlistarnám á
Íslandi. Það hafa fáir innflytjenda
krakkar efni á því að fara í tónlistar
skóla. Tónlistarnám er hins vegar
besta mögulega nám fyrir krakka að
fara í. Það stuðlar að öguðum vinnu
brögðum. Þetta er líka ákveðin for
vörn.
Tónlistinni fylgir líka svo mikil
stærðfræði og rökhugsun. Það þarf
þjálfun til að gera eitthvað í tón
list,“ segir hann og veit hvað hann
talar um enda semur hann lang
flest lög hljómsveitarinnar Retro
Stefson.
Allt til alls í Garðabæ
„Mér finnst að það ættu allir að
komast í tónlistarnám frítt,“ segir
hann og minnist þess þegar hann
og fleiri úr Austurbæjarskóla fengu
að fara í rokksmiðju í Garðaskóla
í Garðabæ. Foreldrar krakkanna
voru búnir að innrétta stúdíó
fyrir krakkana í skólanum. Allt
til alls, gítarar, magnarar og góðir
tónlistar kennarar. Maður hálf
öfundaði þá að hafa svona mikið að
vinna með. Við ræddum við Pétur
tónlistarkennara eftir þessa heim
sókn og hann opnaði fyrir okkur
tónmenntastofuna í skólanum.
Við spiluðum líka með skólahljóm
sveitinni og nýttum allt það sem við
gátum. Við áttum hins vegar aldrei
neinar græjur fyrr en við fengum
plötusamning árið 2010. Þá fengum
við styrk og fórum mjög glaðir í
Hljóðfærahúsið og keyptum fullt af
græjum. Við höfum þurft að berjast
fyrir okkar,“ segir Unnsteinn.
Sveitarfélagið 101
Unnsteinn, bróðir hans Logi og stór
hópur sem hann starfar enn með
að tónlist fylgdist að í gegnum öll
skólastigin. Frá leikskóla til fram
haldsskóla.
„Við vorum öll börn innflytjenda,
öryrkja og leikara. Ég veit ekki hvort
það er þannig enn,“ segir Unnsteinn
og hlær. „Það var mjög fínt í Austur
bæjarskóla, svo fórum við í MH eftir
það. Við vorum á Grænuborg líka,
erum í raun risastór vinahópur sem
gekk í gegnum öll þessi skólastig
saman,“ segir Unnsteinn og segist
hafa sterkar taugar til 101 í Reykja
vík.
„Mér finnst að hverfið ætti að
vera sér bæjarfélag. Þar ríkir sér
stakur andi og það er mikið álag á
hverfinu.
Hverfið er talað niður. Þú mátt
eiginlega ekkert vera stoltur af því
að vera úr 101 Reykjavík. Logi bróðir
minn og nokkrir vinir okkar fóru
um daginn og fengu sér nýtt húðflúr,
„101“ á bringuna. Ég hreinlega þorði
það ekki og sá fyrir mér brösugar
sundferðir þegar ég er orðinn mið
aldra heimilisfaðir í Mosfellsbæ,“
segir Unnsteinn og hlær.
Hann hefur áhyggjur af þróun
miðborgarinnar.
„Mér finnst erfitt að hugsa um
það hvernig það á að vera fyrir mína
kynslóð að búa hér. Það er allt að
breytast. Hippaforeldrar okkar
eru búnir að henda okkur út til að
útbúa Airbnbíbúðir. Það er ekki
hægt að álasa þeim. Þetta gerir það
að verkum að það er enginn staður
fyrir okkur unga fólkið að búa á.
Hið opinbera verður að bregðast
við því,“ segir Unnsteinn og segir
þörf á því að grípa inn í til þess að
koma í veg fyrir að miðbærinn verði
snauður af mannlífi og menningu.
„Við erum að elta peningana,
verktakar og hóteleigendur hafa svo
mikið vægi. Það þarf að styðja við
samfélag þar sem býr fólk. Þrátt fyrir
það eru líka ótrúlega margir kostir
við aukinn fjölda ferðamanna, t.d.
fleiri veitingastaðir en það er líka
gott fyrir Íslendinga að sjá fleira fólk
af fleiri þjóðernum og blanda geði
við það,“ segir Unnsteinn.
Heppni að fæðast á Íslandi
Unnsteinn hefur getið sér gott orð
sem dagskrárgerðarmaður í sjón
varpi. Hann er einn umsjónar
manna Hæpsins, þáttar um sam
félagsleg málefni fyrir ungt fólk á
RÚV.
Starf Unnsteins í fjölmiðlum
hófst á sjónvarpsstöðinni Bravó.
Þar sá hann skamma hríð um
tónlistar og spjallþátt með Loga
bróður sínum. „Við fengum vini
okkar í heimsókn og spiluðum
tónlist. Sjónvarpsstöðin lagði upp
laupana tveimur mánuðum seinna
og þá leitaði ég til RÚV. Ég fór til
Skarphéðins Guðmundssonar,
dagskrárstjóra á RÚV, og spurði
hann hvort það væri möguleiki á
því að halda áfram í dagskrárgerð.
Hann bað mig um að skrifa lýsingu
á nokkrum þáttum fyrir ungt fólk
og þannig varð Hæpið til á blaði.
Honum leist vel á það.“
Hann og starfslið Hæpsins hafa
lagt mikla vinnu í gerð tvöfalds
þáttar um veruleika hælisleitenda
og flóttamanna á Íslandi. Þátturinn
kallast Landamæri og er í tveimur
hlutum, fyrri hlutinn var sýndur
síðastliðið miðvikudagskvöld og
framhaldið verður í næstu viku.
„Ég grillaðist í hausnum af því að
gera þennan þátt. Við fórum langt
fram úr okkur í að safna efni og
þurftum að skipta þættinum í tvo
hluta. Við fórum inn í Arnarholt
þar sem hælisleitendur eru og var
vísað þaðan út. Við fylgjum eftir
fólki í vonlausri stöðu og ræðum
við sérfræðinga í málefnum þessa
fólks. Niðurstaðan er að það er
greinilega einstök heppni að fæð
ast á Íslandi. Það er illa staðið að
því hvernig fólk er handvalið inn
í landið. Fólk fær misvísandi skila
boð,“ segir Unnsteinn.
Starf á RÚV eins og háskólanám
Hann líkir starfi sínu við fjölmiðla
við háskólanám. „Þetta er eins og að
ganga í háskóla. Ég læri svo mikið.
Eftir að Magnús Geir hóf störf sem
útvarpsstjóri þá hefur vinnusvæðið
á RÚV opnast, það er hægt að ganga
á milli samstarfsmanna. Ég get
spurt reynslumeira fólk ráða, eins
og Helga Seljan eða Egil Helgason
eða hvern annan sem er. Ég hef lært
mest af Ragnhildi Steinunni, hún
hefur mikla reynslu í framleiðslu
sjónvarpsefnis, hún skilur vel hvað
áhorfendur hugsa og hvernig er
hægt að ná sem mestu út úr við
mælendum.“
Unnsteinn hefur mikinn áhuga
á fjölmiðlum og sótti á dögunum
námskeið á vegum Blaðamanna
félagsins um gagnablaðamennsku.
„Mér finnst fagið spennandi og hef
mikinn áhuga á samfélagsmiðlum
og því hvernig manneskjan á að ráða
við allt þetta upplýsingaflæði sem er
í dag. Þróunin er svo hröð og hefur
svo mikil áhrif á samfélagið. Það eru
samt helst þeir yngri sem kunna skil
á tækninni.
Það skýrir kannski það hvernig
kommentakerfið hefur þróast. Fólk
sér einhvern Facebookpóst og það
er fyrir því alveg jafn mikill sann
leikur og grein í Morgunblaðinu var
fyrir fimmtíu árum. Í stað þess að
ræða við næsta mann þá setur það
athugasemd í kommentakerfið.“
Ný plata væntanleg
Þótt dagskrárgerðin heilli Unnstein
er tónlistin enn í fyrsta sæti. Í næstu
viku gefur Retro Stefson út nýtt lag
sem verður frumsýnt á visir.is.
„Þetta er fyrsta lagið sem kemur
frá okkur í langan tíma. Við gerðum
myndband við lagið með Magn
úsi Leifssyni sem við erum mjög
ánægð með. Mér finnst það vera
dálítið eins og að horfa á stiklu að
einhverri „feel good“kvikmynd
sem mann langar að horfa á,“ segir
Unnsteinn og vill lítið gefa upp.
„Þetta er fyrsta lagið á nýrri plötu
sem kemur út í september. Það er
búið að vera svolítið maus að koma
þessari plötu saman því við erum
að gera svo margt annað. Ég hef
haft lítinn tíma til að semja tónlist
síðan ég byrjaði á RÚV. Það krefst
mikillar einbeitingar að semja tón
list. Mér hefur oft fundist það mjög
erfitt en það er að lagast núna, ég
er að finna jafnvægi í þessu,“ segir
Unnsteinn.
SkýraSta dæmið fyrir mér um
aðStöðumun er tónliStarnám á ÍSlandi.
Það hafa fáir innflytjendakrakkar efni á ÞvÍ
að fara Í tónliStarSkóla.
Unnsteinn Manuel Stefánsson
↣
www.rex.no • www.markisur.is
Veðrið verður ekkert vandamál
Starmýri 2a 108 Rvk
Nánari upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 um kvöld og helgar
Ísfjárfesting ehf.
2 1 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R28 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
8
0
-8
F
A
8
1
9
8
0
-8
E
6
C
1
9
8
0
-8
D
3
0
1
9
8
0
-8
B
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K