Fréttablaðið - 21.05.2016, Síða 80

Fréttablaðið - 21.05.2016, Síða 80
Sarah Ruhl er bandarískt leikskáld sem hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín á liðnum árum. Hún hefur unnið til fjölda verð-launa og meðal annars tví- vegis verið tilnefnd til Pulitzer-verð- launanna. Verk hennar takast á við samtíma, samfélag og meðborgara á skemmtilegan máta og það er því gleðiefni að eitt af verkum Söruh Ruhl skuli loksins rata á fjalirnar í íslensku leikhúsi. Á mánudaginn frumsýnir leikhópurinn Blink verkið Sími látins manns, sem var frumflutt í Bandaríkjunum árið 2007, þar sem það fékk strax afar góðar viðtökur. Charlotte Bøving er leikstjóri upp- færslunnar í Tjarnarbíói og hún segir að hugmyndin að því að takast á við þetta verk sé í raun komin frá Maríu Dalberg, sem er jafnframt framleið- andi og ein af leikurum sýningar- innar, en hún stofnaði umræddan leikhóp árið 2014. „María bjó í New York á sínum tíma og þar fann hún soldið fyrir þessum einmanaleika sem getur fylgt því að búa í stór- borg. Þú ert alltaf umkringdur fólki, en samt alltaf einn. Þetta verk, Sími látins manns, höfðaði sterklega til hennar því það fjallar um stelpu sem er soldið einmana og byrjar að lifa í gegnum mann sem er látinn.“ Að lifa á internetinu Verkið má skilgreina sem gaman- leikrit með alvarlegum undir- tóni. Það segir frá ungri konu sem GÁRUR AF GÖGNUM Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður haldinn í Kötlusal Hótel Sögu miðvikudaginn 25. maí 2016, kl. 8.15–10. Á fundinum verður fjallað um hvernig rannsóknir á stofnuninni og opið aðgengi að þeim hafa nýst með óvæntum hætti víða í samfélaginu. Þá verður sjónum beint að rafrænum menningararfi sem enn á víða í vök að verjast. Hægt er að skrá sig á ársfundinn fram að hádegi þriðjudaginn 24. maí á vefsíðu stofnunarinnar: www.arnastofnun.is Þorsteinn Pálsson, formaður stjórnar Ávarp Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Árnastofnunar Starfsemi stofnunarinnar árið 2015 Ragnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður Varðveisla menningararfleifðar á stafrænu formi Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands „... hefur þú heyrt þessa sögu?“ Sigríður Rún, grafískur hönnuður Líffærafræði leturs Vilhjálmur Þorsteinsson hugbúnaðarhönnuður Skraflað og málgreint með Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls Guðrún Ingólfsdóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar. Bók- menning íslenskra kvenna frá miðöldum til 1730. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra Ávarp Að lokinni dagskrá í Kötlusal verður farið að grunni Húss íslenskunnar ásamt mennta- og menningarmálaráðherra. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Á bak við er manneskjan í öllum sínum ljótleika Á mánudagskvöld verður leikritið Sími látins manns eftir bandarísku skáldkonuna Söruh Ruhl frumsýnt í Tjarnarbíói í leikstjórn Charlotte Bøving og er sýningin hluti af Listahátíðinni í Reykjavík sem hefst í dag. Charlotte Bøving, leikstjóri sýningarinnar Sími látins manns, sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói á mánudagskvöldið. FréTTABlAðið/STeFán ákveður að svara í síma sem ein- hver hefur skilið eftir á kaffihúsi og hefur hringt án afláts. Við þetta verður mikil breyting á lífi ungu konunnar en Charlotte segir að umfjöllunarefni verksins sé í raun mjög víðtækt. „Þetta verk fjallar ekki bara um sögu þessarar ungu konu heldur í raun um svo margt sem snertir okkur í nútímasam- félagi. Það er fylgst með þess- ari konu stíga inn í veröld látins manns og við það kynnumst við í rauninni honum líka og alls konar skrítnum og skemmtilegum pers- ónum úr hans fjölskyldu en leik- arar auk Maríu eru þau Kolbeinn Arnbjörnsson, Elva Ósk Ólafsdóttir og Halldóra Rut Baldursdóttir. Þetta er rammi sögunnar en svo er verkið líka að skoða hvernig við sem manneskjur tengjumst hver annarri og það er eitthvað sem á sífellt sterk- ara erindi við okkur. Við tengjumst í gegnum netið og símann og alla þessa tækni þannig að það er t.d. allt í einu orðið gamaldags að senda sendibréf. Unga stúlkan verður í raun ástfangin af látnum manni eða öllu heldur ímyndinni sem hann skilur eftir sig. Ímynd sem er spennandi því maðurinn er eðlilega þögull og óræður. Þetta er eins og tvitta þar sem fólk heillast af ímynd en ekki fólki. En svona er þetta í dag. Þegar fólk deyr þá lifir það áfram á inter netinu þar sem fólk sendir því afmæliskveðjur einu sinni á ári og annað slíkt. Sköpum okkur ímynd Verkið tekst aðeins á við þetta en svo er þetta líka um hjónabandið. Um það hverju við höldum hvort frá öðru og hvernig við tengjumst. Langar okkur í raun til þess að tengjast og vera náin eða er ein- faldlega betra að lifa í fjarlægðinni og ímynda okkur hvernig fólk er. Ég held að þetta verk sé að miklu leyti einmitt um það hvað við sýnum og hvað við sýnum ekki. Hvaða mynd ertu með á Face- book? Hvaða ímynd ertu með? Hvað er þitt brand? Í dag erum við í raun öll að keppast við að markaðs- setja okkur og keppast við að varpa fram af okkur ákveðinni ímynd.“ Charlotte segir að verkið eigi ekkert síður erindi inn í samfélag á borð við Ísland eins og það stóra samfélag sem það er sprottið úr. „Þetta verk á alls staðar erindi. Við erum með í höndunum alveg rosa- lega góða staðfærslu og þýðingu á verkinu þannig að það á ekki að trufla neinn að þetta er banda- rískt verk. Það er líka soldill ævin- týraheimur með eilítið ýktum og fyndnum persónum. Þær minna mig reyndar aðeins á persónurnar hennar Auðar Övu Ólafsdóttur. Heimurinn er ekki alveg venju- legur. En eins og hjá henni þá er alltaf botn í öllu – sársaukinn er raunverulegur. Það er margt sem gerist á yfirborðinu en á bak við er bara manneskjan í öllum sínum ljótleika að dragnast með alla sína erfiðleika og sársauka.“ En Svona ER þETTa í dag. þEgaR fóLk dEyR þÁ LifiR það ÁfRam Á inTERnETinu þaR SEm fóLk SEndiR því afmæLiSkvEðjuR Einu Sinni Á ÁRi og annað SLíkT. 2 1 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R48 m e n n i n G ∙ F R É T T a B L a ð i ð menning 2 1 -0 5 -2 0 1 6 0 3 :5 8 F B 0 9 6 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 8 0 -6 8 2 8 1 9 8 0 -6 6 E C 1 9 8 0 -6 5 B 0 1 9 8 0 -6 4 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.