Fréttablaðið - 30.11.2016, Page 11
Fyrsta kynslóð barna til að hafa aðgang að tölvu frá vöggu er á leið í skóla. Því hefur verið
spáð að 65% þeirra muni í fram-
tíðinni vinna störf sem ekki eru til
í dag, þ.e. störf sem á eftir að skapa.
Ef fram fer sem horfir, mun tækni-
þróun leiða til margfalt umfangs-
meiri og hraðari breytinga en iðn-
byltingin. Hvernig ætlum við að
mennta mannskapinn? Hvernig
ætlum við að búa börn undir lífið
þannig að þau geti nýtt tæknina
sjálfum sér og samfélaginu til góðs?
Við munum upplifa veruleika á
næstu árum sem í dag virðist fjar-
stæðukenndur. Breytingar eru
fyrirsjáanlegar í ótalmörgum, ef
ekki flestum, atvinnugreinum,
sumar breytast og aðrar hrein-
lega hverfa. Í þessu samhengi hafa
margir velt fyrir sér framtíð kenn-
arastarfsins og hvort tækniþróunin
ógni því. Hvort nemendur muni í
framtíðinni sitja heima og læra af
tölvuskjá, án mikilla samskipta við
kennara og skóla.
Tæknin veitir vissulega stór-
kostleg tækifæri til að miðla og
örva með nýjum hætti. Með því að
flétta saman hefðbundna kennslu
og tölvuleiki, myndbönd, gagnvirk
próf, forritun, þrívíddarskoðun og
„snertingu“ gegnum sýndarveru-
leikatækni, er hægt að kafa dýpra í
námsefnið og miða kennslu í ríkari
mæli við einstaklingsþarfir – styðja
þá sem stríða við námsörðugleika,
þá sem þjást af námsleiða og þá
sem eru gæddir mikilli námsgetu.
Þrátt fyrir alla þá gríðarlegu
möguleika sem ný tækni skapar,
getur hún þó aldrei leyst kennara af
hólmi. Kennara sem miðla, hvetja,
svara spurningum, rækta gagn-
rýna hugsun, sköpunargetu og sið-
ferðilega afstöðu. Kennara sem eru
næmir á félagslegar aðstæður nem-
enda sinna. Börn og unglingar öðl-
ast sannarlega nýja færni og nýja
hæfileika með aðgengi að tækni.
En sítenging við tölvu og snjallsíma
frá unga aldri skapar um leið ýmsar
nýjar þarfir. Þetta er meðal þátta
sem breyta starfi kennarans, kalla
á nýja færni og auka enn á mikil-
vægi kennarastarfsins.
Nýjar kröfur til kennara
Við hljótum öll að vera sammála
um að frammistaða metnaðar-
fullra kennara og persónuleg sam-
skipti þeirra við nemendur skiptir
sköpum um hvernig ungt fólk fer
nestað úr skóla út í lífið. Tækniþró-
unin gerir þó nýjar kröfur til kenn-
ara. Líkt og mörg önnur störf mun
kennarastarfið taka breytingum,
en það er jafn ljóst að það verður
áfram eitt allra mikilvægasta starf
í samfélaginu.
Í Finnlandi er aðsókn í kenn-
aranám svo mikil að Háskólinn í
Helsinki þarf að hafna 8 af hverjum
10 umsækjendum. Ég spurði rektor
háskólans eitt sinn um hverju þetta
sætti. Hvort launin væru svona
há? Hann sagði að launin væru í
meðallagi góð, en það sem mestu
skipti um vinsældir námsins væri
að kennarastéttin nyti svo mikillar
virðingar í Finnlandi. Getum við
lært af þessu, nú þegar horfir til
kennaraskorts í landinu? Getum
við hjálpast að við að hefja starfið
til verðskuldaðrar virðingar?
Getum við sýnt hvernig ný tækni
gerir kennarastarfið í senn mikil-
vægara og eftirsóknarverðara?
Nú þegar staða í ríkisfjármálum
hefur batnað ætti að nota hverja
krónu sem aflögu er til að bæta net-
tengingu í öllum byggðum landsins
til að tryggja jafnan aðgang skóla-
barna og kennara að tækni, upp-
færa tölvubúnað, stórefla kennara-
námið og auka verulega stuðning
við starfandi kennara. Í kjaramál-
um verður að koma málum þannig
fyrir að góðum kennurum finnist
kröftum sínum vel varið.
Það er í okkar allra þágu að ný
kynslóð ungs fólks njóti krafta frá-
bærra kennara og að hver og einn
nemandi fái hvatningu til sköpunar
og til að nýta hæfileika sína til fulls.
Við verðum að gera kennurum
fært að vinna með nýja tækni til að
auðga kennslu og hjálpa börnum
að finna gott jafnvægi í tækni-
notkun, þannig að hún verði tæki
í höndum þeirra en stýri ekki lífi
þeirra og háttum. Það er nauðsyn-
legt fyrir samfélagið að kennarar
geti í senn leiðbeint um nýtingu
þeirra tækifæra sem tæknin skapar
og jafnframt tekið þátt í að móta
holla samskiptahætti manna við
tölvur og tækni.
Tækni og menntun
– ógn eða tækifæri?
Það er í okkar allra þágu að
ný kynslóð ungs fólks njóti
krafta frábærra kennara og
að hver og einn nemandi fái
hvatningu til sköpunar og
til að nýta hæfileika sína til
fulls.
Kristín
Ingólfsdóttir
fv. rektor HÍ,
gestaprófessor
við MIT
Fréttablaðið eykur þjónustu sína við lesendur á landsbyggðinni.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á
eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið:
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
H
ér
e
r a
ðe
in
s
sý
nd
ur
h
lu
ti
af
b
ílu
m
í
bo
ði
. F
ul
lt
ve
rð
e
r v
er
ð
hv
er
s
bí
ls
m
eð
a
uk
ab
ún
að
i.
Au
ka
bú
na
ðu
r á
m
yn
du
m
g
æ
ti
ve
rið
a
nn
ar
e
n
í a
ug
lý
st
um
v
er
ðd
æ
m
um
. *
Fi
m
m
á
ra
á
by
rg
ð
gi
ld
ir
ek
ki
m
eð
a
tv
in
nu
bí
lu
m
.
KJARAKAUP 3.190.000 kr.
VW Cross Polo 1.2 TSI / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð: 3.580.000 kr.
390.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 8.595.000 kr.
Audi A4 B9 Avant 4x4 Sport 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur
Fullt verð: 9.550.000 kr.
955.000 kr.
Afsláttur
HEKLA býður einstök kjör á takmörkuðu magni nýrra
sýningarbíla, reynsluakstursbíla og valdra bíla frá Volkswagen,
Skoda, Mitsubishi og Audi – allir með mm ára ábyrgð.
Nýttu tækifærið og fáðu þér nýjan gæðabíl fyrir jólin!
Nú er tækifærið
að fá sér nýjan bíl!
KJARAKAUP 4.990.000 kr.
VW Amarok Double Cab 2.0 TDI / Dísil / Beinskiptur*
Fullt verð: 5.840.000 kr.
850.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 2.450.000 kr.
Skoda Rapid Spaceback Ambition 1.2 TSI / Bensín / Beinsk.
Fullt verð: 2.890.000 kr.
440.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 4.490.000 kr.
MMC ASX Intense / 4x4 / Dísil / Sjálfskiptur
Fullt verð: 4.990.000 kr.
500.000 kr.
Afsláttur
KJARAKAUP 4.430.000 kr.
VW Passat Highline 1.4 TSI / Bensín / Sjálfskiptur
Fullt verð: 5.330.000 kr.
900.000 kr.
Afsláttur
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 3 0 . n ó V e M B e R 2 0 1 6
3
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
A
-D
2
D
C
1
B
7
A
-D
1
A
0
1
B
7
A
-D
0
6
4
1
B
7
A
-C
F
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K