Fréttablaðið - 30.11.2016, Side 24
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
jólagjöf fagmannSinS Kynningarblað
30. nóvember 20162
Sóley Rut segist alltaf hafa verið
frekar handóð. „Mér finnst gott
að geta gert hlutina sjálf. Ég eyddi
mörgum sumrum sem barn í bú-
stað hjá ömmu og afa í Grímsnesi
og þau voru bæði dugleg að dytta
að húsinu. Ég fékk að saga og negla
eins og mig lysti eða allt þar til ég
sagaði í löppina á mér, fannst það
samt ekkert mál og hélt áfram að
saga og negla fram á kvöld þrátt
fyrir mótmæli frá ömmu og er í
dag með skemmtilegt ör eftir tenn-
urnar á söginni á sköflungnum til
minningar. Einnig fékk ég að fara
á smíðavöllinn í Austurbæjarskóla
eitt sumarið,“ segir Sóley Rut þegar
hún er spurð um þennan áhuga.
Sóley Rut er að læra smíð-
ar hjá fyrirtæki sem heitir Tré-
smiðja Haraldar. „Við vinnum við
alls konar húsasmíðar. „Kostur-
inn við það að vera á fámennum á
vinnustað er að ég fæ að prófa að
gera allt og strákarnir eru ekkert
að hlífa mér vegna kyns. Þeir sjá
til þess að ég reyni allt og í lang-
flestum tilfellum er ég fullfær um
að spjara mig. Ég þarf helst að-
stoð þegar það hamlar mér að vera
styttri og léttari en þeir,“ segir hún.
Gefur gömlum hlutum nýtt líf
Þegar Sóley er spurð hvaða hluti
sé nauðsynlegt að eiga heima til
að geta gert við eða lagfært, er
hún fljót til svars. „Trélím og
málningarteip kemur manni ansi
langt. Almenna „hús-settið“, s.s.
skrúfjárn, hamar og töng er líka
gott að eiga. Ég hef meðal ann-
ars smíðað lítinn baðskáp, grann-
an standandi skáp með skúffu
og hurð, ruggustól í anda Ole
Wansher og stækkanlegt snyrti-
borð á hjólum sem ég hannaði
sjálf sem lokaverkefni mitt í hús-
gagnasmíði. Það að smíða hlutina
frá grunni, teikna þá upp, ákveða
mál, velja efni og dunda við að
skapa eitthvað nýtt er líklega það
skemmtilegasta sem ég geri. Það
er samt líka skemmtilegt að gera
upp hluti því það er oft svo lítið
sem þarf til þess að gefa hlutum
nýtt líf. Smá húsgagnahreinsir
og lituð viðarolía eða viðarfyll-
ir og lakk getur gert gæfumun-
inn. Að láta loksins verða af því
að taka „ónýta“ stólinn í sundur,
hreinsa út gamla límið og líma
aftur og jafnvel endurbólstra set-
una er minna mál en maður held-
ur. Ég er hálfgerður „púristi“ og
er frekar illa við húsgögn sem
eru bara máluð í hvítum háglans
þegar hægt er að meðhöndla spón
og heilvið á margan ótrúlega fal-
legan hátt. Hver hlutur úr viði
er einstakur og að mínu mati er
synd að fela einkenni hans undir
þykku lagi af málningu nema vera
búinn að kynna sér aðra mögu-
leika fyrst,“ segir Sóley Rut.
Hún segist halda mikið upp
á körfustól sem hún á úr Pier.
„Hann er fallegur og tímalaus í
hönnun og er ótrúlega þægilegur
en sethúsgögn finnst mér glötuð
ef þau eru ekki þægileg, þá frekar
sit ég á gólfinu. Einnig á ég falleg-
an danskan hægindastól sem ég
fékk í Góða hirðinum en ég stefni
á að endurbólstra hann sjálf við
tækifæri.“
Langar í skrúfvél
Það eru líklega ekki margar
konur sem biðja um jólagjöf eins
og Sóley. „Mig langar mikið í létta
en sæmilega öfluga skrúfvél, held
að það sé efst á óskalistanum. Hef
augastað á tveimur frá sitthvoru
fyrirtækinu en hef ekki alveg
gert upp hug minn enn þá,“ segir
hún. „Ég hef afnot af öllum helstu
verkfærum í vinnunni og hef því
ekki þurft að fylla litlu leiguíbúð-
ina mína af verkfærum,“ segir
hún og hlær en bætir síðan við:
„Hins vegar þegar ég hugsa um
framtíðina sé ég samt fyrst og
fremst fyrir mér stóran bílskúr
fullan af öllum mögulegum verk-
færum og vélum.“
Hvaða hlut notar þú mest?
„Veit nú ekki hvað það heitir réttu
nafni, hef heyrt það kallað lítið
klaufjárn eða pólskan lykil. Það
smellpassar í vasa og má nota
til að lyfta upp plötum, ná undir
naglahausa/skrúfuhausa og þess
háttar, það er eiginlega hægt að
pota því hvar sem þarf að komast
að og er án efa mest notaða verk-
færi sem ég hef notað.“
En hvað finnst henni að ætti að
vera jólagjöf fagmannsins?
„Góðir sokkar og hanskar. Ís-
lenskir smiðir vinna úti í öllum
veðrum allt árið um kring og því
mikilvægt að vera í hlýjum og
góðum sokkum. Kaldar tær og
kaldir puttar eru algjör óþarfa
leiðindi, ég komst að því í fyrra-
vetur. Mæli einnig með ullar-
leppum í skóna, það virkar vel
fyrir mig. Svo eru til dæmis litl-
ir handheflar, nýir blýantar, góð
sporjárn og vasabækur hagnýtar
gjafir.“
Hlýir sokkar og vettlingar góðar gjafir
Sóley rut jóhannsdóttir hefur alltaf haft mikinn áhuga á smíðum og er núna á námssamningi hjá litlu trésmíðafyrirtæki. Hún starfar við
alls kyns húsasmíðar og hefur auk þess stundað nám í húsgagnasmíði. Sóley Rut lagfærir það sem þarf að gera við og smíðar nýtt.
Sóley rut er að læra húsasmíði og er á
námssamningi hjá trésmiðju Haraldar.
elín
albertsdóttir
elin@365.is
Sóley fór fyrst í húsgagnasmíði og á þess-
ari mynd er ruggustóll í vinnslu hjá henni.
3
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
A
-E
B
8
C
1
B
7
A
-E
A
5
0
1
B
7
A
-E
9
1
4
1
B
7
A
-E
7
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K