Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.11.2016, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 30.11.2016, Qupperneq 44
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og besti vinur okkar, Guðmundur Ingimundarson Furugrund 28, lést þann 15. nóv. 2016. Útför hans fer fram frá Grensáskirkju í Reykjavík fimmtudaginn 8. des. kl. 13.00. Rósa Einarsdóttir Einar Þór Guðmundsson Ingimundur K. Guðmundsson Landysh Gilfanova Kristín Guðmundsdóttir Steindór Aðalsteinsson Rakel Rósa Ingimundardóttir Adelyia Gilfanova Diljá Líf Ingimundardóttir, Telma Steindórsdóttir, Embla Steindórsdóttir, Dagur Steindórsson, Óðinn Einarsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar systur okkar, mágkonu og frænku, Bjarkar Gunnarsdóttur Lautarvegi 18. Sérstakar þakkir til starfsfólks Lautarvegi 18 og heimahlynningar vegna veittrar umönnunar Bjarkar. Margrét Ásta Gunnarsdóttir Guðlaugur S. Helgason Páll Gunnarsson og frændsystkini. Faðir okkar, Ólafur Gíslason Eyrarvík, Hörgársveit, er látinn. Útför hans fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 2. desember kl. 10.30. Fjölskylda hins látna Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Valgeir Bjarni Gestsson rafvirkjameistari, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 23. nóvember. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, miðvikudaginn 7. desember kl. 13.00. Kristín Erla Jónsdóttir Jón Óskar Valgeirsson Benný Guðrún Valgeirsdóttir Vilhjálmur Karl Karlsson Jóhanna Ellen Valgeirsdóttir Ingólfur Kristinsson Gestur Ingi Valgeirsson Anna Lilja Valgeirsdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Kristinn S. Jónsson rafeindavirki, Stórateigi 40, lést á heimili sínu síðastliðinn föstudag. Útför fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Parkinsonsamtökin á Íslandi Ólöf H. Friðriksdóttir Sigríður Kristinsdóttir Jóhannes E. Valberg Sesselja Mjöll Kristinsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamamma og amma, Ásta B. Ágústsdóttir lést laugardaginn 26. nóvember. Ásthildur Helgadóttir Pétur Esrason Bryndís Helgadóttir Halldór Vilhjálmsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Arndís Guðjónsdóttir frá Bíldudal, hjúkrunarheimilinu Eir, áður Brautarlandi 6, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 14. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. desember kl. 13.00. Guðjón Magnús Jónsson Sigríður Þorláksdóttir Margrét Katrín Jónsdóttir Hrönn Guðjónsdóttir Magnea Ólöf Guðjónsdóttir Halldór Kj. Björnsson Arndís Guðjónsdóttir Kristján Már Atlason Jón Þór Guðjónsson Eva Björg Torfadóttir Hrafn Eyjólfsson María Tómasdóttir Hrafnhildur Eyjólfsdóttir Halldór Ingi Hákonarson Jón Örn Eyjólfsson Særós Stefánsdóttir og barnabarnabörn. H jarta Akraness slær hjá ÍA. Við splæstum saman í 40 ára afmæli íþrótta-hússins við Vesturgötu og 70 ára afmæli ÍA og fögnuðum um síðustu helgi,“ segir Hildur Karen Aðalsteinsdótt- ir, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness, sem tók við starfinu á þessu ári, fyrst kvenna. Tvær aðrar konur komust líka í efstu lög píramída ÍA  því  Helga Sjöfn Jóhannesdóttir varð fyrsta konan til að verða formaður bandalagsins í 70 ára sögu þess og Hulda Birna Baldursdóttir sem er nýráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA er önnur konan til að gegna þeirri stöðu. Hildur Karen segir þær allar vinna vel saman en hvað finnst körlunum um þessar breytingar? „Mér heyrist þeir vera ánægðir með okkur og standa algerlega við bakið á okkur. Við mætum bara virðingu og trausti þar.“ Hildur Karen segir síðustu vikur hafa verið annasamar í hennar starfi, bæði vegna flutnings skrifstofu bandalags- ins af Jaðarsbakkasvæðinu í íþrótta- húsið við Vesturgötu og undirbúnings afmælis hátíðarinnar sem hún segir hafa tekist vel. „Þetta var fjölskyldugleðidag- ur. Aðildarfélög ÍA buðu upp á sýning- ar og gáfu gestum kost á að spreyta sig í hinum ýmsu íþróttagreinum auk þess sem veitingar voru á borðum. Okkur reiknast til að 800 til 1.000 manns hafi komið í heimsókn.“  Aðildarfélög ÍA eru 18 talsins og iðk- endur um 2.500 eða um 35% íbúanna. „Hvert félag er sjálfstæð eining en hefur aðgang að ýmissi þjónustu sem við veitum hjá ÍA. Svo vinnum við líka með afreksíþróttabraut Fjölbrautaskólans,“ segir Hildur Karen sem er grunnskóla- kennari að mennt, með íþróttir sem val. Hún hefur unnið í Grundaskóla frá 2000, fyrir utan eitt ár sem hún var framkvæmdastjóri Sundsambandsins. Sund er  bæði áhugamál hennar og keppnisíþrótt. Hún kveðst sjá um ung- barnasundkennslu og samflot á Akra- nesi. Það síðarnefnda þarf hún að útskýra betur. „Í samflotinu er fólk með flothettu á höfði og flotsett á lærum,  liggur í heitri innisundlaug og slakar þar á við kertaljós og tónlist,“ lýsir hún. Það hljómar óneitanlega vel. gun@frettabladid.is Konur valdamiklar í ÍA Árið 2016 hefur verið tímamótaár hjá Íþróttabandalagi Akraness. Það átti sjötugsafmæli, íþróttahúsið varð fertugt og konur völdust til veigamikilla starfa innan þess. Kvenskörungar á Skaganum. Regína Ásvaldsdóttir er fyrsti kvenbæjarstjórinn í 74 ára sögu Akraness, Helga Sjöfn Jóhannesdóttir er fyrsti kvenkyns formaður ÍA, Hildur Karen er fyrsta konan til að gegna framkvæmdastjórastöðu ÍA og Hulda Birna Baldursdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA, er önnur konan í þeirri stöðu. Hið 40 ára íþróttahús við Vesturgötu á Akranesi var á sínum tíma næststærsta íþróttahús landsins á eftir Laugardals- höllinni. Það hefur þjónað Akur- nesingum vel og þar hafa verið haldnir viðburðir á íþróttasviðinu eins og sigur- leikur við Dani í handbolta 1981. Einnig fjölmargir menningarviðburðir og má nefna tónleika bæði Ivans Rebroff og Kims Larsen en frægast er líklega þegar Black Sabbath og Jethro Tull spiluðu þar sömu helgina árið 1992. 3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð tímamót 3 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 7 A -B F 1 C 1 B 7 A -B D E 0 1 B 7 A -B C A 4 1 B 7 A -B B 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.