Víkurfréttir - 27.10.1983, Qupperneq 1
Fullnægir nú eigin raforkuþörf
Ný 500 kw túrbína gerir það kleift
Sjóefnavinnslan á Reykja-
nesi hefur nú tekið í notkun
nýja gufutúrbínu og mun
hún nýta gufu frá borholu 8
og framleiða rafmagn til
notkunar á svæði fyrirtæk-
isins á Reykjanesi. „Með til-
komu túrbínunnar mun Sjó-
efnavinnslan nú fullnægja
eigin raforkuþörf," sagði
Finnbogi Björnsson í sam-
tali við Víkur-fréttir.
Túrbínan, eða gufuhverf-
illinn, hefur framleiðslu-
getu upp á500 kw, sem mun
fullnægja raforkuþörf fyrir-
tækisins þar til frekari
stækkunaráfangar á svæð-
inu verða. Túrbínan er
keypt frá Þýskalandi og auk
þess komu þýskir verkfræö-
ingarsem sáu um uppsetn-
ingu og prófun, en verð
hennar er um 4.9 milljónir
ísl. króna.
í sumar hefur staðið yfir
bygging á húsi fyrir rafstöð-
ina, sem nú er lokið, svo og
varðandi ýmsan stjórnbún-
að sem til staðar er í raf-
stöðvarhúsi.
Að sögn Finnboga kom
tvennt til greina þegar
ákveðið var að hefja upp-
setningu túrbínunnar, en
það var að leggja nýja línu-
lögn til Svartsengis, Grinda-
víkur eða Hafna, samkvæmt
úttektinni sem gerð var á
kostnaði þessara tveggja
þátta, þ.e. 500 kw túrbín-
unnar eða línulagnarinnar,
þá var fyrri kosturinn hag-
stæöari. Mun rafmagns-
framleiðsla hefjast í þess-
ari viku.
Eins og sagt var frá hér í
blaðinu fyrir skömmu, þá
var hleypt í blástur nýrri
holu á Reykjanesi, holu 9.
Endanlegar mælingar á
holunni hafa ekki farið fram
en talið er að með eim-
svalahverfli (Condense túr-
bínu) gæti holan gefið allt
að 20 megavött. Þetta hefur
þó ekki veriö staðfest ennþá
þar sem mælingar eru
ennþá í fullum gangi. Að
sögn fróðra manna er álitið
að raforkuþörf byggðarlag-
anna á Suðurnesjum og
Keflavíkurflugvallar sé um
23 megavött. Þá má einnig
geta þess að nú blæs van-
nýtt borhola í Eldvörpum
sem unnin var á vegum
Hitaveitu Suðurnesja og er
talið að stærð hennar sé lík
stærð áðurnefndrar holu.
pket.
Rafstöövarhúsió á Reykjanesi
Hjólagarpur í Heiðarbyggð L,ösm pke,
Þröngt um atvinnu hjá konum
Þrátt fyrir að nokkuð gott
atvinnuástand sé nú hjá
karlmönnum á Suðurnesj-
um, virðist annað vera uppi
á teningnum þegar um
kvenfólk er að ræða.
Undir þetta tóku bæði
Guörún Ólafsdóttir, for-
maður Verkakvennafélags
Keflavíkur og Njarövíkur,
og María Valdimarsdóttir á
skrifstofu Félagsmálafull-
trúa Keflavikurbæjar, í við-
tali viö blaðið sl. mánudag.
Spilar þarna töluvert inn í
hin lélegu aflabrögð sem
veriö hafa að undanförnu,
en vegna þess hefur fallið
niður vinna í nokkrum fisk-
verkunarstöðvum af og til,
nokkra daga f einu. Þá virð-
ist nú vera meiri aösókn hjá
konum inn á atvinnumark-
aöinn, konum, sem ekki
hafa verið þar mörg undan-
farin ár, og þar spilar ef til
vill verri kaupmáttur al-
mennings inn (.
Þá er það orðiö nokkuð
bagalegt fyrir þann stóra at-
vinnumarkaö sem Suöur-
nes eru, að mjög lítið er um
störf sem ekki tengjast sjáv-
arútvegi, eins og þó á sér
stað þegar um störf karl-
manna er að ræða, því hjá
þeim viröist útlitið vera
nokkuð bjart framundan.
Þar spilar nokkuð stórt inn í
aukning á störfum sem til-
heyraveru varnarliðsins hér
á landi, s.s. bygging flug-
skýla, væntanleg bygging
flugstöðvar, framkvæmdir í
Helguvík o.fl. o.fl.
Sagði Guðrún Ólafsdóttir
að þetta ástand væri orðiö
nokkuð bagalegt og þyrfti
úrbóta við mjög fljótlega,
og undir sama streng tók
María Valdimarsdóttir.
Guðrún sagöi ennfremur að
ef einhversíld kæmi hingað
til vinnslu, myndi það bæta
ástandiö, en aðeins um
stundarsakir, meira þyrfti
til. - epj.
70 þúsund
Margir lesendur hafa haft
samband við blaðið vegna
ákvörðunar stjórnar Hita-
veitu Suðurnesja, að verja
kr. 145 þús. í gerð kvik-
myndar, sem sýnd verður í
orkuverinu í Svartsengi og
sagt var frá í síðasta blaði,
og ekki síður þá staðreynd,
að stjórn HS skuli hafa sam-
þykkt að taka þátt í ferða-
kostnaði ÞóroddarTh. Sig-
urðssonar á orkuráðstefnu
á Indlandi, með 70 þús. kr.
framlagi.
Benda þeir sem haft
hafa samband við blaðið á,
að ekki væri lengur hægt aö
líöa það bruðl sem er í
kringum þetta fyrirtæki,
meðan önnur fyrirtæki á
vegum SSS eru með allan
kostnað í lágmarki. Enda
falla báöar þessar fjárveit-
ingarvarla undirannað, eða
ætlar HS aö læra um orku-
sparnað á þurrkasvæðun-
um á Indlandi?
Væri ekki nær, ef hagur
- til hvers?
fyrirtækisins er þetta góður,
að þeir geti með sóma leyft
sér þetta, að fénu væri varið
til að lækka orkugjaldið
þannig að það kæmi frekar
almennum notendum til
góða en þetta? - epj.
100 video-
spólum stolið
í síöustu viku var brotist
inn í Videoking, sem er til
húsa í gömlu lögreglustöö-
inni við Hafnargötu, og
stolið öllum VHS videospól-
um sem til voru, eða um 100
spólum. Var brotin upp
hurð og allar spólurnar
hreinsaðar úr einni hillunni.
Þjófurinn eða þjófarnir
virðast aöeins hafa haft
áhuga fyrir VHS-spólum,
því þeir skildu eftir allar
Beta-spólurnar. VHS-spól-
urnar voru flestar nýjar eða
nýlegar. - epj.