Víkurfréttir - 24.11.1983, Qupperneq 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 24. nóvember 1983 13
Slæmur að-
búnaður
vagnstjóra SBK
„Vegna ítrekaðra kvart-
ana vagnstjóra SBK á
aðbúnaði þeirra á Bifreiða-
stöð (slands (Umferðarmið-
stöðinni, Reykjavík), krefst
stjórn Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur", að því er fram
kemur í fundargerð stjórn-
arinnar, ,,að aðbúnaður
verði bættur í samræmi við
það sem lög um vinnuvernd
og hollustuhætti á vinnu-
stöðum segja til um.“ - epj.
„Alveg glatað“
Fyrir síðustu helgi setti
Vegagerðin upp akreina-
merkingar við öll helstu
gatnamót er mæta Reykja-
nesbraut þar sem hún ligg-
ur um Njarðvík. Merkingar
þessar eru ekki málaðar í
yfirborð gatnanna heldur
eru settar upp þunglama-
legir stöplar með akreina-
merkjum á.
Eitthvaö virðast þeir aðil-
ar sem settu viðkomandi
merkingar upp, ekki hafa
gert sér grein fyrir þeim
vandkvæðum sem þeir
sköpuðu með þessu, því á
sumum gatnamótunum s.s.
þar sem Sjávargata og Bola-
fótur tengjast Reykjanes-
braut, þurfa oft þiinga-
vinnutæki s.s. „trailerar",
að aka um, en nú er það úti-
lokað, eöa eins og einn
þungavinnuvélastjórinn
orðaði það, „alveg glatað
að aka þarna um“, og því
þurfa þeir að nota Borgar-
veginn í staðinn og aka þar
með um íbúðahverfi i stað
þess að áður notuðu þeir
Sjávargötuna eða Bolafót-
inn. - epj.
Hér orðió of þröngt fyrir þungavinnutæki og þvi verða þau
að aka i staðinn um Borgarveg, sem varla þolir þunga
umferð.
28. ÁRSÞING ÍBK
Framh. af forsíðu
mynda um 500 þús. króna
tekjuafgangi, sem þó fer að
miklu leyti upp í skuld frá
fyrra ári.
Tilnefning aöildarfélaga í
bandalaginu í ráð ku ekki
vera lokið, en þó er vitað að
stjórn knattsþyrnuráðs er
fædd, en þar eru Kristján
Ingi Helgason formaður, en
með honum í stjórn eru þeir
Ólafur Júlíusson, Karl Her-
mannsson, Þórir Sigfússon
og Eiríkur Hjartarson.
Aðildarfélög í íþrótta-
bandalagi Keflavíkureru nú
4, Badmintonfélagið,
(þróttafélag Keflavíkur (ÍK),
KFK og UMFK, og samtals
er meðlimafjöldi í ÍBK 2320.
Er það um 40% allra bæjar-
búa í Keflavík. - pket.
BRAUÐIN HJÁ RAGGA
Framh. af baksiðu
að aka þessari skreið að
mestu til Hafnarfjarðar, en
með sameiginlegu átaki
tókst að fá því framgengt að
Njarðvíkurhöfn var notuð
fyrir þá skreið sem hér var,
en ekki Hafnarfjarðarhöfn.
Þá verður Landshafnar-
stjórn að gera allt sem hún
getur til að fá fjármagn og
Ijúka framkvæmdum við
Njarðvíkurhöfn. Ef það
tekst ekki ættu bæjaryfir-
völd að skerast í málið, m.a.
með því að flýta því að þau
yfirtaki hafnirnar og Lands-
höfnin verði þar með lögð
niður sem slík, því aðstöðu-
leysi farskipa gæti varla
versnað frá því sem nú er.
epj.
HAFNARFJARÐARHÖFN
Framh. af forsiðu
til landsins um leið, til að
leysa þetta mál. Ætti þetta
að vera komið á hreint
þegar blaðið kemur út á
fimmtudaginn (í dag) og
„eðlileg" brauð þá komin í
umferð. Um leið og ég vil
þakka þeim fjölmörgu við-
skiptavinum mínum sem
hringdu og létu vita að fram-
leiðslan væri ekki í lagi, vil
ég biðja þá um að dæma
ekki framleiðslu okkar al-
mennt vegna þessa óhapps.
Til að koma til móts við
viðskiptavini mína hef ég
þvi ákveðið að öll Rista-
brauð verða seld á hálfvirði
n.k. mánudag, 28. nóvem-
ber,“ sagði Ragnar að lok-
um. - pket.
TENGILL - upplýsingarit
Grunnskóla Njarövíkur
10. nóvember sl. var for-
eldradagur hjá Grunnskóla
Njarðvíkur, og að sögn
Gylfa Guðmundssonar
skólastjóra, var dagurinn
mjög vel sóttur. Á þessum
degi var ýtt úr vör nýju blaði
sem nefnist Tengill og á
eins og nafnið bendir til að
vera tengiliður milli heimila
og skólans.
( fyrsta tölublaði er skýrt
frá ýmsu úr starfsemi skól-
ans, t.d. hverjir séu helsta
starfsfólk hans, hverjir hafa
umsjón með bekkjum, um
fjölda nemenda í hverjum
bekk, um prófdaga, félags-
líf og ýmsa þá þjónustu sem
skólinn veitir o.fl., sem for-
ráðamenn barna þurfa að
vita varðandi starf Grunn-
skóla Njarðvíkur. - epj.
Nýir munir í Ytri-
Njarðvíkurkirkju
Við guðsþjónustu í Ytri-
Njarðvíkurkirkju á sunnu-
daginn kemur, l.sunnudag
i aðventu, verður tekið í
notkun nýtt altari, altaris-
munir og nýr skírnarfontur,
og steindur gluggi sem er
yfir altarinu.
Glugginn, sem er hann-
aður af Leifi Breiðfjörð,
glerlistarmanni, en unninn í
Þýskalandi, er samsettur úr
sjö rúðum sem tákna sköp-
un heimsins. Systrafélag
kirkjunnar gefur gluggann,
en Ingvi Þorgeirsson og
fjölskylda gefa skírnarfont-
inn. Hann erunninn einsog
altarið úr íslensku blágrýti
hjá Steinsmiðju Sigurðar
Helgasonar í Kópavogi,
eftir teikningum arkitekta
kirkjunnar, Ormars Þórs
Guðmundssonar og örn-
ólfs Hall. Þá hefur Leifur
Breiðfjörð einnig hannað
altarismuni, steinkross,
kertastjaka og blómavasa
úr sama efni.
Endurhæfing
hjá
Þroskahjálp
[ frásögn í síðasta blaði af
rausnarlegu boði Tomma-
borgara, Fitjum, til handa
þroskaheftum, kom ekki
nægjanlega skýrt fram, að
boð þetta var fyrir þau börn
sem eru í endurhæfingu í
húsi Þroskahjálpar á Suö-
urnesjum við Suðurvelli i
Keflavík, og voru því hér á
ferðinni 13 börn þaðan
ásamt stárfsliði ÞS og
nokkrum mæðrum. - epj.
Af þessu tilefni mun
kirkjukórinn flytja kantöt-
una „Jesu meine Freude"
eftir barokktónskáldið
Dietrich Buxtehude. Flytj-
endur auk kórs Ytri-Njarð-
vikurkirkju eru fiðluleikar-
arnir Kristín Th. Gunnars-
dóttir og Kjartan Már Kjart-
ansson, Gesine Grund-
mann, sellóleikari, Gróa
Hreinsdóttir sem leikur á
orgel kirkjunnar, og ein-
söngvararnir Ragnheiður
Guðmundsdóttir og Steinn
Erlingsson. Stjórnandi kór-
verksins og organisti kirkj-
unnar er Helgi Bragason.
Eftir messuna, sem hefst
kl. 14, verður kirkjugestum
boðið að þiggja veitingar í
Stapanum, en frjáls fram-
lög til kirkjunnar eru vel
þegin.
Sóknarprestur er sr. Þor-
valdur Karl Helgason.
Barnakór
stofnaður í
Njarðvík
í október sl. var stofnað-
ur kór við Grunnskóla
Njarðvíkur. Reyndar eru
kórar þessir tveir, þ.e. kór
fyrir yngir nemendur og svo
annar fyrir hina eldri. Kór-
stjóri er Helgi Bragason.
Hefur kórinn hlotið nafn-
ið Barnakór Grunnskóla
Njarðvíkur og hefur þegar
komið fram oþinberlega.
Var það við guðsþjónustu í
Innri-Njarðvíkurkirkju
sunnudaginn 6. nóv. sl.
epj.
Myndval gefur Sjúkrahúsinu
Sl. þriðjudag var Sjúkrahúsi Keflavikurlæknishéraðs
færð gjöf frá myndbandaleigunni Myndval, en það
eru fri afnot af 100 myndböndum. Verömæti gjafar-
innar er 8000 kr. Á myndinni er Eyjólfur Sverrisson
að afhenda Ernu Bergmann, sem tók við gjöfinni fyrir
hönd Sjúkrahússins, fyrstu myndina af 100, en með
þeim á myndinni er Hermann Ólason. - pket.
DAROU
Nú hafa |Suðurnesjabúar sína
eigin Arnarflugsskrifstofu
Nú geta allir ferðalangar á
«5- Suðurnesjum sparað sér
sporin og fengið ferða-
upplýsingar og flugþjónustu
á eigin skrifstofu á Keflavík-
urflugvelli. Þar bókum við
flugfarseðla til allra heims-
horna með ótal flugfél-
ögum, seljum pakkaferðir
Arnarflugs á hagstæðu
heildarverði, og önnumst
alla aðra almenna fyrir-
greiðslu. Við erum Corda-
tengd við umheiminn og
^ tryggjum þannig fyrsta
^ flokks þjónustu á auga-
bragði.
9 Amsterdam Verð frá kr. 10.908. -
Kanaríeyjar Verð frá kr. 22.572. -
m
Flugfólag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Flugslöðinni ■ herbergi 21, simi 92-2700