Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.05.1984, Síða 3

Víkurfréttir - 24.05.1984, Síða 3
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 24. maí 1984 3 ..Enga knatt- spyrnu hér“ - sagði landsliðsmarkvörðurinn við strákana sem notuðu „skrúðgarðinn“ sem knattspyrnuvöll „Hér má ekki leika knatt- spyrnu, strákar mínir, því rniður" sögðu lögreglu- þjónarnir tveir, sem stöðv- uðu knattspyrnuleik hjá strákunum i góða veðrinu sl. fimmtudag. En annar lögregluþjónanna var enginn annar en Þorsteinn Bjarnason, landsliðsmark- vörður í knattspyrnu, og þrátt fyrir það að Steini sé auðvitað ekkert á móti því að strákarnir leiki knatt- spyrnu þá má það ekki í skrúðgarðinum í Keflavík. Skrúðgarðurinn er nefni- lega einn af fáum stöðum þar sem hægt er að hafa „fínt" og því má ekki troða allt græna svæðið með fót- boltasparki. En hvert eigum við þá að fara? sögðu strákarnir. Það var ekki lögregluþjónanna að svara því, en vissulega er þetta góð spurning hjá strákunum. Engirgrasblett- ir í heilli Keflavik til aö spila fótbolta á. „Hvenær fáum við grasvöll þar sem við megum vera og spila fót- bolta á þegar við viljum?" sögðu strákarnir. Því er hér með komið á framfæri til bæjaryfirvalda. - pket. Allt leikur i lyndi, allir i fótbolta á grasi i finu veóri, en ... „Þvi miður, strákar mínir, enga knattspyrnu hér“, sögðu lögregluþjónarnir, og annar þeirra landsliðsmarkvörður- inn sjálfur, Þorsteinn Bjarna, og nú í öðrum búningi, þeim svarta. „En hverteigum vió þá að fara? Ekki eigum við neinn gras- völl til að spila á", sögðu strákarnir. 3500 eintök. \HKun jtMii Blað sem hittir í mark. mun ýutUt | FÖSTUDAGUR: DISKÓTEK undir stjórn Himma og Ella. Húsið opnað kl. 23.30. LAUGARDAGUR: LOKAÐ VEGNA EINKASAMKVÆMIS. MIÐVIKUDAGUR 30. MAf: Dansleikur frá kl. 23 - 03. MIÐLARNIR leika fyrir dansi. Eignamiðlun Suðurnesja Hafnargötu 57 - Keflavík - Sími 1700, 3868 Krókvellir, Garðl: Geysilega stórt og mikið hús, hent- ugt fyrir þá sem vilja vera út af fyrir sig. Allt meira og minna nýlega byggt eða endurbætt, stórt eignarland. Tilboð. Holtsgata 14, Njarðvfk: Hugguleg 60 ferm. 2ja herb. íbúð, góður staður, skipti á stærri eign möguleg. 1.100.000. Brekkustfgur 4, efrl- og neðrl hæð, Njarðvik: Efri hæð er 5-6 herb. íbúð ásamt bíl- skúr. Verð: 1.800.000. - Neðri hæðer 4ra herb. íbúð ásamt bílskúr. 1.450.000. Hrlngbraut 79, efri hæð, Keflavlk: Björt og skemmtileg 100 ferm. íbúð, sem skiptist í samliggjandi stofur og 2 herbergi. Laus fljótlega. 1.500.000. Góð 3ja herb. risibúö við Hátún. 920.000. Nýleg 3ja herb. ibúð við Heiðar- hvamm. 1.350.000 3ja herb. íbúð við Baldursgötu, laus fljótlega. 1.250.000. 110 ferm. 4ra herb. ibúð við Háteig. 1.650.000. 160 ferm. 6-7 herb. íbúð við Austur- götu ásamt 45 ferm. bílskúr. 1.580.000. Góð 140 ferm. 5 herb. ibúð við Njarð- argötu. 1.650.000. Góð 4-5 herb. ibúð við Hringbraut ásamt bílskúr. 1.700.000. Gott Viðlagasjóöshús við Bjarnar- velli, hitaveita komin. 1.950.000. NJARÐVÍK: Glæsileg ný fullbúin ibúð við Fífu- móa. Parket á öllu, allar innréttingar sérsmiðaðar. 1.290.000. Góð 3-4ra herb. íbúð við Fífumóa, sér inngangur. 1.350.000. ATH: Höfum fjársterkan kaupanda að góðri 3ja herb. íbúð, helst með sér inngangi. Staðgreiðsla við samning fyrir rétta eign. ATH: Gætum hugsanlega útvegað fjársterkum kaupendum glæsilegt einbýli, bæði í smíðum og að mestu fullgert. Verðhugmyndir frá kr. 3.500.00 til 5.900.000. Eignamiðlun Suðurnesja FasteignaviÖ8kipti: Hannes Arnar Ragnarsson Sölustjóri: Siguröur Vignir Ragnarsson

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.