Víkurfréttir - 24.05.1984, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 24. maí 1984
VÍKUR-fréttir
Starlsfólk Dropans saman komið ásamt forstjóra fyrirtækisins, Kristni Guðmundssyni.
„Þá mátti sjá sjómenn úti um
allan bæ að mála hús sín“
- segir Kristinn Guðmundsson í Dropanum
,,Við byrjuðum rekstur
þessarar verslunar í lítilli
kjallaraholu á Hafnargötu
26 og það voru ekki nema
um 30 fermetrar sem við
höfðum til umráða. Nú
erum við komnir í 900 fer-
metra húsnæði og má segja
að við séum búnir að feta
okkur upp stigann hægt og
bítandi á 18 árum frá stofn-
un fyrirtækisins", sagði
Kristinn Guðmundsson,
forstjóri í Dropanum, sem
um síðustu helgi flutti í nýtt
og glæsilegt húsnæöi við
Hafnargötu 90.
,,Það var 12. mars 1966
sem við byrjuðum í kjallar-
anum og síðan lá leið okkar
í gömlu Ingimundarbúð,
sem er hús númer 19,
vorum þar í 5 ár. Síöan færð-
um viðokkuruppeftirHafn-
argötunni, að númer 80 og
höfum verið þar sl. 11 ár, en
um leið breyttum við nafn-
inu á versluninni úr Krist-
inn Guðmundsson og Co.
hf., í Dropann, en hlutafé-
lagið er þó skráður eigandi
hennar".
Eftir svona mörg ár i viö-
skiptum, Kristinn, finnst þér
verslunarhættir hafa breyst
á siöustu árum?
„Ég get ekki sagt að það
hafi orðið mjög miklar
breytingar hjá okkur. Okkar
verslun byggist á að leið-
beina viðskiptavininum og
sinna honum, en í gegnum
árin hafa þetta verið mikið
til sömu vörurnar sem við
höfum veriö að selja og ekki
umtalsverðar breytingar
hvað það varðar".
Hvernig hefur reksturinn
gengið?
„Verslunin hefur sýnt
aukningu á hverju ári frá
byrjun, og ég er bærilega
ánægður með það. Ég vil
nefna gott dæmi með sl.
sumar, en þá rigndi mjög
mikið, eins og öllum er i
fersku minni, en samt sem
áður þá héldum við okkar
striki. Þessi tími, þ.e. sum-
arið, er mesti annatíminn
hjá okkur þannig að það er
vissulega mikilvægt að
veðrið sé skaplegt svo fólk
nenni að fara að gera fínt
hjá sér.
Þess má geta að i tilefni af
landsmótinu þá höfum við
ákveðið að koma til móts
við fólk sem ætlar að mála
hús sín, með því að bjóða
þvi málningu á heildsölu-
verði og mun það tilboð
standa fram að mótinu. En
við erum með heildsölu-
dreifingu fyrirtvö fyrirtæki í
málningarbransanum, þ.e.
Málningu hf. og Hörpu hf.,
og hafa málarar og fyrir-
tæki notað þá þjónustu
mjög mikið".
Er ekki töluverö sam-
keppnl á þessum markaöi?
„Jú, hún er nokkuð hörð,
en samkeppni heldur manni
vakandi og skapar visst að-
hald, annars myndu menn
sofna á verðinum".
Breytist smekkur fólks
mikiö ár frá.ári?
„Undanfarin ár hafa Ijósir
litir verið „dóminerandi" og
eru enn. Fyrir nokkrum ár-
um voru sterkir litir vinsælir
og einnig veggfóður, sem
þó er farið að sækja á aftur í
seinni tíð. En það er greini-
legt að fólk fylgist vel með
tiskunni".
Aö iokum, Kristinn, er
„Samkeppnin er hörðust gagn
vart Reykjavíkurmarkaðinum“
- segir Karl G. Sævar í DUUS
Karl G. Sævar og kona
hans, Hallfríður Ingólfs-
dóttir, hafa rekið verslunina
DUUS-húsgögn i rúm 7 ár
að Hafnargötu 36 í Keflavík,
en þar var fyrir húsgagna-
verslun Garðars Sigurðs-
sonar, eða Garðarshólmi,
eins og margir Keflvíkingar
muna eflaust eftir.
Eins og fram kemur ann-
ars staðar í blaðinu þáflutti
verslunin aðsetur sitt sl.
laugardag að Hafnargötu
90 í nýtt og glæsilegt hús-
næði. Blaðamanni Víkur-
frétta tókst að tefja Karl í
nokkrar mínúturáopnunar-
daginn, þarsem ákveðið var
að rekja garnirnar úr kaup-
manninum. Við gefum hon-
um orðið:
„Það var 1. mars 1977 að
ég keypti af Garðari og hef
rekið verslun mína, DUUS-
húsgögn, síðan, eða í rúm 7
ár“, sagði Karl.
Nú hefur ýmislegt breyst i
efnahag fólks á ekki lengri
tima en þaö. En hafa versl-
unarhættir breyst mikiö á
þessum tíma?
„Já, því er ekki að neita.
Lánsviðskipti hafaaukistog
nú er kerfið orðið miklu
opnara gagnvart fyrir-
greiðslu en áður var. Tvö sl.
ár hafa sýnt, að það eru
greinilega minni peningar í
umferð en verið hefur".
Hvernig kemur þaö viö
kaupmanninn?
„Hann er náttúrlega
ábyrgur fyrir öllu saman, og
þannig er maður háður
fyri rgreiðsl u. Ég til að
mynda skipti við Sparisjóð-
inn og ég fæ þar mjög góða
fyrirgreiðslu, sem og mörg
önnur fyrirtæki hér á Suð-
urnesjum".
Hvaö meö samkeppni, nú
er hún mikil?
„Samkeppni er til góðs,
það er staðreynd. Einna
harðasta samkeppni sem
við heyjum er þó gagnvart
Reykjavíkurmarkaðinum.
Úrval hjá húsgagnaverslun-
unum hér í bæ, þ.e. DUUS
og Bústoð, er það gott, að
óþarfi er að leita inn eftir.
Þessar verslanir eru með
því besta sem gerist á þess-
um markaði bæði hvað
varðar verð og gæði, og
einnig má bæta því við að
þó fólk sjái ekki hluti hjá
okkur sem það leitar eftir,
þá getum við í flestum til-
fellum útvegað þá og á
sama verði og þeir eru á
annars staðar.
Við flytjum inn töluvert
sjálf og getum útvegað alla
klassa af húsgögnum.
Og það er nokkuð um það
að fólk komi með bæklinga
eða myndir af sérstökum
vörum og biðji okkur um að
útvega eftir þeim".
Hvaö meö smekk fólks, -
hefur hann breyst mikiö?
„Það er ekki eins mikið
um klassiskar vörur eins og
áður. Leðrið hefur sótt
mikið á og hefur það orðið
til þess að verðmunur milli
taus og leðurs er alltaf að
minnka. Einnig er töluverð
eftirspurn í nýtísku hús-
gögn, eins og kölluðeru, og
þegar smekkur fólks er svo
breytilegur er um að gera
að hafa úrvalið eins gott og
kostur er“, sagði Karl G.
Sævar í DUUS. - pket.
ekki eitthvað minnisstætt
frá þessum árum?
„Það er eitt atvik sem
situr alveg sérstaklega fast i
mér, og það er þegar sjó-
menn fóru í verkfall og not-
uðu tímann til að mála hús
sín, enda var veður þá með
afbrigðum gott. Það var
botnlaus traffík í nokkra
daga og við stöfluðum
málningardollunum á stétt-
ina, sem runnu út eins og
heitar lummur og komust
því aldrei í búðina, sem þá
var að Hafnargötu 19. Þá
mátti sjá sjómenn úti um
allan bæ að mála hús sín",
sagði Kristinn að lokum.
pket.
Stjórn kosin
hjá íðnþró-
unarfélaginu
Á stofnfundi Iðnþróunar-
félagsins nú fyrir skemmstu
voru eftirtaldir kjörnir í
fyrstu stjórn þess:
Eyjólfur Þórarinsson,
Keflavík; Einar Guðberg
Gunnarsson, Keflavík; Krist
inn Benediktsson, Grinda-
vík; Elsa Kristjánsdóttir,
Sandgerði; og Vilberg Þ.
Jónsson, Vogum. SSS
hefur tilnefnt Þórarin St.
Sigurðsson, Höfnum, sem
sinn fulltrúa. - epj.
Trjágróður og
gangstéttir
á Fokkunni
Eins og margir hafa tekið
eftir er búið að grafa þvers
og kruss um Fokkuna, þ.e.
svæði það sem styttan af
Ólafi Thors er.
Að sögn Jóns B. Olsen,
garðyrkjustjóra Keflavík-
urbæjar, verða útbúin
þarna beð þar sem tré verða
gróðursett og eins verða
lagðir þarna gangstígar.
Hefur Lionsklúbbur Kefla-
víkur og fleiri ákveðið að
leggja til trjágróður í svæð-
ið. - epj.
46 umferðar-
óhöpp í apríl
Samkvæmt mánaðaryfir-
liti Umferðarráðs varðandi
umferðaróhöpp í sl. mán-
uði í Keflavík, Njarðvík,
Keflavíkurflugvelli, Grinda-
vík og Gullbringusýslu,
kemur fram að heildarfjöldi
þessara óhappa varð 46 og í
þeim slösuðust alls3, þaraf
2 meiri háttar.
23 óhappanna urðu í
Keflavík og Njarðvík, 10 á
Keflavíkurfl ugvelli, 10 í
Grindavík og 3 annars stað-
ar í sýslunni. Þeir sem slös-
uðust lentu í þremur óhöpp-
um í Keflavík og Njarðvík.
epj.
Auglýsingasíminn
er 1717.