Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.05.1984, Qupperneq 5

Víkurfréttir - 24.05.1984, Qupperneq 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 24. maí 1984 5 Krabbameinsskoðunin á Suðurnesjum: Aðeins 39% af boð- uðum konum mættu Samt fundust bæði forstigsbreytingar og krabbameinstilfelli Mjög léleg mæting var hjá konum hér syðra í krabba- meinsskoðun þásem boðið var upp á hjá Heilsugæslu- stöðinni í vetur. Að sögn dr. Kristjáns Sig- urðssonar, yfirlæknis Krabbameinsleitarstöðvar- innar, sem hafði yfirumsjón með skoðuninni hér, mættu Bjargað ofan af 3ja hæða húsi Um kl. 15.40 sl. fimmtu- dag barst lögreglunni í Keflavík tilkynning um að 10 ára drengur kæmist ekki niður af þaki á þriggja hæða fjölbýlishúsi við Heiðar- hvamm í Keflavík. Hafði drengurinn klifrað upp eftir þakrennunni af svölum á 3. hæð og þar tókst honum að vega sig yfir breiðan kant og upp á þakið, en þar ætl- aði hann að ná í bolta sem þar hafði orðið fastur. Er það talið furðu sæta að drengurinn skyldi ná að vega sig yfir kantinn. En þegar upp var komið leist honum ekki á að fara sömu leiö aftur niður, og því var lögreglan fengin til að hjálpa honum niður aftur, sem tókst eftir að slökkvilið- ið hafði lagt til stiga. - epj. Hér sést aðstaöan þar sem drengurinn fór upp á þakió. Dráttarvél valt ofan í skurð Á fimmta tímanum sl. fimmtudag valt dráttarvél frá íslenskum Aðalverktök- um ofan í skurð úti í Helgu- vík. Tveirmennvoruádrátt- arvélinni og sluppu án meiðsla, en til öryggis var farið með stjórnanda vélar- innar á Sjúkrahúsið í Kefla- vík til rannsóknar. Er talin mikil mildi að ekki skyldi hljótast þarna stórslys. Orsök veltunnar eru talin þau, að stjórnandi vélarinn- ar hafi misst stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún valt ofan í djúpan skurð er liggur með veginum út i Helguvík og var grafinn fyrir væntanlega olíuleiðslu. Er dráttarvélin hafði stöðvast á hliðinni ofan i skurðinum, skriðu stjórnandi hennarog farþegi út úr húsi dráttarvál- arinnar ómeiddir, eins og fyrr er sagt. - epj. aðeins 39% af þeim 1110 konum sem boðaðar voru til skoðunar. Enda fór svo að skoðunin átti að vera þrjár helgar, þ.e. föstudag og laugardag, en vegna væg- ast sagt lélegrar þátttöku fór svo að skoðað var tvær helgar og síðan aðeins á föstudag, þ.e. annan dag- inn, en skoðun féll niður á laugardeginum. Um árangur skoðunar- innar sagði Kristján að enn væri ekki búið að vinna úr öllum gögnum, þannig að heildar árangur væri ekki kominn nema með tilliti til mætingar. En þó er Ijóst að áður en skoðunin fór fram höfðu um 40% kvenna á Suðurnesjum ekki mætt til skoðunar í 5 ár, en að lok- inni skoðun var þetta hlut- fall komið niður í 23%, sem er niðurfyrirlandsmeöaltal. Sagði Kristján að afrakst- urinn hefði orðið slíkur, að fundist hefðu bæði forstigs- breytingar og krabbameins- breytingar, en niðurstöður í prósentuvís munu ekki liggja fyrir fyrr en síðar í sumar. Þá sagði hann að um 80 konur sem ekki fengu bréf en höfðu ekki komið til skoðunar í tvö ár eða lengur, hefðu komið til skoðunar meðan á þessu stóð. Með tilkomu nýju heilsugæslustöðvarinnar sem tekin var formlega í notkun í dag, og ráðningu kvensjúkdómalæknis hing- að suður, mun í framtíð- inni verða hægt að fram- kvæma reglulega slíkar skoðanir hér syöra, aðsögn Kristjáns, og er stefnt að því að svo verði í framtíðinni. En hvenær slíkt verður, fer eftir ákvörðun stjórnar Heilsugæslustöðvar Suður- nesja. - epj. Snyrtistofan ANNETTA auglýsir: Nýkomið mikið úrval af SNYRTIVÖRUM. Lækkað verð á CLINIQUE SNYRTIVÖRUM Snyrtistofan ANNETTA Simi 3311 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ: MIÐLARNIR leika fyrir dansi frá kl. 22 - 03. LAUGARDAGUR 26. MAÍ: MIÐLARNIR leika fyrir dansi frá kl. 22 - 03. Aldurstakmark 20 ára. - Snyrtilegur klæðnaður. - ATH: Betrumbættur EGILS-BJÓR, bættur af baróni hússins. ALLIR AÐ SPARA - STUTT AÐ FARA Vöruval - vörugæði. Hagstætt verð. Garðhúsgögn Stólar Borð Sólstólar Sólbekkir Ferðavörur Tjöld Svefnpokar Tjalddýnur Bakpokar Gastæki Gaskútar Ljós Kælibox Picknick-sett Fatnaður Sumarjakkar Buxur Bolir Skór Mikið úrval. Sími1540 Dráttarvélin á hlióinni ofan i skuröinum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.