Víkurfréttir - 24.05.1984, Page 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 24. maí 1984
Kirkjudagur Keflavík-
ursafnaðar.
Næstkomandi sunnudag,
á hinum almenna bænadegi
þjóökirkjunnar, verður
árviss kirkjudagur Kefla-
víkursafnaðar. Segja má að
dagurinn marki lok vetrar-
starfsins.
Að þessu sinni mun séra
Ólafur Skúlason, vígslu-
biskup Skálholtsstiftis,
koma á heimaslóðir og
predika í Keflavíkurkirkju
kl.14. Kór Keflavíkurkirkju
syngur lofgjörðar- og bæna
sálma undir stjórn Siguróla
Geirssonar og félagar úr
kórnum syngja einsöng.
Systra- og bræðrafélag
kirkjunnarannast kaffisölu i
Kirkjulundi að lokinni
messu. Allur ágóði rennur i
líknarsjóð kirkjunnar, sem
ætlað er það hlutverk að
styrkja þá sem höllum fæti
standa.
Keflvíkingar og aðrir vel-
unnarar kirkjunnar eru
hvattir til að fjölmenna og
styðja gott málefni. Eldri
Keflvikingar eru sérstak-
lega boðnir velkomnir.
Eigum saman uppbyggi-
lega guðsþjónustustund í
kirjunni og fögnum sumri
yfir kaffibolla í Kirkjulundi.
Sóknarprestur.
Sumarstarf skáta
í Keflavík
Nú ersumarstarf Skátafé-
lagsins Heiðabúa að hefj-
ast.
Félagsútilega verður
haldin 1. og 2. júní sunnan
við Hafnir. Verður þetta
undirbúningur fyrir „Fjórð-
ungsmót Skátasambands
Kjalarnesprófastsdæmis",
sem haldið verður í Vest-
mannaeyjum dagana 28.
júní til 1. júlí. Þeir skátar
sem ætla í félagsútileguna
eru beðnir að mæta í Skáta-
húsið föstudaginn 25. maí
kl. 20, til að fá frekari upp-
lýsingar og láta skrá sig.
Þeir sem ekki hafa tilkynnt
þátttöku og greitt trygging-
argjald sitt á mót S.S.K. í
Vestmannaeyjum, geta
látið skrá sig hjá Sillu í
versluninni Sprota.
Við viljum vekja athygli
eldri skáta og foreldra á
mótinu í Vestmannaeyjum.
Þar verða starfandi for-
eldrabúðir. Mottó mótsins
er: „Skátinn og frækornið".
(ágúst er ákveðið að hafa
Fjördag fyrir yngstu borg-
arana, svipaðan og þann
sem haldinn hefur verið í
Hljómskálagarðinum í
Reykjavík sl. 2 ár.
Heiðabúar
Heilt bílastæði undir
steypustyrktarjárn.
Blaðinu hefur borist ósk
um að koma þeim tilmælum
á framfæri til þess aðila er
lagði steypustyrktarjárnið
svona ,,pent“ á bílaplanið
Slitnaði upp
Sl. mánudagskvöld slitn-
aði lítill trébátur, Hinrik KE
200, upp þar sem hann lá
við suöur hafnargarðinn í
Njarðvík, og tók hann þegar
að reka í átt að fjörunni
neðan Sjöstjörnunnar.
Tókst mönnum að komast
um borð í bátinn og koma
vél hans í gang, en þó tók
báturinn aðeins niðri áður
en vélin fór í gang. Var
honum síðan siglt að
bryggju. - epj.
Firmakeppni
Firmakeppni í körfubolta
verður haldin í íþróttahús-
inu í Sandgerði dagana 2.-
3. júní. Nánari upplýsingar
eru gefnar í sima 7428
(Jóhanna) og 7585 (Jón) á
kvöldin. pket.-
Síminn
gleymdist
Fyrir stuttu var sagt frá
því að Landsmótsnefnd
UMFÍ hefði opnað skrif-
stofu í Njarðvík. Símanúm-
er skrifstofunnar gleymd-
ist en það er 1596 og er hún
opin frá kl. 13-18 virka
daga. - pket.
að koma því á betri stað.
Járninu var lagt yfir planið
þannig að ekki er hægt að
leggja bílum þarna sem all
margir notfæra sér þar sem
bílastæði eru af skornum
skammti við Hafnargötuna.
pket.
200-300 ferm. húsnæði
óskast til leigu í Keflavík. - Upplýsingar á
skrifstofu Víkur-frétta.
Stapafell hf., Keflavík
Mótorsláttuvélar ...... frá kr. 10.100
Rafmagnssláttuvélar ... frá kr. 6.200
Handsláttuvélar ........frá kr. 2.200
Sláttuorf.............. frá kr. 6.275
Rafmagnskantklippur .... frá kr. 1.800
STAPAFELL HF. - Simi 1730, 2300
Húsgagna-
sýning á
sunnudag
í framhaldi af opnun okkar
verður opið n.k. sunnudag
frá kl. 14-17.
Full búð af nýjum vörum.
Allt fyrir unga
fólkið á loftinu
í DUUS.
Verið velkomin í
nýja verslun.
DUUS húsgögn
Hafnargötu 90 - Keflavík - Sími 2009
T1MBUR ffi
Líttu inn og kannaðu
verð og gæði.