Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.1985, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 04.07.1985, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 4. júlí 1985 VIKUR-fréttir mun | pittií Útgefandi: Vikur-fréttir hf. ..Afgreiösla, ritstjórn og auglýslngar: Hafnargötu 32, II. hæö - Sími 4717-Box 125-230 Keflavík Fiskverkendur á Suðurnesjum: Hafa dottíð í þá ljónagryfju að halda niðri launum Ritstj. og ábyrgöarmenn: Blaöamenn: Emil Páll Jónsson, hs. 2677 Eiríkur Hermannss., hs. 7048 Páll Ketilsson, hs. 3707 Kjartan Már Kjartanss., hs. 1549 Auglýsingastjóri: Páll Ketilsson Upplag: 4000 eintök, sem dreift er ókeypis um öll Suöurnes hvern fimmtudag. fiskverkunarfólks - segir Einar Kristinsson formaður Vinnuveitendafélags Suðurnesja Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað, er óheimilt nema heimildar sé getiö. Setning. tilmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF., Kefiavik GRJÓTGRINDUR á flesta bíla. í framhaldi af þeirri um- ræðu sem átt hefur sér stað um vanda sjávarútvegsins, þá tókum við Einar Krist- insson formann Vinnuveit- endafélags Suðurnesja nýlega tali. Hann hafði þetta um málið að segja. GOTT VERÐ Kr. 1400 - m/ásetningu. - Símar 2735, 3984 - Byggingalóðir til sölu Til sölu eru neðangreindar óbyggðar eignarlóðir í Keflavík. Hringbraut 88, 766 fermetrar Tjarnargata 32, 702 fermetrar Hrauntún 1, 700 fermetrar Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð skilist undirrituðum. LÖGMENN GARÐAR OG VILHJÁLMUR Hafnargötu 31, 230 Keflavík. Símar 1723 og 1733. „Almenn vandkvæði í fisk- vinnslunni eru' mikil um þessar mundir á landinu öllu, má það þykja undar- legt á sama tíma og mark- aðir eru góðir og því er þessi vandi heimatilbúinn. Það hefur ekki verið tekið nægi- lega á hlutunum að okkar mati, ekki jafnharðan og vandræðin hafa komið fram, er þetta því að hluta til uppsafnaður gamall vandi. Nýverið birtist skýrsla sem Vestfirðingar tóku saman og í framhaldi af því hefur Samband fisk- vinnslustöðvanna farið þess á leit við öll vinnuveit- endafélögin á landinu að þau kynntu sér skýrsluna og kæmu með sínar tillögur, sem ættu við á hverju svæði út af fyrir sig. Hér á Suðurnesjum hefur Fasteignaþjónusta Suöurnesja KEFLAVÍK - NJARÐVÍK: 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir við Heiðarholt, Fífumóa og Hjallaveg. Verð frá .................................. 1.150.000 3ja herb. neðri hæð með bílskúr við Vesturgötu. Skipti á ódýrari eign æskileg. Nánari uppl. á skrifstofunni. 3ja herb. neðri hæð við Hátún. Laus nú þegar. Útb. samk.l. 1.350.000 3ja herb. góð rishæð við Hátún, laus strax............ 1.150.000 Neðri hæð með bílskúr við Hringbraut, laus fljótlega .. 1.500.000 Einbýlishús við Suðurtún, Smáratún, Óðinsvelli og víðar. Skipti á Viðlagasjóðshúsum möguleg, eða beinar sölur. Góð 4ra herb. neðri hæð við Vesturgötu með hlutdeild í bíl- skúr. Skipti á góðri 3ja herb. íbúð möguleg ......... 1.800.000 Nýlegt endaraðhús við Birkiteig með bílskúr og garðhús við Greniteig með bílskúr. „Góðar eignir!‘Verð frá .... 3.500.000 90 ferm. gott raðhús við Mávabraut .................. 1.950.000 Raðhús á tveimur hæðum við Faxabraut í góðu ástandi með bílskúr. Skipti möguleg ........................ 2.500.000 Einbýlishús við Háseylu og Kirkjubraut í Njarðvík. Verð frá 2.000.000 Úrval eigna á skrá í Garði, Sandgerðl, Vogum og Grindavík, m.a. ein- býlishús í Garði, Viðlagasjóðshús og einbýlishús í Sandgerði, raðhús í Grindavík o.fl. - Upplýsingar á skrifstofunni. Fasteignaþjónusta Suðurnesja Hafnargötu 31, II. hæö - Keflavík - Símar 3441, 3722 vinnuveitendafélagið skip- að nefnd til að fara í gegnum skýrsluna og gera tillögur í sambandi við úr- bætur. Þessi nefnd mun starfa næstu vikur og síðan verður fundað í sambandinu og í framhaldi af því er ætlunin að hitta forsætis- og sjávar- útvegsráðherra hið fyrsta. Talað var um að þessi nefnd ætti fund með þing- mönnum kjördæmisins áður en fundað yrði með ráðherrunum, til að kynna þingmönnunum alla mála- vöxtu. Rétt er að geta þess að af frumkvæði þingmannanna og viðskiptaráðherra hefur nú verið farið þess á leit við Framkvæmdastofnun að hún geri úttekt á stöðu fisk- vinnslufyrirtækjanna hér á Suðurnesjum hið allra fyrsta og hafa bréf verið send til fyrirtækjanna, þar sem óskað hefur verið eftir ýmsum gögnum sem þá vantar til að vinna úr. Við í þessum iðnaði erum ákaflega áhyggjufullir, hvernig hjólið hefur snúist hér á undanförnum árum. Sjáum við ekki annað, en ef að ekkert verður að gert hið bráðasta, leggist þessi at- vinnugrein hreinlega af hér á svæðinu. Það þarf ekki að telja upp hver vandræðin eru og hverjir skellirnir sem hafa dunið yfir, hér á einu stærsta skreiðar- og saltfiskverkunarsvæði landsins. Skreiðin óseld og saltfiskverkun hefur verið mjög óhagstæð. A síðasta ári og það sem af er þessu hafa hlutirnir Einar Kristinsson gengið mjög illa, enda sýnir þetta sig á því að menn gefast hreinlega upp og það versta er að atvinnurek- endur hafa dottið ofan í ljónagryfju. Ef svo má segja um þá óráðssíu að halda fiskvinnslufólki á lágum launum, sem hefur síðan hjálpað allverulega til að gera þetta fólk fráhverft þessu starfi, sem er eril- samt og erfitt og þarf að vera vel launað til þess að fólk sækist í það. Þetta höfum við ekki áttað okkur á nógu tímanlega, menn sjá þetta í dag, en það er of seint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan í hann. Væntum við þess því nú, að stjórnvöld rumski allverulega áður en það er um seinan. Það er engin vandi að setja sjávarútveg á Islandi á hausinn, en það yrði krafta- verk að reisa hann við aftur, eftir að þeir sem við hann starfa í dag eru frá honum gengnir", sagði Einar að lokum. - epj. 16 ára - eða á 16. ári Hjá unglingum eru það mikil tímamót að verða 16 ára gömul, þá fá þeir sömu laun og fullorðnir, auk þess sem þeir fá ýmis réttindi sem þau höfðu ekki áður. En þá fá þau líka að finna fyrir'klóm frá riki, bæjarfél- aginu, verkalýðsfélögum, lífeyrissjóðum o.fl. sem byrjar að taka af þeim útsvör, þinggjöld, félags- gjöld eða lífeyrissjóðsgjöld. Þessir aðilar miða við fæðingarárið, þ.e. án tillits til þess hvenær á árinu unglingarnir, ná því marki að verða 16. I sjálfu sér væri það i lagi ef það sama gilti varðandi kaupið, en þar er svo farið að ríki og bær ganga fram fyrir skjöldu og sjá til þess að fæðingar- dagurinn skuli gilda og draga því unglingana í dilka. Haustbörn þ.e. þau sem fædd eru að hausti verða því oft á tíðum á lægri launum hjá því opinbera, en vor og vetrarbörn. Þetta finnst unglingun- um að sjálfsögðu nöturlegt, enda er svo þegar um er að ræða unglinga sem verið hafa saman í skóla kannski í 9-10 ár, að núeru þauekki lengur talin jafngömul, nema þegar taka þarf af þeim gjöld, þá er allur ár- gangurinn jafnaldrar. Slíkar reglur sem þessar eru til þess eins fallnar að fá unglingana upp á móti kerfinu, og því mætti alveg samræma þessi atriði. Faðir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.