Víkurfréttir - 04.07.1985, Blaðsíða 9
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 4. júlí 1985 9
Dauðagildra í Sandgerði:
Vítavert kæruleysi verktakans
Á mánudag í sl. viku
fékk lögreglan tilkynningu
um nokkurs konar dauða-
gildru skammt frá svínabú-
inu neðan við Strandgötu í
Sandgerði. Hafði verktaki
úr Njarðvíkum verið að
grafa holu fyrir brunn fyrir
Hitaveituna, en gengið
þannig frá holunni að hún
fylltist af regnvatni og var
því stórhættuleg.
Hafði verktaki trassað að
girða utan um holuna og
höfðu foreldrar miklar
áhyggjur af henni vegna
þess hve djúp hún var.
Hafði lögreglan samband
við verktakann, sem átti
erfitt með að gefa svör við
spurningum um frágang á
þessu og var því skýrsla
tekin vegna málsins og send
til áframhaldandi rann-
sóknar.
Þegar blaðamaður tók
meðfylgjandi mynd var allt
vatn sigið niður og brunnur
kominn í holuna, en engu
að síður var hún stórhættu-
leg fyrir lítil börn, því verk-
takinn hafði sl. sunnudag
ekki gert neitt til að byrgja
hættuna. Eru vinnubrögð
sem þessi vítaverð og óbæt-
anlegt ef slys verður fyrir
slíkt kæruleysi. - epj.
Dauðagildran við Strandgötu í Sandgerði
Veiðivatn
á Suðurnesjum
Suðurnesin eru rikari af
ýmsu öðru en veiðivötnum,
svo sem öllum er kunnugt.
Það kom því skemmti-
lega á óvart að sunnudag-
inn 23. júní s.l. bauð
Stangaveiðifélag Kefla-
víkur almenningi til veiða í
Seltjörn við Grindavíkur-
veg.
Fjöldi fólks kom á stað-
inn og í ljós kom að í
vatninu var vænn urriði og
veiddu ýmsir vel.
Þetta boð þeirra stanga-
veiðifélagsmanna var í til-
efni af „veiðidegi fjölskyld-
unnar“, sem var sameigin-
legt átak stangaveiðifélags-
manna í landinu til að
hvetja almenning til auk-
innar þátttöku í þessu
vinsæla sporti.
Fiskurinn í Seltjörn er
árangur af seiðaslepp-
ingum, sem hófust fyrir
fjórum árum. Það eru
landeigendur í Innri Njarð-
vík, sem eiga Seltjörninaen
hafa leigt hana til Stanga-
veiðifélagsins sérstaklega í
þeim tilgangi að þar gefist
þeim tækifæri til veiða sem
annnars eiga lítinn kost á
veiðiferðum. Þarna er átt
við börn og unglinga og þá
sem vegna heilsu eða aldurs
eiga óhægt með að stunda
lengri veiðiferðir. í
samræmi við þetta verður
verðlagningu á veiðileyfum
mjög í hóf stillt enda sýndu
landeigendur málinu
sérstakan velvilja með því
að láta aðstöðuna þarna í té
án endurgjalds. Tekjurnar
ganga því eingöngu til
seiðakaupa og lagfæringu á
svæðinu.
Þar sem hér er um að
lítinn fiskstofn að ræða
verður að takmarka veiðina
verulega. Seld verða þrjú
veiðileyfi hvern dag og auk
þess er eitt veiðileyfi til
afnota án endurgjalds
handa öldruðum og
fötluðum, sem kynnu að
vilja nota sér það.
Hvert veiðileyfi gildir
fyrir tvo og er þetta fyrir-
komulag sérstaklega
hugsað til þess að fjölskylda
geti verið saman um
veiðileyfi og fjölskyldu-
meðlimir deilt því með sér
að nota stengurnar tvær,
eða þá að tveir unglingar
kaupi sér leyfi saman og
njóti félagsskapar við veið-
ina.
Hófst veiðileyfasalan um
sl. helgi en veiðileyfin verða
seld í bensinstöð Skeljungs
við Hagkaup á Fitjum.
Vonandi taka .Suður-
nesjamenn þessu framtaki
með velvild og skilningi og
virða allar reglur, sem
þarna gilda, um umgengni
og veiðiskap.
Auglýsing í
Víkur-fréttum
er engin
smáauglýsing
Trilla strandar
á Fitjum
I síðustu viku átti einn
maður á trillu í vandræð-
um fyrir framan Fitjarnar í
Njarðvík. Fékk lögreglan
tilkynningu um vandræðin,
og fór Auðunn Karlsson á
lóðsbátnum til hjálpar á 3.
tímanum að nóttu til, en þá
var trillan komin upp í
fjöru.
Þegar lögreglan kom á
staðinn var maðurinn kom-
inn í land en trillan hafði
verið um 100 metra frá
landi þegar tilkynningin
barst. Leikur grunur á að
um ölvun hafi verið að ræða
en trillan var á leið til Innri-
Njarðvíkur. - epj.
Hafnarstjóri
í Sandgerði
Staða hafnarstjóra við Sandgerðishöfn er
hér með auglýst laus til umsóknar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1.
september n.k.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 20.
júlí n.k.
Sveitarstjóri Miðneshrepps
Tjarnargötu 4 - 245 Sandgerði