Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.1985, Page 11

Víkurfréttir - 04.07.1985, Page 11
VlKUR-fréttir Fimmtudagur 4. júlí 1985 11 ,lungað“ og gleraugun. >arna var ég nú sjónlaus, oftlaus og vasaljósið lafði farið líka við löggið. Ég hafði lært það . námskeiðinu sem ég agði þér frá áðan, að við líkar aðstæður verður naður að halda fullri ró. :g fór nú að reyna að ;era mér grein fyrir standinu sem var býsna vart. Ég verð að viður- :enna það að ég hélt að ietta yrði mitt síðasta. En jeraugunum kom ég á lausinn á mér aftur og ftir að hafa gleypt eina mferð af sjó mað átu og llu saman, náði ég að oma lunganu uppí mig ný. Síðan synti ég upp á firborðið. Þar bentu skipsfélagar mínir mér á ljósið sem ég hafði misst. Það var þarna rétt fyrir utan skipið. Ég synti að ljósinu en sá þá að þarna voru tveir hnúfubakar, sem eru ca. 15-20 m langir hvalir, ásamt kálfi að leika sér með ljósið. Þeir syntu í geislanum, sem var mjög sterkur. Þarna var ég andspænis þessum skepnum í dágóðan tíma. Ég sótti ljósið og var þá svona u.þ.b. 5 metra fjarlægð frá þeim. Þarna sá ég þau stærstu augu sem ég hef nokkurn tíma á ævinni séð. Þau voru mjög falleg og á stærð við körfubolta. Það var frábært að vera þarna innan um þessar skepnur út á rúmsjó og leika við þær, því það var einmitt það sem ég gerði næst. Ég lýsti á þá með ljósinu og þeir höfðu gaman af því. Það var líka upplifun að heyra þá blása svona nærri sér. Skipsfélagarnir sögðu að ég hefði verið svo ljótur að hvalirnir hefðu ekki viljað éta mig en ég vissi að þessi hvala- tegund lifir á svifi og átu svo ég hafði ekki miklar áhyggjur af því. Svo get ég sagt þér aðra sögu. Við Sigurjón bróðir vorum einu sinni sem oftar að fara að kafa út af Garðskaga. Þegar við vorum komnir nokkuð út á sjó, lentum við í selahóp, svona 30 til 40 stykkjum. Það skipti engum togum að selirnir ráku okkur í land aftur. Þeim hefur sennilega ekkert litist á þessar tvær skærrauðu mannverur sem ruddust svona allt i einu inn á „þeirra“ svæði. Við syntum í land á mettíma og fórum ekkert meira í sjóinn þann daginn. Hvað á nú byrjandi að gera ef hann fær áhuga á sportinu eftir að hafa lesið Frh. á bls. 19 Tómas Knútsson í fullum skrúða, reiðubúinn til köfunar. xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx A AÐ ENDURNYJA ÞANN GAMLA? Plúslán er peningalán sem bankinn veitir skv. sérstöku samkomulagi þar um. Skilyrði lánveitingar er að umsœkjandi hafi mánaðarlega lagt fé með reglu- bundnum hœtfi á Piúsiánareikning sem nýtur Ábótarkjara. Þegar sparnaðartíma lýkur hefur reikn- ingseigandi til ráðstöfunar: I fyrsta lagi: Hið sparaða fé. í öðru lagi: Vexti. í þriðja iagi: Plúslán. Upphœðir Plúslána með Ábót: Spamaðartími Lán Endurgreiðslutími 3-5 mánuðir 100% 3-5 mánuðir 6-11 mánuðir 125% 6-11 mánuðir 12 - 23 mánuðir 150% 12-23 mánuðir 24 mánuðir 200% 24 - 48 mánuðir ÚTVEGSBANKINN Hafnargötu 60 - Keflavík - Simi 1199 EINN BANKI - ÖLL ÞJÓNUSTA

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.