Víkurfréttir - 04.07.1985, Qupperneq 12
12 Fimmtudagur 4. júlí 1985
VÍKUR-fréttir
Valgeirsbakarí 15 ára
-eina handverksbakaríið
á Suðurnesjum
Um þessar mundir hefur
Valgeirsbakarí í Njarðvík
náð þeim áfanga að hafa
þjónað fólki á Suðurnesjum
með bakkelsi í 15 ár. Að
þessu tilefni tókum við Val-
geir Þorláksson bakara tali
en hann er eigandi bakar-
ísins ásamt eiginkonu sinni
Magdalenu Olsen.
Sagði Valgeir að frá
upphafi hefðu viðskipta-
vinirnir tekið vel á móti sér
og því hafi hann reynt að
endurgjalda það með góðri
þjónustu. Biði hann því
upp á góða vöru sem
fólkinu líkaði. T.d. hefði
hann eftir að flutt var í nýja
húsið aukið við vöruflokka
auk þess sem hann hefði nú
til sölu mjólkurvörur s.s.
ost, jógúrt o.fl., kaffi og
svaladrykki.
Er Valgeir sjálfur á
staðnum mestan hluta
dagsins og er því oft hægt
að bjarga rjómatertum og
öðru þess háttar á 10-15
mínútum. En Valgeirs-
bakarí er eina handverks-
bakaríið á Suðurnesjum,
auk þess sem það er eina
bakaríið á svæðinu sem er
með opinn afgreiðslutíma á
sunnudögum. - epj.
Fann kanóa á reki og á hvolfi
Að morgni föstudagsins 28. iúní sl. kom trillubáturinn Smári KF. 34
að báti af „kanóa“-gerð á hvolfl Vi til 1 sjómílu frá innsigiing-.
unni til Njarðvíkur. Er ekki vitað hvaðan báturinn er, en hann er nú í
vörslu lögreglunnar og sést á meðfylgjandi mynd. - epj.
Húsnæði óskast
íbúðir fyrir kennara óskast frá og með 1.
ágúst n.k. Æskilegar stærðir eru 3ja til 4ra
herbergja íbúðir.
Nánari upplýsingar gefa Helga Karlsdóttir í
síma 7674 og Jón Kr. Ólafsson í síma 7554.
Sveitarstjóri Miðneshrepps
ATVINNA
Fiskimjölsverksmiðjan Strandirhf., Reykja-
nesi, óskar að ráða nú þegar vélsmiði eða
menn vana vélavinnu. Mikil vinna. Uppl. í
síma 92-3108.
ATVINNA
Pípulagningamaðureða maðurvanur pípu-
lögnum óskast vegna sumarleyfa. Þarf að
geta byrjað strax.
Einnig óskast kona til afgreiðslustarfa
vegna sumarleyfa. Getur orðið Vfc dags
starf.
JÓN ÁSMUNDSSON
Sími 1212 og 2366
Eigendur Valgeirsbakarís, hjónin Magdalena Ólsen og Valgeir Þorláksson ásamt starfsfólki sínu.
Á myndina vantar bakarann Tage Kusk
Gömul seglskúta í Keflavík
Mikla athygli hefur vak-
ið gömul seglskúta sem
kom að bryggju í Keflavík
sl. föstudag og var þá áætl-
að að hún yrði í höfninni í
4-5 daga. Skúta þessi er að
öllu leyti í sinni uppruna-
legu mynd þó um borð séu
komin ný siglingatæki, að
öðru leyti minnir hún á
skútuöldina.
Skútan sem mælist 172
tonn brúttó, er frá Valletta
á Möltu, en undir stjórn
Þjóðverja, og komu þeir
hingað frá Cuxhaven í
Þýskalandi og fara héðan
til Quebec í Kanada. Var
skútan notuð sem skóla-
skip hingað og hér fóru í
land 18 krakkar sem flugu
héðan heim til Þýskalands.
epj.
Það er sjaldséð sjón að sjá skútu sigla inn í Keflavíkurhöfn
Tjáskipti í Keflavík
Hinn 8. júlí n.k. hefjast í
Keflavík 4ra vikna
námskeið í almennum tjá-
skiptum, sem lýkur 31. júlí.
Námskeiðin eru ætluð fólki
á öllum aldri sem vilja
styrkja persónuleika sinn.
Menntun, reynsla, viska,
velvilji og skilningur nýt-
ast mönnum ekki sem
skyldi, er þeir eiga við tjá-
í nýlegu Lögb.bl. birtust
tilkynningar um nýskráð
hlutafélög, annað í Garði
en hitt í Njarðvík, þau eru:
Sveinborg hf. Garði, um
er að ræða útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki sem
eftirtaldir íbúar í Gerða-
hreppi hafa stofnsett.
Theódór Guðbergsson,
Jóna H. Halldórsdóttir,
Guðbjörg Theódórsdóttir,
Þórarinn Guðbergsson,
Ingunn Pálsdóttir og Einar
Már Aðalsteinsson.
skiptaörðugleika að stríða.
Markmið námskeiðanna er
að þátttakendur kynnist
eigin getu og hæfileikum og
læri að nýta þá í samskipt-
urn við aðra.
Á námskeiðinu munum
við leitast við að örva
eftirfarandi atriði og eigin-
leika í fari ykkar:
Einbeitni, sjálfsskynjun,
Bolafótur hf. Njarðvík, er
nafn á nýrri heildsölu og
fyrirtæki sem annast á inn-
og útflutning ásamt
umboðssölu. Stofnendur
eru allir búsettir í Njarðvik
og heita Hörður Karlsson,
Anna Sigurðardóttir,
Anton Gunnlaugur Krist-
insson, Kristjana Sólrún
Vilhelmsdóttir, Jens Elías
Kristinsson og Magnea
Garðarsdóttir. - epj.
skynjun umhverfis, athygli.
- Munnleg og líkamleg
tjáskipti. - Skipulag, sam-
vinna, gagnkvæmt traust. -
Minni, ímyndunarafl,
framsögn, skjót hugsun og
næmni, nýting upplýsinga
o.fl.
Stjórnandi námskeið-
anna er Andri Örn
Clausen. Upplýsingar og
innritun í síma 91-621126
dagana 4., 5., 6., 7. og8. júlí
milli kl. 11-13 og 17-20.
Til að sinna betur
þörfum hvers einstaklings,
verður takmarkaður fjöldi
þátttakenda á námskeið-
unum.
(fréttatilkynning)
Sumarbústaöur til sölu
50 ferm. fallegur sumarbú-
staður í Þrastarskógitilsölu
Smíðaður 1981-82. Lóð 'A
hektari. Möguleg skipti á bíl
að hluta. Uppl. á Bílasölu
Brynleifs, sími 1081, 4888.
Nýtt útgerðarfyrirtæki í Garði
- og heildverslun í Njarðvík