Morgunblaðið - 02.11.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Netverð á mann frá kr. 64.900 á Melia Lebreros m.v. 2 í herbergi.
Sevilla
6. nóvember í 3 nætur
2fyrir1 tilboð á flugsæti með gistingu
Frá kr.64.900
m/morgunmat
44.950
Flugsætifrá kr.
Ísak Rúnarsson
isak@mbl.is
Afkoma ríkissjóðs er betri en fjárlög
gerðu ráð fyrir samkvæmt fjárauka-
lagafrumvarpi sem lagt var fram á
vef Alþingis um helgina. Þannig eru
tekjur ríkissjóðs 26,4 milljörðum
hærri en fjárlög áætluðu en búist er
við að gjöld aukist um 9,6 milljarða.
Í fjáraukalagafrumvarpinu er gert
ráð fyrir að arður frá Landsbank-
anum á árinu sé 23,5 milljarðar og að
heildararður frá viðskiptabönkum sé
17,9 milljörðum hærri en upphaflega
var áætlað. Hins vegar lækkar áætl-
aður arður frá Seðlabanka Íslands
úr 4 milljörðum í 1,9 milljarða. Þá
verður ekki af 0,7 milljarða arð-
greiðslu sem hafði verið ráðgerð frá
Isavia ohf.
Aukinheldur er búist við að vaxta-
gjöld af innlendum lánum verði lægri
en búist var við. „Endurmetin áætl-
un um vaxtagjöld ríkissjóðs gerir ráð
fyrir að þau verði 76,8 ma.kr. eða 5,7
ma.kr. lægri en í fjárlögum. Lækk-
unina má einkum rekja til lægri
stýrivaxta á árinu en gert hafði verið
ráð fyrir í fjárlögum sem hefur eink-
um áhrif á innlenda fjármögnun rík-
issjóðs,“ segir í frumvarpinu. Á árinu
hafa einnig verið greidd niður erlend
lán s.s. Avens-skuldabréfið, lán frá
Póllandi og skuldabréf í dollurum
sem gefið var út árið 2011. Hins veg-
ar hefur veiking krónunnar haft
mótvægisáhrif svo að vaxtagjöld af
erlendum lánum eru nær óbreytt frá
áætlun fjárlaga.
Þá gera fjáraukalögin ráð fyrir út-
gjaldaaukningu ríkissjóðs um 450
milljónir vegna hælisleitenda. Tæp-
lega þrír milljarðar fara til vega-
gerðarinnar og 160 milljónir til skóg-
ræktar ríkisins. Þá renna 712
milljónir til löggæslumála og rúm-
lega 2.500 milljónir til heilbrigðis-
mála.
Ríkið fær 23,5 milljarða í
arð frá Landsbankanum
Afkoma ríkissjóðs 17,1 milljarði betri en fjárlög ráðgerðu
Morgunblaðið/Kristinn
Arður Ríkissjóður fær háar arð-
greiðslur frá Landsbankanum.
FRÉTTASKÝRING
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Lagaákvæði og framkvæmd síma-
hlerana krefjast úrbóta. Lítil krafa
er til rökstuðnings dómara með
heimildum til hlerana og tölfræði-
legar upplýsingar sýna að það heyri
til undantekninga ef beiðnum lög-
reglunnar um símahleranir er hafn-
að.
Skúli Magnússon, formaður Dóm-
arafélags Íslands, bendir á að dóm-
arar sinni hlerunarbeiðnum sam-
hliða öðrum störfum. Segir hann að
mikið álag í störfum þeirra geti kom-
ið niður á hæfni dómara til þess að
sinna slíkum málum af nægilegri
kostgæfni.
Trúnaðarsamtöl hluti gagna
Ólíkt því sem m.a. má finna í
dönskum lögum, þaðan sem lög um
símahleranir eru að mestu tekin upp,
er enginn málsvari sakborninga hér
á landi, þ.e. enginn lögfræðingur
sem reynir að hrekja forsendur lög-
reglu fyrir hlerunarheimild. Eins er
möguleiki til kæru eðli málsins sam-
kvæmt liðinn þegar sakborningi er
greint frá hlerun þó að fræðilega sé
hægt að leita réttar síns eftir að
hlerunum er lokið, líkt og nýlegt
dómsmál Magnúsar Vers Magnús-
sonar gegn ríkinu sýnir.
Þá eru dæmi um að samtöl lög-
fræðinga og skjólstæðinga þeirra
hafi orðið hluti af gögnum lögreglu
en samkvæmt sakamálalögum ber
lögreglu að eyða þeim gögnum sem
ekki hafa þýðingu fyrir rannsókn
mála. Í skilningi laganna er óheimilt
að nýta slík trúnaðarsamtöl fyrir
rétti. Engu að síður hefur Hæstirétt-
ur í a.m.k. tvígang tekið vægt á því
þegar trúnaðarsamtölum lögfræð-
ings og sakbornings hefur ekki verið
eytt líkt og lög kveða á um.
Hafa rök réttarins verið þau að
ekki hafi verið sýnt fram á að notast
hafi verið við gögn sem fengust við
símahlustun til sönnunarbyrði í mál-
unum. Hefur á það verið bent að
ekkert komi í veg fyrir að trúnaðar-
samtöl séu nýtt til að afla sannana
annars staðar frá eða þá við rann-
sókn annarra mála.
Þá hefur verið bent á það að eyð-
ingu gagna sem fengist hafa með
símahlerunum hefur verið ábóta-
vant og geymsla þeirra ekki nægi-
lega traust og að hætta sé á því að
of margir hafi aðgang að þeim upp-
lýsingum sem þar koma fram. Ofan-
greint er samantekin sú gagnrýni
sem fram hefur komið um fram-
kvæmd hlerana hér á landi, í fjöl-
miðlum og í greinaskrifum lög- og
fræðimanna.
Einhver dettur í gloppurnar
Oddur Ástráðsson skrifaði loka-
ritgerð í MA-námi til lagaprófs frá
Háskóla Íslands síðastliðið vor,
undir yfirskriftinni Símahlustanir,
skilyrði, framkvæmd, eftirlit. Í
meginatriðum tekur Oddur undir
þá gagnrýni sem fram kemur hér að
ofan í niðurstöðum ritgerðarinnar.
„Maður er ekki að gera mönnum,
sem starfa innan þessa kerfis, upp
einhverjar óeðlilegar hvatir. En
það er hins vegar augljóslega þann-
ig að þegar komnir eru verndar-
hagsmunir á borð við réttinn til að
njóta friðhelgi einkalífs og sam-
skipta, og rétturinn til þess að
hljóta réttláta málsmeðferð, þá tek-
ur maður ekki áhættu með það í
regluverkinu og því umhverfi sem
búið er um framkvæmdina á svona
aðgerð. Ef þú ert með gloppur þá er
öruggt að einhver mun detta ofan í
þær,“ segir Oddur.
Fram kom í svari dómsmálaráð-
herra við fyrirspurn Helga Hrafns
Gunnarssonar, þingmanns Pírata, á
Alþingi í nóvember árið 2014 að
dómarar veittu heimild til hlerana í
99,3% tilvika þegar lögregla óskaði
eftir því á árunum 2009-2013. Fram
kom að samtals hefði verið úrskurð-
að um 720 beiðnir um símahlustun á
þessu fimm ára tímabili og þar af var
heimild veitt í 715 tilfellum. Heildar-
málafjöldi sem þessir hlustunar-
úrskurðir höfðu verið kveðnir upp í
var 145 og ljóst að í einhverjum mál-
um hefði verið kveðinn upp nokkur
fjöldi úrskurða. Helgast það af því að
einungis er heimilt að veita hler-
unarheimild til fjögurra vikna tíma-
bils í senn.
Þörf á meira aðhaldi
Skúli Magnússon segir menn sam-
mælast um að meira aðhalds sér
þörf.
„Einnig þarf að skoða það álag
sem er á héraðsdómurum. Þeir taka
við hlerunarbeiðnum frá lögreglu
meðfram sínum störfum. Á þá er
mikill þrýstingur um að málin gangi
hratt fyrir sig. Það er ein leið sem
verður að skoða – hversu vel dóm-
stólar landsins eru í stakk búnir til
þess að fjalla um þessi mál
Þá er ég ekki bara að tala um laga-
legt sjálfstæði og fjárveitingar. Ég
fullyrði að það er lítill tími til að fara
yfir málin. Þau eru lögð fyrir héraðs-
dómara sem hafa alla jafna litla
reynslu og þjálfun í þessum mála-
flokki. Á móti er lögfræðingur lög-
reglunnar þrautreyndur og hefur
komið oft á tíðum að þessum mál-
um,“ segir Skúli.
Sakborningar eiga sér ekki málsvara
Margt gagnrýnivert í lagalegri umgjörð og framkvæmd hlerana hér á landi Lítil krafa um rök-
stuðning dómara fyrir hlerunum Gloppur í kerfinu bjóða hættu á misnotkun heim 720 beiðnir
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Símahleranir Mál manna er að meira aðhalds sé þörf þegar kemur að lagalegri umgjörð og framkvæmd hlerana.
Þegar kemur að hlerunarheim-
ildum takast á sjónarmið um frið-
helgi einkalífsins og almanna-
hagsmuni. Símahlustun er
þvingunaraðgerð sem takmarkar
friðhelgi einkalífs, sem verndað er
af 71. gr. stjórnarskrárinnar.
Í 1. og 2. mgr. 83. gr. sakamála-
laga segir að einungis sé heimilt
að beita símahlerunum ef það er
skýrt að upplýsingar sem fáist frá
þeim muni gagnast við rannsókn
málsins og ekki hafi verið hægt að
ná þeim fram með öðrum vægari
aðgerðum. Þá segir að refsingin
þurfi að varða 8 ára fangelsisvist
að lágmarki eða „að ríkir al-
mannahagsmunir eða einkahags-
munir krefjist þess“.
Björg Thorarensen, prófessor
við lagadeild Háskóla Íslands, seg-
ir í bók sinni, Stjórnskipunarréttur
- mannréttindi,
að með því að
tiltaka einka-
hagsmuni einnig
í lagaákvæðinu
skapist svigrúm
til túlkunar dóm-
ara. „Segja má
að síðarnefndi
valkosturinn
dragi nokkuð úr
fyrirsjáanleika
þess við hvaða aðstæður verður
gripið til aðgerða af þessum toga.
Dómstólum er hér veitt talsvert
svigrúm til að meta hvenær ríkir
hagsmunir eru til staðar og jafn-
framt til að leggja mat á það
hvort upplýsingarnar sem þannig
fást geti skipt miklu fyrir rann-
sókn máls,“ segir Björg í bók
sinni.
Talsvert svigrúm dómstóla
FRIÐHELGI EINKALÍFS OG ALMANNAHAGSMUNIR TAKAST Á
Björg
Thorarensen
Símahleranir
» Einungis voru fimm tilfelli
þar sem dómari veitti ekki
hlerunarheimild, frá 2009-
2013 eða í 0,7% tilfella.
» Fram kemur í meistara-
ritgerð Odds Ástráðssonar
við lagadeild HÍ að í ein-
hverjum tilfellum leggi lög-
regla ekki fram hlerunar-
heimild þegar sýnt þykir að
dómari muni ekki veita
hana.
» Lagalega kemur ekkert í
veg fyrir að lögregla leiti
hlerunarheimilda hjá öðrum
héraðsdómi fái hann höfnun
hjá einum.
» Árið 1999 kom tals-
mannafyrirkomulag til um-
ræðu en ákveðið var að taka
það ekki upp.
Skúli
Magnússon
Oddur
Ástráðsson