Morgunblaðið - 02.11.2015, Síða 6

Morgunblaðið - 02.11.2015, Síða 6
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Eyþór Laxdal Arnalds, formaður nefndar um starfsemi RÚV frá 2007, segir stjórn RÚV hafa vegið að starfsheiðri nefndarmanna með því að saka þá um lögbrot. Umræddar ásakanir koma fram í tilkynningu sem RÚV sendi í Kaup- höll Íslands á föstudagskvöld. Þar sagði meðal ann- ars orðrétt: „Fullyrt er að Ríkisútvarpið geri kröfu um skilyrt viðbótar- framlag til næstu fimm ára og í áætlunum félags- ins sé gert ráð fyrir verulega hækkuðu ríkis- framlagi, þ.á m. að 3,2 milljörðum króna verði varið til að létta skuldum af Ríkisútvarp- inu. Þetta er ekki rétt. Ríkis- útvarpið hafði vakið athygli nefnd- arinnar á að fullyrðingar þeirra í skýrsludrögum væru rangar og jafnframt að þeim væri óheimilt með tilliti til laga um verðbréfa- viðskipti nr. 108/2007 að birta upp- lýsingar sem vörðuðu rekstraráætl- anir félagsins, þar með talið ósamþykktar sviðsmyndir, enda höfðu nefndarmenn ritað undir trúnaðaryfirlýsingu þess efnis,“ sagði í tilkynningunni. Eyþór vísar þessu á bug og vekur athygli á eftirfarandi texta í tilkynn- ingu stjórnar RÚV á fimmtudaginn var, daginn sem skýrslan var kynnt. Sögðu bréfið þurfa að víkja „Mistök voru gerð við að láta gamlar lífeyrissjóðsskuldbindingar ríkisins fylgja með við hlutafélags- væðinguna. Stjórnvöld þurfa að leiðrétta þessi mistök. Gera þarf nýjan þjónustusamning sem byggist á því að útvarpsgjald lækki ekki frekar og fjármögnun sé stöðug út samningstímann,“ sagði í tilkynn- ingu RÚV. Eyþór segir stjórn RÚV vilja forðast umræðu um kjarna málsins. „Ég held að þetta bendi til þess að menn vilja ekki ræða efni skýrsl- unnar. Þetta er ósanngjarnt gagn- vart því ágæta fólki sem var með mér í nefndinni. Annars vegar var þar sérfræðingur úr fjármálaráðu- neytinu, Guðrún Ögmundsdóttir og hins vegar margreyndur sérfræð- ingur frá KPMG, Svanbjörn Thor- oddsen. Það er vegið að þeirra starfsheiðri með þessum hætti og ekki rökstutt með neinum hætti. Það finnst mér ekki sæma stofnun sem á að vera í þjóðarþágu,“ segir Eyþór og víkur að störfum nefnd- arinnar. „Vegna umræðunnar er vert að taka fram að skýrslan er ekki skoð- un nefndarmanna. Hún er niður- staða byggð á staðreyndum og heimildum. Það er alls staðar getið heimilda og farið yfir staðreyndir. Það eru engar tillögur í skýrslunni.“ Fjarlægðu upplýsingar Eyþór segir skýrsluhöfunda hafa fjarlægt upplýsingar úr skýrslunni að kröfu lögmanna RÚV. „Það er hins vegar á allra viðorði að RÚV hefur gert kröfu um aukið ríkisframlag og að útvarpsgjaldið verði hækkað frá því sem það er í fjárlagafrumvarpinu. Ég held að það væri best fyrir RÚV að reyna að leiða hið rétta í ljós, í staðinn fyr- ir að setja fram órökstuddar ásak- anir, og birta t.d. síðustu samþykktu áætlun sína, sem gerð var í ágúst.“ Umræddar sviðsmyndir varða fjárhag RÚV fram til 2020 miðað við óbreytt eða aukin framlög. Fram kom í skýrslunni að verði framlögin ekki aukin muni verða samanlagt 4 milljarða tap á rekstri RÚV á tímabilinu til 2020. Eyþór segir rangt hjá stjórn RÚV að nefndarmenn hafi birt upplýsingar sem vörðuðu rekstraráætlanir fé- lagsins. „Við birtum engar upplýsingar úr áætlunum félagsins. Við unnum hins vegar sviðsmynd sjálf sem er byggð á því hvað gerist ef RÚV fær ekki frekari fjárframlög heldur en kveðið er á um í lögum. Það var gert í sam- starfi við fjármáladeild RÚV. Þetta er ekki í áætlun sem RÚV hefur samþykkt, heldur er það sá raun- veruleiki sem blasir við ef kröfur RÚV ná ekki fram að ganga og ef ekkert er gert í hagræðingu. Þetta var alfarið unnið með fjármáladeild RÚV.“ Vildu ekki birta upplýsingar „Við bentum RÚV á að það væri einfaldast að tilkynna skýrsluna til Kauphallar ef stjórn fyrirtækisins væri uggandi um að birting upplýs- inga kynni að varða við lög. Þá væru allir við sama borð. Þeir vildu hins vegar ekki tilkynna þessar upplýs- ingar til Kauphallar og því tókum við þær úr skýrslunni. Mér finnst í sjálfu sér einkennilegt að ríkis- stofnun sem glímir við fjárhags- vanda skuli ekki vilja birta áætlanir sínar. Þetta er hluti af vanda RÚV. Það er ákveðin leyndarhyggja sem hér kemur fram,“ segir Eyþór. RÚV vegi að starfsheiðri fólks  Formaður nefndar um starfsemi RÚV segir viðbrögð stjórnar RÚV afhjúpa leyndarhyggju  Með röngum ásökunum í garð nefndarmanna sé stjórn RÚV að vega að starfsheiðri þeirra Morgunblaðið/Eggert RÚV Stjórn RÚV hefur áætlað að sala höfuðstöðvanna í Efstaleiti gæti skilað 4,2 milljörðum króna. Eyþór Arnalds Fram kemur á vef RÚV að fyrir- tækið sé útgefandi að skulda- bréfi sem er skráð í Kauphöllina og „beri því skylda til að til- kynna markaðnum í gegnum til- kynningakerfi Kauphallar um afkomu og önnur atriði sem hafa áhrif á afkomu félagsins og eru líkleg til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð skulda- bréfsins ef opinber væru“. „Samkvæmt lögum um verð- bréfaviðskipti, nr. 108/2007, skilgreinir RÚV innherja þegar í hlut eiga aðilar sem hafa að jafnaði aðgang að innherjaupp- lýsingum vegna aðildar að stjórn, rekstri eða eftirliti eða vegna annarra starfa á vegum útgefanda umfram markaðinn sem eru ekki tilkynnt til Kaup- hallar Íslands,“ segir þar líka. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir mun á skuldabréfum og hlutabréfum í þessu efni. Þegar um skulda- bréf er að ræða séu það fyrst og fremst upplýsingar sem hafa áhrif á mat á greiðsluhæfi fyrir- tækja á líftíma skuldabréfanna eða lánshæfi viðkomandi útgef- anda sem geta verið viðkvæmar. Þessi ákvæði séu ekki jafn víðtæk og varðandi hlutabréfin. Varðandi hlutabréfin geti þar fleiri upplýsingar verið við- kvæmar, enda geti þær reynst verðmótandi fyrir gengi bréfa. Greiðsluhæfi vegur þyngst TILKYNNINGARSKYLDA 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bankaráð Seðlabanka Íslands hefur samþykkt að greiða Þórarni G. Pét- urssyni, aðalhagfræðingi bankans, laun fyrir setu í peningastefnunefnd Seðlabankans. Ákvörðunin er aftur- virk og felur í sér að Þórarinn fær 2-3 milljónir króna vegna ógreiddrar stjórnarsetu. Morgunblaðið hefur þetta eftir öruggum heimildum. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri baðst undan viðtali þegar málið var borið undir hann í gær. Þórunn Guð- mundsdóttir, for- maður bankaráðs, kvaðst ekki geta tjáð sig um málið. Hún vísaði svo til 35. greinar laga um Seðlabank- ann, þar sem seg- ir að „bankaráðs- menn … og aðrir starfsmenn Seðlabanka Íslands [séu] bundnir þagnarskyldu um allt það sem varðar hagi viðskiptamanna bankans og mál- efni bankans sjálfs“. Fundar minnst 8 sinnum á ári Fram kemur á vef Seðlabankans að samkvæmt lögum „skal peninga- stefnunefnd bankans funda a.m.k. átta sinnum á ári og birta fundar- gerðir sínar opinberlega og gera grein fyrir ákvörðunum sínum og for- sendum þeirra“. Nefndin fundaði síð- ast 30. september sl. og fundar næst núna á miðvikudag. Báðir dagar eru vaxtaákvörðunardagar. Samkvæmt heimildum blaðsins mun Þórarinn fá yfir 100 þúsund krónur á mánuði aukalega fyrir setu í peningastefnunefnd, ef til vill um 1,5 milljónir á ári. Afturvirkt um tvö ár Tímabilið sem Þórarinn fær þessa greiðslu afturvirkt er um tvö ár. Fær hann því sennilega 2-3 millj. fyrir stjórnarsetuna afturvirkt. Samkvæmt lögum um Seðlabank- ann skal bankaráð „ákveða laun og önnur starfskjör aðstoðarseðla- bankastjóra og fulltrúa í peninga- stefnunefnd, þ.m.t. rétt til biðlauna og eftirlauna“. Í lögunum segir jafn- framt að í peningastefnunefnd „situr seðlabankastjóri, aðstoðarseðla- bankastjóri, einn af yfirmönnum bankans á sviði mótunar eða stefnu í peningamálum og tveir sérfræðingar á sviði efnahags- og peningamála sem [ráðherra] skipar til fimm ára í senn“. Auk seðlabankastjóra og Þórarins G. Péturssonar sitja nú í peninga- stefnunefnd Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, og Gylfi Zoëga, prófessor við Háskóla Íslands. Samþykkti aukagreiðslur til Þórarins  Aðalhagfræðingur Seðlabankans fær 2-3 milljóna aukagreiðslu í kjölfar samþykktar bankaráðs Þórarinn G. Pétursson Fram kemur í skýrslu nefndarinnar að stjórn RÚV hafi á fyrri hluta árs 2014 áætlað að hægt væri að selja höfuðstöðvarnar í Efstaleiti fyrir 4,2 milljarða. Spurður hvort slík sala kemur til greina segir Magnús Geir Þórðar- son útvarpsstjóri að RÚV vilji hag- ræða. „Nú er það svo að viðskipti eru með skuldabréf RÚV á markaði og við verðum því að fylgja reglum Kauphallarinnar um upplýsingagjöf á þessu sviði. Slík áform myndu því ávallt verða kynnt samtímis öllum, með tilkynningu til Kauphallarinnar. Hins vegar hefur þegar komið fram að við viljum hagræða í yfirbyggingu til að for- gangsraða í þágu dagskrár. Við höfum þegar rýmt stóran hluta Útvarpshúss- ins og leigt frá okkur og nú nýverið fögnuðum við stórum áfanga þegar við seldum byggingarrétt að lóð félagsins við Efstaleiti. Ávinningur af þeirri sölu mun skila a.m.k. 1,5 milljörðum sem munu nýtast til lækkunar skulda, en félagið hefur verið yfirskuldsett frá stofnun.“ - Hvernig ætlar RÚV að taka á skuldavandanum sem enn verður til staðar eftir sölu byggingarréttar? „Eftir sölu byggingarréttar nú á dögunum er stað- an orðin mun betri og viðráðanlegri en hún hefur verið. En það liggur fyrir að þrátt fyrir þessa sölu er félagið enn yfirskuldsett eins og það hefur verið allt frá ohf-væðingu árið 2007. Það hefur verið rætt um langa hríð að það þurfi að taka á þessari miklu skuldsetningu. Okkur hefur gengið vel að vinna á rekstrar- og skuldavandanum, líkt og mennta- málaráðherra benti á …, og ég er þess fullviss að við munum klára það mál.“ RÚV verður áfram yfirskuldsett eftir lóðasölu ÚTVARPSSTJÓRI SEGIR SÖLU FYRIR 1,5 MILLJARÐA EKKI DUGA TIL Magnús Geir Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.