Morgunblaðið - 02.11.2015, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015
Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkis-
ráðherra fór strax eft-
ir valdaránið til Úkra-
ínu, þar sem hann lýsti
yfir einhliða stuðningi
Íslands við nýskipaða
ríkisstjórn Úkraínu,
án þess að hafa íslensk
stjórnvöld með í ráð-
um.
Gunnar Bragi sér
ekkert athugavert við
að nýnasistar, Pravyi Sektor, Svo-
boda og aðrir öfgasinnar brutu lög
til þess að koma réttkjörinni rík-
isstjórn Viktor Yanukovych forseta
og þingmönnum hans frá völdum.
Gunnar Bragi hafði fyrir því að
taka í höndina á liðinu sem kastaði
grjóti og molotov-kokteilum í fólk,
skaut og drap. Af einhverri undar-
legri ástæðu þá heldur Gunnar
áfram sínum einhliða stuðningi,
þrátt fyrir að BBC og fleiri stöðvar
hafi bent á hvernig nýnasistar
Pravyi Sektor og Svoboda stjórni
víða með ofbeldi í Úkraínu.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hún Viktoria Nul-
and, hefur upplýst að stjórnvöld í
Bandaríkjunum eyddu 5 milljörðum
dollara í þessa litabyltingu. Það
tókst mjög vel hjá
Viktoríu og Geoffrey
Pyatt, að setja saman
þessa strengjabrúðu-
ríkisstjórn, en svoköll-
uðum mótmælendum
voru boðnir 200 doll-
arar á dag eins og sést
á slóðinni www.klage-
mauer.tv/?a=showpor-
tal&keyword=islaend-
isch&id=2534, gegn
því að ráðast harka-
lega að lögreglunni.
Nú virðist sem banda-
rísk stjórnvöld hafi
misst stjórn á þessum
nýnasista-strengjabrúðum.
Rússneskumælandi fólk
sætir ofsóknum í Úkraínu
Nýnasistar í Úkraínu leyna ekki
hatri sínu á rússneskumælandi
fólki. Vestrænum fjölmiðlum þótti
það t.d. ekki fréttnæmt, að Júlía
Tymoshenko vildi drepa 8 milljónir
rússneskumælandi íbúa í austur-
hluta Úkraínu. Þar sem Gunnar
Bragi og hans stuðningslið sýna
einhliða stuðning við nýnasista-
stjórnvöld í Úkraínu, ætti þetta lið
að kynna sér eitthvað af nýnazista-
möntrum, eins og t.d. „moskaley na
nozhi“ sem þýðir bókstaflega að
Moskvu-borgara verður að drepa
með hnífum. Það er auljóst að ís-
lensk stjórnvöld búa ekki yfir sjálf-
stæðri utanríkisstefnu, heldur taka
við öllu sem matreitt er af ESB og
bandarískum stjórnvöldum. Það
virðist sem íslensk stjórnvöld geri
sér ekki grein fyrir að fólk sæti of-
sóknum í Úkraínu, heldur gleypi
hrátt allt sem bræðrabandalagið
ESB og USA matreiða ofan í mið-
stýrðu fjölmiðlana (MSM). Í öllum
nýja kaldastríðsáróðrinum og
rússafóbíunni í boði ESB og banda-
rískra fjölmiðla, hefur allt kapp ver-
ið lagt á að reyna að koma inn þeim
lygaáróðri, að Rússar hafi gert inn-
rás eða ráðist inn á Krímskaga,
þegar engin innrás var gerð, enginn
lést í skotbardögum, enginn særðist
og enginn var handtekinn á Krím-
skaga.
Æðsti yfirmaður Úkraínuhers,
Viktor Muzhenko, hefur fullyrt op-
inberlega að þeir séu ekki að berj-
ast við rússneska hermenn í austur-
hluta Úkraínu (21st Century Wire
30 jan 2015). Frá mars 2014, eftir
sameiningu Krímskaga við Rúss-
land, hefur Gunnar Bragi ekkert
talað við rússnesk stjórnvöld, ein-
ungis sent eitt bréf þar sem að
hann óskaði eftir viðtali við Sergey
Lavrov, en ekki fyrr en að bannið á
fiskútflutningi til Rússlands var sett
á. Íslensk stjórnvöld styðja ennþá
þvinganir ESB gegn Rússum, þar
sem ESB berst gegn sameiningu
Krímskaga við Rússland, þrátt fyrir
að Efnahags- og framfarastofnun
Evrópu (OECD) hafi ekkert séð að
þessari atkvæðaafgreiðslu og sam-
einingu. Maður hefði talið að ís-
lensks stjórnvöld hefðu ekki á móti
því að rússneskumælandi fólk fengi
að tengjast aftur sinni eigin 200 ára
sögu og menningu, eða þar sem
Khrústsjov tróð Krímskaga inn í
Úkraínu árið 1954 algjörlega án
samþykkis íbúa Krímskaga. Hvers
vegna ætti fólk á Krímskaga ekki
að hafa sjálfsákvörðunarrétt í sín-
um málum og til að sameinast aftur
Rússlandi?
Stjórnvöld hafa brotið
Minsk-friðarsamkomulagið
Minsk-friðarsamkomulagið hefur
ekki virkað, þar sem úkraínski her-
inn hefur farið langt inn fyrir landa-
mærin og hertekið Donesk-flug-
völlinn, auk þess sem herinn hefur
ekki fjarlægt þungavopnin, heldur
notað þau. Efnahags- og framfara-
stofnun Evrópu hefur einnig fundið
sannanir fyrir því að þessi vopn hafi
verið notuð, þar sem að stór
sprengjubrot hafa fundist víða í
íbúðarbyggðum eftir friðarsam-
komulagið. Stjórnvöld í Úkraínu
hafa ekki farið eftir samkomulag-
inu, þar sem að austurhluti Úkraínu
hefur enn ekki fengið heimastjórn.
Í júlímánuði 2014 hitti Gunnar
Bragi hinn umdeilda nýkjörna for-
seta, Petro Poroshenko, en í þessari
heimsókn hafði Gunnar Bragi ekki
fyrir því að tala við íbúa austur-
hluta Úkraínu. Hvaða tilgangi þjón-
aði þessi heimsókn varðandi það að
leita leiða til að „styðja við upp-
byggingu“ í Úkraínu? Eitt er víst,
Gunnar fór ekki til Úkraínu til þess
að skoða 10 þúsund íbúðir sem
úkraínski herinn rústaði, ekki held-
ur til þess að spyrjast fyrir um hvað
hefði orðið af einni milljón flótta-
manna frá austurhluta Úkraínu.
Ekki þrýsti/r Gunnar á að stjórn-
völd birti rannsóknaskýrslurnar yf-
ir morðin á Maidan-torgi og morðin
í Odessa. Hver ætli tilgangurinn sé
með því að hafa hann áfram sem ut-
anríkisráðherra Íslands, mann sem
er með utanríkisstefnu uppá-
skrifaða frá bandarískum stjórn-
völdum og ESB? Það fer að verða
einum of augljóst af hverju Ísland
er oft kallað „mini America“.
Stuðningur stjórnvalda við Úkraínu eftir valdarán
Eftir Þorstein Sch.
Thorsteinsson »Hversvegna ætti fólk
á Krímskaga ekki að
hafa sjálfsákvörðunar-
rétt í sínum málum og
til að sameinast aftur
Rússlandi?
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson
Höfundur er margmiðlunarfræðingur
Á síðustu öld riðu
þeir um héruð, núver-
andi forseti landsins
og Jón Baldvin Hanni-
balsson, á rauðu ljósi í
fundaherferð undir
þessu heiti. Ekki hef
ég kynnt mér niður-
stöður þeirra, en hitt
veit ég, að þessari
spurningu hefði verið
auðsvarað árið 2007 og
jafnvel enn í dag með
fáeinum orðum: fjármagnseigendur
og athafnamenn, því að svo virðist
vera, sem þeir ráði orðið flestu hér á
landi og um uppbyggingu byggða og
borgar. Kjörin stjórnvöld eiga bara
að vera viljalaust verkfæri í þeirra
augum, fólk, sem setur aðeins nafn-
ið sitt undir framkvæmdirnar og
segir já og amen við öllum þeirra
hugdettum, orðum og gerðum,
hversu vitlaus sem þau eru, hvort
sem þeim líkar það betur eða verr.
Nýjasta dæmið er, þegar félags-
skapur athafnamanna undir heitinu
Valsmenn hf. leyfir sér að mótmæla
orðum innanríkisráðherra um firna-
stóra hótelbyggingu í Vatnsmýrinni,
sem er alvarleg ógnun við flug-
öryggi. Þegar ég las svar þeirra, þá
duttu mér í hug orð Jóns Loftssonar
á miðöldum, sem oft er vitnað til:
„Heyra má ég erkibiskups boðskap,
en ráðinn í því að hafa hann að
engu.“
Nú hélt ég, að það stæði til að
byggja nýjan Landspítala á nálægri
lóð við þessa hótelbyggingu, og
hvorug byggingin nein smásmíði.
Mér er þá spurn: Á þetta hótel að
standa nánast við hlið sjúkrahúss-
ins? Það hélt ég nú, að færi ekki vel
saman, sjúkrahús og hótel með öllu
því ónæði, hávaða og amstri, sem
því fylgir, og veldur
meira ónæði en flug-
vélarnar gera nokkurn
tíma, því að þær koma
jú og fara á vissum
tímum, en við hótel er
ónæði á öllum mögu-
legum tímum sólar-
hrings, enda vildi ég
ekki vera sjúklingur á
því sjúkrahúsi. Vals-
mönnum finnst það
kannski vera í lagi og
passa vel saman, þótt
engum öðrum finnist
það, enda leyfi ég mér
að efast um, að stofnandi KFUM og
K á Íslandi og Vals, sr. Friðrik Frið-
riksson, hefði verið þeim sammála,
og fundist þeir hafa borið vel af leið
í þessum efnum. Ég býst líka við, að
hæstvirtum forsætisráðherra lítist
heldur ekki á blikuna, hvað þetta
varðar. Sömuleiðis má spyrja, hvort
læknirinn Dagur sé þessu fólki sam-
mála? Það væri furðulegur læknir,
sem gæti sætt sig við slíkt og fund-
ist það í lagi. Dagur er heldur eng-
inn venjulegur læknir, eins og flest-
um er orðið ljóst, enda gerir hann
svo margt furðulegt, sem engum
öðrum lækni dytti í hug, og ómögu-
legt að treysta orðum hans heldur.
Hjálmar Sveinsson er svo eins og
hann er, og ómögulegt að ráða í,
hvað hann er að hugsa, frekar en af-
gangurinn af vinstristjórninni í
borginni. Þar virðist allt vera á
sömu bókina lært í skipulagsmálum,
og í tómri vitleysu, og fólk sér, að
það er engu að treysta, þar sem
vinstraliðið er, hvort heldur er á
þingi eða í borgarstjórn, og þjónk-
unin við athafnamenn er í algleym-
ingi, og orð ráðamanna þjóðarinnar
hunsuð, svo ekki sé meira sagt.
Finnst fólki þá nokkur tilviljun
ráða því, að fylgi vinstriflokkanna
hér á landi sé í frjálsu falli í skoð-
anakönnunum um þessar mundir?
Ég á ekki von á því, enda sjá kjós-
endur vel í gegnum þetta fólk, og að
það er engu að treysta, sem fulltrú-
ar þess á þingi og í borg segja og
gera, og þeir jafnvel reiðubúnir til
að gefa bæði sitjandi ríkisstjórn og
kjósendum langt nef, ef svo ber
undir, ansa heldur ekki lýðræðis-
legum beiðnum þess og undir-
skriftalistum nema með skætingi, ef
eitthvað er.
Þegar svona er komið málum
varðandi hótelbyggingar, sjúkrahús,
Reykjavíkurflugvöll og hunsun orða
ráðamanna, þá þarf ríkisstjórn Ís-
lands að sýna athafnamönnum og
borgarstjórn, hver það er, sem ræð-
ur hér á landi, og að hún ásamt for-
seta landsins eru borgarstjóra og
hans kumpánum æðri, og rétt kjörn-
ir ráðherrar landsins hafi ekki sagt
sitt síðasta orð í þessu máli. Ég
ítreka svo hvatningu mína til sjálf-
stæðismanna og framsóknarfólks
um að efla vopn sín og verjur og ná
borginni á sitt vald í næstu kosn-
ingum. Þetta getur ekki gengið
svona mikið lengur, enda stærsti
hluti Reykvíkinga orðinn dauð-
þreyttur á Degi og hans liði og
þeirra uppátækjum í borginni.
Hver á Ísland?
Eftir Guðbjörgu
Snót Jónsdóttur »Nýjasta dæmið er,
þegar félagsskap-
ur athafnamanna und-
ir heitinu Valsmenn hf.
leyfir sér að mótmæla
orðum innanríkis-
ráðherra um firna-
stóra hótelbyggingu í
Vatnsmýrinni.
Guðbjörg Snót
Jónsdóttir
Höfundur er guðfræðingur og fræði-
maður.
Leiðari Morgun-
blaðsins fyrir nokkru
ber yfirskriftina
„Hersýning harðstjór-
ans“ og þar er lýst
m.a ástandinu í Norð-
ur-Kóreu eftir 70 ára
harðstjórn einræð-
isherranna og skelfi-
legar afleiðingar í
stjórnartíð þeirra.
Fólk hefur soltið unn-
vörpum í hel og landsmenn svo illa
nærðir að þeir eru mun lægri og
visnari en fólkið sunnar á skag-
anum og lifir fólk líka skemur,
enda býr það við ömurlegar að-
stæður. Þetta er ófögur lýsing en
þó sönn, og af hverju er ég að vitna
í framangreindan leiðara Morgun-
blaðsins? Jú, hér situr maður í stól
fjármálaráðherra sem Bjarni Bene-
diktsson heitir og vílaði ekki fyrir
sér að brjóta lög (sem virðist orðin
lenska hér á landi) þegar hann virt-
ist upp á sitt eindæmi ætla ellilíf-
eyrisþegum að búa við sult og
seyru og ætla þeim einungis 8,4%
hækkun tryggingabóta, sem svo
hækkaði í 9,4% þegar viðmið-
unarstéttir og aðrir fengu upp í
tuga % hækkanir.
Svona gera ekki nema dusil-
menni. Margrædd bágborin lífskjör
eldri borgara, fólksins sem í mörg-
um tilfellum er búið að strita 60-70
ár ævi sinnar og borga til þjóð-
félagsins sómasamlega sína skatta
og skyldur og er svo skammtaður
skítur úr hnefa á sínu ævikvöldi.
Talað er um að margt af þessu
fólki eigi ekki fyrir
mat, lyfjum, gler-
augum, heyrnar-
tækjum og algjör mun-
aður er tekst að berja
saman fyrir leik-
húsmiða eða t.d. kóra-
skemmtun, sem margir
eldri borgarar hafa
gaman af. Er til mað-
ur, sem finnst þetta
boðlegt? Það er dag-
ljóst að hluti ellilífeyr-
isþega hefur það bara
nokkuð gott og er það auðvitað
mjög ánægjulegt en gleymum ekki
þeim hópi, sem er alltof stór og
dregur fram lífið undir fátækt-
armörkum. Það mætti hugsa sér að
hygla þeim hópi, t.d. með því að líf-
eyrissjóðsframlag 75-100 þ. kr.
skerði ekki framlag frá Trygg-
ingastofnun.
Lágmarkskrafa ellilífeyrisþega
hlýtur að vera sú að fylgja lág-
markslaunum, fá bætur frá 1. maí
sl. og vera komin í 300 þús. kr. á
mánuði árið 2018 og þetta er mjög
sanngjörn krafa þegar sagt er að
hans ættmenni lifi við ríkidæmi líkt
og Kim Yong Un.
En verra er ef verðbólgan rýkur
upp í 10% af völdum ellilífeyris-
þega.
Norður-Kórea – Ísland
Eftir Hjörleif
Hallgríms
Hjörleifur Hallgríms
» Verra ef verðbólgan
rýkur upp í 10% m.a.
af völdum ellilífeyris-
þega.
Höfundur er eldri borgari.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Sveit Bergsteins leiðir
í Kópavogi
Nýlega lauk Fresco-impakeppn-
inni hjá Bridsfélagi Kópavogs.
Sveinn Stefánsson - Bergur Reynisson 125,1
Ingvaldur Gústafs. - Bernódus Kristins. 76,0
Björk Jónsdóttir - Jón Sigurbjörnsson 75,3
Fimmtudaginn 29. okt. hófst síðan
Aðalsveitakeppnin með tólf sveitum
og er staðan eftir 2 umf.:
Bergsteinn Einarsson 34,85
Hjálmar Pálsson 29,95
Hulduherinn 25,61
Þorsteinn Berg 25,04
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og
birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auð-
velt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur
skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda
greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift