Morgunblaðið - 04.11.2015, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.11.2015, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Enginn einn kostur er tekinn út úr og kynntur sem aðalvalkostur Landsnets í tillögu að matsáætlun fyrir Sprengisandslínu sem Lands- net hefur sent Skipulagsstofnun. Al- menningur getur kynnt sér áætl- unina á vef Landsnets og sent Skipulagsstofnun athugasemdir fyr- ir 17. nóvember næstkomandi. Í drögum að matsáætlun var einn aðalkostur kynntur og aðrir val- kostir með. Einnig var opnað fyrir þann möguleika að hægt yrði að leggja línuna í jarðstreng á um 50 km kafla um miðbik línuleiðarinnar. Athugasemdir bárust við ýmislegt í drögunum. Hefur verið tekið tillit til þeirra við gerð tillögunnar. Í matsáætluninni sem nú hefur verið kynnt eru kostirnir bornir saman á jafnréttisgrundvelli. Jafn- framt er þannig frá málum gengið að hugsanlegur jarðstrengur geti verið valkostur á öllum línuleiðunum. Þær breytingar hafa orðið að Vegagerðin sem vann með Lands- neti að verkefninu þannig að hægt yrði að meta saman nýjan veg og lín- ur á Sprengisandi ákvað að hætta matsferlinu. Gísli Gíslason, lands- lagsarkitekt hjá Steinsholti ehf., sem er ráðgjafi Landsnets í matsferlinu, segir að ákvörðun Vegagerðarinnar ætti ekki að trufla matsferlið. Vega- gerðin hafi verið búin að setja niður allar mögulegar veglínur yfir sand- inn. Horft sé til þeirra þegar þörf sé á því að skoða línur og vegi í sam- hengi. Megináherslan sé samt sú að horfa til núverandi Sprengisands- leiðar sem meginleiðar. Næsta stig matsferlisins er að gera frummatsskýrslu. helgi@mbl.is Ekki gert upp á milli valkosta í matsáætlun Morgunblaðið/Golli Umhverfismat Áhugamenn kynna sér tillögu Landsnets að línuleið.  Umhverfismat Sprengisandslínu                             ! "#  $            % &        ' ( %         )    (       *       '  +++   Skúli Halldórsson sh@mbl.is A-hluti borgarsjóðs verður rekinn með 13,4 milljarða króna halla á þessu ári. Þetta kemur fram í út- komuspá sem kynnt var í borgar- stjórn í gær, þegar meirihluti hennar lagði fram frumvarp að fjárhags- áætlun næsta árs. Til A-hlutans telst sú starfsemi sem er að hluta eða öllu leyti fjár- mögnuð með skatttekjum. Þá verður samstæða borgarinnar, A- og B-hluti, rekin með 3,5 milljarða króna halla á þessu ári. Í spánni vegur þyngst áætluð gjaldfærsla vegna líf- eyrisskuldbindingar borgarinnar, sem nemur 14 milljörðum króna á þessu ári, langt umfram gjaldfærslu undanfarinna ára og áætlaða gjald- færslu komandi ára, að því er segir í greinargerð með frumvarpinu. Þá tekur áætlunin einnig mið af versn- andi afkomu í kjölfar mikilla launa- hækkana. Tekjur hættu að duga fyrir gjöldum „Með öðrum orðum, tekjur hættu að duga fyrir gjöldum, líkt og gildir um sveitarfélög á öllu höfuðborgar- svæðinu,“ segir í inngangi borgar- stjóra, Dags B. Eggertssonar, að frumvarpinu. Hann segir rekstrar- hallann einnig eiga skýringu í fjár- hagslegum samskiptum borgarinnar við ríkið og bendir á að mat fjármála- stjóra sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu sé að frá árinu 2011 vanti 7,7 milljarða framlag frá ríkinu til rekst- urs þeirra, sökum ýmissa atriða. „Það eru viðræður í gangi um þessar fjárhæðir, en útkoman veltur að miklu leyti á því hvernig Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga gengur í því verkefni,“ segir Dagur í samtali við Morgunblaðið. Uppsagnir verði undantekning Í greinargerðinni víkur hann að því að launa- og rekstrarkostnaður muni dragast saman á næstu þremur árum. Aðspurður hvort starfsmönn- um borgarinnar verði sagt upp segir Dagur að slíkt muni heyra til und- antekninga. „Laun eru að hækka umtalsvert og á móti þurfum við að hagræða til að eiga fyrir því, svo að tekjur og gjöld nái endum saman. Í þessu skyni munum við hægja á ný- ráðningum. Starfsmannaveltan er svo mikil að við teljum að með því ná- ist okkar markmið, en að sjálfsögðu þarf að velta við öllum steinum.“ Fjórtán upplýsingafulltrúar? Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf- stæðisflokks í borgarstjórn, segir rekstur borgarinnar skorta aðhald. „Þó að fjárhagsleg samskipti borgarinnar við ríkið væru í lagi væri reksturinn samt sem áður undir þeim mörkum sem fjármálaskrif- stofa hennar setur,“ segir Halldór. „Grundvallarmálið er því að rekst- urinn er án aðhalds. Það er hægt að tiltaka eitt og annað sem hægt er að laga, en það er bara ekki nóg. Það þarf að taka á rekstrinum.“ Halldór segir að vandinn sé upp- safnaður og að ekkert taumhald virð- ist vera á ráðningum til borgarinnar. „Af þessu tilefni taldi ég hversu margir upplýsingafulltrúar starfa hjá borginni. Niðurstaðan er sú að þeir eru 14. Þarf fjórtán upplýsinga- fulltrúa? Ég held ekki.“ Í greinargerðinni kemur fram að gert sé ráð fyrir að gjaldskrár skóla- og frístundasviðs muni hækka að jafnaði um 4,9%, en sú hækkun er sögð fylgja verðlagi. Seðlabanki Ís- lands gerir hins vegar ráð fyrir 4- 4,5% verðbólgu á komandi ári og ASÍ gerir ráð fyrir 3,8% verbólgu. Leikskólabörnum fer fækkandi Gert er ráð fyrir að börnum í leik- skólum borgarinnar muni fækka frá árinu 2015 og lækkar fjárheimild skóla- og frístundasviðs um 78 millj- ónir króna vegna þess. Þá er talið að nemendum í borgarreknum grunn- skólum muni fjölga um 183 á næsta ári, verði fjárheimildin því hækkuð á móti um tæpar 122 milljónir. Meirihluti borgarstjórnar gerir ráð fyrir að rekstri borgarinnar verði snúið við á næsta ári og muni A-hluti hennar þá skila 567 milljóna króna afgangi. Þá verði öll samstæð- an rekin með tæplega 8,1 milljarða króna afgangi. Halldór segist efa það að áætlunin gangi eftir. Lítið megi út af áætlun bera „Mjög stór hluti þessa er svokall- aðar fjárfestingatekjur, það er sala eigna, sala byggingarréttar og gatnagerðargjöld. Þetta er mjög áhættusamt enda segir fjármála- skrifstofan að það megi lítið út af bera til að þetta fari úrskeiðis,“ segir Halldór. „Og fyrir því eru mörg for- dæmi á undanförnum árum.“ Eins og áður sagði gerir meirihluti borgarstjórnar ráð fyrir auknum tekjum næstu ár. Dagur segir að í því felist spá um hversu auknum sköttum launahækkanir í samfélag- inu muni skila borginni. „Við gerum ekki ráð fyrir að hækka skatthlut- fallið, hvorki í gegnum útsvar né fasteignaskatta,“ segir hann. Í greinargerðinni má sjá að sums staðar vilja borgaryfirvöld draga seglin saman. Til að mynda verður hætt með lengri sumarafgreiðslu- tíma í tveimur sundlaugum og þá verður dregið úr umfangi Vetrarhá- tíðar. Hluthafafundur yrði boðaður „Ef borgin væri fyrirtæki í þeirri stöðu sem útkomuspá fyrir árið 2015 og fjárhagsáætlun ársins 2016 lýsa, þá væri hluthafafundur boðaður í skyndi og skipt um stjórnendur,“ sagði Halldór við lok ræðu sinnar á borgarstjórnarfundi í gær. Dagur svarar gagnrýni Halldórs á þann veg: „Við og önnur sveitarfélög erum nú ekki síst að glíma við afleið- ingar af dýrum kjarasamningum, sem margir eru gerðir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Það er þá spurning hvort hluthafafundinn eigi að halda hjá borginni eða hjá sam- bandinu.“ 13,4 milljarða halli hjá borginni  Dregið verði úr launa- og rekstrarkostnaði  Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga nemur 14 milljörðum  Gjaldskrár hækki um 4,9 prósent á næsta ári  Versnandi afkoma í kjölfar mikilla launahækkana Áætlun meirihlutans » Skuldir og skuldbindingar borgarinnar nema rúmlega 300 milljörðum króna. » Rekstrarsamstæðan verður rekin með 3,5 milljarða tapi á þessu ári. » Miðað er við að útsvar og fasteignaskattur verði óbreytt á næsta ári. » Gjaldskrár muni hækka að jafnaði um 4,9% og er sú hækkun sögð fylgja verðlagi. » Rekstrarafgangur sam- stæðunnar á að nema átta milljörðum króna á næsta ári. » Fjárfest verður fyrir 9,9 milljarða króna á árinu 2016. » Stærstu verkefnin eru skóla-, íþrótta- og menning- arhúsnæði í Úlfarsárdal, við- byggingar við Klettaskóla og Vesturbæjarskóla, útilaug við Sundhöllina og stækkun Borgarbókasafns við Tryggva- götu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Fundað Meirihlutinn í borginni lagði fram frumvarp að fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár á fundi í gær. Minnihlutinn segir rekstraraðhald skorta. Halldór Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.