Morgunblaðið - 04.11.2015, Page 9

Morgunblaðið - 04.11.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 LEIÐRÉTT Hefur siglt Herjólfi um 250.000 km Steinar Magnússon skipstjóri hefur siglt Herjólfi um 250.000 km, eins og fram kom í viðtali við hann í blaðinu í gær, en ekki 150.000 eins og misrit- aðist í undirfyrirsögn. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. mbl.is alltaf - allstaðar Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Gervihnattasendum var skotið í þrjá hnúfubaka í Eyjafirði í síðustu viku og eftir miðjan mánuð verða slík merki sett í tvo hvali til við- bótar. Að þessu sinni er um sam- starf Hafrannsóknastofnunar og Hvalasafnsins á Grandagarði að ræða. Þar mun fyrirhugað að sýna gestum upplýsingar um ferðir hvalanna á lifandi og myndrænan hátt. Jákvætt samstarf og skemmtileg nýjung Gísli Víkingsson, hvalasérfræð- ingur á Hafrannsóknastofnun, segir að síðasta gervihnattamerkið, sem Hafrannsóknastofnun átti, hafi ver- ið sett í hnúfubak síðasta vetur. Í 156 daga hafi síðan tekist að fylgj- ast með ferðum þess dýrs, meðal annars á þekktar æxlunarstöðvar hvala í Karíbahafinu. Sá árangur hafi verið einstakur og vakið at- hygli víða um heim. „Hvalasafnið lýsti áhuga á sam- starfi við okkur og þau vilja gjarn- an sýna ferðir merktra hvala,“ seg- ir Gísli. „Við höfðum að svo stöddu ekki ráð á fleiri merkjum og það varð því úr að þeir keyptu merkin. Við hins vegar höfum þekkingu á því hvernig á að standa að hlutum og njótum góðs í fræðunum af niðurstöðunum. Þannig að þetta er jákvætt sam- starf og skemmtileg nýj- ung,“ segir Gísli. Áætla má kostn- að við merkin fimm sem senda boð um gervihnött um eða yfir tvær milljónir króna. Komið nær hugsanlegu fari Merki hafa borist frá tveimur hvalanna, sem merktir voru í síð- ustu viku og halda þeir enn til í Eyjafirði á svipuðum slóðum og þeir voru merktir. Beðið verður fram eftir mánuði með merkingar á tveimur hnúfubökum til viðbótar og segir Gísli að eftir miðjan mánuð verði komið nær hugsanlegu fari hvalanna suður á bóginn. Síðustu ár hafa allt að 20 hnúfu- bakar haldið sig í Eyjafirði út nóv- embermánuð. Gísli segist hafa þær upplýsingar frá sjómönnum, að í maga þorsks sem veiðist í Eyjafirði um þessar mundir sé mikið af smá- síld. Ekki sé ólíklegt að hnúfubak- urinn sæki einnig í síldina. Starfsmenn Hafrannsóknastofn- unar merktu hnúfubakinn langför- ula 10. nóvember í fyrra sunnan við Hrísey í Eyjafirði. 10. janúar hélt hvalurinn ákveðið í vesturátt og síðan til suðurs. Fylgst var með ferðum dýrsins suður á bóginn og um miðjan mars hélt það kyrru fyr- ir í Karíbahafinu í tæplega tvær vikur. Síðasta skeyti barst frá hnúfubaknum 12. apríl, 153 dögum eftir að hann var merktur, og var hann þá tæplega hálfnaður til baka til Íslands. Ekki hafði áður tekist að nema merki úr sendi sem var festur á hval við Ísland í svo langan tíma. Mest fór hnúfubakurinn um 100 mílur á sólarhring fyrst eftir að hann lagði af stað, en algengt var að hann færi um 75 mílur á sólar- hring í þessu síðbúna haustfari. Dýrið var 5-6 vikur á leið í Kar- íbahafið og líklega svipaðan tíma á leiðinni heim. Gísli óskaði eftir því við hvala- skoðunarfyrirtæki síðari hluta maí- mánaðar að þau svipuðust um eftir hvalnum. Hann sendi út lýsingu á dýrinu og mynd af sporði hans, en hægt er að þekkja dýrin í sundur m.a. á einkennum á sporði. Við- brögðin létu ekki á sér standa og staðfest var í byrjun júní að hval- urinn hefði skilað sér heim og sést í Skjálfandaflóa þann 25. maí. Ekki var um að villast þegar myndir voru bornar saman og þá kom í ljós að merkið hafði losnað úr dýrinu. Ungur tarfur sem stoppaði stutt á æxlunarstöðvum „Um karldýr eða tarf reyndist vera að ræða og í sjálfu sér kom okkur á óvart hvað hann stoppaði stutt á áfangastað miðað við hversu mikið var haft fyrir ferðinni,“ segir Gísli. „Ég veit ekki um aldur dýrs- ins, en nokkrir kollegar mínir í Bandaríkjunum hafa sagt að áferð- in á sporðinum bendi til að þetta sé ungt dýr. Aldurinn gæti skýrt hvers vegna hann fór seint af stað til æxlunar- stöðvanna. Kannski hefur honum ekki litist á hljóðin eða baulið í stóru törfunum þegar á leiðarenda var komið og því stoppað stutt, en þekkt er meðal hnúfubaka að karl- inn helgar sér svæði og reynir að laða kvenkynið til sín með söng. Hitt gæti allt eins eins verið að kúm hafi verið farið að fækka þeg- ar hann mætti á svæðið í lok fengi- tímans, nú eða að hann hafi ekki þurft lengri tíma til að rækja kyn- hlutverk sitt. Allt eru þetta órök- studdar hugdettur þar til við lær- um meira um atferli hnúfubaksins, m.a. með áframhaldandi merk- ingum.“ Samstarf um merkingar og ferðir hvala sýndar á lifandi hátt  Fimm hnúfubakar merktir í Eyjafirði  Fylgst var með hval í 153 daga í vetur Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Engir tveir sporðar eins Myndin til vinstri er tekin við merkingu hnúfubaks í Eyjafirði í nóvember í fyrra og sú til hægri í Skjálfanda 25. maí í vor, skömmu eftir komu hans til Íslands að lokinni ferð í Karíbahafið. Sérfræðingar hafa rýnt í myndirnar og segja um sama hval að ræða, það megi m.a. ráða af mynstri almennt á neðanverðum sporði og sérstaklega dökka blettinum vinstra megin og rákunum hægra megin. Upplýsingar úr suðurferðinni hafa vakið athygli. Gísli Víkingsson Ljósmynd/Christian Schmidt Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Glæsilegar sparipeysur Stærðir 36 - 52 Skoðið laxdal.is Laugavegi 63 • S: 551 4422 Peysuúrval Buxnaúrval Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Ný sending • Síðar peysur • Jakka peysur • Stuttar peysur • Túnikur • Töskur • Silkislæður • Ponsjo • Kjólar Verið velkomin Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Einnig erum við með vinsælu velúrgallana Stærðir S-XXXXL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.