Morgunblaðið - 04.11.2015, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.11.2015, Qupperneq 10
Baltasar Kormákur, leikstjóri stór- myndarinnar Everest, og Daði Einars- son, sem stýrði tæknibrellum í mynd- inni, svara spurningum gesta úr sal á sérstakri sýningu Everest sem haldin verður kl. 19 fimmtudaginn 5. nóv- ember í Sambíóunum í Egilshöll. Tómas Guðbjartsson fjallalæknir stýrir umræðum og situr jafnframt fyrir svörum. Þeir munu fjalla um hvað gerðist í raun og veru í þessum sögufræga Everest-leiðangri og hvað hægt er að læra af honum og því sem fór úrskeiðis. Auk þess sem farið verður yfir hvernig tæknibrellurnar voru útfærðar í myndinni. Þá mun Tómas fjalla um hvaða áhrif súrefnis- skortur hefur á dómgreind en án efa munu spinnast fjölbreyttar umræður út frá spurningum gesta í salnum. Sýningin er haldin í samstarfi við 66°Norður, Félag íslenskra fjalla- lækna (FÍFL), Sambíóin og RVK Stud- ios. Miðaverð er 3.000 kr og rennur ágóði af sýningunni til Undanfara- sveitar Landsbjargar. Miðar á sýn- inguna eru seldir á sambio.is. Svara spurningum úr sal Leikstjórinn Baltasar Kormákur. Lærdómurinn af Everest Daði Einarsson Tómas Guðbjartsson 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Að lesa og skrifa list er góð,kvað sálmaskáldið góða,Hallgrímur Pétursson, á sautjándu öld. Flestir kunna fram- haldið „læri það sem flestir. / Þeir eru haldnir heims hjá þjóð / höfð- ingjarnir mestir.“ Í meira en þrjár aldir hefur sannleikurinn í vísukorn- inu ekki verið véfengdur. Lestur og skrift hafa enda verið grunnþættir í menntun barna og forsenda fyrir frekara námi. En hversu vel skrif- andi eru ungmenni, sem æ sjaldnar þurfa að taka sér penna í hönd og draga til stafs? Kunna þau tengi- skrift, eða skrifa þau blokkskrift þegar þau skrifa á annað borð? Pennar ekki helstu þarfaþingin Í rannsókn sem pennaframleið- andinn Bic gerði í ágúst síðast- liðnum kom fram að helmingur ung- menna á aldrinum 13 til 19 ára hefur aldrei skrifað þakkarbréf, 83% aldr- ei ástarbréf og fjórðungur aldrei af- mælis- eða jólakort. Rannsóknin tók til 1.100 ungmenna á Bretlandi og í Írska lýðveldinu. Pennar og pappír virtust ekki vera meðal þeirra helstu þarfaþinga. Tölvur, spjaldtölvur og snjallsímar hafa að miklu leyti leyst slík verkfæri af hólmi bæði í skóla- stofunni og daglega lífinu. Samfara þróuninni þykir mörgum því mikil- vægara að vera fingrafimir á lykla- borðið en að hafa þjála og fallega rit- hönd. Þrátt fyrir, að margra mati, skelfi- legar niðurstöður rannsóknarinnar viðurkenndu flestir þátttakendur ýmsa ókosti þess að þurfa að stóla á tölvuritun. Næstum sjö af hverjum tíu sögðu rithönd sína hafa orðið mun verri fyrir vikið og 22% sögðu stafsetningu sína lakari samfara aukinni tölvuritun. Bic pennaframleiðendunum vænt- anlega til nokkurrar ánægju kváðust 58% þátttakenda þó kunna sjálfir betur að meta að fá handskrifuð skilaboð en rafræn boð og einnig voru 64% þeirrar skoðunar að ætt- ingjum þeirra og vinum þætti bera vott um meiri hugulsemi af hálfu sendandans að fá handskrifað bréf. Þótt niðurstöðurnar hafi leitt í ljós að fjórðungur drengja og 14% stúlkna handskrifuðu aðeins annan hvern mánuð, virtust þáttakendur almennt gera sér grein fyrir gildi handskrifaðra bréfa. Tjáning í rithöndinni „Handskrift er eitt okkar helsta tjáningarform, sem við ættum að meta til jafns við aðrar listgreinar eins og skissuteikningu, málun og ljósmyndun. Við þurfum að hvetja ungmennin til að taka sér penna í hönd,“ sagði framkvæmdastjóri Bic Rannsókn Bic pennaframleiðandans á skriftarfærni 13 til 19 ára ung Helmingur þátttakenda hafði aldrei skrifað bréf Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Háar, mannlausar hallir ogtóm seglskip við strönd-ina í aldagamalli borg ífjarlægu landi. Plága. Munaðarlaus, sjálfala ungmenni. Gæska og grimmd. Hættur og leynd- ardómar við hvert fótmál. Um allt þetta og meira til hverfist fantasíu- og ævintýrabókin Koparborgin eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur. Bókin sem er frumraun höfundar á skálda- brautinni er nýkomin út hjá Björtu bókaútgáfu. Í miðri æsispennandi atburða- rásinni í Koparborginni er Pietro, tólf ára drengur. Hann er frekar lítill í sér til að byrja með en vex ásmegin eftir því sem sögunni vindur fram. Hér verður söguhetjunni hvorki lýst nánar né söguþráðurinn rakinn í þaula heldur sjónum meira beint að höfundinum, sem viðurkennir að þótt Pietro sé fjarri því að vera henn- ar annað sjálf eigi þau eitt og annað sameiginlegt. Eins og álfur út úr hól „Pietro finnst hann oft svolítið skrýtinn þegar hann talar við aðra. Mér leið stundum þannig eftir jólafrí í skólanum en þá gerði ég ekki annað en lesa bækur, svaf óreglulega og talaði varla við nokkurn mann. Svo þegar ég loksins hitti fólk átti ég erf- itt með að horfa í augun á því og fannst allt sem ég sagði hljóma fornt og eins og upp úr bók. Og ég vera eins og álfur út úr hól. Pietro er ýkt útgáfa af upplifun minni því öfugt við mig hefur hann lent í óskaplega miklum raunum og áföllum, orðið fyrir yfirnáttúrulegri reynslu og ég veit ekki hvað og hvað,“ segir Ragn- hildur og útskýrir að Pietro sé aleinn sumarlangt og samskiptafærni hans sé ekki upp á marga fiska þegar hann hittir loksins aðrar mann- eskjur. „Annars eru allar söguhetj- urnar algjörlega skáldaðar. Þær eiga sér enga stoð í raunveruleikanum,“ bætir hún við líkt og til að fyrir- byggja málsókn – en er auðvitað að grínast. „Hugmyndin að sögunni kom til mín í martröð fyrir tíu árum þegar ég var sautján ára. Mig dreymdi hóp barna sem á flótta laumaðist um yfir- gefna garða umkringda háum múr- veggjum inn í hús þar sem þau mættu ólýsanlega vondri mann- eskju. Ég byrjaði að skrifa, lagði í megindráttum grunn að aðalpersón- unum og kláraði um það bil þrjá kafla. Svo gafst ég upp og hálf- gleymdi þessu, en eftir menntaskóla vaknaði hjá mér áhugi á að skrifa bók og þá dró ég fram gulu stílabók- ina sem ég hafði skrifað söguna í. Mér fannst martröðin góður grunn- ur en sá fljótlega að ég þyrfti að gjör- breyta stílnum og frásagnarmát- anum. Ég byrjaði að skrifa söguna sumarið 2008, sama ár og ég hóf nám í sagnfræði við Háskóla Íslands, skrifaði hana í hjáverkum með námi og vinnu, og sló endapunktinn í ágúst 2014, en var svo fram í júlí í ár að laga hana, bæði upp á eigin spýtur og með útgefandanum. Það teygðist á forsögunni hjá mér og því var ég ár- um saman að skrifa mig að risinu í sögunni sem byggist á martröðinni. Hvaða börn voru þetta, hvað voru þau að gera, hvar voru þau stödd og hvað var fyrir utan þessa háu veggi? voru til dæmis mikilvægar spurn- ingar sem ég þurfti að svara áður en kom að fundi barnanna og illmenn- isins. Auk þess sem ég þurfti að byggja heila borg og skálda sögu hennar,“ útskýrir hún. Staða kvenna fyrr og síðar Sögusvið Koparborgarinnar minnir á 16. öldina en Ragnhildur kveðst hafa verið mjög spennt fyrir því tímabili áður en hún byrjaði í sagnfræðinni og fór af einhverjum ástæðum að hafa áhuga á miðöldum. BA ritgerðin hennar frá árinu 2011, Riddarar og frúr. Fyrirmyndir ís- lenskra aristókrata á 14. öld, fjallar um riddarasögur og hlutverk þeirra í samfélaginu á því tímabili. Í MA rit- gerðinni, sem hún skilaði í vor, Með honum sett til stjórnar og lands gæslu, tekur hún út stöðu norskra drottninga á miðöldum, allt frá hálf- goðsagnakenndum persónum kon- ungasagna á 10. öld til Margrétar Valdimarsdóttur á síðari hluta 14. aldar. Koparborgin reist á martröð Ragnhildur Hólmgeirsdóttir er að stíga sín fyrstu skref á skáldabrautinni. Í hjá- verkum og milli þess sem hún hefur síðastliðin sjö ár sökkt sér niður í riddarasög- ur og heimildir um stöðu norskra drottninga á miðöldum skrifaði hún fantasíu- og ævintýrabókina Koparborgina. Höfundur og söguhetjan eru um margt lík. Pietro horfði á fjarlæga ljósdeplana við hafnar- bakkann synda fyrir augum sér á meðan hann beið eftir að deyja. Hann lá á þakinu á litla hús- bátnum af því að inni voru allir dánir. Hann mundi ekki hvað hann hafði verið lengi veikur en þetta var önnur nóttin hans uppi á þakinu. Á næturnar var þægilega svalt og það róaði hann að horfa á ljósdeplana og reyna að telja þá, en á daginn lá hann og stiknaði og vatnsbrúsinn var löngu tóm- ur. Eins og dáleiddur fylgdist hann með ljósinu á hafnarbakkanum hreyfast til og frá. Það hreyfðist miklu meira en síðustu nótt. Pietro ruglaðist stöðugt í talning- unni en það skipti ekki öllu máli. Hann fylgdist með deplunum skipta sér upp í fjóra hópa sem tóku síðan að færast nær og nær. Hann sá þá ekki skýrt því það vætlaði enn blóð úr augunum á honum en þegar vindurinn færði honum lyktina af logandi eldi, þá fann hann óttann læðast að sér. KAFLABROT ÚR KOPARBORGINNI Miðaldafræðingurinn Sögusvið Koparborgar- innar minnir á 16. öld- ina, sem Ragnhildur var mjög spennt fyrir áður en hún byrjaði í sagn- fræðinni og fékk áhuga á miðöldum. Inni voru allir dánir Innrömmunarþjónusta Láttu fagmenn sjá um innrömmunina Gæða innrömmun verndar myndir og listaverk Sérsmíðaðir rammar úr tré og áli Rauðarárstíg 33 – Fjarðargötu 19, Hafnarfirði – S. 511 7000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.