Morgunblaðið - 04.11.2015, Síða 14

Morgunblaðið - 04.11.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 gegnum Húsavíkurhöfða hefjist í febrúar nk. Þá er verið að opna nýja efnisnámu fyrir hafnargerð og vega- gerð. Dýpkun í lok nóvember Snæbjörn segir tíðarfarið það sem af er hausti og vetri hafa komið sér vel fyrir verktakana, bæði við Bakka og á Þeistareykjum, þar sem Lands- virkjun reisir jarðvarmavirkjun í tengslum við stóriðjuna á Bakka. Von er á dýpkunarskipi og starfs- milli bæjarins og Bakka, sunnan við iðnaðarlóðina þar sem PCC Bakki Silicon hyggst reisa kísilverksmiðju. „Ég fann vel fyrir þessum skjálfta sjálfur, hélt fyrst að hurð hefði verið skellt aftur í næsta húsi,“ segir Snæ- björn. Að sögn Snæbjörns eru fram- kvæmdir við jarðvinnu komnar vel af stað og verktakar eru að hefja lagn- ingu Bakkavegar til Húsavíkurhafn- ar. Reiknað er með að gerð jarðganga Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við vitum vel að við erum á virku skjálftasvæði og það kemur ekkert á óvart þó að það komi kippir annað slagið. Það hefur verið tekið tillit til þessa í hönnun á jarðgöngum og öðrum mann- virkjum og í öll- um vinnuferlum,“ segir Snæbjörn Sigurðarson, verkefnisstjóri hjá Norðurþingi, en Húsvíkingar og nágrannar fundu vel fyrir jarðskjálfta um miðnætti á sunnudagskvöld. Stærsti skjálftinn var upp á 2,9 stig á Richter og voru upptökin við Héðinshöfða- bæina, um 4 km frá Húsavík og skammt norðan við iðnaðarlóðina á Bakka. Barst Veðurstofunni fjöldi tilkynninga frá fólki sem fann kipp- inn vel. Snæbjörn segir aðstandendur verkefnisins vel meðvitaða um að lóðin á Bakka sé á þekktu skjálfta- svæði. Húsavíkurmisgengið liggur mönnum Björgunar til Húsavíkur í lok nóvember til að hefja dýpkun í höfninni. Vegagerðin bauð út þá framkvæmd í sumar og Björgun átti lægsta tilboð, upp á tæpar 250 millj- ónir króna. Snæbjörn segist engar fregnir hafa fengið frá forsvarsmönnum Björgunar um að það tefjist þó að dýpkunarskipið Perla hafi sokkið í Reykjavíkurhöfn. Sér vitanlega hafi annað skip, sem hafi verið í dýpkun í Þorlákshöfn, átt að koma norður. Bakki Horft yfir iðnaðarsvæðið á Bakka og til Húsavíkur. Húsavíkur- misgengið svonefnda liggur á milli Bakka og bæjarins. Framkvæmdir vegna kísil- versins á Bakka á góðu skriði  Heimamenn kippa sér ekki upp við jarðskjálfta skammt norðan við Bakka Héðinshöfði Skjálfti 1. nóv. 2.9 stig Húsavíkurhöfði Húsavíkur- misgengið Húsavík Bakki Snæbjörn Sigurðarson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Viðskiptaráð Íslands bendir á það að launakostnaður vinnuveitanda vegna starfsmanns sem er með 500.000 krónur í grunnlaun á mán- uði sé 740.000 krónur. Starfsmað- urinn fær hins vegar ekki nema 340.000 krónur útborgaðar. Búið er að ráðstafa 400.000 krónum áður en launþeginn fær greitt. Viðskiptaráð birti nýlega á heimasíðu sinni (vi.is) skýringarmynd sem sýnir skipt- inguna. Hér birtist mjög einfölduð útgáfa af myndinni. Byggt á rannsókn Hagstofu Frosti Ólafsson, framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs Íslands, sagði að tölur um skiptingu launakostn- aðar væru byggðar á rannsókn Hagstofunnar frá 2012. Hann taldi að ekki hefðu orðið veigamiklar breytingar á skiptingu launakostn- aðar síðan þá. „Vissulega rennur sumt af þessu í vasa launþega á endanum eins og lífeyrisréttindi, orlofs- og frídaga- réttur og veikindaréttindi. Þessi réttindi nýtast fólki vel. En þau auka verulega muninn á launa- kostnaði atvinnurekenda og út- borguðum launum,“ sagði Frosti. Hann sagði að menn fyndu mikið fyrir þessum launatengdu gjöldum í rekstri einyrkjafyrirtækja og smærri fyrirtækja. Lækka gjöld og skatta „Tilfinning fólks þegar verið er að semja um kaup og kjör er mjög ólík eftir því hvort um er að ræða launagreiðanda eða launþega. Launþeginn horfir á útborguð laun en launagreiðandinn á heildar- launakostnaðinn. Þegar munurinn er svona mikill er ekki furða þótt menn upplifi sanngirni kröfugerðar og niðurstöður samninga með ólík- um hætti.“ Viðskiptaráð telur að með lækk- un tryggingagjalds um tvö pró- sentustig, lækkun tekjuskatts og útsvars um eitt prósentustig hvors um sig og með því að hætta ein- greiðslum mætti hækka útborguð laun eftir skatt um 40.000 krónur á mánuði eða 480.000 krónur á ári. Tryggingagjald er nú 7,3% af heild- arlaunagreiðslum vinnuveitenda. Frosti sagði að með eingreiðslum væri t.d. átt við orlofsuppbót í júlí og desemberuppbótina og aðrar slíkar greiðslur. Einfaldara fyrirkomulag „Kjarasamningum lýkur oft með samkomulagi um einhverjar sér greiðslur eða sporslur sem flækja launafyrirkomulagið frekar en hitt. Við tölum fyrir því að fyrir- komulagið verði einfaldað svo hægt verði að hækka grunnlaunin. Menn vita þá betur um hvað er verið að semja varðandi kaup og kjör,“ sagði Frosti. Hann kvaðst ekki efast um að lækkun trygginga- gjalds, tekjuskatts og útsvars myndi skila sér til launþega. Ósk um upplýstari umræðu Viðskiptaráð vill ekki síst ein- falda launafyrirkomulagið til þess að menn skilji betur sjónarmið hver annars og geti betur borið saman kaup og kjör bæði opinberra starfsmanna og á almenna vinnu- markaðnum og eins á milli starfs- stétta. „Ég held að flestir séu sammála um að það sé erfitt að bera saman kjör ólíkra starfsstétta vegna mik- ils flækjustigs í kjarasamningum og fyrirkomulagi launagreiðslna. Það væri til mikils að vinna að ein- falda þetta og samræma eins og hægt er til að stuðla að upplýstari umræðu og aukinni sátt á vinnu- markaði,“ sagði Frosti. Launatengd gjöld og skattar hærri en kaupið  Viðskiptaráð Íslands vill einfalda flókið launakerfið Í hvað fara launin? Heimild: Viðskiptaráð Íslands Lífeyrisframlag-70.000740.000 500.000 340.000 Orlof og frídagar-70.000 Tryggingagjöld-50.000 Hlunnindi-30.000 Skattur-140.000 Veikindi-20.000 Lífeyrisgreiðsla-20.000 Gjöld vinnuveitanda Útborguð laun Grunnlaun Launa- kostnaður Gjöld starfsmanns Hádegismatseðill alla virka daga frá kl. 11:30 til 14.00 Borðapantanir í síma 562 7335 eða á caruso@caruso.is. Caruso, Austurstræti 22, 101 Reykjavík Rómantískur og hlýlegur veitingastaður í miðbæ Reykjavíkur Um 2.500 fermingarbörn í 66 sóknum um allt land ganga í hús dagana 2.-6. nóvember og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Eþíópíu. Söfnunin nú er sú sautjánda í röðinni en í fyrra söfnuðu ferm- ingarbörn 8.162.460 krónum. Frá árinu 1998 hafa fermingarbörn safnað yfir 96 milljónum króna til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar. Fyrir söfnunarvikuna fengu fermingarbörnin fræðslu um mik- ilvægi þess að hafa aðgengi að hreinu vatni og um aðstæður fólks sem býr við vatnsskort. Í fræðslunni heyrðu börnin um ár- angur af verkefnum Hjálp- arstarfs kirkjunnar og sáu hvern- ig hægt er að safna rigningarvatni og grafa brunna sem gjörbreyta lífinu til hins betra. „Hjálparstarf kirkjunnar hvet- ur landsmenn til að taka vel á móti fermingarbörnunum,“ segir í tilkynningu. Safna fyrir vatns- verkefni í Eþíópíu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.