Morgunblaðið - 04.11.2015, Page 15

Morgunblaðið - 04.11.2015, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Höndin, alhliða mannúðar- og mannræktarsamtök, á 10 ára af- mæli í dag, miðvikudaginn 4. nóv- ember. „Samtökin aðstoða og liðsinna hinum þurfandi og veita þeim stuðning,“ segir í tilkynningu. Í tilefni afmælisins verður haldin hátíð í neðri sal Áskirkju í kvöld kl. 20.30. Dagskrá hefst með söng Karla- kórs Kjalnesinga. Síðan flytur Ey- þór Eðvarðsson vinnustaðasálfræð- ingur fyrirlesturinn. „Hamingja, himnaríki og helvíti“ Næst verður afhending viður- kenninga og Þorsteinn Guðmunds- son uppistandari kemur fram. Sam- komunni lýkur með fjöldasöng. Kynnir verður Ólafur Jóhann Borgþórsson, prestur í Seljakirkju Boðið verður upp á kaffi og heimagert meðlæti. Allir eru velkomnir á afmælis- hátíð Handarinnar. Fagna afmæli í Áskirkju  Höndin heldur upp á 10 ára afmælið Morgunblaðið/Eggert Áskirkja Fjölbreytt afmælisdagskrá verður í kirkjunni í kvöld. Alþjóðaforseti Lionshreyfingar- innar, dr. Jitsuhiro Yamada, heila- og taugaskurðlæknir frá Japan, var í heimsókn á Íslandi á dögunum. Hann heimsótti meðal annars barna- og unglingageðdeild Land- spítalans og kynnti sér starfsemina þar ásamt félögum í Lionsklúbb- num Fjörgyn og forystumönnum Lionshreyfingarinnar á Íslandi. Lionsklúbburinn Fjörgyn hefur lengi verið bakhjarl BUGL og stutt starfsemina þar á fjölmargan hátt. Fyrir sjö árum gaf klúbburinn til dæmis BUGL tvo bíla til afnota. Þar sem þeir voru komnir til ára sinna var endurnýjunar þörf. Bílarnir voru því seldir og Fjörgynjarmenn gáfu aðra tvo bíla, 5 manna Renault Clio og 9 manna Renault Trafic. Auk þess gáfu þeir BUGL Jura XS9 Classic kaffivél til að nota í starfi með skjólstæðingum. Stórtónleikar framundan Lionsklúbburinn Fjörgyn hefur í 12 ár haldið stórtónleika í byrjun nóvember í Grafarvogskirkju til styrktar BUGL þar sem fram hafa komið margir af fremstu tónlistar- mönnum landsmanna. Enn er haldið áfram á þeirri braut og 12. nóvember næstkom- andi verða stórtónleikar þar sem listamenn spila og syngja og gefa framlag sitt til stuðnings barna- og unglingageðdeildinni. Margir af þekktustu tónlistar- mönnum landsins hafa komið fram á styrktartónleikunum í Grafar- vogskirkju í gegnum árin. Gáfu BUGL tvo nýja bíla Ljósmynd/Landspítali Nýr bíll Jitsuhiro Yamada alþjóðaforseti Lions við stýrið.  Lionsklúbburinn Fjörgyn hefur stutt starfsemina þar Hrafnaþing verður haldið í dag, mið- vikudaginn 4. nóvember kl. 15:15. Þá mun Birgir Vilhelm Óskarsson jarð- fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytja erindið: Nýtt jarð- fræðikort af Austurlandi í mæli- kvarða 1:100.000 Í erindinu verður greint frá út- gáfu nýs jarðfræðikorts af Austur- landi sem nær yfir svæði frá Beru- firði yfir í Mjóafjörð. Það sýnir þrjár útkulnaðar megineldstöðvar: Breið- dalseldstöðina, Reyðarfjarðareld- stöðina og Þingmúlaeldstöðina. Einnig verður greint frá niður- stöðum rannsókna á jarðfræði Aust- urlands. Hrafnaþing er haldið í húsakynn- um Náttúrufræðistofnunar að Urr- iðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ. Allir eru velkomnir. Kynnir nýtt jarðfræðikort Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888 www.pog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.