Morgunblaðið - 04.11.2015, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.11.2015, Qupperneq 16
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ríkisútvarpið þarf aðeins um þriðj- ung núverandi húsnæðis til að rúmt sé um starfsemina. Þetta er mat Páls Magnússonar, fyrrverandi útvarpsstjóra, sem rifjar upp hugmyndir um að núverandi húsnæði yrði fyrir ríkisútvarp og að sambærilegt húsnæði fyrir ríkis- sjónvarp yrði reist þar við hliðina. Af þeirri uppbyggingu varð ekki. Hér til hliðar má sjá samanburð á umfangi rekstrar hjá 365 miðlum og RÚV og skal tekið fram að vísir.is, Fréttablaðið og Tal eru undanskilin í þessari tölfræði um 365 miðla Um samanburð af þessu tagi verð- ur alltaf deilt. Hitt liggur fyrir að stöðugildi hjá RÚV eru ríflega tvö- falt fleiri en hjá þessum deildum 365. Verktakar eru ekki taldir með. Páll Magnússon var útvarpsstjóri RÚV frá því fyrirtækið varð að opin- beru hlutafélagi (ohf.) árið 2007 og þar til í desember 2013 að hann lét af störfum. Hann stjórnaði því félaginu rekstrarárin 2007-2008 til 2012-2013. Skuldirnar hafi lækkað Páll gagnrýndi í viðtali í Morgun- útvarpi Rásar 2 í gær að höfundar skýrslunnar skyldu núvirða rekstrartölur árin 2007 til 2015 en birta efnahagsreikning á verðlagi hvers árs. Af þeirri framsetningu megi álykta að skuldir RÚV hefðu aukist á tímabilinu. Hið rétta sé að þær hafi lækkað á þessu tímabili. Samkvæmt útreikningum Páls hafa núvirtar heildarskuldir RÚV lækkað úr 8,4 milljörðum árið 2007 í 6,7 milljarða rekstrarárið 2012-2013, eða um 1,7 milljarða. Þá sé búið að draga frá lækkuninni þá upphæð sem kom til vegna breytingar á 900 milljóna skuld við ríkið í hlutafé. Þá gagnrýnir Páll þá fullyrðingu skýrsluhöfunda að RÚV hafi fengið um það bil 2 milljarða króna í auka- framlög árin 2007 til 2009. Páll segir að þar sé annars vegar um að ræða fyrrgreindar 900 milljónir á núvirði, með breytingu á skuld í hlutafé. Páll segir ekki rétt að telja þennan lið til aukatekna, enda komi þetta ekki fram í tekjum RÚV. „Þetta er ekki tekjuframlag heldur breytt form á eign ríkissjóðs,“ segir Páll. Loks tilgreindu skýrsluhöfundar 716 milljóna króna aukafjárveitingu árið 2009, á verðlagi 2015. Páll segir að það liggi fyrir að þetta var ekki aukafjárveiting heldur leiðrétting á villu í prentuðum fjárlögum. Fram kemur í skýrslunni að hús- næði RÚV sé alls 16.400 fermetrar og að félagið noti nú 13.900 fermetra. Um 2.500 fermetrar eru leigðir út til Reykjavíkurborgar. Tækni minnkar húsnæðisþörf Spurður hvað hann telji RÚV þurfa stórt húsnæði segist Páll telja að um þriðjungur alls húsnæðisins, eða 5-6 þúsund fermetrar, myndu duga. Vegna tæknibreytinga þurfi RÚV ekki jafn mikinn húsakost og áður. Til dæmis sé nú hægt að gera það sama á fartölvu og áður þurfti heilu klippiherbergin til að vinna. „Ég teldi vænlegast að selja ekki bara lóðarréttindi heldur húsið líka eins og var til athugunar 2013. Það færi langt með að greiða upp lang- tímaskuldir RÚV,“ segir Páll. Fjallað var um skuldahliðina hjá RÚV í Morgunblaðinu á laugardag- inn var. Þar voru birtar í töflu lykil- stærðir úr rekstrinum á tímabilinu 2007-2015 og tekið fram að tekjur og gjöld hefðu verið færð á verðlag rekstrarársins 2015. Skuldir væru hins vegar á verðlagi hvers árs. Síðan sagði að „heildarskuldir RÚV séu nú ríflega 6,6 milljarðar, eða rúmlega 1,6 milljörðum hærri en við stofnun RÚV ohf. árið 2007“. Það kom því fram að verið væri að bera saman skuldir á nafnvirði. Skuldirnar jukust svo aftur Eftir viðtalið við Pál á Rás 2 ræddi Morgunblaðið við Eyþór Arnalds, formann nefndarinnar sem vann hina umtöluðu skýrslu um RÚV. Eyþór vísar því á bug að tölurnar um skuldir RÚV séu rangar. Sendi hann jafnframt Morgunblaðinu nú- virtar skuldir RÚV 2007-2015 og eru þær birtar í töflu hér fyrir ofan. Eyþór segir rangt hjá Páli að RÚV hafi ekki fengið 2 milljarða í aukafjárveitingar árin 2007-2009, sem svo hafi nýst til lækkunar skulda. Á næstu árum hafi skuldir RÚV svo aftur aukist sem sé í takt við þá niðurstöðu nefndarinnar að RÚV hafi ekki tekist að ná jafnvægi í tekjum og útgjöldum. Um það atriði sagði Páll í viðtalinu á Rás 2 að áform um 10% niðurskurð hjá RÚV haustið 2013 hefðu ekki náð fram að ganga. Páll segir að þvert á markmið um að draga úr útgjöldum hefðu þau aukist úr 5,2 milljörðum rekstrarárið 2012-13 í 5,5 milljarða rekstrarárið 2013-2014. Eins og sýnt er hér fyrir ofan jukust skuldir RÚV um tæpan milljarð milli ára 2013-14. 15 fréttamenn og þulir hjá 365 Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, segir annarra að meta hvort samanburður skýrsluhöfunda á RÚV og 365 sé sanngjarn. Hann segir stöðugildin 25 við fréttir, fréttatengt efni og íþróttir hjá 365 skiptast þannig að 15 frétta- menn og þulir starfi í sjónvarpi og útvarpi, 3 starfsmenn starfi hjá Ís- landi í dag og alls 2 stöðugildi séu hjá öðrum dagskrárgerðarmönnum og fréttamönnum sem vinna innslög fyrir Ísland í dag, samhliða öðrum störfum. Þá eru 5 íþróttafréttamenn. Sævar Freyr segir aðspurður að þáttagerð íþróttadeildar 365 sé ekki talin með í skýrslunni sem fram- leiðsla á innlendu sjónvarpsefni. Alls notar 365 nú 6.050 fermetra undir starfsemina. Það húsnæði hýs- ir alla starfsemi félagsins, þ.m.t. Fréttablaðið og Tal. Sævar Freyr segir aðspurður að það sé heldur þröngt um þjónustuverið hjá 365 en að öðru leyti fari vel um starfsfólk. Tók lítinn þátt í starfinu Eftirfarandi texti birtist í frétta- skýringu Kvennablaðsins um nýju skýrsluna: „Kvennablaðið hefur heimildir – sem blaðið telur traustar – víða úr stjórnkerfinu um að for- stjóri 365 hafi haft svo mikið aðgengi að nefndinni og drögum skýrslunnar að hann hafi því sem næst verið full- gildur meðlimur nefndarinnar. Skýrslan ber þess sterk merki.“ Spurður um þessa fullyrðingu seg- ir Sævar Freyr að hann hafi átt fund með Svanbirni Thoroddsen nefnd- armanni og svo símafund með nefnd- inni. Þá óskaði nefndin eftir staðfest- ingu á að rétt væri farið með gögn sem 365 hafði útvegað eftir fyrir- spurnir hennar. Framangreint sé að- koma hans að skýrslunni. RÚV tókst ekki að hagræða  Fyrrverandi útvarpsstjóri segir að þvert á áform um að minnka útgjöld hafi þau aukist síðustu ár  Telur breytingu 900 milljóna skuldar í hlutafé ekki hafa verið tekjuframlag ríkisins til RÚV Samanburður á RÚV og 365 Starfsmannafjöldi Húsnæði* Útsent sjónvarpsefni í klukkustundum árið 2014 365 miðlar: Stöð 2, Maraþon, Bíórásin og Bylgjan RÚV: Allur rekstur, þ.m.t. sjónvarp, Rás 1, Rás 2 og ruv.is 16 .4 0 0 7. 87 7 6. 0 50 13 .9 0 0 *RÚV hefur leigt frá sér 2.500 fermetra. Húsnæði 365 miðla er fyrir alla starfemi félagsins, þ.m.t. Fréttablaðið og Tal. Meðalútsendingartími á dag RÚV: 12 tímar 365: 16,4 tímar Heimild: Ársskýrsla RÚV og upplýsingar frá 365 miðlum. Fjöldi stöðugilda við fréttir, fréttatengt efni og íþróttir 54 25 252 111 Fjöldi stöðugilda í heild Fjöldi fermetra í heild Innlent efni Fjöldi fermetra í notkun Erlent efni 1.948 1.681 2.495 4.197 Sjónvarps- og útvarpsrekstur 365 miðla og RÚV Í milljónum króna RÚV 365 sjónvarp og útvarp Tekjur 2013-14 2014 Mismunur Ríkisframlag/áskriftartekjur 3.318 2.666 -652 Auglýsingatekjur 1.844 1.240 -604 Aðrar tekjur 238 35 -203 Tekjur alls 5.400 3.941 -1.459 Gjöld Dagskrár- og framleiðslukostnaður 3.929 2.010 -1.919 Dreifi- og sölukostnaður 522 401 -121 Sameiginlegur rekstur og stjórnun 646 1.093 447 Afskriftir 317 73 -244 Rekstrargjöld alls 5.414 3.577 -1.837 Rekstrarhagnaður -14 364 378 EBITDA 303 437 134 Þróun skulda hjá RÚV árin 2007-2015* *Samkvæmt útreikningum KPMG.Tölur eru sóttar í skýrslu nefndar um starfsemi og rekstur RÚV frá 2007. Á verðlagi hvers árs í milljónum (31.8. ár hvert) 2007 Stofnun ohf. 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 Breyting frá 2007 Breyting frá 2010 Vaxtaberandi skuldir 3.408 3.969 4.335 3.937 3.755 3.621 3.702 4.245 4.817 4.982 1.013 1.227 Aðrar skuldir 1.570 1.438 1.273 1.075 1.031 1.202 1.218 1.374 1.769 1.645 207 614 Heildarskuldir 4.978 5.407 5.608 5.012 4.786 4.823 4.920 5.619 6.586 6.627 1.220 1.841 Á föstu verðlagi í lok ágúst 2015 í milljónum króna Vaxtaberandi skuldir 5.484 6.283 5.991 4.906 4.477 4.110 4.035 4.435 4.922 4.982 -1.301 505 Aðrar skuldir 2.526 2.276 1.759 1.339 1.229 1.364 1.328 1.435 1.807 1.645 -631 416 Heildarskuldir 8.010 8.559 7.750 6.245 5.706 5.474 5.363 5.870 6.729 6.627 -1.932 921 Páll Magnússon Sævar Freyr Þráinsson 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Starfsmannasamtök RÚV hafa sent frá sér tilkynningu: „Á hverju hausti þegar vinna við fjárlagafrumvarp stendur yf- ir hefst sama atburðarásin þar sem þyrlað er upp moldviðri í kringum starfsemi RÚV ohf. Þeir sem vilja hag fyrirtækisins sem minnstan tala hátt og finna starfseminni og starfi okkar flest til foráttu í þeim augljósa tilgangi að stuðla að því að Al- þingi skeri enn eina ferðina nið- ur fjárveitingar til RÚV … Fyrir rúmu ári síðan gall í andstæðingum RÚV að fyrir- tækið þyrfti að hagræða og ná tökum á rekstrinum … Nú, ári síðar, hefur RÚV nýlega kynnt uppgjör sem sýnir algeran við- snúning og hallalausan rekst- ur … En nýtur félagið góðs af þessum góða árangri í umræðu andstæðinga RÚV? Nei þvert á móti er eins og þeir verði bara enn ákveðnari í að fela þennan góða rekstrarárangur sem náðst hefur á undanförnum ár- um … Við starfsfólkið óskum eftir því að stjórnmálamenn og aðrir sýni þá sjálfsögðu kurteisi að byggja mál sitt á stað- reyndum. Starfsfólk RÚV er langþreytt á ófaglegri um- ræðu.“ Umræðan sé ófagleg YFIRLÝSING STARFSMANNA Magnús Geir Þórðarsson útvarps- stjóri boðar athugun vegna þeirr- ar fullyrð- ingar Guð- laugs Þórs Þórðarsonar, varafor- manns fjár- laganefndar, að stjórnendur RÚV hafi veitt nefndinni rangar upplýsingar um fjárhag RÚV. „Við teljum eðlilegt, fyrst þessi staða er komin upp vegna fullyrðinga þingmannsins, að kallað sé eftir afstöðu fjár- málaráðuneytisins sem getur skýrt hver staða málsins er. RÚV vann þetta mál allt í góðu samstarfi við fjármálaráðuneyti og mennta- og menningarmála- ráðuneyti,“ sagði Magnús Geir í skriflegu svari í gærkvöldi. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær telur Guðlaugur Þór að tölvupóstar milli fráfar- andi formanns stjórnar RÚV og starfsmanns fjármála- og efna- hagsráðuneytis sanni að RÚV hafi lagt fram rangar upplýs- ingar hjá nefndinni í vor. Voru umræddir tölvupóstar birtir orðréttir hér í Morgunblaðinu. Loks skal þess getið að í undirfyrirsögn með fréttaskýr- ingu í Morgunblaðinu í gær sagði að núverandi þjónustu- samningur við RÚV væri fallinn úr gildi. Það var oftúlkun eins og lesa mátti úr fréttinni. Beð- ist er velvirðingar á þessu. Boðar athug- un hjá RÚV GAGNRÝNI ÞINGMANNS Magnús Geir Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.