Morgunblaðið - 04.11.2015, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
AUDI A4 2,0 TDI
nýskr. 06/2011, ekinn 127 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. Verð 3.350.000.
Raðnr.254336
FORD MONDEO GHIA 2.0 diesel
nýskr. 11/2007, ekinn 154 Þ.km, dísel, 6 gíra.
Verð 1.880.000.
Raðnr.254262
BMW M3 E46
nýskr. 04/2003, ekinn 178 Þ.km, sjálfskiptur.
Súpereintak, skoðar ýmis skipti!
Verð 3.990.000. Raðnr.252703
M.BENZ C 220 CDI AVANTGARDE
nýskr. 08/2011, ekinn 173 Þ.km, diesel, sjálfskiptur,
facelift, led ljós, 7 gíra skipting.Verð 4.970.000.
Raðnr.286548
AUDI Q7 3.0 TDI QUATTRO S-LINE
nýskr. 09/2011, ekinn 83 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur. Einn eigandi. Verð 8.990.000.
Raðnr.286545
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er
Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu
af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði
og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu
ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili.
Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450
zenus@zenus.is • zenus.is
Augljós kostur
5 ára
ábyrgð
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hafin er bygging fjögurra íbúða í
tveimur parhúsum á Tálknafirði.
Fasteignafélag í eigu stærsta at-
vinnurekanda staðarins og sveitarfé-
lagsins stendur fyrir framkvæmd-
inni. Tilgangurinn er að auka
möguleika á að taka við fyrir-
sjáanlegri fjölgun starfsfólks fisk-
eldisfyrirtækjanna.
„Við erum að veðja á þá uppbygg-
ingu sem er að verða í fiskeldi. Nú
liggur fyrir tillaga um að fjórfalda
sjókvíaeldi á svæðinu og það kallar á
mikla fjölgun starfsfólks. Þá er verið
að byggja í botni Tálknafjarðar ein-
hverja stærstu seiðaeldisstöð á Ís-
landi og þótt víðar væri leitað. Þar
verða um 20 menn í vinnu. Þar fyrir
utan er aukin þjónusta sem byggist
upp í kringum eldið,“ segir Indriði
Indriðason, oddviti og sveitarstjóri á
Tálknafirði.
Mikill skortur hefur verið á íbúð-
arhúsnæði á Tálknafirði vegna upp-
byggingar fiskeldis. Ákvörðun um
framkvæmdir við nýju íbúðirnar var
tekin áður en breytingar urðu á út-
gerðarmynstri hjá Þórsbergi hf.,
stærsta vinnuveitandanum, þar sem
landvinnsla var lögð niður. Við það
missti starfsfólk vinnuna.
„Við lítum á þetta sem tímabundið
ástand. Uppgangurinn í fiskeldinu
skapar miklu fleiri störf en tapast
hjá Þórsbergi,“ segir Björgvin Sig-
urjónsson, byggingameistari hjá
TV-verki ehf. sem annast byggingu
íbúðanna. Hann segir að væntanlega
verði breytingar á samsetningu
vinnuaflsins. Stór hópur, mikið
pólskir verkamenn, sem hafi verið
þar í verbúðum, fari en fjölskyldu-
fólk komi í staðinn. Annars segist
hann ekki vita annað en allir fyrr-
verandi starfsmenn Þórsbergs sem
áhuga hafi haft á að búa áfram á
svæðinu hafi getað fundið nýja
vinnu.
Hagkvæmar íbúðir
Fasteignafélagið 101 Tálknafjörð-
ur var myndað með því að Þórsberg
og Tálknafjarðarhreppur lögðu
eignir inn í sameiginlegt félag. Það
hefur bolmagn til að byggja nokkrar
íbúðir. Annað parhúsið er komið upp
og verður unnið að innréttingu
beggja íbúðanna í vetur. Búið er að
steypa sökkla hins hússins sem einn-
ig er með tveimur íbúðum og verður
væntanlega byrjað að reisa það í vor.
Hver íbúð er 95 fermetrar að stærð
og með bílskúr, alls nærri 130 fer-
metrar að stærð. Björgvin segir
reynt að byggja húsin á hagkvæman
hátt. Stefnt er að því að hver íbúð
kosti ekki meira en 24-26 milljónir
kr. Sú áætlun standi ennþá, hvað svo
sem síðar gerist. Hann segir mikið
muna um gatnagerðargjöldin. Þau
séu vel innan við 2 milljónir á íbúð og
ekki hægt að líkja því við höfuðborg-
arsvæðið þar sem sveitarfélögin hafi
drepið niður uppbyggingu íbúðar-
húsnæðis með því að gera gatna-
gerðargjöldin að tekjulind.
Indriði segir að ætlunin sé að
leigja íbúðirnar út. Björgvin segir að
fólk sem er að flytja á smærri staði
vilji helst leigja til að byrja með. Þá
segir hann að íbúðirnar séu hent-
ugar fyrir eldra fólk sem vilji
minnka við sig húsnæði.
Heiti fasteignafélagsins, 101
Tálknafjörður, vísar augljóslega til
póstnúmers miðbæjar Reykjavíkur.
Indriði sveitarstjóri staðfestir það
en segir að þessi tillaga að nafni hafi
komið fram á íbúafundi. Björgvin
segir að ef til vill séu menn að vonast
til að jafna fasteignaverðið á 460
Tálknafirði við verðið í 101 Reykja-
vík.
Veðja á uppbyggingu í fiskeldinu
Fjórar íbúðir byggðar á Tálknafirði eftir langt hlé Fasteignafélagið 101 Tálknafjörður stendur
fyrir framkvæmdinni Ætlunin er að skapa aðstöðu til að taka við fleira starfsfólki fiskeldisins
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Nýbygging Nægar lóðir eru til á Tálknafirði. Fyrstu íbúðarhúsin í um ára-
tug eru risin og fleiri eru í undirbúningi. Skortur hefur verið á húsnæði.
Tálknafjarðarhreppur vinnur að
því að koma upp hitaveitu í þorp-
inu. Varmadæla verður notuð til að
skerpa á volgu vatni frá Laugardal
sem er rétt utan við þorpið.
Indriði Indriðason oddviti segir
að búið sé að leggja 3,5 km langa
stofnlögn inn í bæ. Vatnið í Laugar-
dal er 45 gráðu heitt. Það er notað
til að hita upp skóla og sundlaug
sem er við jarðhitasvæðið. Þarf að
skerpa á vatninu upp í um 70 gráð-
ur til að það nýtist til upphitunar
húsa í þorpinu. Við það sparast
mikil orka því aðeins um 20% af raf-
orkunni sem nú er nýtt myndu fara
í að knýja varmadæluna. Hitaveitan
verði því hagkvæm.
Verið er að stofna félag með
Orkuveitu Vestfjarða um hitaveit-
una og hanna veituna. Indriði von-
ast til að hægt verði að fara í það
næsta sumar að leggja hitaveitu-
lagnir um þorpið.
Varmadæla skerpir
á volgu vatni
Hitaveita lögð um Tálknafjörð
Eygló Harðar-
dóttir, félags- og
húsnæðismála-
ráðherra, hefur
sett reglugerð
um 20% hækkun
uppbóta og
styrkja til hreyfi-
hamlaðra ein-
staklinga vegna
bifreiða. Gilda
reglurnar frá 1.
nóvember sl. Fjárhæðir uppbóta og
styrkja vegna bifreiðakaupa voru
síðast hækkaðar í byrjun árs 2009
en höfðu þá verið óbreyttar til
langs tíma. Skv. velferðarráðuneyt-
inu hefur kaupverð bifreiða hækk-
að mjög á síðustu árum og því sé
frekari hækkun þessara fjárhæða
orðin tímabær. Heimilt er í sér-
stökum tilfellum að veita styrk
vegna mikið fatlaðra barna yngri
en tíu ára ef barnið sem í hlut á þarf
sannarlega sambærilega bifreið og
fullorðinn einstaklingur í sambæri-
legri aðstöðu. Er þetta nýmæli í
reglugerð sem staðfestir fram-
kvæmd Tryggingastofnunar á veit-
ingu styrkja í kjölfar úrskurða úr-
skurðarnefndar almanna-
trygginga.
Bifreiðastyrkir hreyfihamlaðra hækka
Eygló
Harðardóttir