Morgunblaðið - 04.11.2015, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015
Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is
Fagleg & persónuleg þjónusta
Dæmi:
LIRIKA black
Frábær kaffivél
fyrir lítil fyrirtæki
3.600,- án VSK
Þjónusta- & leigugjald á mán.
Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki
Hagkvæmara en þú heldur!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
að komast á slíkum hjólum segist Ró-
bert hafa séð þriggja stafa tölu. „Það
er nú ekki algengt en það er hægt að
ná þeim hraða ef farið er niður langa
og beina brekku. En fólk innanbæjar
heldur að meðaltali 25-30 kílómetra
hraða. Þetta gerir það að verkum að
fólk hjólar lengra og fer hraðar yfir.“
Erum að slíta barnsskónum
Róbert segir mikla aukningu hafa
orðið síðustu ár í sölu fylgibúnaðar
fyrir hjól. „Það hefur sérstaklega ver-
ið mikil aukning í sölu á fatnaði fyrir
hjólareiðafólk. Þegar fólk er að hjóla í
vinnuna og skólann þá er hentugra að
vera í einhverju öðru en gallabuxun-
um og flísjakkanum. Fólk finnur
meiri þægindi í sérstökum reiðhjóla-
fatnaði.“
En hvað með aukabúnað eins og
bjöllur til að láta gangandi vegfarend-
ur vita þegar hjólin nálgast? „Það er
mikið talað um hvort glitaugu og
bjöllur eigi að vera staðalbúnaður.
Það er verið að vinna í því að uppfæra
reglugerð um hvað er talið vera æski-
legur öryggisbúnaður á hjólum en
það er mjög misjafnt hvað fólk vill í
þessu. Sumir vilja ekki sjá neitt slíkt
og eru bara að hugsa um að líta vel út
á meðan aðrir horfa á hvað er hentugt
og vilja þá nota glitaugu og bjöllur.
Ég held að við séum bara að slíta
barnsskónum í hjólamenningunni og
erum að finna út hvernig gangandi og
hjólandi eiga að haga sér á stígunum.
Lykilatriðið er að við lærum að virða
hvort annað. Um leið og fólk gerir það
og virðir umferðarreglurnar þá er
þetta ekkert mál.“
Dýrasta hjólið 3,8 milljónir
Róbert segir að hjólreiðafólk vilji
hafa sér reiðhjólastíga. „Þó það sé
dýrt í framkvæmd þá er það æski-
legast af því reiðhjólin fara miklu
hraðara yfir heldur en gangandi og
hlaupandi. Með því er líka dregið úr
hættum á slysum, til dæmis ef börn
og hundar hlaupa fyrir hjólreiða-
menn á miklum hraða þá næst yf-
irleitt ekki að stoppa skyndilega.“
Róbert segir að verð á hjólum í
hjólabúðunum geti verið frá 70 þús-
und krónum og upp úr. „Ég hef
heyrt að dýrasta hjólið á landinu hafi
kostað 3,8 milljónir króna. Það eru til
nokkur hjól sem kosta 2 milljónir
króna. En 200-600 þúsund krónur er
mjög algengt verðbil. Innflutningur-
inn datt niður 2009 en hefur haldist
nokkuð stöðugur til dagsins í dag eða
í kringum 15-16 þúsund hjól á ári.
Hins vegar tvöfölduðust hjól í verði
eftir hrun vegna breytinga á gengi
krónunnar.“
Hann segir að endingartími hjóla
fari eftir umhirðu. „Ef ekki er hugs-
að vel um hjólið dugar það í 1-2 ár en
ef hjólinu er vel viðhaldið getur það
enst í 10 ár eða lengur. Hluti af því að
hjólin eru orðin sýnilegri er mikil
aukning í að fólk noti hjólin sín. Ég
held að áður hafi fólk ekki notað hjól-
in sín nema örfáum sinnum yfir árið
en núna er hægt að hjóla í vinnuna,
taka þátt í margvíslegum hjóla-
keppnum og hjólaklúbbum.“
Róbert segir að nú séu starfandi
um 8 hjólreiðafélög á Íslandi þar sem
hjólreiðafólk kemur saman til að æfa
og keppa. „Til viðbótar er mikill
fjöldi af öðrum hjólreiðahópum þar
sem fólk er að hjóla saman til að
halda sér við og fá félagsskap með
því að hitta annað hjólreiðafólk. “
Innflutningur 40% minni
Innflutningur á reiðhjólum 2006-2015
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
2006 2007 2009 2011 20142008 2010 20132012 2015*
Heimild: Hagstofan*8 mánuðir
17 þúsund reiðhjól að verðmæti 614 milljónir króna á fyrstu 8 mánuðum ársins
Hjólamenning að slíta barnsskónum, segir rekstrarstjóri reiðhjólaverslunar
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Miðað við þróun reiðhjólamenningar
á höfuðborgarsvæðinu kemur það
væntanlega mörgum á óvart að inn-
flutningur á reiðhjólum fyrstu átta
mánuði þessa árs
er einungis 60% af
fjölda reiðhjóla
ársins 2008, þegar
flutt voru inn 28
þúsund reiðhjól.
Reiðhjólainnflutn-
ingur hrundi árið
á eftir þegar flutt
voru inn helmingi
færri hjól eða 14
þúsund. Í ár er
innflutningurinn
orðinn tæplega 17 þúsund reiðhjól að
fob-verðmæti 614 milljónir króna.
Róbert Grétar Pétursson, rekstr-
arstjóri reiðhjólaverslunarinnar TRI,
segir að umfjöllun um reiðhjólin end-
urspegli ekki innflutningsmagnið.
„Það virðist ekki haldast í hendur. En
líklega er hægt að rekja það til þess
að þar sem mikið hefur verið gert í að
bæta samgöngur til að auðvelda reið-
hjólafólki að komast í vinnu og skóla
þá eru reiðhjólin orðin sýnilegri.“
Hann segir það sífellt færast í aukana
að fyrirtæki bjóði starfsmönnum góða
aðstöðu til að koma hjólandi í vinn-
una, með sturtum og fataklefum.
„Það er mikil aukning í notkun
keppnishjóla sem eru mjög létt þann-
ig að hægt er að komast mjög hratt
yfir með minni áreynslu,“ segir Ró-
bert. Aðspurður hversu hratt hægt sé
Róbert Grétar
Pétursson
tals 639 milljónum króna sem er
10,5% hærra en árið á undan.
Stöðugildi í fyrirtækinu eru 100.
Eigið fé félagsins í árslok var 1,6
milljarðar króna og eiginfjárhlut-
fallið var 69%. Óráðstafað eigið fé í
lok árs var 1,1 milljarður króna
sem er 72% af eigin fé félagsins.
Ekki hvíla langtímaskuldir á félag-
inu að frátalinni 78 milljóna króna
ábyrgðarskuldbindingu og skamm-
tímaskuldir eru 662 milljónir
króna, einkum viðskiptaskuldir.
Skuldir við lánastofnanir eru eng-
ar.
Ekki greiddur út arður
Einu eigendur félagsins eru hjónin
Benedikt Eyjólfsson og Margrét
Beta Gunnarsdóttir, að mestu í
gegnum félagið BE fjárfestingar
sem fer með 90,9% hlut. Stjórn fé-
lagsins lagði til að ekki yrði greidd-
ur arður vegna síðasta rekstrarárs.
Bílabúð Benna skilaði 118 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári sem er
24,5% meiri hagnaður en árið á
undan. Fyrirtækið selur meðal ann-
ars bifreiðar frá Porsche, Opel,
Chevrolet og Ssangyong. Velta fé-
lagsins var 4,3 milljarðar króna á
síðasta ári og jókst um 4,4% á milli
ára. Handbært fé frá rekstri var
231 milljón króna í samanburði við
86 milljónir króna árið á undan.
Laun og tengd gjöld námu sam-
Hagnaður eykst hjá Benna
Eigið fé 1,6 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 69%
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bílar Benedikt Eyjólfsson er for-
stjóri og eigandi Bílabúðar Benna.
● Stjórn VÍS hefur boðað til hluthafa-
fundar í höfuðstöðvum félagsins að
Ármúla á þriðjudaginn í næstu viku.
Á fundinum fer fram stjórnarkjör en
frestur til að tilkynna framboð til
stjórnar rennur út á morgun, 5. nóv-
ember. Stjórnin vekur athygli á því að í
samþykktum félagsins um stjórnarkjör
er gert ráð fyrir kynjakvóta.
Frestur til morguns að
tilkynna framboð í VÍS
● Alls bjuggu 331.310 manns á Íslandi í
lok þriðja ársfjórðungs samkvæmt töl-
um Hagstofunnar. Þar af voru 166.590
karlar og 164.720 konur. Lands-
mönnum fjölgaði um 700 á ársfjórð-
ungnum. Brottfluttir með íslenskt ríkis-
fang voru 640 umfram aðflutta og fleiri
konur fluttust frá landinu en karlar. Að-
fluttir erlendir ríkisborgarar voru 720
fleiri en þeir sem fluttu á brott.
Þá fæddust 1.130 börn á ársfjórð-
ungnum en 530 einstaklingar féllu frá.
Fleiri fluttu utan en
heim á þriðja fjórðungi
!
"
##
#$
"$%
$!
!
%#%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
!!
!
!
#$
% "
$$
!
%$!
##
%
$
#
#$
#$"!
"$$%
$%
! %"
%#
"
● Frekar rólegt var
í Kauphöll Íslands í
gær en Eimskip
hækkaði mest í
viðskiptum dags-
ins. Hækkaði virði
félagsins um 1,3% í
um 93 milljóna
króna viðskiptum.
Á sama tíma lækk-
uðu bréf Icelandair um tæp 0,3% í rúm-
lega 660 milljóna króna viðskiptum
sem reyndust mestu viðskiptin með fé-
lag í Kauphöllinni í gær. Næstmest við-
skipti voru með bréf í Reitum eða rúm-
ar 230 milljónir og hækkaði félagið um
0,3% í viðskiptum gærdagsins.
Eimskipafélagið með
mestan byr í Kauphöll
STUTTAR FRÉTTIR ...
Mesta mánaðarhækkun hlutabréfa-
vísitölu Gamma frá því í janúar 2013
varð nú í október þegar vísitalan
hækkaði um 4,4%. Valdimar Ár-
mann, hagfræðingur og fjár-
málaverkfræðingur hjá Gamma,
segir að töluverðar hækkanir hafi
verið á íslenskum hlutabréfamark-
aði það sem af er ári en þessa miklu
hækkun í október megi rekja til ým-
issa þátta. „Mörg uppgjör bárust
seinni hluta október fyrir þriðja árs-
fjórðung hjá félögum sem eru skráð
í Kauphöllina. Þau sýndu flest fram
á bætta rekstrarafkomu sem styður
við hækkandi hlutabréfaverð. Fyrir
uppgjörin höfðu þrjú fyrirtæki sent
frá sér jákvæða afkomuviðvörun,
þar sem þau greindu frá því að af-
koma ársins yrði umfram vænt-
ingar,“ segir Valdimar.
Hann segir að fjárfestar horfi
fyrst og fremst til þess að hagvaxt-
arhorfur á Íslandi líti vel út sem skili
sér í betra rekstrarumhverfi fyrir
innlend fyrirtæki og bættum rekstr-
arhorfum. „Fjölgun erlendra ferða-
manna á Íslandi hefur góð áhrif á
rekstur margra fyrirtækja sem eru í
Kauphöllinni. Hvort sem það eru
bein áhrif á fyrirtæki sem starfa í
ferðaþjónustunni eða óbein áhrif
vegna aukinna umsvifa í hagkerfin.
Þá hafa fréttir af samningum ríkis-
ins og slitabúa gömlu bankanna um
stöðuleikaframlag haft jákvæð áhrif
á markaðinn enda útlit fyrir að
skuldastaða ríkissjóðs muni stórlega
batna á næstu misserum.“
Valdimar segir að samhliða góð-
um horfum og góðum undirliggjandi
rekstri hafi lítið framboð verið af
nýjum hlutabréfum og skráningar í
Kauphöllina ekki verið stórar á
þessu ári. „Þetta samspil hefur ýtt
undir hækkanir á hlutabréfaverði.
Þá hefur borið á því að erlendir fjár-
festar hafa fjárfest á hlutabréfa-
markaðinum.“
Flest félög sýna bætta afkomu
Mesta hækkun hlutabréfavísitölu Gamma frá janúar 2013
Hlutabréf Valdimar Ármann segir
ýmsa þætti skýra hækkun í október.