Morgunblaðið - 04.11.2015, Page 21

Morgunblaðið - 04.11.2015, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Heimastjórn Skotlands hefur lagt blessun sína yfir áform um að reisa vindmyllur undan strönd landsins og segir að þær verði stærsta fljótandi vindorkubú heimsins. Norska orkufyrirtækið Statoil hyggst setja upp fimm hverfla, sem geta framleitt sex megavött af raf- magni hver, um 25 kílómetra undan strönd Peterhead í norðvestanverðu Skotlandi. Gert er ráð fyrir að vind- orkubúið geti fullnægt orkuþörf um það bil 19.000 heimila. Stefnt er að því að hafist verði handa við að setja vindmyllurnar upp á næsta eða þar- næsta ári. Minni kostnaður Vindhverflarnir verða settir á fljótandi stólpa til að hægt verði að koma þeim fyrir langt frá landi þar sem vindurinn er sterkari og stöð- ugri. Þeir sjást ekki frá ströndinni og hávaði frá þeim veldur ekki ónæði á landi eins og venjulegar vindmyll- ur, að sögn Irene Rummelhoff, tals- manns Statoil. Hún segir að vind- orkubúið njóti einnig góðs af því að það verði nálægt olíuborginni Aber- deen, ásamt þjónustu og mann- virkjum í tengslum við olíu- og gas- vinnslu í Norðursjó. Breska dagblaðið The Guardian segir að talið sé að kostnaðurinn við orkuframleiðsluna í vindorkubúinu verði minni en 100 pund á hverja megavattstund, eða um það bil 85 til 95 pund (16.900 til 18.900 krónur). Að meðaltali sé framleiðslukostn- aður slíkra vindorkubúa, sem þegar hafa verið reist, um 112 pund (22.200 krónur) á hverja megavattstund. Ráðgert er að reisa stærsta fljótandi vindorkubú heimsins, Hywind Scotland, undan strönd Skotlands Fljótandi vindorkubú Sex mega- vatta hverfill sem tækni- fyrirtækið Siemens framleiðir Viðhalds- pallur Kjölfesta Hólkur fylltur vatni og grjóti Sjávarborð Eiffel-turninn 324 m Hywind 266 m 154 m Fest við sjávarbotninn með þremur akkerum Heimildir: Heimastjórn Skotlands/Statoil Nota á fimm hverfla sem geta framleitt allt að 135 gígavattstundir á ári af rafmagni Strengur til að flytja rafmagn til Peterhead Getur fullnægt orkuþörf 19.000 heimila ENGLANDÍRLAND SKOTLAND Norður-sjór 50 km Edinborg Peterhead Hywind Scotland London Hyggjast reisa stærsta fljótandi vindorkubú heims Sænska lögreglan bar í gær róma- fólk, sígauna frá Rúmeníu og Búlg- aríu, út úr tjaldbúðum sem settar höfðu verið upp í Malmö án heim- ildar. Um það bil hundrað mótmæl- endur höfðu safnast saman við búð- irnar til að varna lögreglunni inngöngu en lögreglunni tókst að rýma búðirnar. Um 200 róma-menn höfðu dvalið í búðunum en borgaryfirvöld í Malmö komust að þeirri niðurstöðu í vikunni sem leið að þær gætu skaðað heilsu róma-fólksins og íbúa í grenndinni. Fólkið fékk frest til sunnudagsins var til að fara úr búðunum. „Erum menn, ekki dýr“ Mótmælendurnir sem söfnuðust saman fyrir utan búðirnar segja að mótmælin hafi verið friðsamleg og þeir hafi ekki veitt lögreglunni mót- spyrnu. Lögreglumaður og mótmæl- andi urðu þó fyrir meiðslum í at- ganginum, að sögn sænskra fjölmiðla. Einn mótmælendanna var handtekinn fyrir að ráðast á lög- reglumann, að sögn Expressen, og Aftonbladet sagði að allt að 800 lög- reglumenn hefðu tekið þátt í aðgerð- unum eða verið í viðbragðsstöðu. Mótmælendurnir söfnuðust seinna saman við ráðhúsið í Malmö og kröfðust þess að róma-fólkinu yrði séð fyrir varanlegum samanstað. „Ég er mjög svekktur yfir því hvern- ig komið var fram við okkur,“ hafði fréttavefur Dagens Nyheter eftir rúmenskum innflytjanda meðal mót- mælendanna. „Við erum menn, ekki dýr.“ „Ég vil fá að vera í Svíþjóð í fimm mánuði eða svo til viðbótar, til að geta betlað og sent peninga heim til fjölskyldu minnar,“ hafði danska ríkisútvarpið eftir öðrum rúm- enskum innflytjanda sem hafði dval- ið í búðunum. Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði að stjórnvöld í heimalöndum róma-fólksins bæru ábyrgð á því. „Auðvitað þarf að standa þannig að útburðinum að mannréttindi séu virt, en hafa þarf í huga að menn geta ekki sest að hvar sem þeir vilja í Svíþjóð. Það gildir einnig um Svía almennt og allir eiga að vera jafnir fyrir lögunum,“ hefur Dagens Nyheter eftir Löfven. „Til lengri tíma litið þurfa heimalöndin að bera ábyrgð á því að rómafólkið fái atvinnu, menntun og samastað í landi sínu. Svíþjóð ber ekki ábyrgð á því.“ bogi@mbl.is AFP Útburður Lögreglumenn bera róma-fólk út úr búðum í Malmö. Lögreglan hefur gripið til svipaðra aðgerða víðar í Svíþjóð, m.a. Stokkhólmi. Tjaldbúðir róma- fólksins rýmdar  Segir Svía ekki bera ábyrgð á fólkinu Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, sagði í gær að rann- sóknin á því hvers vegna rússnesk farþegaþota hrapaði á Sínaískaga á laugardag gæti tekið langan tíma, jafnvel nokkur ár. Hann sagði ekk- ert hæft í yfirlýsingu liðsmanna Ríkis íslams, samtaka íslamista, um að þeir hefðu grandað þotunni til að hefna loftárása Rússa í Sýrlandi. Yfirlýsingin væri áróður af hálfu samtakanna sem vildu „skaða ör- yggishagsmuni og ímynd Egypta- lands“. Rannsókn er hafin á flugritum þotunnar en hún gæti tekið nokkr- ar vikur eða mánuði ef þeir eru skemmdir, að sögn heimildar- manna fréttaveitunnar AFP. 224 létu lífið í þotunni, flestir þeirra ferðamenn frá Rússlandi. EGYPTALAND Rannsóknin gæti tekið langan tíma AFP Rannsókn Brak úr þotunni sem hrap- aði á Sínaískaga á laugardaginn var. Fjórir af hverjum tíu atvinnu- mönnum í fótbolta í Englandi og Wales eru með skemmdar tennur og í sumum tilvikum kemur slæm tannheilsa niður á frammistöðu þeirra í leikjum, samkvæmt rann- sókn breskra tannlækna. Rann- sóknin náði til 187 leikmanna Man- chester United, Hull, South- ampton, Swansea, West Ham, Brighton, Cardiff og Sheffield United. Um 53% þeirra reyndust vera með tanneyðingu, 45% sögðu ástand tannanna valda þeim ama og 7% sögðu slæma tannheilsu hafa slæm áhrif á frammistöðu þeirra á æfingum og í leikjum. Um 40% voru með að minnsta kosti eina tannskemmd en á meðal ungra breskra karlmanna almennt er hlutfallið 30%. „Þessi niður- staða kemur á óvart vegna þess að fótboltamennirnir eru vel launaðir og eyða miklum peningum í sjálfa sig,“ hefur breska ríkisútvarpið eftir einum tannlæknanna. Þeir telja að slæma tannheilsu íþrótta- mannanna megi m.a. rekja til neyslu á matvælum sem innihalda mikinn sykur. Skýrt er frá rann- sókninni í tímaritinu British Jour- nal of Sports Medicine. BRETLAND 40% fótboltakappa með tannskemmdir www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Norræna siglir í allan vetur Bókaðu núna! Norræna siglir vikulega yfir vetrartímann frá Seyðisfirði til Færeyja og Danmerkur. Hægt er að bóka ferðir í allan vetur á frábæru verði. Þeim sem bóka sig er sérstalega bent á að kynna sér vel aukaskilmála vegna vetrarsiglinga. Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.