Morgunblaðið - 04.11.2015, Side 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015
Lyfjakeðjan Lyfja
fer mikinn þessa dag-
ana, auglýsir eins og
berserkur um allar
koppagrundir og
dreifir fé til allra átta
eins og enginn sé
morgundagurinn.
Lyfja sem m.a. rek-
ur lyfjakeðjurnar
Lyfja og Apótekið fór
á hausinn í hruninu
með margra milljarða króna
skuldahala sem nú er búið að af-
skrifa. Eigendur Lyfju eru slitabú
Glitnis og Haf Funding sem var
upphaflega írskt félag en er nú í
eigu slitabúsins.
Eftir hrunið vonuðust ýmsir til
þess að stjórnendur bankanna
sendu ekki afturgengin þrotabú
gjaldþrota fyrirtækja í samkeppni
til höfuðs þeim fyrirtækjum sem
fyrir voru á markaði og þurftu ekki
milljarða króna fyrirgreiðslur frá
ríki og almenningi til að ná endum
saman. Sú hefur ekki orðið raunin
a.m.k. hvað Lyfju varðar og vekur
þetta ýmsar siðferðislegar spurn-
ingar, sérstaklega þegar haft er í
huga að fyrirtækið er á fullum
dampi að reyna að auka hlut sinn á
markaði á kostnað
keppinautanna.
Ýmsir eru þeirrar
skoðunar að fyrirtæki í
eigu slitabúa bankanna
eigi að halda sig til
hlés þar til búið er að
selja þau, nú eða af-
henda þau á silfurfati
til vildarvina svona rétt
áður en ríkið yfirtekur
þau.
Undirritaður vill
benda þeim á sem ekki
vilja eiga viðskipti við afturgengin
apótek í eigu slitabúa að ýmis
ágætis apótek eru til í landinu sem
hvergi komu nálægt hruninu og má
í því sambandi nefna að eignarhald
flestra þessara apóteka kemur fram
á vefsíðum þeirra.
Afturganga
í apóteksrekstri
Eftir Hauk
Ingason
Haukur Ingason
»Eigendur Lyfju eru
slitabú Glitnis og
Haf Funding sem var
upphaflega írskt félag
en er nú í eigu slitabús-
ins.
Höfundur er apótekari
í Garðs Apóteki.
Lengi hef ég unnið
að hugmyndum um
hvernig megi bæta bú-
setuaðstæður í land-
inu, ekki síst hinna
fjarlægari byggða.
Besta aðferð til þess
er að leggja sæmilega
hálendisvegi til að
tengja hinar fjarlægari
byggðir stystu leið yfir
hálendið við aðra
landshluta og búa til um leið hag-
kvæmar hringleiðir sem mundu
tryggja að hringflæði ferða-
mennsku næði lengra út á land.
Við kynningu á hugmyndunum átti
ég engan öflugri bandamann en
Ómar Ragnarsson, sem m.a. flaug
með mig tvisvar upp á Sprengi-
sand um miðjan vetur til að skoða,
og hafa viðtal við mig, hjá hinum
upphækkaða Kvíslaveituvegi, sem
lítinn snjó festir á.
Í nýútkominni bók minni Mótun
framtíðar greini ég frá þessum og
öðrum málum, og á mynddiski sem
fylgir bókinni, er t.d. frétt Ómars
úr flugi okkar að Kvíslaveituvegi á
Sprengisandi um miðjan nóvember.
Í innganginum að sjónvarpsfrétt-
inni með viðtalinu við mig þarna,
lýsir Ómar snjóalögum útfrá loft-
myndum sem hann tók úr flugvél-
inni á leiðinni: „Það er autt langt
norður og tiltölulega
lítill snjór á kafla áð-
ur en fer að halla nið-
ur í Bárðardal. Það
gildir enn frekar um
Kjalveg en Sprengi-
sandsleið að þar hef-
ur verið snjóléttara á
vetrum en menn hafa
hyllst til að halda. Í
hitteðfyrra var snjó-
léttara á Kili en á
lágsveitum á Suður-
landi“.
Um mikilvægi upp-
byggðra vega segir Ómar: „Það
virðist skipta sköpum hvort vegir
eru upphækkaðir og liggja hátt“. Í
ljósi þessa er það undarlegt að í
landsskipulagsstefnunni, sem nú
liggur fyrir Alþingi, er lögð áhersla
á að vegir á hálendinu séu lítt upp-
byggðir. Sérstaklega er þetta und-
arlegt í ljósi þess að stundum kem-
ur það mikill snjór – eins og sl. vor
– að ferðaþjónustuaðilar komast
ekki upp á hálendið fyrr en langt
var liðið á sumar.
Síðar í inngangi sínum að sjón-
varpsfréttinni gefur Ómar dæmi
um mikinn ávinning af hálendis-
vegum við að stytta vegalengdir:
„með afleggjara (frá Sprengisand-
svegi) niður í Eyjafjarðardal þá
styttist leiðin frá Sigöldu til Akur-
eyrar þrefalt, verður 200 km, en er
nú hvorki meira né minna en 584
km“.
Í hinni nýju bók minni birti ég
700 myndir sem skýra efni hennar.
Birti ég hér með þessari grein
tvær þeirra sem skýra atriði er
varðar hálendisvegina. Mynd 1
sýnir með rauðu þá hluta úr há-
lendisvegakerfinu sem þegar eru
komnir og með grænu það sem á
vantar. Mynd 2 sýnir að NA-hluti
landsins mundi færast um 200 km
nær Reykjavík ef tillaga lands-
skipulagsstefnu um kræklótta há-
lendisvegi yrði ekki látin ráða.
Enginn þarf að óttast að hálendis-
vegir yrðu lagðir eftir reglustiku
þó þeir birtist sem bein strik á
litlum kortum. Vegir eru í dag allt-
af lagðir þannig að þeir fari vel í
landslagi.
Hálendisvegirnir mundu gegna
meginhlutverki við að veita
straumi ferðamennsku lengra út á
land á um 7 til 8 mánaða tímabili á
hverju ári. Með þessu fengju hinar
dreifðari byggðir meiri hlutdeild í
ferðamennskunni og hinar nýju,
styttri hringleiðir byggju til hring-
flæði, en ferðamenn vilja ógjarnan
aka sömu leiðina tvisvar. T.d. hent-
ar það ekki vel að aka til Akureyr-
ar, og síðan sömu leiðina til baka.
Ferð til Akureyrar yrði hinsvegar
stórum áhugaverðari ef hægt væri
að aka stutta, góða leið um hálend-
ið til baka.
Enn er ónefnt eitt stærsta hlut-
verk hálendisvega, þ.e. að vera
varaleiðir ef hringvegurinn rofnar.
Á fundi Austurbrúar á Hallorms-
stað 2013 hélt Birgir Jónsson jarð-
verkfræðingur, stórmerkt erindi
um þá jarðfræðilegu atburði á síð-
ustu öld sem mundu hafa rofið
hringveginn sunnan jökla ef hann
hefði verið kominn. Dæmi: Jökul-
hlaup (Katla, Skeiðará…), jarð-
skjálftar í Árnes- og Rangárvalla-
sýslum (sem gætu laskað brýr) og
hraunrennsli á Skaftársvæði. Í
framtíðinni má, að auki, búast við
sjávarrofi við Jökulsárlón, sem
gæti rofið veginn varanlega. Álíka
atburðum má líka búast á þeirri
öld sem nú er nýbyrjuð. Niður-
staða Birgis var að af öryggis-
ástæðum væri mikil þörf á vegi að
baki Vatnajökuls sem gæti nýst
sem varaleið þegar hamfarir, eins
og þær sem nú hafa verið nefndar,
ríða yfir og rjúfa hringveginn á
suðurströndinni – í sumum til-
fellum jafnvel í marga mánuði.
Rök Ómars fyrir gagnsemi hálendisvega
Eftir Trausta
Valsson
» Í sjónvarpsfréttum
sem Ómar Ragnars-
son hefur gert um há-
lendisvegahugmyndir
Trausta Valssonar set-
ur Ómar fram sterk rök
fyrir mikilvægi hálend-
isvega.
Trausti Valsson
Höfundur er prófessor
í skipulagsfræði við HÍ.
Kort: TV Höfundur greinarinnar
Mynd 2: Hálendisvegirnir mundu færa staði á Austur- og NA-landi
um 200 km nær Reykjavík..
Kort: TV Höfundur greinarinnar
Mynd 1: Rautt: Lokið af hálendisvegum. Grænt: Eftir af þremur
hálendisvegum.
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Sýningareintak á staðnum.
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams