Morgunblaðið - 04.11.2015, Page 29

Morgunblaðið - 04.11.2015, Page 29
einstaklega ljúfur og góður við okkur þrátt fyrir að við værum nú sennilega ekki alltaf þær einföld- ustu að eiga við. Við þökkum sam- fylgdina og góðar stundir, kæri vinur. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Fjölskyldunni vottum við samúð okkar og biðjum ykkur guðsblessunar. Sigurbjörg Harðardóttir (Sibba) og Dagbjört Eiríks- dóttir (Dæja). Horfinn er yfir landamæri lífs og dauða öðlingsmaðurinn Sveinn Kristjánsson, kennari, eftir langt og giftusamt líf. Hann fæddist í Gnúpverjahreppnum og ólst upp í Geirakoti í Flóanum í faðmi for- eldra og systkina. Hann var því hreinn Árnesingur og hann unni átthögum sínum af heilum hug þar sem æskuspor hans lágu og þar mótaðist lífsskoðun hans og þroski. Lífsstarf hans var kennsla og þar nýttust hæfileikar hans vel. Hlutverk kennarans er mikilvægt og vandasamt, ekki síst á þroska- skeiði ungmenna á aldrinum 13 til 16 ára, þegar einstaklingurinn er að breytast úr barni í þroskaðan einstakling, en þessum aldurshóp- um kenndi Sveinn lengst af. Á þessu aldursskeiði er það ekki að- eins fræðsla, sem kennarinn þarf að veita ungmennunum svo mik- ilvæg sem hún er, hann þarf einn- ig að stuðla að þroska sem ein- staklings í samfélaginu. Þar nýttust hæfileikar Sveins vel þar sem saman fór skörp greind, skapfesta, kímni, reglusemi og næmi á hugsunarhátt og atferli unglinga. Sveinn hóf kennslu við Laug- arnesskólann í Reykjavík haustið 1947 sama árið og hann lauk prófi frá Kennaraskóla Íslands. Þar kenndi hann til ársins 1969 en fluttist þá um haustið í Lauga- lækjarskóla ásamt fleiri kennur- um úr Laugarnesskólanum, þegar unglingadeildir skólans voru flutt- ar þangað. Þar kenndi Sveinn til starfsloka. Hann var ötull við að auka þekkingu sína gegnum árin og fylgjast með nýjungum á sviði kennslumála. Þeir eru margir sem nutu kennslu og leiðsagnar hans í gegnum árin og minnast hans með þakklátum huga. Vert er einnig að nefna hinn mikla þátt sem Sveinn átti í skógræktinni í Katlagili, skólaseli Laugarnesskóla. Fyrstu kynni okkar voru vorið 1944 þegar við þreyttum báðir ut- anskólapróf upp í annan bekk Kennaraskólans og bundumst strax sterkum vináttuböndum sem veitt hafa okkur og fjölskyld- um okkar mikla gleði í gegnum ár- in. Sveinn varð á vissan hátt mikill örlagavaldur í lífi mínu vorið 1947 þegar við lukum kennaraprófi og vorum farnir að svipast um eftir starfi. Þá var það dag einn að Sveinn spurði mig hvort ég vildi keyra sig inn í Laugarnesskóla en hann átti pantað viðtal við skóla- stjórann. Þannig stóð á að ég var með jeppa að láni og ók því Sveini. Við hittum skólastjórann á gangi og heilsum honum, en ég hafði hvorki séð hann né talað við hann áður. Ég segi við Svein „ég bíð hérna meðan þið talið saman“. „Nei“, segir skólastjórinn, „þið komið báðir inn.“ Hann gengur inn, sest við skrifborðið sitt og við gegnt honum. Þá segir hann: „Sveinn þú færð 30 tíma og Stefán þú færð 29.“ Þar með vorum við báðir ráðnir kennarar við Laugar- nesskólann. Sveinn varð þeirrar gæfu að- njótandi að kvænast mannkosta- konu, Aðalheiði Edilonsdóttur frá Ólafsvík. Þau voru samhent í því að búa sér og börnunum sínum fimm myndarlegt heimili og koma þeim öllum til mennta. Síðustu mánuði átti Sveinn við erfið veik- indi að stríða og þá var umhyggja konu hans aðdáunarverð sem stytti honum stundirnar. Með söknuði kveð ég traustan vin og sendi öllum aðstandendum samúðarkveðjur. Stefán Ólafur Jónsson. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 ✝ Jóninna GuðnýSteingríms- dóttir (Ninna) fæddist á Blönduósi 8. september 1928. Hún lést á Héraðs- hælinu á Blönduósi, 21. október 2015. Ninna ólst upp á Blönduósi. Foreldrar henn- ar voru Helga D. Jónsdóttir hús- freyja, f. 8.12. 1895, d. 7.6. 1995, og Steingrímur Davíðsson skólastjóri á Blönduósi og vega- verkstjóri í Húnavatnssýslum, f. 17.11. 1891, d. 9.10. 1981. Steingrímur og Helga eign- uðust 14 börn og náðu 12 þeirra fullorðinsaldri. Ninna var sjö- unda barn foreldra sinna. Elst var Anna, f. 1999, d. 1993, Svava, f. 1921, d. 2014, Olga, f. 1922, d. 2010, Hólmsteinn, f. 1923, Haukur, f. 1925, Fjóla, f. 1927, d. 1993, Brynleifur, f. 1928, Sigþór, f. 1931, Davíð, f. 1932, Pálmi, f. 1934, d. 2001, og 15.3. 2005, og Bjarkar, f. 16.6. 2009. 2) Helga Ingileif, f. 15.8. 1952, gift Ingibergi Sigurðssyni, f. 21.9. 1954. Börn þeirra eru Jón Ingi, f. 1.12. 1979, og Guðrún Tinna, f. 22.3. 1982. Kona Jóns Inga er Klara Hauksdóttir, f. 27.2. 1981. Börn þeirra eru Haukur Ingi, f. 14.9. 2008, og Helga Kristín, f. 12.12. 2011. Sonur Guðrúnar Tinnu er Andri Freyr Gilbertsson, f. 24.7. 2002. 3) Pétur, f. 4.7. 1957. Dóttir hans er Ása Ninna, f. 16.8. 1980. Börn hennar eru Patrekur Thor Herbertsson, f. 25.2. 2003, og Kormákur Krummi Guðmunds- son, f. 29.8. 2007. Ninna og Þormóður bjuggu lengst af að Mýrabraut 19 en fluttu haustið ’98 í Kópavog. Eftir andlát Þormóðs flutti Ninna í íbúð í Boðaþingi, Kópa- vogi, en fluttist svo á Elliheim- ilið á Blönduósi í mars 2015. Ninna var húsmóðir á meðan börn hennar voru ung en starf- aði síðar sem matráðskona á sumrin í vegavinnu og hjá Pól- arprjóni. Þá vann hún lengi hjá Jónasi Tryggvasyni við bólstrun húsgagna. Útför Jóninnu verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, 4. nóvember 2015, kl. 13. Sigurgeir, f. 1938. Ninna giftist Þormóði Péturs- syni og bjuggu þau á Blönduósi, þar sem Þormóður starfaði fyrst hjá Kaupfélagi Hún- vetninga, síðan hjá Búnaðarsambandi Austur-Húnvetn- inga. Var síðan lengi rekstrarstjóri hjá Vegagerð ríkisins. Þor- móður var fæddur 25.7. 1929, d. 5.2. 2007. Börn Ninnu og Þormóðs: 1). Steingrímur, fæddur 27.9. 1951, kona hans Guðbjörg Egils- dóttur, f. 12.3. 1951. Börn þeirra eru Egill Þorri, f. 26.1. 1972, og Þormóður Skorri, f. 2.4. 1974, kona Egils Þorra er Ingunn Ás- geirsdóttir, f. 24.5. 1975, börn þeirra eru Ásgeir Þorri, f. 4.2. 1998 og Kári, f. 1.6. 2005. Kona Þormóðs Skorra er Þuríður Linda Auðunsdóttir, f. 1.7. 1974, börn þeirra eru Steingrímur, f. Elsku amma Ninna er fallin frá. Ég sakna hennar afskaplega mikið og þykir erfitt að hugsa til þess að hún sé ekki lengur á með- al okkar. Fjöldi minninga streymir fram í hugann, hver annarri dýrmæt- ari. Flestar tengjast minningarn- ar öllum þeim stundum sem við frændsystkinin áttum hjá ömmu og afa á Blönduósi. Þar tóku þau ávallt vel á móti okkur og var mikið í mun að við hefðum eitt- hvað skemmtilegt fyrir stafni. Amma vildi allt fyrir okkur gera og fyrir okkur börnin var eins og við værum í veislu á hverjum degi. Nýbakaðar kleinur, kökur og auðvitað fékk maður alltaf sjeik þegar maður vildi. Allar stundirnar sem ég átti hjá ömmu og afa á Blönduósi urðu til þess að á milli okkar skapaðist kær- leiksríkt og einlægt samband. Amma var einstök kona eins og allir vita sem hana þekktu. Hún var umhyggjusöm, glaðlynd og mjög gestrisin. Henni þótti vænt um barnabarnabörn sín og talaði ávallt um þau með miklu stolti. Hún ljómaði alltaf þegar þau komu í heimsókn og dekraði við þau eins og hún dekraði við okkur barnabörnin á Blönduósi. Elsku amma, minningu um þig mun ég ávallt geyma í hjarta mínu. Jón Ingi Ingibergsson. Elsku amma mín. Ég vildi óska þess að ég gæti hitt þig bara einu sinni enn, knús- að þig og kysst. Maður veit víst aldrei hvenær kemur að þessu en sama hvenær það er þá er það erfitt. Ég er rosalega þakklát fyr- ir að hafa átt þig fyrir ömmu og fyrir allar þær góðu minningar sem þú hefur gefið mér. Mikið á ég eftir að sakna þín. Ég man þegar ég var yngri og við Jón Ingi og Ása komum alltaf til ykkar afa á Blönduós á sumrin og páskunum. Við tölum ennþá um það hversu gaman það var að vera hjá ykkur, hversu góð þið voruð og hversu heppin við vor- um að eiga ykkur að. „Blönduós júhú,“ var sönglað síðasta hálf- tímann í rútunni á leiðinni til ykk- ar í von um að eftir næstu hæð værum við komin. Stundum fengu vinkonur mínar að koma með mér en það skipti engu máli hver kom til ykkar, allir voru vel- komnir og öllum fannst gaman. Hjá ykkur var líka allt leyfilegt. Við gátum umbreytt ganginum í hús og göng með öllum dýnum og teppum sem fundust í húsinu, fengið sjeik í kvöldsnarl, vakað fram eftir og farið í vatnsslag í garðinum. Fyrir mig eru þessar æskuminningar frá Blönduósi ómetanlegar. Þegar ég átti Andra voruð þið flutt í bæinn og þá sá ég ykkur nánast á hverjum degi þegar þið komuð að heim- sækja barnabarnabarnið ykkar. Ég man alltaf hvað mér fannst æðislegt að Andri ætti langömmu sem bæði gat og nennti að setjast á gólfið hjá honum og leika við hann. Þannig man ég eftir þér, elsku amma, þú varst amman sem lék við börnin enda er ekki að furða að öll börn elskuðu þig. Það var alltaf gaman að heim- sækja ömmu Ninnu. Elsku amma mín. Ég er svo þakklát fyrir allan þann tíma sem við höfum átt saman, mér þykir endalaust mikið vænt um þig. Ég mun alltaf minnast þín sem bestu og yndislegustu ömmu sem hægt er að hugsa sér. Guð geymi þig, elsku amma. Guðrún Tinna Ingibergsdóttir. Ilmandi kleinulykt, smurt brauð með bláberjasultu, kjöt- bollur, pönnukökur með miklum sykri og hlýja fangið hennar ömmu Ninnu. Þegar ég loka aug- unum er ég komin í eldhúsið á Mýrargötu á Blönduósi. Ég sé ömmu mína standa við ofninn með rúllur í hárinu og klút bund- inn um höfuðið, mjög líklega með ein gleraugu á höfðinu og önnur hangandi framan á sér. Þegar hún lítur upp frá bakstri eða elda- mennsku þá er stutt í brosið sem er eiginlega nokkurs konar glott. Augun eru pírð og full af húmor, eldmóð, dulúð og mikilli ást. Eld- húsið var hennar höll og þar var gott að vera með ömmu. Ég var þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að vera mikið á heimili ömmu og afa á Blönduósi. Pásk- arnir komu þegar ég , Jóni Ingi og Tinna tókum rútuna á Blöndu- ós til ömmu og afa, þar gerðust ævintýrin. Það var fátt sem við fengum ekki að gera okkur til skemmtunar, hvort sem það var að taka undir okkur stóran hluta hússins fyrir handbolta- eða fót- boltamót, hoppa af þakinu í snjó- skafl eða vaka fram á nótt að háma í okkur heimatilbúin sjeik og spila. Allt fannst ömmu þetta vera mjög góðar hugmyndir og hún gerði sér oft lítið fyrir og var með í uppátækjum okkar. Amma Ninna hafði einstakt lag á því að koma í veg fyrir árekstra eða láta okkur sættast ef eitthvað kom upp á. Ef hún var búin að reyna allt og ennþá var skífa á þrjósku andliti þá endaði hún með því að kitla mann. Amma Ninna var einstaklega klár og sagði mjög skemmtilega frá. Þegar hún leyfði sér að setj- ast niður og spjalla þá var sko gaman að hlusta og vera til. Hún var engin venjuleg amma, þessi amma Ninna, og hún var okkar. Hún elskaði börnin sín og barna- börn mikið og orðatiltækið að hverjum finnst sinn fugl fagur er ekki nógu sterkt í því samhengi. Enginn var eins góður og hennar fólk og það var bara þannig. Að sofna í ömmu- og afaholu var ein af dýrmætustu minning- unum. Yfirleitt sungu þau bæði og struku yfir hárið þar til draumahöllin kallaði. Lagið sem hún söng til að svæfa mig var Lóan er komin að kveða burt snjóinn. Ég er svo þakklát elsku amma að fá að syngja þetta lag fyrir þig áður en hún sofnaðir síðasta sinn. Hvíl í friði elsku besta amma Ninna. Ég veit að það verður tek- ið vel á móti þér. Ása Ninna. Lítill strákur horfði stórum augum á mömmu sína þegar langamma náði í kökudisk upp í eldhússkáp. Hún hafði vippaði sér upp á stól í inniskónum og þaðan upp á eldhúsborð. „Má þetta?“ spurði strákurinn undr- andi. Heimsóknirnar til ömmu Ninnu voru alltaf aðeins öðruvísi en venjulegar heimsóknir. Þegar árin liðu og strákarnir okkar Eg- ils kynntust ömmu Ninnu betur var hún aldrei kölluð annað en amma Ninja því hún var svo skemmtileg og engri annarri lík. „Hún verður hundrað ára,“ sagði Ásgeir, „hún breytist aldrei.“ Heima hjá ömmu mátti allt. Það var í lagi að vera í fótbolta á ganginum og leika með kristals- skálarnar. Stundum var æsingur- inn fullmikill og þá var afi sendur út að kaupa ís handa öllum. Aldr- ei var stoppað, ef börnin léku sér skein ánægjan af Ninnu og Þor- móði. Ekkert var sjálfsagðara og fátt gladdi þau meira en fullt hús af gestum. Það var alltaf tilhlökkun hjá strákunum þegar von var á Ninnu í heimsókn til Blönduóss. Það þýddi líf og fjör, húsið fylltist af hlátri og skemmtilegum uppá- tækjum. Stofunni var breytt í tjaldsvæði eða bílabraut og þegar Kári, matargikkurinn litli, átti að borða var það amma sem plataði hann til þess. Eitt sinn teygði hún sig í penna og teiknaði lítinn strák á servíettu. Hann var að spila fótbolta í skyrtu og stuttum buxum. Kári kláraði af disknum undir sögustundinni og spurði svo ömmu hvort það væru pönnu- kökur í eftirrétt og auðvitað skellti hún í pönnukökur fyrir strákinn sinn. Elsku Ninna, þegar ég kynnt- ist Agli talaði hann mikið um þig og Þormóð afa á Blönduósi. Sumt af því sem hann sagði var lyginni líkast. Svo kynntist ég ykkur loks þegar þið fluttuð til Reykjavíkur. Þá sá ég að þið voruð raunveru- lega einstök, góðhjörtuð og um- hyggjusöm og þú svo ótrúlega skemmtileg og hnyttin. Stundum varstu svo hvatvís og hreinskilin að fólk gat orðið nokkuð undr- andi en þó endaði oftast allt með hlátrasköllum. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér, Ninna mín, og að strákarnir mínir eigi um þig margar góðar og fallegar minningar. Við gleymum þér aldrei. Hvíl í friði, elsku amma, langamma og vinkona. Ingunn Ásgeirsdóttir. Elsku langamma mín. Ég trúi ekki að þú sért farin. Ef ég hefði vitað að þetta myndi gerast svona fljótt hefði ég komið til þín á Blönduós. Ég vildi óska að ég hefði getað séð þig bara einu sinni enn. En það er eins og það er og ég mun alltaf eiga góðu minningarnar um þig í hjarta mínu. Eins og þegar ég kom til þín í blokkina og þú varst alltaf með tilbúna hraunmola og þegar ég, þú og amma Helga fórum saman í ísbúð. Svo var alltaf svo gaman þegar þú varst hjá okkur á jólunum. Allt það góða mun ég alltaf muna. Ég vona að þér líði vel þarna uppi, elsku amma. Ég elska þig, amma mín, og ég vildi óska að ég gæti sagt þér það núna. Ástarkveðja, Andri Freyr Gilbertsson. Við vorum náin, enda rúmt ár á milli okkar. Jóninna Guðný var árinu eldri. Það er svo undarlegt með ævi- skeiðið, að því meir sem árunum fjölgar, því ljósari verður bernsk- an. Ég man, þegar systur mínar sögðu mér, að þvo mér vel á bak við eyrun. Ég man líka þegar þær Fjóla og Ninna sögðu mér að leggja ekki undir flatt og gjóa augunum út í loftið. Þann kæk hafði ég lagt mér til sem barn. Ég hætti því. Tímalaus er eilífðin, ennþá stjörnur blika. Í dag sakna ég þess að geta ekki hringt í Ninnu systur, spurt um veðrið á Blönduósi, hvernig „ósinn“ liti út, hvað hún hefði heyrt af fólki. Ninna vildi „norður“ eins og móðir okkar og vildi deyja þar. Þar var æskuslóð hennar og ævi- starf. Hún var fædd við Blöndu, eins og ég. Var það flúðarómurinn, það undrastef, sem dró? Ég veit ekki. Árin liðu. Það að heimsækja Ninnu og Þormóð á Blönduósi var eins og að koma heim. Ninna systir var öllum öðrum veitulli, hjálpsamari og góðgjarnari. Allir sem skynjuðu eðli henn- ar, hlutu að dá hana. Hún er nú tímalaus, aðeins minning. Ég sendi börnum hennar og fjölskyldum kveðju mína. Ævi langa oft á gjóa. Alltaf tær er Ninnu sýn. Yfir fjöll og fönn og snjóa, fegurst birtist minning þín. (B.S.) Brynleifur Steingrímsson. Það er sjónarsviptir að henni Ninnu okkar. Líf og fjör fylgdi henni hvert sem hún fór og öll mannamót, stór og smá, urðu ein- hvern veginn skemmtilegri ef hún mætti. Hún var hláturmild, athugul, með fjörugt ímynd- unarafl og setti oft fram ógleym- anlegar athugasemdir. Ninna var yngsta systirin í hinum stóra barnahópi skólastjórahjónanna á Blönduósi og sú eina sem ílengdist þar. Því varð það kannski hennar hlut- verk að halda hópnum saman og hún var sú sem hélt í alla strengi og vissi alltaf hvað var að gerast í stórfjölskyldunni. Hún og Þor- móður heitinn bjuggu lengst af í þjóðbraut og þótti því sjálfsagt að koma við á Mýrarbrautinni á leið- inni norður. Þau voru óhemju gestrisin og þótti ekki tiltökumál að skella einu læri í viðbót í ofn- inn eða búa um nokkra ættingja í gestaherberginu með litlum fyr- irvara. Alltaf var líf og fjör. Lítill frændi var sendur úr Kópavogi á Blönduós yfir sum- artímann í vegavinnu. Þar var hann undir verndarvæng Þor- móðs og Ninnu föðursystur sinn- ar, sem réðu lögum og lofum í veginum, hann í framkvæmdun- um og hún sá um að allir fengju nú nóg að borða. Og það var reynt að láta piltinn að sunnan gera gagn. Sem hann nú tæplega gerði. En sérstakt vináttusam- band myndaðist þeirra á milli sem entist ævilangt. Þegar pilturinn eignaðist sjálf- ur fjölskyldu var hún líka vel- komin á þeirra heimili og litlar stúlkur áttu þar hauka í horni. Ævintýradagar í Lautasmáran- um eða hesthúsinu. Þau voru ein- staklega barngóð og alltaf var líf og fjör. Þau hjónin fluttu suður fyrir tæpum tuttugu árum og Þormóð- ur féll frá árið 2007. Upp úr því fór að halla undan fæti hjá Ninnu okkar og síðasta vetur var orðið ljóst að hún þyrfti á umönnun að halda. Hún fékk þá góðu hug- mynd að fara á Hælið, eins og hún kallaði hið gamla Héraðshæli Húnvetninga. Það gekk eftir. Síð- asta rúma hálfa árið bjó hún þar í góðu yfirlæti, eignaðist gamlar og nýjar vinkonur og undi sér vel. Við heimsóttum hana síðasta sumar og þá var hún í essinu sínu, umvafin fallegu mublunum sínum sem hún bólstraði sjálf fyrir margt löngu. Hringnum var lok- að og hún var komin heim. Við Steingrímur og dætur okk- ar kveðjum Ninnu með þakklæti í huga fyrir alla gæskuna í okkar garð og vottum Steingrími, Helgu, Pétri og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Kristín K. Alexíusdóttir og Steingrímur Davíðsson, Guðrún Vaka og Ingibjörg Helga. Jóninna Guðný Steingrímsdóttir ERFIDRYKKJUR AF ALÚÐ Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta Sími: 525 9930 • hotelsaga@hotelsaga.is • www.hotelsaga.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.