Morgunblaðið - 04.11.2015, Side 30

Morgunblaðið - 04.11.2015, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Það eru liðin 65 ár síðan ég kynntist heiðurshjónunum Dagrúnu Gunnars- dóttur og Guðjóni Emilssyni. Guðjón og Einar, maðurinn minn, voru bræðrasynir og góðir vinir. Við fyrstu kynni tók ég eftir því hvað hjónin voru glað- vær og gestrisin enda alltaf gaman að heimsækja þau á Nes- veg 60 þar sem heimili þeirra var. Það var ætíð opið ættingjum og vinum og fljótlega vorum við Einar komin í þann hóp. Við mættum á árshátíð vélsmiðjunn- ar Héðins þar sem Guðjón vann og svo var alltaf opið hús á gaml- árskvöld heima hjá þeim. Dag- rún var sérlega dugleg kona og vel verki farin og hún fór fljót- lega að vinna utan heimilis, eink- um á sumrin. Ég frétti að hún hefði unnið við síldarsöltun. Ég man það held ég rett að hún saltaði síld á Seyðisfirði þaðan Dagrún Gunnarsdóttir ✝ Dagrún Gunn-arsdóttir fædd- ist 29. maí 1923. Hún andaðist 18. október 2015. Dagrún var jarð- sungin 23. október 2015. sem Guðjón var ættaður og svo vann hún mörg sumur á Hótel Eddu, Menntaskól- anum Laugarvatni, við góðan orðstír. Mér var sagt að þegar vinnu var lokið á kvöldin í eld- húsinu tók Dagrún fram prjóna sína og prjónaði mikið af sjónvarpssokkum og seldi í búð á Laugarvatni. Guðjón kom svo í heimsókn um helgar. Guðjón var mikill sjúklingur síðustu árin og oft sá eg Dagrúnu með hann í hjólastól í nálægð við heimili þeirra á Seltjarnarnesi þar sem þau bjuggu þá, en það er önnur saga. Dagrún bjó síðustu árin á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík. Ég hitti Dagrúnu í afmæli og þá sagði hún mér brosandi frá því að nú væri verið að sækja um vist fyrir sig á elli- heimili. Ég var meira en hissa en húmorinn yfirgaf Dagrúnu ekki og nokkrum árum síðar þegar hún var komin á Hrafnistu hitt- umst við aftur. Vorum við Einar þá komin á Árbæjarsafn til að hlusta á Karl Jónatansson og hans harmonikkufólk spila. Þarna var Ragnheiður frænka með sínar dætur sem allar spila á harmonikku. Ragnheiður sagði að Gunnar, sonur Dagrúnar, væri með mömmu sína þarna og við skyldum endilega hitta hana. Það var svo gaman að sjá hvað hún fagnaði okkur innilega og sagði hlæjandi þegar henni var sagt að hún væri á Árbæjar- safni: Einar minn, nú erum við orðin svo gömul að við erum komin á safn saman. Svo hló hún hjartanlega sjálf með okkur. Ég veit að börnin hennar fjögur skiptust á að létta henni lífið og hugsuðu vel um hana. Fjölskyldu hennar sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Með hlýhug og virðingu kveð ég Dag- rúnu og þakka henni allar skemmtilegu samverustundirn- ar. Ólöf Stefánsdóttir. Með þakklæti í huga vil ég minnast nágrannakonu minnar, Dagrúnar Gunnarsdóttur. Árið 1947 stofnuðu nokkrir menn úr vélsmiðjunni Héðni og Stál- smiðjunni byggingarfélag og fluttu inn nokkur sænsk íbúðar- hús sem voru sett niður við Nes- veg og Granaskjól. Með í þess- um félagsskap var eiginmaður minn, Guðmundur Jónsson, og Guðjón Emilsson, eiginmaður Dagrúnar og þetta urðu okkar fyrstu kynni af þessum öðlings- hjónum. Dagrún og Guðjón fengu hús númer 60 en við feng- um hús númer 50. Það var til- viljun að þessir Seyðfirðingar fengu þessi hús. Þarna voru vinabönd hnýtt. Á þessum árum var löng bið eftir síma, jafnvel eitt eða tvö ár. Dagrún og Guð- jón höfðu fengið síma. Dagrúnu fannst það ekki mikið mál að sækja okkur í símann. Það var alveg sjálfsagt og annað eftir því. Þau voru einstaklega þægi- leg og hjálpsöm. Allt var svo sjálfsagt. Lífið var ekki áfalla- laust hjá þeim hjónum þar sem Guðjón var farinn að finna fyrir þeim veikindum sem síðar reyndist vera MS. Sem betur fer tóku þau þessum veikindum af miklu æðruleysi. Dagrún var hraust og forkur dugleg. Guðjón vann sem lagervörður hjá Héðni og seinna hjá Símanum. Hann var ákaflega vel liðinn í sínum störfum og léttur í skapi. Við fórum oft með þeim á starfs- mannaskemmtanir í Héðni og skemmtum okkur vel. Í minningunni finnst mér allt- af hafa verið mikið um gesti hjá þeim hjónum og jafnvel nætur- gesti utan af landi. En það má segja að þar sem hjartarúm er þar er húsrúm. Börnin þeirra fjögur eru öll mikið tónlistarfólk og stofnuðu hljómsveit saman. Að lokum þakka ég Dagrúnu vináttu og hjálpsemi hennar frá gömlum góðum dögum. Fjölskyldunni allri votta eg innilega samúð. Ingunn Erla Stefánsdóttir. ... við erum allar hjúkrunarsystur, alls staðar af landinu. Þetta átti vel við haustið 1971 þegar við hófum nám í Hjúkr- unarskóla Íslands og kallaðist hópurinn eftir það J-holl. Við urðum Hollsystur og það mynd- aðist systraband sem bara Holl- systur skilja. Hollssysturnar voru sumar háar, aðrar lágar og fljótt kom í ljós að hæð í sentiímetrum hafði Lilja Aðalsteinsdóttir ✝ Lilja Aðal-steinsdóttir fæddist 3. nóv- ember 1951. Hún lést 12. október 2015. Útför Lilju fór fram 19. október 2015. lítið með Holl- systrastærð að gera. Hjartastærð, hjálpsemi, útsjónar- semi við lausn vandamála og gott lundarfar skipti miklu meira máli. Lilja var með þeim lægri í sentimetrum en hafði allt sem upp var talið ásamt miklum skipulags- hæfileikum, innri gleði, hlýju og sterkan vilja. Sumar hollsystur bjuggu á heimavist og þar var oft mikið líf og fjör. Frjósemi og barneignir holl- systra ollu Lilju töluverður hug- arangi um tíma því hún var gjaldkeri Hollsjóðsins, en ákveð- ið hafði verið að þegar barn fæddist hjá hollsystur yrði keypt burðarrúm frá hópnum, rautt eða blátt. Burðarrúmin urðu miklu fleiri en upphaflega hafði verið áætlað og einu sinni stundi Lilja „Lengi er von á einu“ en brosti svo með glampa í augum og barnið fékk burðar- rúm. Skiplagshæfileikar hennar komu vel í ljós þegar hún klár- aði þriðja árs bóklegt nám, átti síðan frumburðinn rúmum þremur vikum seinna og frá hollsystrum fékk hún blátt burð- arrúm sem nú eru barn síns tíma og bílstólar komnir í stað- inn. Eftir útskrift fórum við hver í sína áttina og tókumst á við lífið. Lilja flutti austur á Neskaup- stað með Einari sínum og vann þar sem hjúkrunarkona mestan hluta sinnar starfsævi, eignaðist börn og annaðist sína fjölskyldu. Oft hefur verið sagt að hjúkr- unarkonur séu mæður að ævi- starfi. Lilja var hvort tveggja, besta mamma og amma, ásamt því að vera hjúkka með öllu því sem tilheyrir á nóttu sem degi. Samgöngur á þessum árum voru ekkert allt of góðar en Lilja kom eins oft og hún gat á fagnaði hollsins. Okkur eru mjög minnistæðar síðustu tvær afmælisferðir J-Holls, þar sem sögukonan Lilja sló í gegn. Fyr- ir nokkrum árum fluttu þau suð- ur og við sáum meir af Lilju með sitt yndislega bros og augnaglott, sem enginn okkar gleymir, og hún vildi helst ekki missa úr hitting né jólahlaðborð. Nú eru þessar samverustundir perlur í minningasjóði okkar. Það sem einu sinni var, eru góðar minningar. Kæra Lilja, hafðu bestu þakkir fyrir allt sem þú gafst okkur í gegnum tíðina, það gleymist aldrei. Nærveru þinnar verður sárt saknað á komandi „Hittingum J-Holls“. Við vottum Einari, börnum ykkar og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð og biðjum alla engla himinsins að vernda þau og gefa þeim styrk. Hvíl þú í friði, fyrir hönd Hollsystra, J-holli, Björg Ólafsdóttir. Elskuleg systir mín, hún Soffía, er látin eftir erfiða sjúkdómslegu frá 4. janúar. Nú spyr maður sig, hvar fæ ég nú fréttirnar? Hún var mjög dugleg við að hafa samband við systkini, ætt- ingja og vini, sérstaklega trygg og lét sér aðra varða, enda fannst öllum vænt um Soffíu, alltaf gat hún sagt manni frétt- ir. Soffía var þriðja í röðinni of okkur sjö systkinum. Ég elst, var tæplega 6 ára þegar hún fæddist, og man ég það vel, það var heima í Karfavoginum. Það Soffía Ragnheiður Ragnarsdóttir ✝ Soffía Ragn-heiður Ragn- arsdóttir fæddist 26. ágúst 1950. Hún lést 20. október 2015. Soffía var jarð- sungin 29. október 2015. var eldsnemma að morgni þann 26. águst 1950, ég vissi auðvitað ekki hvað var að gerast þarna í herberginu við hliðina svo ég fór bara út að leika mér, ég man að það var mjög gott veður, auðvitað enginn á ferli svona snemma dags, en þarna var hún að koma í heiminn. Soffía var mikið á spítala fyrstu tvö árin, hún fæddist með snúna fætur og fasta ökkla og man ég þegar verið var að setja á hana spelkur á kvöldin til að sofa með. Þetta átti eftir að há henni alla tíð, hún fór mjög seint að ganga. Mér er mjög minnis- stætt þegar við vorum að heim- sækja hana á Landakotsspítala á sunnudögum, fara í strætó niður á torg og labba upp Tún- götuna, sem mér fannst mjög brött. Þarna stóðum við á gang- inum á spítalanum og horfðum á hana í gegnum gler. Hún var í miklu uppáhaldi hjá nunnun- um á Landakoti. Þær létu hana hafa hátalara við rúmgaflinn, örugglega sú eina sem fékk svona lúxus. Hún var annars við góða heilsu eða þar til fyrir næstum fimm árum þegar nýrun gáfu sig og hefur hún verið í blóðskilun síðan þrisvar í viku fjóra tíma í senn, þetta reyndi mikið á, en Soffía gafst aldrei upp, tók þessu bara sem vinnu. Í apríl fór Soffía á Grensás eftir fjögurra mánaða legu á Landspítalanum, þarna leið henni vel enda ekki hægt að hugsa sér betri umönnun, allir af vilja gerðir til að létta henni lífið. Það var líka stutt í sprellið hjá henni sem allir höfðu gam- an af, en auðvitað átti hún erf- iða daga, gat ausið úr sér og skellt á mann símanum sem hún gerði nú dálítið oft í gegn- um árin, en hún var fljót að hringja aftur, enda tók maður þessu nú ekki alvarlega. Soffía giftist Valgeiri Inga Ólafssyni kennara frá Kirkju- bæjarklaustri, þau eignuðust tvö börn, Helgu Berglindi og Jón Ómar og eru barnabörnin tvö, Soffía Hrönn og Kristján Máni. Soffía og Ingi bjuggu í nokk- ur ár á Kirkjubæjarklaustri þar sem Ingi starfaði sem kennari. Henni leið vel á Klaustri, eign- aðist þar mjög góða vini. Einnig tók hún þátt í störf- um leikfélagsins og átti þar skemmtilegan og viðburðaríkan tíma. Soffía og Ingi skildu eftir 20 ára hjónaband. Soffía hafði mjög gaman af söng og mikinn áhuga á allri dægurtónlist og kunni flesta texta, hún var líka mjög hag- mælt og eru til margar góðar vísur eftir hana. Soffía vann ýmis störf um ævina fór einnig sem aupair til Ameriku í eitt ár Hún var alls staðar vel látin, enda létt í skapi og sérstaklega orðheppin. Hún var einstök. Soffíu verður sárt saknað af okkur sem þekktum hana. Ég votta börnum, tengdasyni og barnabörnum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar í Guðs friði. Ingunn Ragnarsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN JÓHANN SIGURÐSSON húsasmíðameistari, Engihlíð 16e, Ólafsvík, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi miðvikudaginn 28. október. Útför hans fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 7. nóvember klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ólafsvíkurkirkju og Krabbameinsfélag Snæfellsness. . Guðrún Alexandersdóttir, Kristjana Halldórsdóttir, Svanur Aðalsteinsson, Magnús Stefánsson, Sigrún Drífa Óttarsdóttir, Vilborg Lilja Stefánsdóttir, Eiríkur L. Gautsson, Sigríður Stefánsdóttir, Halldór G. Ólafsson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og tvíburasystir, ÁSA KAREN ÁSGEIRSDÓTTIR, Vatnsstíg 21, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 27. október. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 5. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. . Kristín Jóhannesdóttir, Sigurður R. Sveinmarsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Ingibjörg S. Pálmadóttir, Ása Karen, Gunnhildur, Anton Felix, Berglind og Stefán Franz. Anna Guðlaug Ásgeirsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HAFSTEINN B. ÓLAFSSON, Sléttuvegi 13, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ sunnudaginn 1. nóvember. Að ósk hins látna fer jarðarförin fram í kyrrþey. . Gréta A. Vilhjálmsdóttir, Margrét Hafsteinsdóttir, Vilhelm Einarsson, Sigurður Kort Hafsteinsson, Skúli Þór Hafsteinsson, Anna Jóna Árnadóttir, Bertel Mártenson, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN BIRNA ÞORSTEINSDÓTTIR, Skildinganesi 58, Reykjavík, lézt 2. nóvember síðastliðinn. . Gunnar I. Hafsteinsson, Sigrún Magnea Gunnarsdóttir, Benedikt Magnússon og dætur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTINN BJÖRNSSON, fyrrverandi forstjóri, Fjólugötu 1, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 31. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Minningarsjóð Landspítalans njóta þess. . Sólveig Pétursdóttir, Pétur Gylfi Kristinsson, Emilía Sjöfn Kristinsdóttir, Björn H. Kristinsson, Herborg H. Ingvarsdóttir, Inga Bríet, Kristinn Tjörvi, Einar Ísak og Markús Bragi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.