Morgunblaðið - 04.11.2015, Síða 31

Morgunblaðið - 04.11.2015, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 ✝ Örn HelgiSteingrímsson fæddist 28. október 1942 í Reykjavík. Hann lést 22. októ- ber 2015 á Líknar- deild Landspítalans í Kópavogi. Foreldrar Arnar voru Steingrímur Magnússon fisksali, f. 2.4. 1895 í Gull- berastaðarseli Lundarreykjadalshreppi, d. 4.12. 1991, og Sigríður Vilborg Einarsdóttir, húsmóðir, f. 29.9. 1907 í Reykjavík, d. 24.10. 1993. Systkini Arnar, samfeðra, voru eldrar hennar voru Hans Niel- sen mjólkurfræðingur og Hall- fríður Nielsen, húsmóðir. Örn og Alice eignuðust tvo syni. 1) Örn Hans Arnarson, viðskiptafræð- ingur, f. 12.9. 1973, og 2) Gústaf Arnarson, rafvirki, f. 14.10. 1975, eiginkona hans er Johanna Friberg Arnarson, þau eiga tvö börn, Arnar Hans, f. 2005, og Eydísi Alice Christinu, f. 2008. Örn lauk Gagnfræðaskóla verknáms 1959, iðnnámi í Vél- smiðjunni Héðni hf. 1963, vél- stjóraprófi í Vélskólanum í Reykjavík 1966 og rafmagns- deild 1967. Hann var vélstjóri á skipum Hafskip hf. 1967-1985 en eftir það hjá Eimskipafélagi Ís- lands þangað til hann lét af störfum sökum aldurs. Útför Arnar fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi í dag, 4. nóvember 2015, og hefst athöfn- in kl. 15. átta talsins: Ágústa, f. 15.6. 1918, Magn- ús, f. 20.1. 1920, Kristinn Einar, f. 13.10. 1922, Guð- laug, f. 11.6. 1926, Ingiríður, f. 7.1. 1930, d. 2.1. 2007, Steingrímur, f. 30.7. 1931, Krist- jana, f. 21.8. 1932, d. 19.5. 2005, Auð- ur, f. 6.1. 1935, d. 2.11. 2014. Örn kvæntist 12. janúar 1974. Eiginkona Arnar var Alice B. Nielsen, f. 19.5. 1940 í Maarum í Danmörku, d. 8.8. 2010. For- Elskulegur faðir okkar er fallinn frá eftir stutta en snarpa lokabaráttu við illvígan sjúkdóm. Öll vitum við hver lífsins gangur er, en aldrei er hægt að búa sig undir endalokin, þá sérstaklega þegar þau koma snöggt. Pabbi var mikið fjarverandi vegna vinnu þegar við vorum að alast upp, en það breytti því ekki að hann fylgdist alltaf vel með okkur þótt í burtu væri og þegar hann kom í land voru alltaf hátíðisdagar. Við eigum góðar minningar með honum á siglingum til út- landa, í ferðalögum innanlands eða bara heima við. Pabbi var rólyndismaður og ekkert að trana sér fram, að öllu jöfnu, en fannst gaman í góðra vina hópi. Reglulegur þáttur í lífinu síðustu árin voru „menningar- ferðirnar“ með félögum á mið- vikudögum, kaffihúsaspjall á laugardagsmorgnum og reglu- legar kaffihúsaferðir með skólafélögum úr Vélskólanum og gömlum skipsfélögum. Skemmtilegast fannst hon- um þó þegar íbúðin fylltist af lífi á hverju sumri þegar barnabörnin og Gústaf og Jo- hanna komu í heimsókn frá Svíþjóð og dvöldu með honum í nokkrar vikur. Elsku pabbi, við gerum ráð fyrir að mamma hafi tekið vel á móti þér og þið njótið lífsins saman aftur í öðrum heimi. Þótt minn elskulegi faðir og kæri vinur hafi nú kallaður verið heim til himinsins sælu sala og sé því frá mér farinn eftir óvenju farsæla og gefandi samferð, þá bið ég þess og vona að brosið hans blíða og bjarta áfram fái ísa að bræða og lifa ljóst í mínu hjarta, ylja mér og verma, vera mér leiðarljós á minni slóð í gegnum minninganna glóð. Og ég treysti því að bænirnar hans bljúgu mig blíðlega áfram munu bera áleiðis birtunnar til, svo um síðir við ljúflega hittast munum heima á himnum og samlagast í hinum eilífa ljóssins yl. (Sigurbjörn Þorkelsson) Takk fyrir allt. Þínir synir, Örn Hans og Gústaf. Örn föðurbróðir okkar er lát- inn. Örn var yngstur í fjölmenn- um systkinahópi og voru pabbi okkar, Steingrímur og Örn miklir vinir. Það var ávallt kært á milli þeirra bræðra. Þegar við systkinin hugsum til baka þá koma upp í hugann margar minningar um Örn og Alice heitna konu hans en um þau var ætíð talað sem eitt á okkar heimili, Örn & Alice. Alice kvaddi þennan heim árið 2010. Við systkinin eigum margar góðar minningar um samveru- stundir með Erni, Alice og son- um þeirra. Minningar úr sum- arbústaðaferðum, tjaldútilegum, Krummahólun- um og síðustu ár úr Rjúpnasöl- unum. Það voru ætíð mikil veislu- höld í kringum þau hjónin enda voru þau miklir höfðingjar heim að sækja og gleðigjafar. Jólin hófust hjá okkur stór- fjölskyldunni á hádegi hvern aðfangadag í julefrokost hjá Erni og Alice. Þar tóku þau vel á móti okkur, allt var tilbúið og hátíð í bæ. Örn var vélstjóri hjá Eim- skip og því mikið í útlöndum og við systkinin nutum oft góðs af því þegar við vorum börn. Að koma til þeirra var því alltaf svolítið „útlenskt“ á þeim tíma, gos í dósum, útlenskt nammi og fleira sem fékkst ekki á Íslandi. Örn var skemmtilegur mað- ur og mikill húmoristi. Hann var sannkallaður lífsnautna- maður þegar kom að mat og drykk. Það var alltaf gaman að hitta hann því gleði, jákvæðni og léttleiki einkenndu hann. Hann var áhugasamur um menn og málefni og ungur í anda. Hans verður sárt saknað. Elsku Örn Hans, Gústaf, Jo- hanna, Arnar Hans og Eydís Alice Christina, söknuður ykk- ar er mikill og stutt stórra högga á milli. Við biðjum góðan Guð um að styrkja ykkur í sorginni. Minninguna um skemmtileg hjón, Örn og Alice, munum við alltaf geyma í hjörtum okkar. Fjóla, Rakel, Kári og Hrund Steingrímsbörn. Okkur langar með nokkrum orðum að minnast Arnar Helga Steingrímssonar sem kvaddi okkur þann 22. október síðast- liðinn. Örn kom inn í fjölskylduna í upphafi áttunda áratugarins þegar hann hóf sambúð með Alice systur og frá fyrsta degi var augljóst að þarna var á ferðinni góður og heilsteyptur maður. Allt fram á síðasta dag skein persónuleiki hans í gegn; stutt var í húmorinn og nærvera hans einstaklega góð. Örn var alla tíð í millilanda- siglingum og þegar hann kom heim af sjónum var aldeilis gaman að koma í heimsókn í Krummahólana. Þar var ávallt gestkvæmt enda voru þau hjón vinamörg og höfðu gaman af því að taka á móti gestum. Örn lýsti fjölskyldu sinni þannig að þar væru toppeintök á ferð. Það fer þó ekki á milli mála að Örn H. Steingrímsson var á allan hátt toppmaður sjálfur. Elsku Örn Hans, Gústaf, Jó- hanna, Arnar Hans og Eydís Alice, minning um góðan mann lifir. Takk fyrir samfylgdina, elsku Örn, hvíldu í friði. Vor hinsti dagur er hniginn af himnum í saltan mar. Sú stund kemur aldrei aftur, sem einu sinni var. (Halldór Kiljan Laxness) Kristján, Pálína (Pála) og fjölskylda. Örn Helgi Steingrímsson ✝ Guðrún Júlíus-dóttir fæddist í Reykjavík 30. apríl 1920. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir í Reykja- vík 24. október 2015. Foreldrar henn- ar voru hjónin Júl- íus Magnússon, f. 12. júlí 1883, d. 4. janúar 1931, og Jónína Margrét Jónsdóttir, f. 17. janúar 1891, d. 6. september 1970. Guðrún var önnur í röð- inni af sjö systkinum, sem voru Sigurður, f. 1917, d. 1984, Guð- munda, f. 1922, d. 1995, Jó- hanna, f. 1923, d. 2009, Guð- Tómas Örn og Gunnar Þór, 2) Júlíus, f. 1948, maki hans er Björk Garðarsdóttir, sonur hans er Skúli Magnús og dóttir þeirra Bylgja, 3) Jón Gunnar, f. 1955, maki hans er Fríða Birna Kristinsdóttir, börn þeirra eru: Hanna Kristín, Lísa Marín, Gunnar Snær, 4) Erla, f. 1958, maki Grétar Helgason, börn þeirra eru: Hildur Edda, Helga Lára og Daníel, dóttir hennar er: Linda Rún. Barnabarnabörn- in eru 17. Guðrún stundaði nám við Austurbæjarskóla og Gagn- fræðaskóla Reykjavíkur. Eftir það vann hún ýmis verslunar- störf, lengst af hjá Efnalaug Reykjavíkur ásamt manni sín- um. Jón hafði tekið við rekstri Efnalaugarinnar árið 1966 og ráku þau hana til ársins 1996, þá 75 ára gömul. Útför Guðrúnar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 4. nóvember 2015, og hefst athöfnin kl. 11. mundur, f. 1926, d. 2008, Valur, f. 1928, og Sverrir, f. 1929. Guðrún gift- ist 16. nóvember 1946 Jóni Tóm- assyni, f. 13. desem- ber 1920, d. 31. ágúst 2004. For- eldrar hans voru hjónin Tómas Jóns- son, f. 10. apríl 1889, d. 31. mars 1936, og Bjarnína Guðrún Bjarnadóttir, f. 24. desember 1895, d. 29. mars 1970. Börn Guðrúnar og Jóns eru: 1) Tóm- as, f. 1946, d. 2008, maki hans var Guðrún Þórdís Axelsdóttir og synir þeirra eru: Jón Axel, Ég var ekki nema fimmtán ára þegar ég kom fyrst á heim- ili Guðrúnar Júlíusdóttur tengdamóður minnar. Ég kom með Tómasi syni hennar og hún tók mér afskaplega vel. Okkur samdi vel frá fyrstu tíð. Við Tómas giftum okkur 1968 og eignuðumst þrjá syni. Guðrún var mjög góð amma, maður gat alltaf leitað til hennar þegar á þurfti að halda. Eftir að hún og tengdafaðir minn fóru að ferðast fyrir alvöru eftir fimm- tugt, með Ferðafélagi Íslands, þá sagði Guðrún við okkur Tómas: „Spyrjið þið mig alltaf ef þið þurfið pössun, – ég segi já ef ég get það, en nei ef ferða- lag býðst.“ Hún elskaði að ferðast um landið sitt en hún fór ekki til útlanda fyrr en hún var komin yfir áttrætt. Þá gerði hún víð- reist og fór á nokkrum árum til hátt í tuttugu landa. Guðrún hafði ákveðnar skoð- anir og var óhrædd við að halda þeim fram. Hún var oft létt og kát og oft gátum við hlegið saman. Það var gaman að hlæja með henni, hún hafði svo dillandi hlátur. En hún átti líka alvar- legri hliðar, hún hafði ung þurft að axla mikla ábyrgð á yngri systkinum sínum þegar móðir hennar var að vinna, það merkti hana fyrir lífstíð. Hún var mjög ábyrgðarfull kona og bar um- hyggju fyrir sínu fólki. Ég kveð tengdamóður mína með virðingu og söknuði og bið Guð að blessa minningu hennar. Guðrún Þórdís Axelsdóttir. Okkur langar í nokkrum orð- um að minnast elsku ömmu Gunnu okkar, Guðrúnar Júl- ísdóttur. Amma var sérstaklega yndisleg kona og það var alltaf notalegt að koma í heimsókn til hennar, hvort sem það var í Efnalaugina á Laugavegi eða í Álftamýri og svo seinna meir í Kirkjulund í Garðabæ og á Eir. Við systur kepptumst alltaf við að hlaupa upp og dingla á dyrabjöllunni í Álftamýrinni þegar við vorum litlar en sú sem varð seinni til varð yfirleitt frekar súr. Amma náði hins vegar alltaf að plata af manni skeifuna með því að gefa okkur súkkulaði og þá var það ein rjómasúkkul- aðirönd með álpappír neðst til þess að halda utan um svo það færi nú ekki allt út um allt. Amma var alltaf sterkur kar- akter fram á síðasta dag, kald- hæðin og skýr. Þegar hún frétti af því fyrr á þessu ári að yngsta langömmubarnið hennar var búið að fá nafn, Grétar Jónsson, þá sagði hún strax: „Með upp- hafsstafina GJ, alveg eins og ég.“ Skýr, 95 ára gömul. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá henni og við upplifðum hana aldrei í vondu skapi. Hún var nægjusöm og lét sér duga að sitja klukkutímum saman og horfa á fjöllin og náttúruna. Síðustu árin naut hún þess að sofa fram yfir há- degi og tók lífinu með stökustu ró. Að hafa haft hana í okkar lífi öll þessi ár hefur kennt okk- ur svo margt og mun gera áfram í minningunni. Elsku amma, hvíldu í friði. Þínar, Hildur Edda og Helga Lára. Guðrún Júlíusdóttir á Hótel Borg Hlý og persónuleg þjónusta Hótel Borg | Pósthússtræti 11| Sími 578-2020 Faðir okkar, afi og bróðir, SIGURÐUR GÍSLI LÚÐVÍGSSON tannlæknir, andaðist 29. október síðastliðinn á hjartadeild Landspítalans. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 7. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Fyrir hönd annarra ættingja og vina, . Móeiður Anna Sigurðardóttir, Kjartan Davíð Sigurðsson, Adam Marksson Bell, Daníel Marksson Bell, Margrét Lúðvígsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR KOLBEINS, ljósmóðir, Aðalstræti 4, Patreksfirði, sem lést 28. október, verður jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 7. nóvember klukkan 14. . Lilja, Barði, Ólafur, Ásdís, Helgi og aðrir aðstandendur. Okkar ástkæri SKÚLI GRÉTAR GUÐNASON, lögg. endurskoðandi, Sólbraut 17, Seltjarnarnesi, andaðist miðvikudaginn 28. október. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. nóvember klukkan 13. . Kristjana Björnsdóttir, Berglín Skúladóttir, Óskar Axelsson, Magnús Árni Kristín Dagmar Skúlason, Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Okkar ástkæri EIRÍKUR JÓNSSON rafvirkjameistari, sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 19. október, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 6. nóvember klukkan 11. . Dagbjört Guðmundsdóttir, Helgi Kr. Eiríksson, Katrín Gunnarsdóttir, Martha Eiríksdóttir, Andrés Magnússon, Diðrik Eiríksson, Viktoría Valdimarsdóttir, Inga Rós Eiríksdóttir, Halldór Sverrisson, börn og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GEIRÞRÚÐUR STEFÁNSDÓTTIR, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, lést laugardaginn 31. október. Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn 9. nóvember klukkan 13. . Guðni Garðarsson, Birgir Aðalsteinsson, Birna Aspar, Guðrún Aðalsteinsdóttir, Guðbr. Sævar Karlsson, Stefán Aðalsteinsson, Sigríður S. Helgadóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.