Morgunblaðið - 04.11.2015, Síða 32

Morgunblaðið - 04.11.2015, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 ✝ Baldur Jónas-son fæddist í Bláa herberginu á Bíldhóli, Skógar- strönd, 21. maí 1934. Hann lést í faðmi fjölskyld- unnar á krabba- meinsdeild Land- spítalans við Hringbraut 16. október 2015. Hann var sonur hjónanna Jónasar Guðmunds- sonar frá Bíldhóli, f. 27. apríl 1905, d. 27. júlí 1978, og Láru Jóelsdóttur frá Laxárdal, f. 11. mars 1909, d. 23. mars 1969. Systkini Baldurs eru: Birgir, f. 11. apríl 1933, d. 9. desember 2010, maki Sólveig G. Sigfús- dóttir, f. 20. ágúst 1939. 2) Lilja Soffía, f. 6. maí 1937, maki Helgi Lárusson, f. 25. júní 1936, d. 10. september 1997. 3) Guðmundur Þórður, f. 8. apríl 1942, maki Ólöf Sigur- jónsdóttir, f. 21. júní 1946. 4) Jóel Halldór, f. 26. október 1944, maki Halldís Hallsdóttir, f. 13. febrúar 1945. 5) Herdís, f. 15. júní 1950, maki Reynir Guðmundsson, f. 22. mars 1941. Eftirlifandi eiginkona Bald- 1961. Börn hennar og fyrri manns, Baldurs Þórs Baldurs- sonar, f. 19. mars 1961, eru: a) Rakel Huld, f. 23. október 1983, maki Elías Þór Grönvold, f. 14. júní 1983. Þeirra dætur eru: Ísabella Emma, f. 3. maí 2011, og Amilía Ísold, f. 21. mars 2013. b) Karen Rut, f. 18. júní 1987, maki Vignir Sævars- son, f. 4. febrúar 1965. Þeirra börn eru: Vignir Adam, f. 22. júlí 2008, og Freyja Rún, f. 16. ágúst 2015. c) Davíð Þór, f. 20. maí 1989. Sonur hans og fyrr- um kærustu, Guðrúnar Ernu, f. 13. september 1991, er Stefán Atli, f. 14. mars 2009. d) Aron Örn, f. 30. janúar 1994. Sonur Guðrúnar og seinni manns, Guðlaugs Más Unnarssonar, f. 18. ágúst 1968, er Unnar Leó, f. 28. júlí 2006. 3) Inga Fjóla, f. 18. nóvember 1962, eigin- maður Óskar Jósef Óskarsson, f. 15. ágúst 1960. Börn: a) Óli Baldur, f. 12. desember 1983, faðir Hartmann Kr. Guð- mundsson, f. 6. ágúst 1958. b) Lára, f. 8. febrúar 1991, faðir Kristinn R. Sigurbergsson, f. 1. febrúar 1963. Börn Ingu Fjólu og Óskars: c) Brynjar Jósef, f. 9. júní 1994. d) Brynhildur Júl- ía, f. 5. október 1999. e) Hilmir Steinn, f. 10. september 2002. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna 30. október 2015. urs er Brynhildur Aðalbjörg Sig- tryggsdóttir (Hulda), f. 23. apríl 1934. Foreldrar hennar voru Sig- tryggur Jóhann- esson, f. að Þverá í Miðfirði 7. febrúar 1906, d. 10. júní 1948, og Guðrún J. Pétursdóttir, f. að Laufási (áður Tittlingastaðir) í Víðidal 21. mars 1914, d. 16. nóvember 1989. Baldur og Hulda eiga þrjár dætur: 1) Kristjana Sigrún Páls- dóttir, fósturdóttir Baldurs, f. 24. apríl 1957, maki Sigurður Pétur Harðarson, f. 17. júní 1955. Börn Kristjönu og fyrr- verandi manns hennar, Gunn- ars Theodórssonar, f. 19. nóv- ember 1955, eru: a) Heiða María, f. 5. ágúst 1977, eigin- maður David Winnie, f. 26. október 1966. Þeirra synir eru: Róbert Atli, f. 10. júlí 2010, og Thomas Andri, f. 30. júlí 2013. b) Atli Viðar, f. 7. ágúst 1981, maki Oddný Silja, f. 14. mars 1987. 2) Guðrún Lára, f. 6. apríl Minningar. Lækur. Ég man þegar teymt var undir mér á Mósa, gömlum hesti sem feng- inn var að láni við heyskapinn. Ég hef líklega verið þriggja ára. Ég man þegar ég dvaldi á Leiti meðan mamma lá á sæng suður í Reykjavík. Þar voru hænur sem völsuðu frá kjallaranum og út á hlað. Ég man þegar ég vaknaði einn morgun við grátinn í Rúnu systur, við vorum einar í kotinu. Ég brá mér í stígvél og stökk út í fjós þar sem mamma og pabbi voru við mjaltir, til að láta vita. Ég man þegar við komum að sunnan með Ingu systur ný- fædda, þá fórum við beint á Klungurbrekku og áttum heima þar upp frá því. Ég man þegar hlaðan og fjósið voru tekin í gegn. Þegar múgavélin kom, heyblásarinn og mjaltavélin. Þegar túnin voru stækkuð. Vatnið kom úr brunni úr hlíðinni og ljósavélin var sett upp og við fengum rafmagn. Síminn var einlöngogtværstuttar. Ég man sumrin þar sem litla húsið okkar var fullt af gestum að sunnan og börnum í sumardvöl. Samt var alltaf pláss fyrir alla. Það var alltaf sólskin á sumrin en á vet- urna var allt á kafi í snjó. Þann- ig var það í minningu barnsins. Það þurfti að vinna, þau börn sem á hrífu gátu haldið voru lát- in raka í garða, reka kýrnar og reka féð úr túnum. Það urðu all- ir að hjálpast að. Þetta var stórt verkefni, hjá ungum hjónum með lítil efni og takmarkaðan vélakost. Lítill tími gafst til að grípa í bók, helst þó á veturna. Mamma talar stundum um að kannski hefðu þau getað gert betur, reynt lengur. En 1969 seldu þau jörðina og fluttu suð- ur. Komin með þrjár dætur á skólaaldri, sem hefði annars þurft að senda í heimavistar- skóla. Ný veröld. Kópavogur, í Lundinn okkar, þar sem við fengum fimm stafa símanúmer, rafmagnseldavél og mjólkurbúð, bakarí og sjónvarp. Ungu hjónin byrjuðu upp á nýtt með tvær hendur tómar. En við vorum nægjusöm og það gekk vel. Og allaf var pabbi þar, hægur, traustur. Ógæfan dundi svo yfir 1972 þegar pabbi hrapaði ofan af fjórðu hæð af húsi í byggingu. Stillans hafði gefið sig. En hann hélt lífi. Við tók löng endurhæf- ing, þar sem seigla hans og mömmu kom enn betur í ljós. Þau létu ekkert buga sig og hentug vinna var fundin hjá ÓJK þar sem hann var í tæp 30 ár. Ég man eftir Datsúninum nýja rauða, ég man eftir Skód- unum í röðum, plötunum og nikkunni og gítarnum. Ég man þegar við fórum í strætó úr Kópavogi í bíó að sjá Sound of music. Lambinu eða hakkabuff- inu á sunnudögum. Glugga- og ofnaþvottinum fyrir jólin. Mamma að sauma á okkur jóla- fötin. Græna gervijólatrénu. Tíminn leið, við systur fluttum að heiman. Barnabörn fóru að koma og áttu gott skjól í Lundi hjá afa og ömmu. Þau bjuggu í Lundi í 25 ár og ennþá eru þau kölluð amma og afi í Lundi. Þá minnkuðu þau við sig og fluttust í Dvergó þar sem þau bjuggu síðan. Óteljandi oft í gegnum tíðina höfum við komið við í eld- húsinu þeirra og setið og skraf- að um menn og málefni. Í þess- um minningarbrotum mínum þá get ég ekki skilið þau að. Þar sem annað var þar var hitt. Og þannig er það líka hér. Takk fyr- ir samfylgdina og hvíl í friði, pabbi minn. Kristjana. Elsku hjartans pabbi minn, ég er ekki farin að átta mig al- mennilega á því ennþá að þú sért endanlega farinn og finnst þetta allt saman mjög óraun- verulegt. Síðustu dagarnir fyrir andlát þitt renna hálf partinn saman í eitt því það gerðist allt svo hratt. Ég veit að þetta var búinn að vera mjög erfiður tími fyrir þig og mömmu líka, því það tekur á að vera sífellt svona mikið þjáður af verkjum og lítil von var til þess að það myndi breytast. Það var nú samt lungnabólgan sem tók þig frá okkur allt of fljótt. Ég verð bara að trúa því að þér líði betur núna en hefði svo gjarnan viljað að þú hefðir fengið lengri tíma með okkur en án þess að þjást svona mikið. Ég veit líka að þú misstir aldrei vonina og við héldum þar til nokkrum dögum fyrir andlátið að krabbameinið væri ekki búið að dreifa sér. Við svona aðstæður leitar hugurinn aftur til æskunnar og ég er svo þakklát fyrir það hversu heppin ég er með foreldra. Ég á margar skemmtilegar minningar frá ferðalögum sem við fórum í þar sem við gistum í tjaldi og heim- sóttum ættingja sem bjuggu úti á landi. Þegar ég er aðeins níu ára lentir þú í „stóra slysinu“ sem við kölluðum svo þegar þú hrapaðir niður af vinnupalli af fjórðu hæð og slasaðist mjög al- varlega. Þetta breytti auðvitað öllu hjá okkur í fjölskyldunni. Seinna fórst þú að starfa sem næturvörður og fannst mér allt- af jafn gott að koma fram á morgnana og borða hafragraut sem þú eldaðir á hverjum morgni og stundum varstu með tilbúið kakó. Ég fór aldrei svöng í skólann. Eftir að ég flutti að heiman og eignaðist fjölskyldu þá varst þú alltaf til staðar fyrir okkur. Ég er sérstaklega þakk- lát fyrir hvað þú og mamma hjálpuðuð mér með Óla og síðar Láru. Þið hugsuðuð alltaf vel um litlu stelpuna ykkar og langar mig að minnast á þegar þú komst til okkar Óla í óveðrinu í byrjun febrúar 1991 en þá er ég komin nálægt því að eiga hana Láru. Þá fór rafmagnið af og í brjáluðu veðri komst þú til okk- ar með heitt kakó á brúsa og heitar pylsur sem þið hituðuð á prímus. Það er líka ekki hægt að sleppa því að minnast á allar sumarbústaðaferðirnar sem þið mamma buðuð okkur í með allan barnaskarann. Síðustu árin var heilsan ekki alltaf góð hjá þér en sem betur fer góð inn á milli. Ég er líka þakklát fyrir hvað við eyddum miklum tíma saman síð- ustu mánuðina og ég gat hjálpað þér aðeins í staðinn. Að lokum langar mig að segja að heiðar- legri og betri maður en þú er vandfundinn. Við systurnar hugsum vel um mömmu. Við sjáumst, elsku pabbi minn, þeg- ar minn tími kemur. Þín dóttir, Inga Fjóla. Baldur gekk í barnaskóla síns tíma heima í sveitinni, en las síð- ar mikið og fræddist um mörg efni. Hann hafði yndi og með- fædda hæfileika fyrir músík og kenndi sjálfum sér á harmón- ikku og spilaði stundum á böll- um í sveitinni. Eftir að hann hætti að vinna lærði hann um tíma hjá Karli Jónatanssyni og hafði mikið yndi af. Baldur hóf búskap á Læk á Skógarströnd 1958. Bjó hann einn í tvö ár, en þá kom konan tilvonandi til hans með dóttur sína, Kristjönu litlu Pálsdóttur með sér. Síðar eignuðust þau saman Guðrúnu Láru og Ingu Fjólu. Árið 1962 fluttu þau að Klungurbrekku, þar sem þau bjuggu þangað til þau hættu bú- skap og fluttu suður árið 1969. Fyrst í Lundi við Nýbýlaveg í Kópavogi. Á þeim tíma var Lundur „sveit í bæ“og viðbrigð- in því ekki eins mikil við að flytj- ast úr sveitinni, ekki síst fyrir dæturnar. Árið 1994 fluttu hjón- in, þá orðin ein í koti, að Dvergabakka í Breiðholti þar sem þau bjuggu síðan. Baldur fór ungur að vinna eins og oftast var á þeim tíma. Heima hjá foreldrum, vinnu- maður í sveitinni, við brúar- og vegavinnu o.fl. Eftir að suður kom var erfitt að fá vinnu. Byggingarvinna og sjórinn voru helstu úrræðin. Fór hann þá m.a. sem kokkur á togara og sigldi utan, það voru einu skiptin sem hann yfirgaf sitt ástkæra föðurland. Í byggingarvinnunni lenti Baldur í mjög slæmu slysi árið 1972, sem hann náði sér aldrei af. En hann gafst ekki upp og í staðinn fyrir að fara á örorkubætur fór hann að vinna. Fyrst vann hann um sinn við að líma skraut á platta og reyndi síðar að vinna á trésmíðaverk- stæði, en það gekk ekki upp vegna slyssins. Þá fór hann að vinna sem næturvörður við þrif og gæslu hjá O. Johnson og Kaaber og var þar til starfsloka. Eftir að Baldur hætti að vinna sat hann ekki auðum höndum, enda ekki hans stíll. Hann tók m.a. svo til að sér eldamennsk- una á heimilinu, Huldu til mik- illar gleði, hann las einnig mikið, hlustaði á músík og hljóðbækur og fór í langar gönguferðir. Sér- staklega þótti honum gaman að ganga í Elliðaárdalnum. Einnig var hann mjög handlaginn og hafði gaman af að dytta að því sem þurfti á heimilinu. Afabörn- in hans urðu 12 og langafabörn- in eru nú orðin sjö. Var Baldur mjög stoltur af þessum stóra hópi sínum og fylgdist vel með hvað hver og einn var að bar- dúsa. Enda sýndi það sig í veik- indum Baldurs, því þá safnaðist þessi stóri hópur í kringum hann og á hvert þeirra án efa sínar góðu minningar um afa sem alltaf átti rauðan ópal og lék við þau úti í sumarbústaða- ferðunum í Ölfusborgum. Guðrún Lára Baldursdóttir og fjölskylda. Nú ertu farinn, elsku pabbi minn, og ég er ekki ennþá farin að trúa því. Ég vissi auðvitað að einhvern tímann myndir þú fara en ég bjóst bara alls ekki við því að það yrði svona fljótt. Nú sit ég hér við eldhúsborðið og skrifa til þín. Ég sé út um stofu- gluggann og horfi vestur á Snæ- fellsjökul og hugsa til þín. Það var svo margt sem við áttum eft- ir að tala saman um og gera, pabbi minn. Ég get bara þakkað fyrir að hafa fengið þig fyrir föð- ur og þakkað fyrir allt það góða sem þú gafst mér. Ein fyrsta minning mín um þig er þegar ég fór með þér í útihúsin á Klungurbrekku. Ég gleymi aldrei hversu gott mér fannst að leiða þig á þessari löngu leið (í mínum huga). Þegar veðrið var vont fannst mér ég svo örugg og svo þegar þú varst að gefa skepnunum lá ég bara í heyinu og lét mig dreyma. Ég man líka sérstaklega vel eftir því þegar þú keyrðir mig á fæðingarheimilið þegar ég var að fara að eignast hana Rakel okkar. Þú hafðir svo miklar áhyggjur af mér. Þú varst á frí- vakt en gast ekkert sofið alla nóttina, varst bara á fullu að taka til heima í Lundi. Svo um kvöldið komuð þú og mamma í heimsókn og gáfuð mér m.a. sængurverasett fyrir Rakel og þú sagðir stoltur frá því að þú hefðir nú valið það sjálfur. Þegar ég fékk að lesa undir lokaprófin í Kennaraháskólan- um hjá ykkur mömmu læddist þú um til að trufla mig ekki en gast samt ekki stillt þig um að kíkja öðru hverju inn í herbergi til að spyrja mig hvort ég væri ekki svöng og þyrfti ekki að hvíla mig aðeins. Þegar ég kom í heimsókn til ykkar mömmu og við fórum inn í herbergið þitt og þú spilaðir fyr- ir mig á harmónikkuna, eða þá að við sátum við eldhúsborðið og þú varst að fara með vísur fyrir mig eða segja mér frá sjálfum þér, hvernig þið Birgir hefðuð verið að prakkarast þegar þið voruð litlir. Þegar þú varst vinnumaður á Hesti. Hversu gaman hefði verið að spila á böllum í sveitinni þegar þú varst ungur. Ég gæti endalaust haldið áfram að telja upp en það er víst ekki hægt. Ég sakna þín svo mikið, elsku pabbi minn, sakna þess að geta ekki hringt í þig og spjallað eins og við vorum vön að gera. Ég gat sagt þér nánast allt. Alltaf hafðir þú réttu svör- in. Við töluðum stundum um hvað tæki við eftir dauðann. Við vorum sammála um að eitthvað tæki við og að við myndum hitta fólkið okkar „hinum megin“. En hvernig það væri gátum við ekki vitað og sögðum að það væri verst að þeir sem væru farnir gætu nú ekki bara sagt okkur það. En svo vorum við líka sam- mála um að líklega væri bara best að vita það ekki, maður ætti ekki að vita allt. Ég ætla nú að kveðja þig í bili, pabbi minn. Þú varst minn allra besti vinur og verður alltaf. Ég veit að þú munt fylgjast með okkur áfram og ég veit líka að þú hafðir áhyggjur af mömmu, hvað yrði um hana eftir þinn dag. Þú þarft þess ekki, við munum öll hugsa voða vel um hana. Vertu nú blessaður þangað til næst, eins og við sögðum alltaf þegar við kvöddumst, elsku pabbi, og við hittumst aftur þeg- ar minn tími kemur. Þín Guðrún. Blessaður afi minn, núna ert þú farinn frá okkur og það allt of fljótt. En þú varst orðinn svo veikur að það er bara gott að þér líði ekki lengur illa, afi minn. Ég man ennþá þegar ég frétti að þú hefðir greinst með krabba- mein og ég hugsaði: Afi í Dvergó með krabbamein... hann hristir þetta af sér, kallinn, hann er svo sterkur. En ekki varstu svo heppinn, því miður vann krabba- meinið. En þú vannst hjarta okkur allra sem kynntust þér, afi minn, því þú varst gull af manni og það er svo sorglegt að fá ekki nokkur ár með þér í við- bót. Ég man eftir því hvað ég var alltaf spenntur að fara til ömmu og afa í Dvergó og fá að gista þar. Þá fékk ég alltaf smá pening til að fara út í sjoppu að kaupa nammi og svo leyfðuð þið okkur að vaka lengi fram eftir. Svo vaknaði maður við góðan morgunmat. Ég fékk líka oft að leika mér á píanóinu þínu, sem mér fannst svo gaman. Síðan varð ég eldri og þá breyttust tímarnir. Ég kíkti þá yfir í kaffi og meðlæti. Alltaf þegar maður kom í heimsókn var manni boðið eitthvað að borða, sama þótt maður væri að kíkja bara í stutt- an tíma. Þú og amma sáuð svo vel um okkur. Þú varst líka allt- af svo áhugasamur um okkur barnabörnin þín. Mamma sagði mér oft hversu stoltur þú værir af mér, hvað ég væri duglegur að vinna og ákveðinn í hlutunum og hvað þú værir ánægður með að ég hefði byrjað aftur í skóla að læra pípulagnir. Ég vil þakka þér fyrir að vera afi minn, ég vil þakka þér fyrir alla tímana sem við áttum saman, ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Ég vil þakka þér fyrir stærstu gjöfina sem ég hef feng- ið, fyrir að hafa gefið mér hana mömmu mína sem er demant- urinn í lífi mínu. Ég skal sjá um að passa upp á ömmu og mömmu alveg eins og þú pass- aðir mig. Ég veit að þú munt vaka yfir okkur og passa okkur. Hvíldu í friði, afi minn, og hafðu alltaf heitt á könnunni því einn daginn kem ég og við fáum okk- ur aftur kaffi saman. Þinn Aron. Elsku afi okkar, þakka þér fyrir að vera alltaf svona góður við okkur. Við vonum að þér líði vel núna og sért orðinn frískur aftur. Það hefur örugglega verið tekið vel á móti þér af lang- ömmu og langafa. Við söknum þín mikið, elsku afi. Er vorið hlær og fagrar grundir gróa og geislar himins leika’ um hæð og mó, er syngur „dírrin dí“ í lofti lóa og ljóssins englar dansa um strönd og sjó. Við komum, elsku afi, til að kveðja með ástarþökk og bænarljóð á vör. Þín æðsta sæla var að gefa og gleðja, og góðir englar voru í þinni för. Ó, hjartans afi, öll þín heitt við söknum því enginn var eins góður á okkar braut. Á angurs nótt og vonar morgni er vöknum þá vakir andi þinn í gleði og þraut og „gleym mér ei“ að þínu lága leiði við leggjum hljótt og brosum gegn- um tár, sem maísól, er brosir blítt í heiði þú blessar okkar stundir daga og ár. (HP) Þín barnabörn, Óli Baldur, Lára, Brynj- ar, Hulda og Hilmir. Sæll afi minn, nú er víst kom- inn tími til að kveðja þig þó að það sé alltof snemmt. Mér finnst eins og ég sé enn bara að fara að kíkja í kaffi til ykkar ömmu að ræða um allt og ekkert. Mér fannst líka að við værum svo svipaðir, rólegir en ákveðnir þó með húmorinn í lagi. Ég á svo margar góðar minn- ingar frá því að því að ég var lít- ill og saklaus, öll skiptin sem ég fékk að gista, fá nammi og horfa á Mr. Bean. Besta þjónusta sem hægt var að fá. Þess vegna er leiðinlegt að strákurinn minn, hann Stefán Atli, fái ekki að kynnast þér bet- ur en hann var alltaf hrifinn af ykkur og vildi alltaf koma með í heimsókn til ömmu og afa í Dvergó sem kemur ekki á óvart, enda alltaf kex og kökur á boð- stólum og leið honum alltaf vel hjá ykkur. Mér finnst enn að þetta sé ekki raunverulegt enda gerðist þetta svo fljótt, en svona er víst lífið. Ég mun alltaf halda í minn- ingarnar um þig og ég er svo heppinn að eiga margar góðar sem munu ætíð lifa með mér. Hvíldu í friði, afi minn, ég mun aldrei gleyma þér. Sjáumst hinum megin. Þinn afastrákur, Davíð. Elsku hjartans afi minn. Ég bý ekki yfir þeirri hæfni að lýsa með orðum hversu mikið ég sakna þín. Söknuðurinn ristir svo djúpt að ég óttast að ég verði aldrei heil aftur, ég og þú höfum verið tengd alveg sér- stökum böndum frá því ég fædd- ist og ég veit ekki hvernig ég á að vera án þín. Elsku afi. Ég vona að þú hafir vitað hversu mikið ég elska þig og hversu mikilvægur þú varst mér. Að frá því að ég var lítil stelpa hefur þú verið fasti punkturinn minn, mikilvægasti maðurinn í lífi mínu og besti, besti vinur minn. Þú veittir mér ávallt skilyrðislausa ást og það var sama hvað ég gerði eða ekki Baldur Jónasson HINSTA KVEÐJA Kveðja til afa í Dvergó. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Unnar Leó.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.