Morgunblaðið - 04.11.2015, Síða 36

Morgunblaðið - 04.11.2015, Síða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Nú líður að því að hinum ótta-lausa njósnara hennar hátignar Bretadrottningar, James Bond, verði enn einu sinni att út á foraðið. Nýja myndin ber heitið Spectre, sem merkir vofa, en er skamm- stöfun fyrir glæpasamtök sem á ís- lensku mætti kalla Sérsveit um gagnnjósnir, hryðjuverk, hefnd og fjárkúgun (Special Executive for Counter-intelligence, Terrorism, Revenge and Extortion). Á íslensku ætti myndin því að heita SUGHHF og verður það vonandi í uppáhalds- blaði Víkverja. x x x Víkverji er veikur fyrir ótrúverð-ugum hetjum og James Bond er þar engin undantekning, finnst Sean Connery besti Bondinn, en er á því að George Lazenby hafi verið vanmetinn. x x x Bond hefur í áranna rás átt sérmarga keppinauta, sem hafa reyndar verið misáhugaverðir. Einn þeirra er Jerry Cotton, sem varð feikivinsæll í Þýskalandi og sló af einhverjum ástæðum einnig í gegn í Finnlandi. Rúmlega 2500 sögur hafa verið gefnar út um FBI- njósnarann Jerry Cotton og hafa þær selst í 850 milljónum eintaka. Sex myndir voru gerðar um hetjuna og sá Víkverji eina þeirra í Regn- boganum fyrir margt löngu. Jerry Cotton var ekkert ómögulegt og er Víkverja sérlega minnisstætt þegar hetjan stekkur fram af 60 metra hárri brú til að ná varmenni, sem hyggst sigla á brott á snekkju. Lendir hann ekki bara á bátnum, heldur á skyggni úr segldúk, sprett- ur á fætur og slær misindismanninn kaldan. x x x Austur-Þjóðverjar létu ekki sitteftir liggja þegar Bond kom fram á sjónarsviðið. Alexander var tískuljósmyndari á daginn, en í raun njósnari fyrir Stasi. Hann var hetja í sjónvarpsþáttum á áttunda ára- tugnum og í þeim var Stasi ekki hin illræmda öryggislögregla sem hélt heilu samfélagi í greipum ógnar og eftirlits, heldur brjóstvörnin gegn hinu illa veldi kapítalismans. víkverji@mbl.is Víkverji Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hvers konar ný og framandi reynsla gleður þig í dag. Leitaðu leiða til að breyta þessu með hjálp góðra manna. 20. apríl - 20. maí  Naut Stöðurafmagnið sem myndast milli þess sem þú vilt og þess sem þú hefur getur verið algerlega ærandi. Skrifaðu allt niður og búðu þig undir aukna ábyrgð. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki deigan síga heldur hamr- aðu á skoðunum þínum þangað til þær hljóta hljómgrunn. Gakktu því í málin og fáðu þau á hreint. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Aukin ábyrgð á börnum gæti valdið þér hugarangri í dag. Farðu þér samt að engu óðslega. Ekki vera of stoltur til þess að við- urkenna að þú hafir haft rangt fyrir þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarfnast mikillar umhyggju og af henni færðu nóg. Hægðu á þér og teldu upp að tíu áður en þú hefst handa. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú finnur fyrir einsemd og einangrun í dag. Að öðrum kosti færðu á þig leiðindi sem þú losnar ekki við. Það er auðveldara að sætta sig við breytingar ef maður hefur hæfi- leika til að horfa til framtíðar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Taktu fjármálin föstum tökum núna, einkum og sér í lagi ef þú hefur verið kæru- laus að undanförnu. Hlustaðu á innsæi þitt og gefðu þér nægan tíma til að finna bestu lausnina. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að hrista af þér slenið, bretta upp ermarnar og taka þinn þátt í því sem gera þarf. Hvað sem verður, þá þroskastu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú laðar til þín gjafir og greiða þessa dagana. Föt ýmist bæla eða auðvelda sjálfstjáningu. Reyndu að sætta þig við trufl- anir og sýna þolinmæði. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er ekki við aðra að sakast þótt þér finnist dagarnir bragðdaufir. Reyndu að fá meiri útrás í líkamsrækt og leikfimi. Góð tækifæri gefast til að auka færni og þekkingu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það þarf ekki mikið til þess að draga úr þér mátt og þig skortir bæði kraft og ákafa núna. Gamall vinur þarfnast athygli. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú munt hugsanlega hjálpa vinnu- félaga þínum að leysa einhvers konar vanda- mál í dag. Afstaða stjarnanna gerir það að verkum að það er hætt við að þú farir yfir strikið. Davíð Hjálmar Haraldsson skrif-ar að gefnu tilefni „neglan“ í Leirinn: Þeir spurðu eftir hopp og hí um helgina alla: „Því“ (og ennþá í kippnum þar karlar í slippnum) „átt́ún að vera í?“ Hjálmar Freysteinsson velur orð- in „ósjálfbær rekstur – skýrsla“ sem yfirskrift þessarar limru: Sá armi þræll var mér aldrei kær, illa meðferð og skammir fær. Svo ef ég vel að sveltáann í hel verður hann öldungis ósjálfbær. Ólafur Stefánsson er í sólar- löndum og sendi línu í Leirinn þar sem hann segir að það hausti líka þar syðra, – „stöku hósti og hnerri heyrist í morgunsvalanum þar sem menn bíða í forsæluhluta garðsins eftir að snack-barinn sé opnaður og klukkan að ganga ellefu: Heyrist yfir hótelgarðinn hóstakjölt og ræskingar, það mætti vera mælikvarðinn að mál sé að hefja veitingar. Ármann Þorgrímsson yrkir um Stuðmenn: Heimilt er öllum að hafa þá siði sem henta ef vilja þeir athygli ná en allsnakta gamlingja uppi á sviði ekki langar mig held ég að sjá. Eftir heimsókn forsætisráðherra Breta segir Ármann „aftur bjart framundan“: Aftur sækja ætlum feng útrás hafin, kunnug skrefin Bretar okkur bjóða streng bankastríðin fyrirgefin. Gústi Mar bætti við: Styrkist Breta sterlingspund, stoltið fara kringum. Þiggja langan ljósahund, lausn frá Íslendingum. Hallmundur Guðmundsson yrkir á Boðnarmiði og kallar: „Ytra og innra sjálfið“: Á splunkunýjum spariskóm spranga ég um heiminn. Sjái ég laglegt lofnarblóm, lít ég undan feiminn. Gömul vísa í lokin eftir Þorstein tól Gissurarson: Að kveða lof um látinn mann linar í mér kátínu. Lítils met ég þvætting þann þó hann sé á látínu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Negluna og sjálfbæran rekstur ber á góma Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MÉR ER SAMA ÞÓ AÐ BIÐIN SÉ LÖNG HÉRNA; MATURINN ER HRÆÐILEGUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að brynna músum þegar hann fer í burtu. ÍSKUR! ÍSKUR! ÍSKUR! ÍSKUR! SIR RIDDARI! VIÐ HÖFUM EKKI SÉÐ ÞIG Í ALDIR! KOMDU OG LÆÐSTU MEÐ OKKUR UPP AÐ ÓVINA- KASTALA! ÞAÐ ERU ERFIÐIR TÍMAR MJÖG ERFIÐIR… VIÐ EIGUM LÍTIÐ EFTIR AF MAÍSSNAKKI ÞAÐ ER RÉTT… HANN GÆTI ÞAÐ! ÉG HEF VERIÐ SVO LENGI FRÁ AÐ ÉG GÆTI STEFNT VERK- EFNINU Í VOÐA! SÁLARRANNSÓKNASTOFA KJAFTA- SKJÓÐUR KJAFT- ASKAR Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum heldur í verki og sannleika. (1. Jóh. 3.18) HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 VERSLAÐU Á WWW.GÁP.IS KEYPTUREEBOKNANO 5.0SKÓ -OGÞÚFÆRÐ50%A FSLÁTTAFEINNIFLÍK MEÐ! NANO5.0

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.