Morgunblaðið - 04.11.2015, Qupperneq 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015
Sjötta píanókeppni Íslandsdeildar
EPTA (Evrópusambands píanó-
kennara) hefst í Salnum, tónlistar-
húsi Kópavogs, í dag og stendur til 8.
nóvember. EPTA keppnin er ein
mikilvægasta og best þekkta keppn-
in á Íslandi í flutningi klassískrar
tónlistar, segir í tilkynningu. Vík-
ingur Heiðar Ólafsson píanóleikari
vann fyrstu keppni EPTA árið 2000
og hefur hún verið haldin á þriggja
ára fresti eftir það. Keppnin er ætl-
uð píanónemendum 25 ára og yngri
og er henni skipt upp í fjóra flokka;
10 ára og yngri, 14 ára og yngri, 18
ára og yngri og 25 ára og yngri.
Í dómnefnd eru fjórir íslenskir pí-
anóleikarar og einn erlendur sem er
jafnframt formaður hennar og að
þessu sinni er það Stefan Bojsten,
einn af kunnustu píanistum Svíþjóð-
ar sem unnið hefur til fjölda verð-
launa í alþjóðlegum píanó- og kamm-
ermúsíkkeppnum. Hann hefur
komið fram sem einleikari með flest-
um hljómsveitum Svíþjóðar og hald-
ið tónleika á Norðurlöndum, í Evr-
ópu, Asíu og Norður-Ameríku.
Bojsten er prófessor við Konung-
legu tónlistarakademíuna í Stokk-
hólmi. Aðrir dómarar keppninnar
2015 eru Halldór Haraldsson, Edda
Erlendsdóttir, Kristinn Örn Krist-
insson og Valgerður Andrésdóttir.
Nytt verk eftir Önnu
Verðlaunatónskáldið Anna Þor-
valdsdóttir hefur samið nýtt verk
fyrir píanókeppni EPTA. Íslenskt
tónskáld hefur ávallt verið fengið til
að semja verk fyrir hverja keppni og
fyrri tónskáld sem hafa gert það eru
Þorkell Sigurbjörnsson, Haukur
Tómasson, Snorri Sigfús Birgisson,
Tryggvi M. Baldvinsson og Daníel
Bjarnason. „Með þessum hætti
skapar píanókeppni EPTA aukinn
starfsvettvang fyrir tónskáld á Ís-
landi og jafnframt byggist upp bóka-
safn íslenskra píanóverka fyrir
framtíðina,“ segir í tilkynningu.
Dagskrá hátíðarinnar má finna á
epta.is/dagskra og er aðgangur að
henni ókeypis fyrir nemendur en
aðrir greiða 1.000 kr.
Píanókeppni EPTA
haldin í Salnum
Morgunblaðið/Kristinn
Tónskáld Anna Þorvaldsdóttir
samdi verk fyrir píanókeppnina.
Dánardagur tónskáldsins Gabriel
Fauré er í dag, 4. nóvember, og
af því tilefni mun Kór Neskirkju
flytja í kirkjunni Requiem og
Cantique de Jean Racine, Op. 11
eftir tónskáldið. Einnig verða
flutt verkin Pie Jesu eftir L.
Niedermeyer og Calme des nuits
eftir C. Saint-Saëns. Flytjendur á
tónleikunum eru auk kórsins þau
Hallveig Rúnarsdóttir sópran,
Fjölnir Ólafsson barítón og á org-
el leikur Björn Steinar Sólbergs-
son. Stjórnandi er Steingrímur
Þórhallsson.
Fauré samdi Requiem á ár-
unum 1887 til 1890. Sálumessa
Fauré er með þekktustu verkum
hans og hefur notið ómældra vin-
sælda frá því hún var frumflutt
árið 1888. Sjálfur sagði Fauré
sálumessu sína einkennast frá
upphafi til enda af trú á eilífa
hvíld í dauðanum og ýmsir sam-
tímamenn hans höfðu orð á því að
í sálumessu hans væri ekki að
finna ótta við dauðann og sumir
kölluðu hana vögguvísu um dauð-
ann, eins og segir í tilkynningu.
Gabriel Fauré lést 4. nóvember
1924 og var sálumessan flutt við
útför hans.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
og er aðgangseyrir kr. 2.500.
Sálumessa Kór Neskirkju flytur Requiem eftir Fauré á dánardegi hans.
Sálumessa Fauré flutt af Kór Neskirkju
Elvý G. Hreinsdóttir söngkona og
Eyþór Ingi Jónsson organisti hafa á
undanförnum tveimur árum haldið
á annan tug tónleika á NA-landi og
í kvöld kl. 20.30 halda þau tónleika
á Græna hattinum á Akureyri með
hljóðfæraleikurum úr heimabyggð
sinni sem þau kalla strákana.
Strákarnir eru Kristján Edelstein
gítarleikari, Stefán Gunnarsson
bassaleikari, Valmar Väljaots,
fiðlu- og harmonikkuleikari og Val-
garður Óli Ómarsson slagverksleik-
ari. Auk þeirra spilar „litli strák-
urinn“, Birkir Blær Óðinsson
gítarleikari, í nokkrum lögum.
Birkir er 15 ára og mun hefja tón-
leikana með því að syngja uppá-
haldslög sín og spila á gítar og lo-
op-tæki. Á efnisskránni verða lög
úr öllum áttum, m.a. kraftmikil
þjóðlagatónlist, popptónlist frá
Portúgal og Hollandi, kántrítónlist,
íslenskur blús og djass, sænsk dixi-
eland-tónlist og lög eftir Tom
Waits.
Elvý, Eyþór og strákarnir
Ljósmynd/Eyþór Ingi Jónsson
Hjón Elvý og Eyþór eru músíkalskt par.
Everest 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00
Smárabíó 16.50
Borgarbíó Akureyri 20.00
Legend 16
Metacritic 59/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
The Last Witch
Hunter 12
Vin Diesel fer með hlutverk
Kaulder, aldagamals víga-
manns sem drap norna-
drottninguna á miðöldum.
Metacritic 36/100
IMDB 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 22.40
Sambíóin Akureyri 22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
Pan
Munaðarleysingi ferðast til
Hvergilands og uppgötvar ör-
lög sín, að verða hetjan Pétur
Pan. Bönnuð yngri en 7 ára.
Metacritic 36/100
IMDb 6,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 17.30
Sambíóin Akureyri 17.30
Klovn Forever 14
Casper flytur frá Danmörku
til Los Angeles til að eltast
við frekari frægð og frama.
Frank er ákveðinn í að vinna
vináttu hans á ný og eltir
hann til LA, en það hlýtur að
enda með ósköpum.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Smárabíó 20.00, 22.50
Háskólabíó 17.30, 20.00,
22.20
Borgarbíó Akureyri 22.10
Crimson Peak 16
Metacritic 69/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 22.30
Sambíóin Egilshöll 22.40
The Martian 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 74/100
IMDB 8,6/10
Smárabíó 17.00, 20.00,
22.15
Black Mass 16
Metacritic 68/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Kringlunni 22.30
Sicario 16
Metacritic 83/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 22.00
The Intern Metacritic 50/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Kringlunni 20.00
Dheepan 12
Fyrrverandi hermaður úr
borgarastríðinu á Srí Lanka
reynir að finna sér samastað
í Frakklandi.
Metacritic 78/100
IMDB 7,1/10
Háskólabíó 20.00, 22.30
Þrestir 12
Háskólabíó 20.00, 22.20
Borgarbíó Akureyri 18.00
The Walk
Saga línudansarans Philippe
Petit, sem gekk á milli Tví-
buraturnanna.
Metacritic 70/100
IMDB 8,0/10
Smárabíó 17.20, 22.25
Tannhäuser
Sambíóin Kringlunni 18.00
Hotel
Transylvania 2 IMDB 7,7/10
Smárabíó 17.55
Borgarbíó Akureyri 18.00
Hvað er svona
merkilegt við það? Ný heimildarmynd sem
fjallar um hin róttæku
kvennaframboð sem birtust
á níunda áratug síðustu
aldar auk þess að koma við í
nútímanum.
Sambíóin Kringlunni 18.00
Bíó Paradís 20.00
Glænýja testamentið
Guð er andstyggilegur skít-
hæll frá Brussel, en dóttir
hans er staðráðin í að koma
hlutunum í lag. Myndin er
ekki við hæfi yngri en 9 ára.
Bíó Paradís 20.00
Stúlkurnar á
Kleppjárnsreykjum
Á stríðsárunum fór allt á
annan endann í íslensku
samfélagi vegna samskipta
kvenna við setuliðið.
Bíó Paradís 18.00
Fúsi
Bíó Paradís 20.00
Pawn Sacrifice 12
Metacritic 66/100
IMDb 7,5/10
Bíó Paradís 22.15
Hrútar
Bíó Paradís 22.00
Ice and the Sky
Bíó Paradís 18.00
Love 3D
Bíó Paradís 22.15
Bönnuð innan 18 ára
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Þrír skátar, á lokakvöldi útilegunnar,
uppgötva gildi sannrar vináttu þegar
þeir reyna að bjarga bænum sínum frá
uppvakningafaraldri.
IMDb 5,9/10
Laugarásbíó 20.00
Sambíóin Álfabakka 17.50, 17.50, 20.00, 20.00, 22.10,
22.10
Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.10
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.10
Scouts Guide to the Zombie
Apocalypse 16
Kokkurinn Adam Jones er einn af villingum Parísarborgar og skeytir
ekki um neitt nema
spennuna við að skapa
nýjar bragðsprengjur.
Metacritic 38/100
IMDb 6,9/10
Smárabíó 17.00, 20.00,
22.15, 22.40
Háskólabíó 17.30, 22.20
Borgarbíó Akureyri
20.00, 22.10
Burnt 12
Smábæjarstúlkan Jerrica
Jem Benton stofnar hljóm-
sveit með systur sinni og
tveimur vinkonum og fljót-
lega verða þær umkringd-
ar aðdáendum.
Metacritic 44/100
IMDb 3,2/10
Laugarásbíó 17.30
Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Jem and the Holograms