Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 308. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Sögðu dæmið vera allt of erfitt
2. Lygin á samfélagsmiðlum
3. Fyrir neðan allar hellur
4. Torkennileg hljóð á upptöku …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Margrét Guðnadóttir textíllista-
kona og Ólöf Erla Bjarnadóttir kera-
miker voru í lok sumars tilnefndar til
verðlauna sem nefnast Prix Europeen
des Arts Appliques í Belgíu, evr-
ópskra verðlauna fyrir listhandverk,
og voru verk þeirra valin úr 400 inn-
sendum. 78 voru tilnefnd til verð-
launanna, þrjú hlutu verðlaun og eru
öll verkin nú á sýningunni European
Summit of Applied Arts sem hófst
24. okt. og lýkur 16. janúar á næsta
ári. Sýningin er í Mons í Belgíu sem
er menningarborg Evrópu 2015.
Voru tilnefndar til
evrópskra verðlauna
Ljóðabók Bubba
Morthens,
Öskraðu gat á
myrkrið, sem kom
út fyrir rúmum
mánuði, hefur
verið send í
endurprentun og
er því fyrsta
endurprentun
jólavertíðarinnar, að því er fram kem-
ur í pósti frá útgefanda hennar, For-
laginu. Öskraðu gat á myrkrið er
fyrsta ljóðabók Bubba og inniheldur
33 óbundin ljóð.
Bókin hefur hlotið jákvæðar við-
tökur gagnrýnenda það sem af er og
þá m.a. gagnrýnanda Morgunblaðs-
ins sem gaf henni fjórar stjörnur í
einkunn og sagði m.a. að tjöldin væru
dregin frá því ógnvekjandi sviði sem
heimur fíknarinnar væri. Bókin væri
dimm og full af ógn en þó grillti í ljós
á veikum kveik í lokin.
Fyrsta endurprentun
jólavertíðarinnar
Á miðvikudag Suðlæg átt, 3-8 m/s og dálitlar skúrir eða él, en
þurrt og bjart norðaustan- og austanlands.
Á fimmtudag austan og suðaustan 8-15 m/s. Talsverð rigning
sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðaustantil. Hlýnar.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-10 og skúrir eða él, en áfram
þurrt norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐUR
„Ég nýt þess að búa í frá-
bærri borg auk þess sem ég
æfi vel til þess að halda mér
í leikformi. Annað get ég
ekki gert eins og mál
standa,“ segir Róbert Gunn-
arsson, landsliðsmaður í
handknattleik og leikmaður
franska stórliðsins PSG, en
hann hefur meira og minna
verið úti í kuldanum hjá
Noka Serdarusic, þjálfara
liðsins, það sem af er
keppnistímabilinu. »4
Nýtur borgarinnar
og æfir vel
Eiður Smári Guðjohnsen kveðst vera
ánægður með gang mála síðustu tvo
mánuðina með kínverska liðinu Shiji-
azhuang Ever Bright. „Það ætti að
skýrast fljótlega hvort það verður
áframhald á samstarfi okkar eða
ekki,“ segir Eiður sem
veit ekki hvort hann
er í plönum lands-
liðsþjálfaranna
fyrir vináttu-
landsleikina
gegn Pól-
landi og
Slóvakíu.
»1
Skýrist fljótlega hvort
Eiður verður kyrr í Kína
Real Madrid og Manchester City urðu
í gærkvöld fyrstu liðin til að tryggja
sér sæti í 16 liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í knattspyrnu. Man-
chester United kom sér á topp síns
riðils með 1:0-sigri á CSKA Moskvu,
þar sem Wayne Rooney skoraði eftir
rúmlega 400 mínútna bið United frá
síðasta marki. Kári Árnason átti erf-
itt kvöld í Úkraínu. »3
Rooney og Man. Utd
brutu loksins ísinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kristín G. Magnús leikkona er að
taka saman starfsyfirlit yfir undan-
farna fimm áratugi og ætlar að vera
með sérstaka sýningu í Iðnó þriðju-
daginn 29. desember næstkomandi.
„Ég ætla að stikla á stóru úr því sem
ég hef gert síðustu 50 árin, þó að ég
hafi reyndar stigið fyrst á svið í
Þjóðleikhúsinu fyrir 62 árum,“ segir
hún.
Ferðaleikhúsið og kvöldvökurnar,
sem bera samheitið Light Nights,
hafa verið stór hluti af leiklistarlífi
Kristínar, en spanna þó ekki allan
ferilinn. „Sumir halda að ég hafi
ekki gert neitt annað en það er mis-
skilningur,“ segir hún og vísar til
þess að hún hafi meðal annars skrif-
að og leikstýrt barnasýningu í West
End í London, lengi unnið í Þjóð-
leikhúsinu og farið með leikhóp um
landið og sýnt 40 leiksýningar á 40
dögum, m.a. með Róberti Arnfinns-
syni og Baldvini Halldórssyni.
„Ég hef verið með ýmsar uppá-
komur í gegnum tíðina,“ áréttar hún
og segir að alltaf hafi verið fullt á
fyrrnefnt barnaleikrit. „Eftir síð-
ustu sýninguna í London spurði
barn hvenær ég kæmi aftur og segir
það allt um móttökurnar.“
Hún segir að sýningunum úti á
landi hafi líka verið vel tekið. Þá hafi
fólk spurt hvort um gamanmál væri
að ræða og þegar hún hafi játað því
hafi næsta spurning verið hvort boð-
ið yrði upp á ball á eftir. „Sumar-
gleðin var á sama tíma og þá var ball
á eftir og þannig vildi fólk hafa það.“
Góðgerðarsýning
Sýningin í Iðnó verður á tjaldi
samfara leikbrotum. Kristín hefur
fengið fyrirtækið Bergvík til þess að
setja saman myndskeið úr ýmsu
sem á daga hennar hefur drifið, allt
frá því hún fór út í að verða ball-
ettdansari og leikkona. „Það var
bara tilviljun,“ rifjar hún upp. „Þeg-
ar ég var 15 ára bað vinkona mín
mig um að koma með sér í ball-
etttíma. „Ég hef aldrei farið áður og
er feimin við að fara ein,“ sagði hún.
„Allt í lagi,“ svaraði ég. „Ég skal
fara með þér í einn tíma en bara í
einn tíma.“ En hæfileikarnir leyndu
sér ekki og áður en ég vissi af var ég
farin í ballettnám í London og þaðan
lá leiðin í Royal Academy of Drama-
tic Art enda vildi ég alltaf verða leik-
kona. Ég ætlaði aldrei að verða ball-
erína.“
Í vor var Kristín með góðgerðar-
sýningu í Boston til styrktar Vildar-
börnum Icelandair og yfirlitssýn-
ingin nú verður til styrktar Mæðra-
styrksnefnd. „Ég vil láta gott af mér
leiða,“ segir hún og bætir við að
listamennirnir, sem koma fram á
sýningunni, geri það án endurgjalds.
„Ég slæ því tvær flugur í einu höggi,
held upp á 50 ára leikafmæli og
styrki gott málefni í leiðinni.
Kannski ég kalli sýninguna Hring-
ferðina.“
Hringferð með Kristínu
Leikkonan set-
ur upp góðgerðar-
sýningu í Iðnó
Morgunblaðið/RAX
Sviðsmynd Kristín G. Magnús leikkona undirbýr sýninguna og hefur frá mörgu að segja í stofunni heima.
Djákninn á Myrká Kristín á sýningu í Bandaríkjunum 1978.