Víkurfréttir - 15.01.1987, Page 2
VÍKUR-fréttir
2 Fimmtudagur 15. janúar 1987
yfimn
Útgefandi: Vikur-fréttir hf.
Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar:
Vallargötu 14, II. hæð - Simi 4717 - Box 125 - 230 Keflavík
Ritstjórar:
Emil Páll Jónsson
heimasimi 2677
Páll Ketilsson,
heimasimi 3707
Fréttastjóri:
Emil Páll Jónsson
Auglýsingastjóri:
Páll Ketilsson
Upplag: 4800 eintök, sem dreift er ókeypis
um öll Suðurnes hvern fimmtudag.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað
er óheimilt nema heimildar sé getið.
Setning, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF . Keflavik
/
Fasteignaþjónusta
Suðurnesja
Sími 3722
Suðurtún 5, Keflavik:
2x89 m2 eldra einbýlishús.
Efri hæð: 4 svefnherb. og
bað. Neðri hæð: stofa, borð-
stofa, hol, eldhús, vaskahús,
WC, forstofa, geymsla. Ný
teppi, dúkar, neysluvatn og
skolplagnir. Frábær staður.
Laust fljótlega . 4.100.000
Hátún 25, Keflavík:
Parhús ca. 164 m2 á tveimur
hæðum ásamt 80 m2 bílskúr.
3.500.000
Vesturbraut 3, Keflavík:
Eldra einbýlishús, ca. 160
m2, mikiöendurnýjað ásamt
bílskúr.
■ Hringbraut 52, n.h., stór,
ca. 130 m2..... 2.300.000
Kirkjuvegur 46, Keflavik:
Eldra einbýlishús, allt end-
urnýjað 1981 ... 2.050.000
Skipti á ódýrara, t.d. i Garði
eða Sandgerði.
■ Verslunar- eða iðnaðar-
húsnæði, rúml. 200 ferm.,
við Tjarnargötu .. Tilboð
■ Hringbraut 44, ca. 60 m2
studioíbúð á neðri hæð.
1.400.000
■ Hringbraut 83, efri hæð,
snyrtiieg íbúð ásamt bíl-
skúr. Laus fljótlega.
1.800.000
■ Mikið úrval 2ja og 3ja
herb. fokheldra og lengra
kominna ibúða, t.d. viö
Heiöarholt, Heiöarhvamm,
Hólmgarð, Heiöarból og
Hjallaveg.
INNRI-NJARÐVÍK:
5 herb. 130 ferm. hæö í þrí-
býlishúsi. Toppíbúð. Glæsi-
legt útsýni .. 1.950.00
■ Njarðvíkurbraut 26, full-
frágengið einbýlishús
ásamt bílskúr. Góð eign.
Skipti möguleg á íbúð í
Keflavík/Njarðvík.
3.400.000
FASTEIGNAÞJÓNUSTA
SUÐURNESJA
Hafnargötu 31 - Keflavt'k - Sími 3722
Elías Guðmundsson, sölustjóri
Ásþjörn Jónsson, lögfraeðingur
Skattframtöl
Annast gerð skattframtala fyrir einstakl-
inga.
JÓN G. BRIEM hdl.,
Hafnargötu 35 - Keflavík - Sími 3566
Banaslysið við Kúagerði:
5-7 cm brún hafði
myndast við steypuna
Klukkan tólf mínútur
yfir átta síðasta föstudags-
morgunn varð all harður
árekstur fimm bifreiða á
Reykjanesbraut í Kúagerði.
Voru sjö fluttir á sjúkrahús
og þar lést einn þeirra.
Slys þetta gerðist með
þeim hætti að ökumaður
bifreiðar sem var á suður-
leið missti bifreið sína út af
steypunni og út á öxlina,
sem er meðfram veginum.
Vegna hlákunnar undan-
farið hafði myndast 5-7 cm
brún milli steypunnar og
axlarinnar, sem var mjög
gljúp þarna. Virðist öku-
maðurinn þá hafa sveigt
snöggt inn á veginn aftur og
misst bifreiðina þar með
yfir á hina akreinina og á
bifreið sem kom á móti.
Við þetta féll farþegi úr
aftursæti bifreiðarinnar
sem var á suðurleið út úr
henni og bifreið sem var á
eftir þeirri, lenti á konunni
og síðan á tveimur bifreið-
um öðrum, sem voru að
koma að sunnan.
Lést konan sem féll úr
bifreiðinni skömmu eftir að
hún kom í sjúkrahús. Hún
var úr Reykjavík, fædd
1940. Farþegar í framsæt-
um og ökumenn allra bif-
reiðanna voru í öryggisbelt-
um og sluppu án meiðsla,
nema hvað þau hlutu mar
eftir öryggisbeltin. Mikil
hálka og þoka var á slys-
stað.
Voru kallaðir til tveir
sjúkrabílar úr Hafnarfirði
og einn úr Keflavík á slys-
stað, en þegar Keflavíkur-
bíllinn kom á vettvang
höfðu hinir slösuðu verið
fluttir burt. Réði þar mestu
um að í Hafnarfirði eru
sjúkraflutningamenn til-
búnir á vakt á slökkvistöð-
inni, en slíkt er ekki í
Keflavík. Þá var Reykja-
nesbrautin verri yfirferðar
að sunnanverðu en fyrir
innan Kúagerði sökum
hálkunnar og hinnar miklu
þoku sem huldi Reykjanes-
brautina á Vogastapa.
A.m.k. fjórar bifreið-
anna senr lentu í árekstrin-
um eru ónýtar.
Utsöluslagurinn hafinn
Jánúarútsölur hófust í
mörgum verslunum í byrj-
un síðustu viku. Verslun-
in Póseidon í Keflavík
reið á vaðið og byrjaði
með sína útsölu á mánu-
dag. Mikil örtröð mynd-
aðist í versluninni fyrstu
dagana og þurfti að
hleypa inn í hollum. Tals-
verð traffík var einnig í
fleiri verslunum og má
búast við henni enn meiri
þegar nýtt kortatímabil
hefst núna 18, jan.
Ljósm.: pket.
Eru vegaframkvæmdir útá
Reykjanes komnar í salt?
Að undanförnu hafa
margir sveitarstjórnar-
menn á Suðurnesjum og
ýmsir íbúar Suðurnesja gert
sér vonir um að vegakerfið
út á Reykjanes verði endur-
bætt. Einnigaðlagðurverði
vegur er tengi saman byggð-
ir á Suðurlandi við núver-
andi þjóðveg til Grinda-
víkur.
Með fyrrnefnda veginum
og þá sérstaklega Grinda-
víkur megin, opnast frek-
ari möguleikar varðandi
nýtingu orkuauðlinda á
Reykjanesi, auk þess sem
hægt væri að skapa betri
grundvöll fyrir að í Grinda-
vík yrði þjónusta, s.s. vist-
arverur fyrir starfsmenn á
Reykjanesi. Enda Grinda-
vík einna best setta svæðið
til að útvega mannafla í at-
hafnasemi þar út frá.
Með vegi með ströndinni
væri hægt að tengja betur
sjávarplássin á Suðurlandi
og þau hér á Suðurnesjum,
svo og Sjóefnavinnsluna á
Reykjanesi, auk þess að
koma á beinu sambandi
milli bænda austan fjalls og
Reykjanessvæðisins.
Einn þeirra manna sem
hvað ötlast hefur unnið að
þessum málum er Jón
Gunnar Stefánsson, bæjar-
stjóri í Grindavík, og því
þótti Víkur-fréttum rétt að
spyrja hann hvernig gengi
að fá „kerfið" með sér í
þessu máli.
„Að því er mér er sagt,
eru litlar líkur fyrir því að
það verði af þessum fram-
kvæmdum á næstunni“
sagði Jón Gunnar. „En
engu að síður verður að
taka alvarlega á þessum
málum hið fyrsta, bæði
vegna orkuauðlindanna á
Reykjanesi og þá ekki síður
til að tengja vegakerfið hér
með ströndinni væntanlegri
brú yfir Ölfusá, sem tengja
mun Eyrarbakka og Stokks-
eyri við Þorlákshöfn".