Víkurfréttir - 15.01.1987, Side 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 15. janúar 1987 15
TRÉ-X byggingavörur
löavöllum 7 Keflcivík Sími 4700
Grindavík:
Tæpl. 70 þús. tonna
afli á síðasta ári
Frá Grindavíkurhöfn.
Ljósm.: gv.
ELDHÚS-
og BAÐ-inn-
réttingar
að yðar óskum.
FATASKÁPAR
í mörgum stærðum.
PARKET
og gólfefni
18 tegundir
INNIHURÐIR
Aldrei meira úrval
Það nýjasta er
hvítmólaðar hurðir
HURÐARHÚNAR
Mikið úrval
ALLT
sem þú þarft í
LOFTIÐ
Einangrun, listar,
lim, naglar.
22
tegundir af
loftaplötum.
Við erum sveigjanlegir
í samningum.
Allt að 11 mánaða
greiðslukjör.
IEURC
KRISDIT
BAÐÁHÖLD og
skápahöldur
fyrir vandláta
Á síðasta ári var alls
landað 69.900 lestum af
fiski í Grindavík í 4.364
löndunum. Skiptist afli
þessi með eftirfarandi
hætti:
Bolfiskur 23.519 tonn,
humar 122 tonn, síld 8.600
tonn, loðna 34.348 tonn,
rækja flutt út í gámum
2.116 tonn og annað 295
tonn. Utskipanir um
Grindavíkurhöfn námu
20.416 tonnum oguppskip-
anir 3.023 tonnum (að
meirihluta salt). Alls komu
48 flutningaskip til Grinda-
víkur á síðasta ári. gv.
Að sigrast á sorg
Þann 21. jan. n.k. hefst
þriðja námskeiðið um að
„sigrast á sorg“ sinni. Leið-
beinandi, nú sem fyrr, er
Þröstur Steinþórsson.
Námskeiðið hefur að
markmiði að styðja fólk
sem hefur misst aðstand-
endur eða ástvini. Þröstur
fjallar um áhrif sorgar á
daglegt líf syrgjenda og
hvernig hún dregur úr
virkni og vellíðan. Einnig
leiðbeinir hann hvernig
megi sigrast á sorg sinni án
þess að minning hins látna
gleymist.
Við viljum hvetja alla
sem eiga um sárt að binda
að sækja námskeið þetta.
Sólveig Þórðardóttir
ljósmóðir/hjúkrunarkona
Konráð Lúðvíksson,
kvensjúkdómalæknir
Vandaðar vörur
=-~ fyrir fágaðan smekk.
Viljir þú vin gleðja, þá veldu
honum eitthvað sérstakt.
Hef til sölu úrval málverka
og grafíkmynda eftir þjóð-
kunna listamenn.
Dinnrömmun
SUÐURNESJA
Vatnsnesvegi 12 — Keflavík. Sími 3598.
HILLUEFNI
Plasthúðað og spónlagt
HILLUBERAR
Hvar sem er
Slökkvilið Miðneshrepps:
19 útköll vegna
elds á síðasta ári
Slökkvilið Miðneshrepps
var kallað út alls 19 sinnum
á síðasta ári vegna elds.
Fjórum sinnum var það
vegna húsa, tvisvar í bát-
um, fjórum sinnum í bílum,
þar af einu í bílflaki af rútu,
og 9 sinnum vegna sinu-
bruna. Þá var liðið kallað úr
fjórum sinnum til að dæla
sjó úr bátum og voru þrír
þeirra komnir að því að
sökkva er hjálp liðsins
barst, að sögn Egils Olafs-
sonar, slökkviliðsstjóra.
Þá var liðið kallað út 14
sinnum til æfinga og eins
var það kallað út vegna
Brunavarnaátaks ’86. Þá
var það á vakt níu helgar í
sumar og eins voru ökutæki
liðsins yfirfarin 48 helgar á
síðasta ári. Mestu bruna-
tjónin á síðasta ári urðu að
Hólagötu 17 og í m.b.
Barðanum í Sandgerðis-
höfn, í öðrum tilfellum var
tjónið lítils háttar.
Eldvarnaeftirlitið í Sand-
gerði heimsótti öllfyrirtæk-
in á staðnum á síðasta ári
svo og íþróttahúsið, dag-
heimilið og skólann.
Að sögn Egils fram-
kvæmdu slökkviliðsmenn
miklar endurbætur á
slökkvistöðinni. „Eg veit
ekki hvar ég væri er ég hefði
ekki lið sem skipað er svona
jákvæðum og duglegum
mönnum eins og hér eru.
Því þó hreppsnefndin sé já-
kvæð er það ekkert á við
góðan mannskap eins ogég
hef á að skipa; mannskap,
sem er einnig mjög snöggur
að mæta, svo snöggur að
margir eiga erfitt með að
trúa því“, sagði Egill að
lokum.
Hárgreiðslusveinn
Óskum eftir að ráða hárgreiðslusvein í 1/2
eða heils dags starf. Þarf að geta hafið störf
í mars-apríl.
£Laúan5
Sími 4848 XVa,nsnes,or9i