Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 12.06.1987, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 12.06.1987, Blaðsíða 7
Vflttlft 4utU* Föstudagur 12. júní 1987 Ljósm.: bb. Þátttakendur í fyrstu ferð sumarsins. Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum: Fjölbreytt starfsemi Vetrarstarfi Styrktarfélags aldraðra á Suðurnesjum lauk með leikhúsferð 13. maí. Vetrardagskrá var með hefð- bundnum hætti og aðsókn var mjög góð; eldri borgarar kunna vel að meta það sem upp á er boðið. Allir 67 ára og eldri eru velkomnir, hvort sem þeir eru á hinum al- menna vinnumarkaði eða hættir störfum og viljum við í því sambandi sérstaklega benda á þá starfsemi sem fram fór í Fjölbrautaskólan- um síðastliðinn vetur, tré- smíði og málmsmíði, þar sem hægt var að smíða ýmsa hluti undir leiðsögn kennara skól- ans. Sumarstarf félagsins bygg- ist aðallega á ferðalögum innanlands og utan. Fyrsta ferðin var farin 4. þessa mán- aðar að Flúðum. Þar var dvalið i átta daga og þátttak- endur 34 og 2 fararstjórar, Anna Ingólfsdóttir og Gerða Hammer. Næsta ferð verður 9. júní, ekið um Snæfellsnes og gist í Laugagerðisskóla. Ferðanefnd mun auglýsa þessa ferð síðar. 23. ágúst verður farið að Hvolsvelli og dvalið í sex daga á Hótel Hvolsvelli. Þátttakendur verða um 30 og fararstjórar þau Soffía Magnúsdóttir og Helgi Kristjánsson. * Hinn 1. september verður farið til Búlgaríu í 3ja vikna ferð. I þeirri ferð verða farar- stjórar Margrét Friðriks- dóttir og Lórý Erlingsdóttir. Sundnámskeið fyrir aldraða hefst í Sundhöll Keflavíkur 1. júlí. Kennt verður alla virka daga kl. 11:30. Námskeiðið er 20 tím- ar. Fólki er bent á að láta innrita sig í síma 1709 og 4322 eða í Sundhöllinni,sími 1145. Námskeiðið er ókeypis og þökkum við fyrir það. Við minnum á að sundtími er fyrir aldraða á laugardögum kl. 9:45 og hvetjum við fólk til að notfæra sér þann tíma. I Grindavík stendur yfir sundnámskeið fyrir aldraða. Kennt er mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 8:30. Það er einnig ókeypis. Okkur hefur borist til eyrna að þar sé mikið fjör og kátína. I Grindavík verðurhanda- vinnusýning á munum, unn- um af öldruðum, 17. júní í Grunnskólanum. D-álma Styrktarfélag aldraðra er aðili að D-álmu samtökun- um og tekur þátt í þeirri fjár- öflun sem þar fer fram. Auk þess selur félagið minningarkort og fara þeir peningar í sérstakan sjóð sem á að renna til langlegudeildar við Sjúkrahús Keflavíkur- læknishéraðs. Við bendum á að minningarkortin fást víða í verslunum og í heimahús- um hjá starfsfólki Styrktar- félagsins. Að lokum sendum við þakklæti til þeirra fjölmörgu sem veitt hafa félaginu stuðning með fjárframlögum og annarri aðstoð á liðnum árum og biðjum þeim vel- farnaðar. Soffía Magnúsdóttir Býður upp á skemmti- siglingu Guðmundur Jónsson, Melteig 20, Keflavík, hefur sett á stofn einkafyrirtæki undir nafninu Sjávarferðir. Er tilgangur þess rekstur skips til skemmtisiglinga og sjóstangaveiða. Hefur hann keypt 30 tonna bát til þess- ara nota og er verið að breyta honum erlendis. Orlof húsmæðra í næsta mánuði Eins og undanfarin ár verður húsmæðraorlof Suð- urnesja starfrækt að Laugar- vatni í sumar. Verður það vikuna 13. til 19. júlí. Allar húsmæður á Suður- nesjum hafa rétt til að sækja um orlofsdvöl þessa viku, en auk dvalar á Laugarvatni geta þær fengið leigt orlofs- heimilið í Gufudal. Upplýsingar um málið veita orlofsnefndarkonur í hverju byggðarlagi fyrir sig. En nöfn þeirra birtast í aug- lýsingu í blaðinu. Þú færð það sem þig van.tar fyrir sjómannadag og sautjándann í Öldunni. Sumarfatnaður á alla fjölskylduna góðu verði N' . O X)V0' Ódýrir jogginggallar ^I -!__1-í -- UltV ^ • * • Strigaskór ^ • Bolir í miklu úrvali • Buxur á dömur og herra • og margt, margt fleira. Munið að við höfum opið alla daga til kl. 23.30. sVOs m v%áV'&aí Sandgerði - Sími 7415 - Þar verslar þú þegar þér hentar.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.