Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 17.09.1987, Qupperneq 7

Víkurfréttir - 17.09.1987, Qupperneq 7
\>iKun julUi Fimmtudagur 17. september 1987 7 Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs: Deilt um stöðu deildar- stjóra fæðingadeildar Á fundi aðalstjórnar Sjúkrahúss Keflavíkurlækn- ishéraðs og Heilsugæslu- stöðvar Suðurnesja 19. ágúst s.l. var tekið fyrir bréf frá Sól- veigu Þórðardóttur frá 4. ág- úst 1987, þar sem hún óskar eftir að draga uppsögn sína til baka. En uppsögnin var tekin til greina á fundi stjórnarinn- ar 3. júlí. Við umræðu um málið kom fram eftirfarandi tillaga frá Karli Guðmundssyni, fram- kvæmdastjóra: „Sljórn S,K. hefur ákveðið að minnka starf deildarstjóra á fœðingargangi í 50% stöðu, þar sem stœrð deildarinnar gefur ekki tilefni til 100% stöðu deildarstjóra." Samþykkti stjórnin að gefa Sólveigu kost á 50% starfi deildarstjóra á deildarstjóra- launum, auk 50% stöðu ljós- móður á sömu kjörum ogaðr- ar ljósmæður á S.K. hafa. Var tillaga þessi samþykkt með 2 atkvæðum gegn einu, tveif sátu hjá og gerðu eftirfarand'i bókun: y „ Við fulltrúar starfsfó/ks teljum ekki tímabœrt að breyta neinu varðandi stöðuhlutfall deildarstjóra á fœðingardeikl Við fögnum því að hún komi aftur til starfa og sitjum þvíhjá við afgreiðslu málsins. Guðrún Guðbjarnardóttir, Páll Þorgeirsson.“ Málið var aftur tekið til umræðu á fundi stjórnarinnar 28. ágúst og þá var eftirfar- andi tillaga samþykkt sam- hljóða: ,,Að beiðni yfirlæknis fæð- ingardeildar samþykkir stjórn S.K. að deildarstjóri fæðingar- deildar gegni óbreyttri stöðu út septembermánuð, enda verði tryggt með því að rekstur fæðingardeildar gangi snurðu- laust út þann mánuð. Jafn- framt afturkallar stjórnin samþykkt síðasta fundar." Þessir sex krakkar stóðu nýlega fyrir nýstárlegri söfnun til handa Þroskahjálp á Suðurnesjum. Höfðu þau flöskusöfnun og keyptu fyrir það sælgæti til endursölu, auk þess héldu þau hlutaveltu og af þessu varð ágóði, kr. 1.865,20. Þau heita f.v. fremri röð: Iris Reynisdóttir, Berglind Osk Guðmundsdóttir. Aftari röð: Kristján Guðmundsson, Kristín Margeirsdóttir, Asdís Arna Gottskálksdóttir og Anna Karína Sigurðardóttir. Ljósnt.: epj. KRAKKAR! Vinsamlegast komið í hlutaveltumyndatökur á fimmtudögum eða föstudögum. Ritstj. Bifreiðaeftirlitið: Skoðunarstöð byggð í Keflavík í dómsmálaráðuneytinu er nú verið að vinna að róttæk- um breytingum á starfsemi Bifreiðaeftirlitsins. M.a. er rætt um að breyta stofnun- inni í hlutafélag með aðild ríkisins og einkaaðila, s.s. tryggingafélaga, F.Í.B. og Bílgreinasambandsins. Yrðu aðalstöðvar í Reykjavík en fjórar skoðun- arstöðvar byggðar úti á landsbyggðinni og þar kemur Keflavík inn í mynd- ina en byggja á þar skoðun- arstöð er þjóna myndi Suð- urnesjum öllum. Þar yrði starfrækt þjónusta í líkingu við þá, sem Bifreiðaeftirlitið sinnir í dag. Tónlistarskólinn í Keflavik ÖLDUNGADEILD verður starfrækt í vetur. Kennslugreinar: Píanó og tónfræði. Innritun á morgun, föstudag 18. september í T ónlistarskólanum. LÁTIÐ GAMLA DRAUMINN RÆTAST. Skólastjóri I VÍTAMÍN OG HEILSUFÆÐI og holl elni til matargerða í miklu úrvali. 7 L 7 L 7 L NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR AÐ TRYGGJA SÉR. FRAMPARTA A STOR- LÆKKUÐU VERÐI. UÚFFENGIR í KJÖTSÚPUNA OG POTTSTEIKURNAR. HREIN NÁTTÚRUAFURÐ. HOLLT OG BRAGÐGOTT KJÖT. HA6KAUP FITJUM - NJARÐVIK 7 L 1 L 1 L

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.