Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.01.1988, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 28.01.1988, Qupperneq 6
murt 6 Fimmtudagur 28. janúar 1988 jtíttít Orðvar______________________ EKKI LENGUR GULLGRAFARABÆR Ef það hefur farið framhjá einhverjum, þá kom veturinn í síðustu viku ineð snjókomu og horkufrosti. Þetta er alvöru- snjór núna, því það marrar undir fótum manna eins og gengið sé á kartöflumjöli. Sann- kallaður heimskautasnjór. Síðasta helgi var með þeim fegurri hér á Suðurnesjum, hciðskírt og stillt veður. Fjalla- hringurinn austan og norðan Faxaflóa baðaði sig í sólinni. Með góðum sjónauka hefði mátt sjá fólk renna sér á skíðum í Siiæfellsjökli, svo tært var loft- ið. Þúsundir manna notuðu líka helgina til þess að renna sér á skíðum í Bláfjöllum, sálinni til hvíldar og líkamanum til hress- ingar. Mitt í allri þessari dýrð vakti samt óvenjuleg framtaks- semi nokkurra manna aðdáun og hrifningu þeirra sem leið áttu um Flugstöðvarveginn nýja. Fáeinir feður voru að leika við börnin sín á sleðum og snjóþotum efst við Flugvallar- veginn og neðan við Grænás- inn. I iér var uppákoma, sem þvi miður sást ekki oft sunnan Hafnarfjarðar í tugi ára. Frá því um 1950 og alveg fram á þcnnan dag liafa karlar á Suð- urnesjuin verið svo önnum kafnir við allt annað en barna- uppeldi, að furðu sætir. Örfáar undantekningar er þó að finna, ef vel er að gáð. A þessum árum minnist ég þess varla að liafa séð uppáklædda Keflvíkinga undir bcrum himni, nema á sjó- mannadaginn og á 17. júní, og svo auðvitað við jarðarfarir. Fyrir 20-30 árunt síðan fór liópur Keflvíkinga í hvítasunnu- ferð á Snæfellsnes og gist var í Stykkishólmi. Svo sem túrist- um er lagið fóru menn snemnia á fætur á hvítasunnumorgun í glampandi sólskini og lögðu allmargir upp í göngufcrð um þorpið. Sárafáir sáu nokkuð merkilegt við bæjarstæðið og gömlu húsin eða höfnina. En undantekningarlítið höfðu menn orð á því, í hvert skipti sem hópurinn mætti spariklædd- um heimilisfeðrum með barna- vagn eða smábörn í hátiðar- skrúða, að hér hlyti að ríkja al- gjört atvinnuleysi, eða í versta falli byggju menn hérviðóvenju mikið konuríki. Auðvitað áttu mennirnir að vera að vinna. Það skyldi þó eldrei vera, að þessir feður sem sl. sunnudag sáust leika sér við börnin sín í snjónum, séu einmitt afkomendur hvítasunnufaranna hér um árið? Þeir séu að veita börnum sínum þá athygli og þann tíma, sem þeir sjálfir fóru á mis við í æsku? Keflavik er ekki lengur gullgrafarabær. MannliTið er greinilega að róast og taka á sig manneskjulegri blæ. Menn sjást varla lengur í samræðum á liarða hlaupum. Þegar sú kynslóð sem nú er að vaxa upp, liefur komið báðum fótunum niður á jörðina, upp- götvar hún hundruð tækifæra til að njóta útivistar og samvista mcð allri ijölskyldunni, einmitt hér í nágrenninu. Fjöruferðir á Garðskaga eða Sandvíkina. Gönguleiðir eru þvers og kruss um allar trissur. Fjallgöngur á Keili eða Þorbjörn. Sundsprett- ur í Bláa lóninu. Skautaferð á Seltjörn. Útsýnisskífa er á Stapanum, sem sárafáir vita um. Veiðiferð niður á bryggju, og þannig er liægt að telja enda- laust upp. Reynið eitthvað af þess nú um hclgina. Góða ferð. Orðvar Félagsmálaskóli alþýðu „Arsenal tekur bikarinn“ 1. önn 7. - 20. febrúar 1988 Hvað kannt þú fyrir þér í fundarstörfum og framsögn? Hvað veist þú um verkalýðshreyfinguna, starf hennar og sögu? Áttu auðvelt með aö koma fram á fundum og samomum? Tekurðu þátt í félagslífi? Viltu þæta þekkingu þína í hagfræði, fékagsfræði og. vinnurétti? Veitt er tilsögn í þessum og öðrum hagnýtum greinum á 1. önn Félagsmálaskóla alþýðu, sem verður i ölfusþorgum 7.-20. febrúar n.k. Þá eru á dagskránni menningar- og skemmtikvöld auk heimsókna í stofnanir og fyrirtæki. Félagsmenn Alþýðusambands (slands eiga rétt á skólavist. Hámarksfjöldi á önn er 25 þátttakendur. Umsóknir um skólavist þurfa að berast skrifstofu MFA fyrir 4. febr. n.k. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MFA, Grensásvegi 16, simi 91-84233. „Ég spila í hverri viku og alltaf á opinn seðil. Það er mis- jafnt hvað ég set mikið á hann, yfirleitt er ég með tvö merki á 6-7 leikjum. Arangurinn hefurveriðsvona þolanlegur, mest 11 réttir", segir næsti tippari, Gísli Heiðarsson, knatt- spyrnumaður úr Garði og starfsmaður hjá Varnarliðinu. „Arsenal eru mínir menn. Þetta er eitt yngsta liðið í deild- inni og það skerpmtilegasta. Liðið sýndi það í byrjun móts- ins þó gengið hafi ekki verið eins gott upp á síðkastið. En ég er öruggur um að mínir menn komast á Wembley og vinna bikarinn. Liverpool fær deildina og búið. Hitt tökum við“, sagði Gísli Heiðarsson. Heildarspá Gísla: ÞEKKING, STARF OG STERKARI VERKALÝÐSHREYFING MFA Aston Villa - Liverpool ... 2 Barnsley - Birmingham ... 2 Bradford - Oxford ...... 2 Brighton - Arsenal ..... 2 Leyton Orland-Nott’m For. 2 Luton - Southampton ... X Man. Utd. - Chelsea .... 1 Mansfield - Wimbledon ... 2 Newcastle - Swindon .... 1 Portsmouth - Sheff. Utd. X Port Vale - Tottenham ... 2 Q.P.R. - West Ham....... 1 Grindvíkingurinn með 4 rétta Það var engin stjörnufans á Jóni Einarssyni úr Grinda- vík í síðustu leikviku. Hann fékk aðeins fjóra rétta. Þeir sitja því enn í efstu sætunum Jón Halldórsson og Sævar Júlíus- son með 8 rétta. Næstir með7réttaeru JóhannesEllertsson, Jóhann Benediktsson, Asbjörn Jónsson og Bjarki Guð- mundsson. Nú fer að styttast í úrslitakeppnina þar sem fjórir keppa um Wembley-ferð Samvinnuferða-Landsýn. MENNINGAR- OG FRÆÐSLUSAMBAND ALÞÝÐU SPARISJÓÐURINN í NJARÐVÍK TILKYNNIR BREYTT SÍMANÚMER FRÁ 1. FEB. SPARISJÓÐURINN NJARÐVÍK

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.