Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.1988, Qupperneq 15

Víkurfréttir - 10.03.1988, Qupperneq 15
mm juíUt Fimmtudagur 10. mars 1988 15 Er Gerðahrepp- ur sofandi? Undanfarið hafa um- ræður verið í gangi milli Keflavíkur og Njarðvíkur- bæja um Helguvíkurhöfn. Þessar umræður hafa spunnist út frá því að þess- ir bæir eru að yfirtaka landshöfnina af ríkinu. Njarðvíkurbær gerir kröfu til að fá hlut í Heiguvíkur- höfn líka. Mig undrar að ekkert skuli hafa heyrst frá hreppsnefnd Gerðahrepps um þetta mál. Eru ráða- menn hreppsins alveg fallnir frá þeirri ætlun sinni að fá þetta land til baka, en það var tekið af Gerða- hreppi á sínum tíma vegna þess að Keflavík vantaði land undir íbúðabygging- ar, en forsendur landtök- unnar brustu er ákveðið var að gera olíuhöfn í Helguvík. Það hefur heyrst að hreppsnefndin hafi skrifað öllum þingmönnum okkar bréf um þetta mál, en að aðeins einn hafi svarað og að það hafi verið þingmað- ur Borgaraflokksins sem frægur varð fyrir góða ræðumennsku í þinginu á dögunum. Hefur hreppsnefndin gert eitthvað raunhæft til að fá Helguvíkina til baka? Nú hlýtur tækifærið að vera komið, því sagt er að ,,hæg séu heimatökin", þar sem sveitarstjóri Gerða- hrepps er kominn á þing þessa dagana og því gullið tækifæri að koma með tillögu um að þessu landi verði skilað aftur, því notk- un þess er orðin allt önnur en ætlað var og voru aðal rök fyrir töku landsins á sínum tíma. Geirfuglinn á Gerðahólma Frá upphafí Helguvíkurframkvæmdanna. Ljósm.: cpj. „Léttir slipparar Agætu lesendur. Eins og fram kom í Víkur- fréttum 25.02. 1988 var árshá- tíð Skipasmíðastöðvar Njarð- víkur haldin 4.03. 1988 í veit- ingahúsinu Glaumbergi. Fór hátíðin í alla staði vel fram og skemmtu starfsmenn, makar og gestir þeirra sér stórvel. Hátíðin hófst með borð- haldi og ber að þakka mat- reiðslumönnum Glaumbergs sérstaklega fyrir aldeilis stór- góðan mat. Því næst var happ- drætti sem stutt hafði verið af nokkrum góðhjörtuðum fyrir- tækjum. Fyrirtæki þessi erú veitingahúsin Glaumberg, Glóðin og Brekka; bifreiða- verkstæðin Skipting og Berg; verslanirnar Hagkaup, Sam- kaup, Nonni og Bubbi, Stapa- fell og Frístund; sólbaðsstofan Sóley, Hörður rakari og Iðn- sveinafélag Suðurnesja. Að happdrættinu loknu skemmti Jóhannes Kristjánsson veislu- gestum og fór hann á kostum, svo vægt sé til orða tekið. Að skemmtidagskránni lok- inni sá hljómsveitin Upplyft- ing um fjörið og dansinn og tijkst henni frábærlega vel til. ETns og fram kom í áður- nefndri grein sá Margeir Mar- geirsson um veislustjórn og tókst honum vel upp. í lokin viljum við þakka öll- um fyrirtækjum og félögum fyrir veittan stuðning og sér- stakar þakkir til veislugesta fyrir frábæra skemmtun. Þá þökkum við Skipasmíðastöð Njarðvíkur fyrir að gera okkur kleift að halda hátíð þessa. Skemmtinefnd Nýja innimálningin frá Slippíelaginu BETT og MILTEX - er seld í. . . Litaval Baldursgötu 14 - Kellavik - Sírni 14737 Verslum þar sem málarameistari er til aðstoðar! ÚTGERÐARMENN? SJOMENN? ALLT TIL FISKVEIÐA HJÁ ÞJÓNUSTUMIDSTOD SJÁVARÚTVEGSINS. Asiaco hf. hefur þjónaö sjávarútveginum í meira en aldarfjóröung. Viö bjóöum úrval veiðarfæra, búnaðar og rekstrarvara til fisk- veiða og fiskiönaðar. Einnig seljum við fyrir ykkur aflann. Reyniö viðskiptin. Hröð afgreiðsla af lager eöa beint frá framleiðendum. asiaco Vesturgötu 2 Pósthólf 826 121 Reykjavík Sími (91) 26733

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.