Víkurfréttir - 10.03.1988, Síða 24
yfmn
^HÍUt
Fimmtudagur 10. mars 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. - Símar 14717, 15717.
SPURÐU SPARISJOÐINN
Grindavík:
Stórsðkn hjá
Þorbirni hf.
- Keypti loðnuskip og togara
IVð llskiskip hala b;cst
við skipallota Grindvíkinga.
I síðustu viku voru undirrit-
a ð i r kaupsam nin g a r
tvcggja skipa sem Þorbjörn
hl'. helur keypt.
Um er ;ið ræða loðnu-
vciðiskipið Magnús NK-72
og skuttogarann Asþór RK-
10. Magnús er 252 tonna
skip smiðað í Noregi 1967
l'yrir Norðlirðinga. Varskip-
ið lengt og ylirbyggt 1977.
Hefur það þegar verið
alhent Þorbirni hf'. Asþór
var smíðaður i Noregi 1970
en keyptur hingað til lands
1970. Mælist liann 237 tonn.
Ur hann nú í síðustu veiði-
f'erðinni á vegum Granda hf.
i Reykjavík, sem átti logar-
ann áður.
Með skipunum kom 22
þúsund tonna allakvóti, þ.e.
18 þúsund tonna loðnu-
kvóti og 4 þúsund tonna
bolliskskvóti. Fyrir á Þor-
björn hf. Ijögur fiskikip og
missti það fimmta á dögun-
um, Hral’n Sveinbjarnarson
III., sem strandaði við
I lópsnes.
t'
X
Magnús NK 72 cr loðnuskipsem þeir Þorbjarnarmenn í Grinda-
vík hafa nú kevpt ásamt togaranum Asþóri RK-ltí. Með þessum
skipakaupum eiga þeir 6 fískiskip, en eitt þeirra er þó til sölu,
Hrafn Sveinbjarnarson II. Ljósm.: cpj.
TÖLVUSKÓLI SUÐURNESJA:
MEÐ ÞVÍ BESTA SEM
ÞEKKIST HÉRLENDIS
Tölvuskóli Suðurnesja var
formlega tekinn í notkun síð-
asta föstudag. Skóli þessi er
settur á stofn út frá samvinnu
milli Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og fjölda félaga og fyrir-
tækja í atvinnulífinu, sem hafa
Úr tölvuverinu Itjá Tölvuskóla
lagt til fjármuni til endurnýj-
unar á tölvubúnaði FS.
Hafa aðilar í atvinnurekstri
á Suðurnesjum verið mjög
fórnfúsir í að hlúa að tækja-
kosti Fjölbrautaskólans. Er
fullyrt af fulltrúum skólans að
staða hans væri ekki jafn góð
og raun ber vitni ef þeirrar að-
stoðar hefði ekki notið við.
Kom þetta hvað best í Ijós
þegar Tölvuskólann bar á
góma t framhaldi af því að
endurnýja þurfti tölvubúnað
FS og séð var að það væri ekki
hægt með hinu nauma fram-
lagi ríkisvaldsins.
Var þá enn á ný leitað á náð-
ir fyrirtækja og félagasamtaka
á svæðinu, ásamt til Kiwanis-
hreyfingarinnar og Lions-
klúbbanna. Skilningur þeirra
sést best á þeirri staðreynd að
nú hefur skólinn eignast tölvu-
ver sem er með því besta sem
þekkist í íslenskum skólum.
Að auki hafa nokkrir aðilar
veitt skólanum önnur framlög
til tækjakaupa. Eru hér á ferð-
inni aðilar eins og Útvegs-
mannafélag Suðurnesja, Tré-
smiðja Þorvaldar Olafssonar
og feðgar i útgerð á Snæfells-
nesi.
Fram að þessu hafa Suður-
nesjabúar þurft að sækja til
Reykjavíkur eftir tölvumennt-
un í einhverjum tölvuskólanna
sem þar eru reknir. En nú er
ætlunin að nýta tölvuver skól-
ans í þágu Tölvuskóla Suður-
nesja sem reyndartelsteign FS
en verður starfræktur af sér-
stakri starfsstjórn sem mynd-
uð er af fulltrúum skólans
annarsvegar og einum fulltrúa
frá hverri starfsgrein á Suður-
nesjum hins vegar. Með því
eiga allar greinar atvinnulífs-
ins og almenningur á Suður-
nesjum að geta sótt tölvu-
menntun sína hér heima í hér-
aði.
Suðurncsja, einu því bcsta scm þekkist hcrlcndis. Ljósm.: mad.
Dagfari
ÞH tók
niðri I
Njarðvík-
urhöfn
Er loðnuskipið Dagfari
ÞH-70 var að leggjast utan á
nyrðri bryggjuna í Njarð-
víkurhöfn skömmu eftir há-
degi á sunnudag, tók það
niðri. Að sögn Meinerts
Nilssen halnarvarðar er
mjög fátítt að skip taki
þarna niðri, en bæði mun
það hafa hjálpað til að
skipið var mjög hlaðið og
eins var mikil Ijara.
Stöðvaðist skipið þannig
að framendi þess var kominn
að bryggjunni en afturend-
inn stóð fastur, en færðist
síðan að eftir því sem flæddi
að. Var skipið komið allt að
bryggju tæpum tveimur
klukkustundum eftir að það
tók niðri. Ekki er talið að
skipið hafi orðið fyrir alvar-
legum skemmdum við
óhapp þetta.
T
Dagfari ÞH á strandstað. Varð
að biða á aðra klukkustund þar
til hægt var að leggja afturenda
skipsins að bryggjunni.
Ljósm.: epj.
Þcir Hitaveitumenn hafa
trúlega grátið gleðitárum
við grátmúrinn . . .