Víkurfréttir - 20.10.1988, Qupperneq 10
mun
10 Fimmtudagur 20. október 1988
jutUt
RAGGI BAKARI KEMUR VÍÐA VIÐ í VÍKURFRÉTTA-VIÐTAL
„Gjaldþrot
er
Endurreisnin
-Ragnar, ef við hefjum frá-
sögnina þar sem gjaldþrot
Ragnarsbakarís er orðið að
veruleika?
„Þegar þetta á sér stað með
Ragnarbakarí í desember í
fyrra, þá stend ég frammi fyrir
því að vera með 50 manna fyr-
irtæki og eins og horfurnar
voru á atvinnumarkaðnum,
blasti ekkert nema atvinnu-
leysi við hjá þessu fólki. Hjá
skiptaráðanda_ kom upp á
borðið að Avöxtunarmenn
voru tilbúnir að kaupa þrota-
búið og setja sem skilyrði fjög-
ur atriði: 1. Að nafnið fylgdi
með. 2. Að nokkrir lykilmenn í
fyrirtækinu fylgdu áfram. 3.
Allt starfsfólkið héldi áfram
og 4. að allir viðskiptavinirnir
héldu áfram.
Til þess að gera þetta kleyft
og fyrirtækið héldi áfram
starfsemi og dytti þar með ekki
út úr bæjarfélaginu, þá ákváð-
um við Sigurður Gunnarsson
að tala við allt starfsfólkið. Við
skiptum því á okkur en hann
hafði verið byrjaður störf ann-
ars staðar en kom yfir á ný.
í stuttu máli endaði dæmið
þannig að allt starfsfólkið kom
aftur og allir þeir aðilar sem
talað var um. Nafnið fylgdi og
99% viðskiptavinanna komu
aftur. Þar með voru komnir
möguleikarnir á áframhaldi
bakarísins. Báðu þeir mig þá
að vera þarna verksmiðjustjóri
í þrjá mánuði, sem ég gerði.
Fannst mér ég bera skylda
til þess, þar sem ég hafði verið
með þetta fyrirtæki, að koma
þessu í gang aftur, hefði ég
möguleika á því. Umræðan í
blöðunum hér á svæðinu var
mér mjög vinsamleg og vil ég
nota tækifærið og þakka fyrir
það að þetta var ekki notað til
að draga menn niður í sorann,
því að menn eru nógu langt
niðri sjálfir á þessum tíma og
umfjöllunin snerist mikið um
atvinnumál hér á Suðurnesj-
um, sem var auðvitað alveg
rétt og þess vegna fannst mér
ég bera skylda til að leggja allt
mitt af mörkum til að þetta
færi í gang aftur og það fór í
gang, hvernig sem því hefur
reitt af síðan.“
Sælgætisbotna-
framleiðsla
„Að sjálfsögðu þurfti ég að
finna mér eitthvað að starfa
við eftir að þetta fór svona. í
samningum mínum við Ávöxt-
unarmenn kom fram að ég
hafði ætlað mér að setja upp
lítið fyrirtæki, svo ég gæti
starfað áfram við þessa fram-
leiðslu. Var talað um sælgætis-
botnana og var haft fullt sam-
ráð milli okkar um að ég fram-
leiddi þá eftir að ég færi frá
þeim og þeir myndu þá versla
við mig og dreifa þeim alveg
eins og ég hafði gert, ásamt
mér. Var ég hjá þeim fram í
marslok og byrjaði þá að
koma mér niður en sölu á
framleiðslu minni hóf ég í byrj-
un maí.
Að vísu hefur verið á bratt-
ann að sækja, því kynning á
þessari vöru hafði ekki verið
nægjanlega mikil á þessum
tíma. Þó hafði ég verið búinn
að vera með þetta í framleiðslu
á annað ár.
Vorum við að vísu búnir að
fara í kynningarferðir með
þetta en ekki fengið neinar sér-
stakar undirtektir. Svo aðfyrir
mér lá að framleiða, selja og
kynna.
Erum við búin að vera í því í
sumar nánast um hverja helgi,
á föstudögum og laugardög-
um. Höfum við annað hvort
Að sjá á eftir fyrirtæki sínu í gjaldþrot, fyrirtæki sem mað-
ur er búinn að leggja allan sinn metnað í, hlýtur að vera
óskemmtileg upplifun. Að taka síðan þátt í endurreisn þess
og stofna á ný annað fyrirtæki kallar á þrek og bjartsýni.
Sem betur fer eigum við enn nokkra slíka dugnaðarforka.
Einn þeirra er Ragnar Eðvaldsson, fyrrum framkvæmda-
stjóri Ragnarsbakarís h.f., en þaðfyrirtæki varðgjaldþrota
fyrir tæpu ári síðan. Aðstoðaði Ragnar við uppbyggingu
leiðir ýmsar vörur undir vörumerkinu Ragnars. Þennan
þess á ný á vegum Brauðgerðar Suðurnesja, kvaddi siðan
og stofnaði tertubotnaframleiðslu er Árbak heitir og fram-
mann tökum við nú tali.
Komumst við að því í þess-
um kynningum okkar víðs
vegar um landið að fólk spurði
um það hvort það gæti ekki
keypt þessi krem sem við
kynntum á botnunum. Fórum
við því út í að framleiða tvenns
konar krem á súkkulaðibotna,
ostasmjörkrem og súkkulaði-
smjörkrem. Þetta er komið í
gang en ég veit ekki enn svör-
unina við þessu.“
Fjármagnið
„Þegar ég fór út í þetta fyrir-
tæki var stofnað hlutafélag
með fjölskyldunni, bæði börn-
um og tengdabörnum. Lögðu
þau öll hlut í fyrirtækið. En að
mestu er fyrirtæki þetta fjár-
magnað með fjármagnsleigu
Féfangs. Hér inni eru nýjar
vélar, allar mjög fullkomnar
og bifreið sem tilheyrir fyrir-
tækinu. Hér höfum við at-
vinnu, ég og konan mín. Við
erum bara tvö í þessu.“
HÚSGAGN ASPRAUTUN
SPRAUTUM HUSGOGN,
riNNIHURÐIR OG MARGT FLEIRA
BÍLARÉTTING 3
iGrófin 20A - Sími 13844 • Hs. 11868
verið á Reykjavíkursvæðinu
eða úti á landi í stærri mörkuð-
unum og kynnt okkar vöru.
Hefur okkur orðið vel ágengt
og er þessi framleiðsla orðin
viðurkennd og salan orðin
þokkaleg. Get ég því ekki sagt
annað en að þetta hafi bara
gengið mjög vel.“
Framleiðslan
-Er hið nýja fyrirtæki, Ár-
bak, eingöngu í sælgætisbotn-
um eða eru það líka á tertu-
botnalínunni?
„Tertubotnalínunni. Við
erum núna með sjö tegundir í
framleiðslu og erum með aðr-
ar sex á teikniborðinu. Á sín-
um tíma framleiddum við
kartöflusalat eftir gamalli
uppskrjft frá konu minni og
skelltum við því nú í gagnið
aftur og seljum. Nýjasta fram-
leiðslan er krem sem við erum
byrjuð að dreifa í verslanir og
er það í beinu framhaldi af
botnunum.
Schakái He^laátkut
ORÐABÆKUR
Byggöasafn Suöurnesja
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aörlr timar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
ömurlegt“
\iiKun
juíUt
Mynd og texti:
Emil Páll
CITIZEN
Reiknivélar
frá kr. 2.900.-
NESBÓK
Hafnargötu 54 - Sími 13066
-Stendur þetta fyrirtæki vel
undir sér?
„Þetta stendur, já, vel undir
sér.“
-En eruð þið ennþá inni á
dreifingarlínu Ragnarsbak-
arís eða eruð þið komin sér?
„Við erum alveg komin út
úr því. Því miður lítur dæmið
þannig út í dag hjá mér að ég
kem til með að tapa á báðum
eigendum Ragnarsbakarís og
ekki má maður við mjög
miklu. Því ég er með langan
hala á eftir mér út úr þrotabúi
Ragnarsbakarís, sem ég er bú-
inn að semja um að einhverju
leyti og ég ætla mér að ná mér
upp úr þeim dal sem ég er í. Ég
ætla á réttan kjöl, en það er
þungur róður.“
Gott vörumerki
-Nú er það algengt að fólk
rugli saman vörumerkjum
Ragnarsbakarís og þessa fyrir-
tækis þíns. Veldur það þér ekki
óþægindum?
„Það er algengt að hringt sé
hingað og spurt hvort þetta sé
ekki Ragnarsbakarí. Geri ég
ekkert í því að leiðrétta fólk á
þessu.
Þetta Ragnarsmerki er búið
að vinna sinn sess á markaðin-
um og hefur að mínu mati
fengið frekar góða dóma. Ég
get ekki séð að þó mín vara
heiti Ragnarsbotnar eða
Ragnars sælgætisbotnar að
það skemmi nokkuð fyrir
Ragnarsbakaríi, meðan fram-
leiðslan í Ragnarsbakaríi er
viðurkennd sem góð vara. Ég
get ekki heldur séð að hún
skemmi neitt fyrir mér.“
-Er þá engin hætta á að þið
ruglið saman reitum og farið
inn á framleiðslulínu hvors
annars? Ottastu ekkert að þeir
fari inn á botnaframleiðslu?
„Nei, það er ákveðið í samn-
ingnum sem við gerðum okkar
á milli að þeir færu ekkert inn á
þessa línu, enda er ég búinn að
gjörbreyta uppskriftum,
pökkunaraðferð og öðru,
þannig að ég á ekki von á að
þeir fari út í þá línu.
Meðan Ragnarsbakarí er í
gangi fer ég ekki að framleiða
þá vöru sem þeir eru með, ein-
faldlega vegna þess að mér er
annt um þetta fólk sem vinnur
þarna uppfrá og að það hafi þá
atvinnu frá Ragnarsbakarí
sem hægt er. En það er ómögu-
legt að segja hvað maður gerir
ef Ragnarsbakarí lognast út
af.“
Dreifingin
-Dreifir þú þinni vöru víða?
„Allir stórmarkaðir hema
Fjarðarkaup í Hafnarfirði eru
með þessa vöru, þeir hafa ekki
pláss en ég vonast til að kom-
ast þar inn, nú þegar þeir
stækka. Er ég kominn á alla
stærstu staði úti á landi, þar
sem búa 500 manns ogfleiri og
ég dreifi þessari vöru sjálfur.
Fylgist með hillunum og með
dagsetningunni, nema úti á
landi. Þannig að ég get ekki séð
annað en að þetta sé komið í
mjög góðan farveg eins og það
er.
Nú er ekkert annað en að
halda uppi gæðunum, bæta við
tegundum og þannig held ég
þessu fyrirtæki uppi réttum
megin við strikið."
Sjálfur með
puttana í öllu
-Þá er það lokaspurningin,
Ragnar, hvernig líkar þér að
vera símadama, dreifmgar-
stjórinn, bakarinn og fram-
kvæmdastjórinn?
„Ég get sagt þér að mér lík-
ar það vel. Það er ömurlegt
hlutskipti, eins og mitt hlut-
skipti var orðið þarna uppi í
Ragnarsbakaríi, að horfa í
rauninni á framleiðsluna
hraka fyrir það að ég komst
ekki sjálfur niður á gólfíð til að
aðstoða mína menn við að
halda uppi fullri framleiðslu
og fullum gæðum. Horfa inn í
þessum kassa, við að útvega
peninga allan minn tíma, sem
ég var þar.
Hér held ég um alla þættina
sjálfur og ég get ekki séð annað
en ég sé að ná sjálfstraustinu
upp á himininn á ný.“
Fimmtudagur 20. október 1988 11
Ferskur veitingastaður í
notalegu umhverfi, þar
sem þjónustan er frábær
og þú nýtur þess að
snæða Ijúffenga rétti.
----------------ii--------------
Yfmnatreiðslumaður Sjávargullsins,
Daði Kristjánsson, og starfslið
hans, sjá um að kitla bragð-
laukana.
--------------14------------
A TH. Matargestir greiða ekki að-
göngueyri á dansleik í Glaumbergi.
OPIÐ
Föstud., laugard.
og sunnud. frá
kl. 18:30.
Borðapantanir
daglega i síma
\
VfRv/
r W
anir ■
SjAVARQULUD
u' RESTAURANT
Vélavörður
Vélavörð vantar á bát sem fer til síld-
veiða um mánaðamót október/nóv-
ember. Upplýsingar gefnar í síma
11108.
VETRAR DEKK
í öllum stærðum og gerðum.
w
L
Fyrir þá sem velja
það besta.
NORÐDEKK
Heilsóluö
radialdekk
GOODYEAR
loi^ðalstöðin
Hjólbarðaþjónustan - Sími 11516