Víkurfréttir - 20.10.1988, Qupperneq 16
VÍKUR
16
Fimmtudagur 20. október 1988
jUUi*
F atasöfnun
Fatasöfnun Rauðakrossdeildanna á
Suðurnesjum fer fram laugardaginn
22. október og sunnudaginn 23.
október. Móttökustaðir:
Keflavík og nágrenni: í húsi björgun-
arsveitarinnar Stakks, Iðavöllum 3d.
Grindavík: Safnaðarheimilið við
kirkjuna.
Móttaka fer fram frá klukkan 10:00
til 18:00 báða dagana.
Rauðakrossdeildin á Suðurnesjum og
Rauðakrossdeildin í Grindavík.
ÚTBOÐ
Byggingarnefnd Dvalarheimila aldr-
aðra Suðurnesjum óskar eftir tilboð-
um í gerð sökkla, lagna í grunn og
botnplötu viðbyggingar við Hlévang,
Faxabraut 13-15, Keflavík.
r
Utboðsgögn verða afhent frá og með
mánudeginum 22. okt. á Teiknistof-
unni Artik, Hafnargötu 32, Keflavík,
gegn 5000 króna skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu
S.S.S. að Vesturbraut lOa, Keflavík,
mánudaginn 31. okt. n.k. kl. 11 fyrir
hádegi.
Athugasemd frá
oddvitanum í Garði
Hr. ritstjóri.
I blaði yðar 13. okt. s.l. var
grein er bar yfirskriftina: Það
andar köldu frá ykkur til bæj-
arstjórnarinnar.
I grein þessari er m.a. von-
ast til þess að blað yðar taki
með velvild uppástungum um
umræðuefni m.a. þessu:
Hvort það sé eðlilegt að
pólitískur metnaður oddvit-
ans í Garði sé settur framar
æpandi neyð gamla fólksins í
Keflavík/Njarðvík.
Annað eins smekkleysi hef
ég ekki lengi séð.
Við Suðurnesjamenn vil ég
segja: Pólitískur metnaður
oddvitans i Garði hefur aldrei
verið settur framar æpandi
neyð gamla fólksins í Kefla-
vík/Njarðvík, né heldur mun
það koma til meðan ég gegni
því embætti.
Þar sem oddvitinn hefur að
starfi að vera framkvæmda-
stjóri Dvalarheimila aldraðra
Suðurnesjum er smekkleysið
enn alvarlegra.
Þeir sem til þekkja vita að ég
hef kappkostað að nýting
þeirra plássa sem sveitarfélög-
in eiga sé í samræmi við eignar-
aðild þeirra. Þannig hefur
Keflavík nú 30 af 31 plássi
sínu. Æpandi neyðin er nefni-
lega vegna þess að mjög skort-
ir á að nægt rými sé til staðar.
Því ætti fólk að snúa sér til
sinna manna í bæjar- og sveit-
arstjórnum með vandamálið.
Fjölmargir Suðurnesja-
menn hafa reynslu af vinnu-
brögðum mínum að málefnum
í þágu aldraðra og þekkja
skoðanir mínar varðandi upp-
byggingu öldrunarmála á
svæðinu. Þar hefur ekki verið
níðst á æpandi neyð aldraðra í
Keflavík, Njarðvík eða annars
staðar. Það er því pólitískur
metnaður einhverra annarra
sem athuga þarf.
Finnbogi Björnsson,
oddviti í Garði.
„Bíll“ í björtu báli
Síðdegis á miðvikudag í síðustu viku var kveikt í óskráðum bíl af Fiat-gerð, þar sem hann stóð á plani
brunarústanna hjá Keflavík h.f. við Íshússtíg. Fr slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögregla komu á
vettvang var bílflakið alelda. Tók slökkvistarfið skamma stund. Ljósm.: epj.
Hitaveita Suðurnesja:
Virkjun Trölla-
dyngjusvæðis
ekki í bígerð
Fulltrúar Hitaveitu Suður-
nesja hafa átt í viðræðum við
forsvarsmenn Lindalax h.f.
um hugsanlega samvinnu um
virkjun í Trölladyngju.
Að sögn Ingólfs Aðalsteins-
sonar, forstjóra, telur stjórn
Hitaveitunnar að síðasta til-
boð aðila sé ekki aðgengilegt
og ekki sé ástæða fyrir Hita-
veituna að taka þátt í virkjun,
þar sem fyrirsjáanleg er mikil
áhætta eða jafnvel tap. Sér
stjórnin sér því ekki fært að
taka upp viðræður um virkjun
Trölladyngjusvæðis í sam-
vinnu við Lindarlax h.f.
Sagði Ingólfur að þrátt fyrir
þetta sæi Hitaveitan ekki skort
á orku því hún hefur þegar
tryggt sér stór orkusvæði s.s. í
Eldvörpum og á Reykjanesi.