Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.1989, Page 7

Víkurfréttir - 09.03.1989, Page 7
MÍKUK juiUt Vatnsleysustrandarhreppur: Framkvæmdir við sjóvarnargarða Kökubasar og aðalfundur slysavarna- kvenna Hinn árlegi basar Slysa- varnadeildar kvenna í Kefla- vík verður haldinn í Iðn- sveinahúsinu nú á laugardag oghefstkl. 14. Hveturbasar- nefndin félagskonur til að muna eftir kökunum og koma með þærmilli kl. 11 og 13 á laugardag. Basar þessi er aðalíjáröfl- unarleið deildarinnar og samkvæmt venju má búast við mikilli þátttöku en síðast seldist allt upp á 20 mínút- um. Eru konur hvattar til að muna eftir basarnum og styrkja um leið gott málefni. Þá verður aðalfundur deildarinnar haldinn á sama stað, mánudaginn 13. mars og hefst hann kl. 20:30. Auk venjuiegra aðalfundarstarfa verður kaffi á staðnum. Hvetur stjórn deildarinnar konur til að mætai vel og veita slysavörnum lið. Vatnsverndarfélag: Undirbúnings- nefnd skipuð Öll sveitarfélögin á Suður- nesjurn hafa tilnefnt fulltrúa i nefnd til undirbúnings vatnsverndunarfélags. Þeir eru eftirtaldir: Egill Ólafsson, Miðnes- hreppi, Guðfinnur Sigur- vinsson, Keflavík, Ingi- mundur Guðnason, Gerða- hreppi, Jón G. Stefánsson, Grindavík, Oddur Einars- son, Njarðvík, Ómar Jóns- son, Vatnsleysustrandar- hreppi og Þórarinn St. Sig- urðsson, Hafnahreppi. 300 þús. í vigtar- framkv. Það hefur vakið athygli margra, þó sérstaklega þeirra sem stunda sjósókn frá öðrum stöðum en Vogun- um, að þar landa menn tals- verðu af fiski en þó er engin hafnarvigt á staðnum. Þetta stendur þó til bóta, því í samtali við Vilhjálm Grímsson, sveitarstjóra, kom fram að hann vonaðist til þess að vigt kæmist í gagn- ið á þessu ári en tæplega þó á þessari vertíð. A fjárhags- áætlun hreppsins fyrir árið 1989 er gert ráð fyrir 300 þús. kr. til að koma upp bráða- birgðaaðstöðu vegna vigtar. ,,Það er ekki útbreitt vandamál að menn sleppi við að vigta hér, þó er það til,“ sagði Vilhjálmur að lokum. gub. í síðasta tbl. Víkurfrétta mátti sjá útboðsauglýsingu frá Vatnsleysustrandar- hreppi, þar sem tilboða var óskað í gerð brimvarnar- garðs í Vogahöfn og sjóvarn- argarðs í Brunnastaðahverfi. Vilhjálmur Grímsson, sveitarstjóri, sagði í samtali við blaðið að brimvarnar- garðurinn, sem um væri að ræða, væri 150-160 metra lenging á svokölluðum ,,Eiðs“granda. Reiknaði Vil- hjálmur með að um 10.000 m3 af grjóti færu í lenging- una. Sjóvarnagarðurinn, sem getið var um í útboðsauglýs- ingunni, er hins vegar fram- hald til suðurs af sama garði neðan við Neðri-Brunnastaði og Naustakot. Garðar þessir eru gerðir á þeim stöðum sem þeirra er helst talin þörf samkvæmt skýrslu frá Hafn- armálastofnun ríkisins, Um landbrot og flóðahættu á Reykjanesi. Vilhjálmur sagðist vonast til þess að framkvæmdir gætu hafist í lok mars. gub. (j/am 'a SKEMMTISTAÐUR um helgina Diskótek föstudag kl. 23-03. Snyrtilegur klæðnaður, 18 ára aldurstakmark. Miðaverð 700 kr. Laugardagur 11. mars. Rokksveit Rúnars Júlíussonar leikur fyrir dansi kl. 22-03. Snyrtilegur klæðnaður, að- gangseyrir 700 kr. Aldurstakmark 20 ára. Fimmtudagur 9. mars 1989 7 GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR FULL BÚÐ AF NÝJUM UMGJÖRÐUM -Mjúkar snertilinsur á lager, í flestum styrkleikum. Pantið tíma í síma 13811. ATVINNA Vantar mann til að stála og leggja á hnífa fyrir vinnslusal. Uppl. í síma 14666. BRYNJÓLFUR hf. Hvernig væri að bjóða elskunni sinni út að borða á Sjávargullið, sem erferskur veitinga staður í notalegu umhverfi? Nú hefur verið tekinn upp nýr og breyttur matseðill, með réttum sem gæla við bragðlaukana. Ef þú vilt í stuðið á eftir, þá er Glaumberg opið matargestum endurgjaldslaust. SJÁVARGULLI U RESTAURANT

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.