Víkurfréttir - 09.03.1989, Page 8
\)ÍKUR
jutUi
8 Fimmtudagur 9. mars 1989
molar
Grín - Gagnrýni - Vangaveltur
Umsjón: Emil Páll
Vandræði
flugvallarlögreglu
Þrátt fyrir nokkuð góðan
snjómokstur á Keflavíkur-
Njarðvíkursvæðinu virðist
lögreglustöðin í Grænási
hafa verið alveg út úr snjó-
ruðningsáætlunum. Stöð
þessi er sem kunnugt er utan
flugvallargirðingar en innan
bæjarmarka Njarðvíkur.
Engu að síður hafa Njarðvík-
ingar ekki hreinsað snjóinn
af svæðinu og því hefur það
bjargað flugvallarlögreglu
að hafa yfir jeppa að ráða,
svo hún komist að og frá
stöðinni. Ekki má varnarlið-
ið hreinsa utan vallar, þó
lögreglustjórinn hafi á sínum
tíma lýst því yfir að svæði
þetta væri varnarsvæði.
Eins og ein góð blokk
Miklar byggingafram-
kvæmdir í Höfnum á mæli-
kvarða þess byggðarlags
myndu vart teljast stórfram-
kvæmdir í öðrum byggðar-
lögum á svæðinu. Enda eru
íbúar Hafna aðeins rúmlega
eitt hundrað eða eins og
heildaríbúatala í góðu fjöl-
býlishúsi t.d. í Keflavík og
Njarðvík eða lítil gata í hin-
um byggðarlögunum.
Allir orðnir
steindauðir?
Þrátt fyrir mikið fjaðrafok
í kringum söluna á HK-tog-
urunum virðast ráðamenn,
bæði sveitarstjórnamenn og
alþingismenn, nú vera alveg
steindauðir. Því síðan HK-
málið kom upp er búið að
selja mikið af skipum burt af
svæðinu án þess að þessir
menn svo mikið sem ,,pústi“.
Það er ekki nógaðhalda ráð-
stefnu um fríiðnaðarsvæði og
tala á fundum um vandamál-
ið, ef árangurinn er ekki
neinn, eins og hér virðist eiga
sér stað.
Vandræðin
með „hann“...
Er sú danska sýndi sig á
herrakvöldinu í Keflavík á
dögunum skemmtu við-
staddir sér við óvæntar
uppákomur, sem við munum
ný skýra nánar. Að lokinni
sýningu bar sú danska á sig
olíu og gekk því næst að ein-
um viðstaddra er stóð á-
lengdar úii í sal lullklædd-
ur, meira að segja í frakka ut-
an yfir, en sú danska aðeins í
Evuklæðum. Hóf hún þegar
þá iðju að fækka fötum á
kauða og strjúka sínum olíu-
borna líkama við stráksa.
Hætti hún ekki að afklæða
hann fyrr en hann stóð á
nærbuxunum einum fata.
Áfram hélt hún að strjúka
hann og fóru leikar að sjálf-
sögðu á þann veg að kauði
var komin í mikil vandræði
með litla manninn í nærbux-
unum, svo af varð hin mesta
skemmtun fyrir viðstadda.
...og síðan dó
hann aftur
Þá kom upp annað atvik,
sem viðstaddir höfðu einnig
gaman af. Einn herramann-
anna hafði dáið ölvunar-
dauða undir sýningu þeirrar
dönsku. Var hún því fengin,
eftir að hún var komin í Evu-
klæðin eingöngu, til að fara
út í sal og vekja kauða. Eftir
að hún hafði faðmað hann að
sér rankaði hann við, stóð
upp, tók af sér jakkann og
setti hann yfir berar axlir
stúlkunnar svo henni yrði
ekki kalt að standa svona
nakin, og dó síðan á ný. Svo
segja menn að herramenn
séu ekki til á Islandi...
Hannes eða Sigmar
í vatnsveituna?
Hver verður ráðinn vatns-
veitustjóri fyrir hina nýju
vatnsveitu? Um það spyrja
margir þessa dagana, enda
sjálfsagt að hér sé um feitan
bita að ræða. Samkvæmt
heimildum Mola hafa tvö
nöfn verið uppi í þeim efn-
um. Annars vegar nafn nú-
verandi vatnsveitustjóra
Njarðvíkinga, Sigmars Inga-
sonar, og hinsvegar nafn sem
menn telja mun líklegra sem
það endanlega. Það er nafn
Hannesar Einarssonar, for-
manns bæjarráðs Keflavík-
ur.
Margrét Knúts
í Fordkeppninni
Sextán ára gömul, keflvísk
stúlka, Margrét Knútsdóttir,
hefur verið valin í úrslit tíu
stúlkna í Ford-fegurðar-
keppninni. En þess varvænst
að í gærkvöldi yrði valin sú
stúlka sem ynni keppnina
hérlendis í ár. Margrét er
fædd 23. janúar 1973, dóttir
hjónanna Knúts Höiriis og
Elínar Guðmannsdóttur.
Franskar pen-
ingakartöflur?
Það hafa margir skemmt
sér yfir innbrotsmálinu í
Vogum. Ekki það að innbrot
sé til að hafa í flimtingum,
frekar það að peningarnir
voru geymdir hjá frönsku
kartöflunum í frystikistu
kaupfélagsins. Hafa menn
því haft á orði að réttast væri
fyrir Samvinnubankann að
bjóða fólki framvegis upp á
franskar kartöflur með pen-
ingum innan í. Svo mættu
þær vera opnar i báða enda,
eins og stundum er sagt um
þá samvinnu/framsóknar-
menn.
Hvað á þetta
að þýða?
Eftirfarandi tilvitnun er úr
nýjasta fréttabréfi Ríkismats
sjávarafurða: „Ónefndur
bátur á Suðurnesjum kom
með sex nátta fisk að landi
fyrir skömmu og var fiskur-
inn að talsverðum hluta orð-
inn morkinn og mjög ljótur
útlits. Fiskurinn var ekki af-
hentur í kössum heldur
sturtað lausum á gólf mót-
töku þess húss, sem keypti
hann. Hvað eiga nú svona
vinnubrögð að þýða?“ Er
nema von að Ríkismatið
spyrji?
Þorsteinn Már
Baldvinsson úreltur
I síðasta blaði sögðum við
frá nafngiftinni Baldvinsson,
sem komið er, samkvæmt
opinberum skrám, á gömlu
Hraunsvíkina frá Grinda-
vík. Sá bátur er í eigu Sam-
herja á Akureyri eins og tvö
önnur skip sem á að úrelda.
Það er togarinn Þorsteinn og
bátur sem þeir keyptu frá
Siglufirði og hefur fengið
nafnið Már EA 310, sam-
kvæmt Islensku sjómannaal-
manaki 1989. Með öðrum
orðum á því að úrelda Þor-
stein Má Baldvinsson, en
það er einmitt nafnið á fram-
kvæmdastjóra Samherja,
þeim sama Þorsteini og hér
einu sinni stjórnaði Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur h.f.
Enga aðstoð
þingmanna
Það virðist vera orðin eins-
konar lenska hér á landi að
kvarta yfir lélegum fram-
gangi þingmanna, a.m.k.
þeirra sem þjóna eiga
Reykjaneskjördæmi. Skor-
aði því frummælandi á fundi
D-álmu samtakanna á fund-
armenn að reisa langlegu-
deild án tilhlutan þing-
manna, því það dygði
skammt. Ef bíða ætti eftir
peningum til þessara hluta
frá þeim yrði D-álman aldrei
byggð. Svo mörg voru þau
orð.
Urgur í
SBK-mönnum
Mikill urgur er í starfs-
mönnum Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur vegna kaupa fyr-
irtækisins á hópferðabifreið-
um Steindórs Sigurðssonar.
Er það aðallega vegna þess
að Steindór sjálfur mun
koma í raðir SBK-manna og
óttast SBK-menn að það
leiði til ýmissa breytinga.
Hafa þeir því á hornum sér
að hann skuli vera að koma
og að þeir þurfi kannski að
vinna undir hans stjórn. Þó
er það álit flestra annarra en
SBK-manna að nú sé nauð-
synlegt að nota þetta tæki-
færi til að hræra vel upp í
starfsemi SBK.
Formaðurinn kom-
inn í góða stöðu
Nýr framkvæmdastjóri
hefur verið ráðinn við stjórn
verkamannabústaða í Kefla-
vík. Sá sem hreppti hnossið
að þessu sinni er jafnframt
formaður Alþýðuflokksins í
Keflavík, en staða þessi hef-
ur lengi verið innan þess
fiokks.
Mikil hátíð
Þá er kjöri fegurðar-
drottningar Suðurnesja lok-
ið að þessu sinni. Fór kjörið
fram við mikla hátiðarat-
höfn í Glaumbergi. Sem fyrr
komust miklu færri að en
vildu, enda er það marg við-
urkennt að hvergi á lands-
byggðinni er eins mikið lagt
krýningarkvöldið og hér á
Suðurnesjum. Vonandi tekst
þó í framtíðinni að koma
fieiri gestum að á kvöldi
þessu, enda má segja að þessi
hátíð sé ein mesta hátíðin
sem boðið er upp á hér syðra
og því lengi í minnum höfð
sökum glæsileika.
Enn í jólaskapi
Þó nú sé liðið vel á þriðja
mánuð frá jólum, þá er enn
að finna aðila sem hafa uppi
útiljósaseríur og aðrar jóla-
skreytingar. I Sandgerði gef-
ur að líta þessa skemmtilegu
skreytingu utan á fyrirtæk-
inu Jóni Erlings. Kannski að
hún verði tekin niður á Þor-
láksmessu til þess að hreinsa
ryk og annan óþverra af
henni, svona fyrir næstu
jólakomu...
Landsbankinn
í Hólmgarðinn?
Landsbankinn lcilar nú
logandi Ijósi að húsnæði l'yrir
siarlsemi sína i Kellavík, að
þvi er háværar raddir herina.
Nýjustu Iréttir í þeim málum
munu vera þær, að bankinn
mun haln boðið i pláss I ri-
stundar í I lólmgarði 2 i
Kcflnvik, scm cr í þjónustu-
kjarna verslana og hýsir m.a.
bjórrikið vinsæla. Mun
stærsta lánasiolnun lands-
ins hala boðið rillega i I ri-
slundarplássið, en verslunin
llutli þar inn lyrir þremur
mánuðum síðan. I ilboð
bankans mun hafa komið
llall uppáeiganda l ristund-
ar, Áslþór B. Sigurðsson, cn
hann cr nú að iluiga þclla
gylliboð.
Líðan kennara
í starfi
Mörgum þykir mikið um
Iri i skólum landsins. Næsta
löstudag iminu ncmendur
grunnskóla svæðisins lá Iri.
Tilefnið er ráðstelna kenn-
ara, er ber ylirskriflina ,,Líð-
an kcnnara i starli". Ráð-
stcfnan hclst kl. 9 um morg-
uninn og stendur Iram að
síðdegis k a 11 i. K e n n a ra rn i r
stoppa um hádegið og laka
þá malarhlé. Kunnugir
menn lelja að ráðsielnutím-
inn muni ekki laka nema um
4 tíma, mesta lagi fimm. Þvi
helði mátt halda ráðstcfn-
una t.d. Irá kl. 3 til kvöld-
malar og þá hclðu blessuð
börnin ekki misst úr heilan
dag lyrir máleliii sem sum-
um þykir þeim ekki koma
neitl við. og foreldrar margir
hverjir ekki lieldur þurft að
koma börnunum l'yrir hjá
ömmu og afa eða Siggu
Irænku . . .
MESSUR
Keflavíkurkirkja
Laugardagur 11. mars.
Arnað heilla:
Jóhanna Sigurðardóttir og Jay Al-
ex Martin, Elliðavöllum 3, Kella-
vík, verða gefin saman í hjóna-
band kl. 17.
Sunnudagur 12. mars:
Sunnudagaskólakrakkar takið eft-
ir! Sunnudagaskólastarfinu lýkur
um þessa helgi. Afhending verð-
launa fyrir skólasókn í vetur. Far-
ið verður í stutt ferðalag.
Sóknarprestur
Ytri Njarðvíkurkirkja
Basar kirkjukórsins laugardag kl.
14 í safnaðarsalnum. Barnastarf
sunnudag kl. 11.
Fyrsta samvera nýs hóps um sorg
og sorgarviðbrögð í umsjá sr.
Þrastar Steinþórssonar, formanns
Bjarma, mánudagskvöld kl. 20:30.
Upplýsingar hjá sr. Þresti ogsókn-
arprestunum á Suðurnesjum.
Sóknarprestur
! /cs.
HH
Innri Njarðvíkurkirkja
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11 í umsjá Helgu Óskarsdóttur og
Láru Guðmundsdóttur.
Sóknarprestur
Útskálakirkja
Sunnudagaskólinn verður kl. 11.
Munið sunnudagaskólapóstinn.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Hvalsneskirkja
Sunnudagaskólinn verður í grunn-
skólanum Sandgerði kl. 14. Munið
sunnudagaskólapóstinn.
Hjörtur Magni Jóhannsson